Tíminn - 06.02.1976, Síða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 6. febrúar 1976.
„Sexy-Rexy” kalla þeir hann i
Bretlandi hann Rex Harrison,
en það er nú eins og honum
haldist heldur illa á konunum
sinum þrátt fyrir allan kyn-
þokkann. Nýlega var hann að
skilja við eiginkonu sina nr. 5
(eða hún við hann). Hún heitir
Elizabeth, er 39 ára, en litur úr
fyrir að vera 29 ára (og nokk-
urra mánaða!) Við sjáum hér
mynd af henni þar sem hún er
að koma frá skilnaðarréttar-
höldunum og er að stiga inn i
bilinn sinn. Hún er ljóshærö og
lagleg með tvirætt bros á vör, en
þarna er hún að gefa þá yfirlýs-
ingu, að hún sé lifandis ósköp
fegin, að þetta hjónaband þeirra
Rex skuli nú vera úr sögunni. —
Það er mikill léttir, að þessu
skuli lokið, sagði Elizabeth og
héltsiðan heim til þriggja barna
sinna frá fyrra hjónabandi
hennar og Richard Harris, leik-
ara, — en þau voru gift i mörg
ár. Elizabeth er dóttir Ogmore
lávarðs. Dómarinn veittiEliza-
beth skilnað vegna „óviður-
Ó Caroline,
Ó Caroline!
Hér sjáum við myndir af
tveimur ungum stúlkum,
annarri hreinni fegurðardis og
hinni sérstaklega hressilegri og
myndarlegri. Nöfnur eru þær —
heita báðar Caroline — og báðar
mikið umtalaðar. Mæður
þeirra, Grace Kelly Rainer og
Jaqueline Kennedy (Onassis)
hafa i viðtölum látið i ljós
áhyggjur sinar yfir þessum
bráðfallegu dætrum sinum.
Móðir Caroline i Monaco segir
að dóttirin máli sig allt of
áberandi mikið, sé með „fata-
dellu” og skemmti sér of mikið
á opinberum skemmtistöðum,
og það með ýmsum náungum,
sem alls ekki er samboðið prins-
essu að láta sjá sig með. Caro-
line Rainier lætur þetta sem
vind um eyrun 'þjóta og nýtur
þess að vera ung og fögur.
Móðir Caroline Kennedy
kvartar helzt undan þvi, að
dóttir sin sé svo sjálfstæð i skoð-
unum og óráðþægin, og svo
veldur það Jackie áhyggjum, að
Caroline vilji helzt af öllu búa i
London, þar sem hætturnar séu
á hverju götuhorni: sprengjutil-
ræði, mannrán o.fl. Viðræðu-
mánni mæðranna fannst nú
samt, að þær mættu vera
ánægðar með þessar myndar-
stúlkur, og hefðu þær jafnvel
mátt tina til eitthvað jákvætt
um dæturnar, þvi af nógu væri
að taka.
kvæmilegrar framkomu” Rex
Harrisons, og hann var dæmdur
til að greiða málskostnað og
heilmikla fjárfúlgu til konunn-
ar. Rex áfrýjaði ekki dómnum,
en þau hjónin höfðu með aðstoð
lögfræðinga komizt að sam-
komulagi um skiptingu bús og
aðrar greiðslur. Þau hættu að
búa saman i fyrrasumar, og
sagði dómarinn, að það væri
vegna slæmrar hegðunar Rex.
Hann ku sem sagt vera mikið
upp á kvenhöndina enn þá. Þó
að hann sé orðinn 67 ára!
Fyrri konur Rex Harrison
voru: nr. 1 ColletteThomas nr. 2
Lilli Palmer leikkona, nr. 3 Kay
Kendall leikkona (hún dó eftir
mjög stutt hjónaband þeirra)
nr. 4 Rachel Roberts og svo var
Elizabeth Ogmore — Harris —
Harrison nr. 5,Hér sjáum við
mynd af Rex og konunum hans
fimm, en spáð er að fleiri eigi
eftir að bætast i safnið.
No. 1: Collette Thomas
No. 2: Lilli Palmer
No. 3 : Kay Kendall'
No. 4: Rachel Roberts
HTn«a.u.
Ég veit vel, að þú hefur ekkert
annað að gera, en samt.....
Ef við sleppum tveimur afborg-
unum af þvotta vélinni og tveimur
af fsskápnum, þá eigum við nóg
til þess að borga eina afborgun af
sjónvarpinu.
Allt i lagi. Þér kveikið á sjónvarp-
inu, og ég finn lykilinn að vin-
skápnuin hans pabba.
DENNI
DÆAAALAUSI
Manstu hvað hann var glaður,
þegar hann fékk þau á jólunum.