Tíminn - 06.02.1976, Page 20
20
TÍMINN
Föstudagur (>. febrúar 1976.
1 irol Ai'slria
< Bobsleða —
og sleðabrautir
Stökkpallur
-^Leikvangurinn
skautahlaup /',/M
ísknattieikshöllin og Ébsss^
listhlaup '' /
ALLRA AUGU BEINAS
« R U C*
Geysilegur fögnuður
hjá Austurríkismönnum:
„Gullverð-
laun hafa
alltaf verið
draumurinn"
FRANK Klammer, hinn frábæri skíðakappi frá Austur-
ríki og ókrýndur konungur skíðaíþróttarinnar tryggði sér
gullverðlaunin í bruni. Klammer sýndi mikla tækni og
sannaði það, að það er ógjörningur að sigra hann, þegar
hann er í ham.
— sagði skíðakappinn Frank Klammer
fró Austurríki, sem sigraði í bruni
Haríasti keppinautur hans i
Innsbruck i gær var Svisslending-
urinn Bernhard Russi, sem var
hinn mikli meistari á ólympiuleik
unum i Sapporo fyrir fjórum
árum. — Ég er mjög þreyttur, en
ánægður. Það hefur alltaf verið
draumur minn að hljóta gullverð-
laun, sagði Klammer, sem er
dýrlingur i Austurriki. Mikill
fjöldi áhorfenda fylgdist með
keppninni i bruni, og var
Klammer að sjálfsögðu i sviðs-
ljósinu. Geysilegur fögnuður
brauzt út meðal Austurrikis-
manna, þegar tilkynnt var að
Klammer hefði orðið sigurvegari.
Fyrstu mennirnir i bruni voru:
Klammer, Austurriki.1:45.73
Ilussi, Swiss.......1:46.06
r
Ovæntur
sigur
UNG og efnileg skautakona frá
Sovétrikjunum — Galina
Stcpenskaja — hlaut gullverð-
launin i 1500 m skautahlaupi,
þegar hún vann óvæntan sigur i
Innsbruck i gær. Vinkona hennar,
Tatjana Averina, sem var talin
sigurstranglegust, varð að láta
sér nægja þriðja sæti, þar sem
Shcila Young frá Bandarikjunum
hreppti silfrið.
Orslit i 1500 m skautahlaupinu
urðu þessi:
Stepanskaja, Sovét..2:16.58
Young, Bandar.....2:17,06
Averina, Sovét......2:17.96
Norska stúlkan Uisbeth Korsmo
kom skemmtilega á óvart — hún
hlaut fjórða sætið á 2:18.99.
— SOS
Þessi teikning er af Inn-dalnum i
Austurriki, þar sem ólympiuleik-
arnir fara nú fram. Inn á mynd-
ina eru þeir staðir merktir, þar
sem keppnin i hinum ýmsu grein-
um fer fram.
Plank, ttaliu....
Houx, Swiss......
Read, Kanada.....
Mill Bandarikj...
Tresch, Swiss....
þegar hann tryggði sér gullið i bruni.
...... 1:46.50
...... 1:46.69
......1:46.83
......1 :-47.06
...... 1:47.29
FRANZ KLAMMGR.sýndi mikla tækni og öryggi,