Tíminn - 06.02.1976, Page 3

Tíminn - 06.02.1976, Page 3
Föstudagur (i. febrúar 1976. TtMINN 3 BHM vill verkfalls- rétt, en ekki afsal æviráðningarinnar i SKÓÐANAKÖNNUN, scm Bandalag háskólamanna gekkstfyrir meðal rikisstarfs- manna innan BHM, kemur i Ijós, að yfirgnæfandi meiri- liluti þeirra vill verkfallsrétt, en naumur meirihluti vill ekki kaupa þann rétt með afsali æviráðningar. Mikill meiri- liluti er þvi meðmæltur að undanskilja einhverjar stöður verkfallsrétti, og enn sterkari meirihluti telur æskilegt, að nefndir meti hæfni umsækj- enda I ábyrgðarstöður. Lang- flestir þeirra, sem þátt tóku i skoðana könnuninni, telja æskilegt, að ráðið sé i ábyrgð- arstöður til ákveðins tima. Hér á eftir fer fréttatilkynn- ing frá BHM, og þar eru ná- kvæmar niðurstöður skoðana- könnunarinnar: Verkfallsréttur opinberra starfsmanna var mjög til um- ræðu s.l. haust, m.a. vegna kröfu BSRB um verkfallsrétt. Stjórn BHM taldi þvi nauðsyn- legt að marka stefnu i verk- fallsréttarmálum. 1 þvi skyni var boðað til tveggja for- mannafunda hinn 11. og 20. nóvember s.l. Asiðari fundin- um var samþykkt að efna til skoðanakönnunar á vegum BHM um verkfallsrétt opin- berra starfsmanna og önnur atriði, sem varða réttarstöðu þeirra. Nefnd hefur verið skipuð á vegum rikisins til viðræðna við BHM og BSRB um endur- skoðun laga, sem varða rétt- arstöðu opinberra starfs- manna, með það fyrir augum aðopinberir starfsmenn öðlist verkfallsrétt. Þrir fundir hafa verið haldnir með viðræðu- nefnd BHM, en i henni.eiga sæti Jónas Bjarnason, Jón Rögnvaldsson, Hrafn Braga- son, Guðriður Þorsteinsdóttir, Jón Hannesson, Almar Grims- son og Skúli Halldórsson. Skoðanakönnuninni er nú lokiö. Spurningalistar voru sendir öllum rikisstarfsmönnum innan BHM. Svör bárust frá u.þ.b. 50%, og fara svör þeirra hér á eftir. 1. Vilt þú að opinberir starfsmenn fái verkfallsrétt? Óákv. 6,1% — Auðir 1,6% — Já 61,0% — Nei 31,3% 2. Telur þú að þennan rétt megi kaupa með afsali æviráðning- ar? Óákv. 8,2% — Auðir 10,7% — Já 40,2% — Nei 40,9% 3. Telur þú að verkfallsréttur eigi að vera I hönd- um: a) heildarsamtaka og einstakra aðildarfélaga — Já 42,5% b) heildarsamtaka —- Já 21,5% c) einstakra aðildarfélaga — Já 12,1% Auðir seðlar 23,9% 4. Telur þú að verkfallsréttur eigi að vera með sama sniði og hjá ASl? Óákv. 33,8% — Auðir 21,3% — Já 21,2% —Nei 23,7% 5. Telur þú að þörf sé á að setja sérstök lagaákvæði um fram- kvæmd verkfalls? Óákv. 8,0% — Auðir 18,7% — Já 64,8% — Nei 8,5% 6. Telur þú rétt að undanskilja einhverjar stööur verkfallsrétti? Óákv. 9,4% — Auðir 17,4% Já 53,0% — Nei 20,2% 7. Telur þú æskilegt að settar verði nefndir til þess aö meta hæfni umsækjanda i ábyrgðarstöður? Óákv. 10,7% — Auðir 7,4% Já 67,8% — Nei 14,1% 8. a) Telur þú æskilegt að ráðið sé I ábyrgðarstöður til ákveö- ins tima. Óákv. 9,5% — Auðir 5,5% — Já 74,3% — Nei 10,7% b) Telur þú þá þörf á þvi að viðkomandi starfsmanni sé tryggt annað starf hjá rikinu? Óákv. 15,9% — Auðir 14,5% — Já 37,8% — Nei 31,8% 9. Telur þú að samstarf BHM við önnur launþegasamtök ætti að vera: a) meira en nú — Já 46,5% b) svipað og nú — Já 31,8% c) ekkert — Já 6,3% Auðir 15,4% Valur Arnþórsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar: Kostnaðu r við hitaveitu Akureyro ir áætlaður hálfur þri iðji rr íilljarður — t Félagar í BHM fá orlof af yfirvinnu 1 KRÖFUGERÐ um aðalkjara- samning, sem lögð var fram haustið 1973, gerði Bandalag há- skólamanna kröfu um að greitt yrði fullt orlof af allri yfirvinnu. Kjaradeilu þessari var, ^em kunnugt er, visað til kjaradóms, en dómurinn tók ekki afstöðu til kröfunnar. Bandalag háskólamanna telur, að samkvæmt ákvæðum 1.87/1971 um orlof sé skylt að greiða orlof af allri yfirvinnu. Fjármálaráðu- meytið féllst ekki á þessa túlkun á lögunum og var þvi að tilhlutan BHM höföað mál til innheimtu slikrar kröfu I þeim tilgangi að fá skorið úr um þetta deiluefni. Samkomulag hefur nú tekizt með BHM og fulltrúum fjármála- ráðuneytisins um að rikisstarfs- mönnum innan bandalagsins verði greitt 8.33% orlof af allri yfirvinnu frá 1. jan. 1974 — 30. april 1976. Einnig varð samkomu- lag um að fyrrnefndu dómsmáli skyldi lokið með sátt á sama grundvelli, enda má segja að meö þessu samkomulagi sé að miklu leyti fallizt á dómkröfuna. Gert er ráð fyrir að orlof af yfirvinnu fyrir timabilið 2. jan. 1974 — 30. april 1975 verði greitt fyrir 1. marz n.k. Orlof fyrir yfirstandandi orlofs- ár, þ.e. 1. mai 1975 — 30. april 1976, verði greitt inn á orlofs- reikning og komi til greiðslu þeg- ar viðkomandi starfsmaður fer i sumarfri, i samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 150 frá 21. júni 1972 um orlof. Samkvæmt aðalkjarasamningi BHM, sem gerður var i desember s.l., skal greiða orlof af allri yfir- vinnu frá og með 1. mai 1976. Settur fræðslustjóri MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ hefur sett Helga Jónasson, fræðslustjóra i Hafnarfirði, fræðslustjóra i Reykjanesum- dæmi, um eins árs skeið frá 15. þ.m. að telja. gébé-Rvik — í kvöld, föstudaginn 6. febrúar, niunu tveir ungir menntaskólanemendur halda tónleika i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Þeir eru Pétur Jónasson og Arnaidur Arnarson, og munu þeir bæði leika samleik og einleik á tvo gitara. A dagskrá þeirra eru m.a. verk eftir Bach, gébé Rvik —Gróflega reiknað má búast við að hita veitufram - kvæmdir á Akureyri muni kosta um tvo og hálfan milljarð, sagði Albeniz, Duarte, Tarega, Carulii og fleiri. Pétur og Arnaldur eru báðir i menntaskóla og hafa stundað nám i klassiskum gitarleik frá tiu ára aldri. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 i Félagsstofnun stúdenta i kvöld. Valur Arnþórsson, kaupfélags- stjóri og forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Fjármagn þetta fæst með aðfengnum lánum og tengi- gjöldum, en á þessu stigi málsins er ekki hægt að segja til um, hve há tengigjöldin verða. Hitaveitu- nefnd bæjarins vinnur nú af full- um krafti að hönnun hitaveitunn-_ ar, sagði Valur, og hefur hafið' viðræður við verkfræðistofur um hönnun verksins og athugað Ieiðir til útvegunar fjármagns. Þá sagði Valur, að áætlað væri að orkugjald yrði sem u.þ.b. hálf Önnur króna á kilóvattstund, sem er talsvert ódýrara en reiknað er með að orka kosti frá Kröflu við stöðvarvegg. Þá er flutnings- kostnaður orkunnar ekki með- reiknaður. Tfminn bað Val Arn- þórsson að lýsa þróun hitaveitu- mála á Akureyri. — Tilraunaboranir voru geröar fyrir .mörgum árum i Glerárdal og Laugalandi á Þelamörk, auk fleiri rannsókna, sagði Valur, en sérfræðingar komust að þeirri niðurstöðu að Eyjafjöröur væri ekki hitaveitusvæöi, sem byggt gæti á jarðvarma. Ariö 1974 var gerð úttekt á þessum málum á vegum iðnaðarráðuneytisins, og var þvi þá slegið föstu, að upp- bygging skyldi byggð á rafhitun á Akureyri. Eftir oliuhækkanir, og eftir að frekari framkvæmdir við Laxár- virkjun voru stöðvaðar, beindist athygli manna hins vegar að þvi að fá heitt vatn frá Hveravöllum i Reykjahverfi, en þetta er 70 km leið, og stofnkostnaður þar af leiðandi mjög mikill. Og Valur heldur áfram: — Með nýjum tæknimöguleikum til aö finna og ná i jarðhita, getur Orkustofnun nú framkvæmt viðnámsmæling- 1 ar á miklu dýpi, auk þess sem stofnunin fékk stærri bora til um- ráða. Þegar i ljós kom, að mjög dýrt yrði að leiða vatniö úr Þing- eyjarsýslu til Akureyrar, gerði Orkustofnun viðtæka könnun á Eyjafjarðarsvæðinu, og gáfu niðurstöður hennar mjög góðar vonir um að unnt yrði að ná heitu vatni á vissum stöðum, eins og t.d. við Laugaland i Ongulsstaða- hreppi. Bæjarstjórn Akureyrar ákvað siðan, að tillögu hitaveitunefndar bæjarins.sem byggði á niðurstöö- um Orkustofnunar, að ráðizt skyldi i djúpborun við Laugaland með hinum nýja ogstórvirka bor, Jötni. Aætlaður kostnaður við þessa framkvæmd var 70 milljón- ir króna, en reyndist þó ekki veröa nema 50—60 milljónir, þvi komið var niöur á mjög heitt vatn, svo sem kunnugt er, miklu fyrr en vonazt hafði verið til. — Mikill áhugi á hitaveitunni er rikjandi á Akureyri, sagöi Valur, og eru allir fulltrúar I bæj- arstjórn einróma samþykkir þeirri stefnu að koma upp hita- veitu i bænum. Það var tvímæla- laust mikill viðburður, þegar komið var niður á svo heitt vatn við Laugaland, en þessi eina bor- hola, sem boruð hefur verið, get- ur gefið 40% af núverandi heita- vatnsþörf bæjarins. Þetta rennir styrkum stoöum undir framþróun á Akureyri og sýnir, að bærinn er mikill og góður framtiðarbær, sagði Valur. Valur sagði, að gróflega reikn- aö gæti kostnaðurinn oröið 2 1/2 milljarður króna, en orkusjóöur lánar 60% og Byggðasjóður 15% af kostnaði. — A þessu stigi máls- ins er ekkert hægt að segja um, hvert tengigjald pr. hús yrði, sagöi Valur. — öeðlilega mikið er um rafhitun á Akureyri, og eru t.d. viss nýleg hverfi i bænum byggð é. rafhitun með rafmagns- þilofnum, þ.e. ekkert vatnskerfi, ogenn hefur ekki veriö ákveðið að hve miklu leyti þau hverfi koma inn á hitaveituna. Þá er það verð- spursmál, hvort eigendur húsa, sem eru með rafhitun, en með vatnskerfi, óska eftir að koma inn i kerfið, en þetta er heldur ekki á- kveöið, né hvort eigendur verði skyldaöir til að tengja. Pétur Jónasson til vinstri og Arn aldur Arnarson til hægri, halda gitartónleika i Félagsstofnun stúdenta I kvöld. BLAÐBERAR Vinsamlegast sækið rukkunarheftin sem fyrst Afgreiðslan Aðalstræti 7 Félagstofnun stúdenta: Gítartónleikar tveggja ungra menntaskólanema

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.