Tíminn - 24.02.1976, Síða 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 24. febrúar 1976
LANGA STUND hafði Sherlock Holmes staðið álútur yf-
ir litilli smásjá. Nú rétti hann loks úr sér og leit til mín
með sigurhróssvip.
— Þetta er lím, Watson. Alveg vafalaust er það lím.
Þessar óreglulegu gráu hrúgur eru ryk. Þræðirnir eru úr
,,tweed"frakka, en brúnu smákúlurnar eru lím. — Ég
leit í smásjána. — Nú, sagði ég hlæjandi, ég tek þig
alveg trúanlegan um þetta. Skiptir það annars máli?
— Þetta er mjög snjöll sönnun, sagði hann. I St. Pan-
crasmálinu fannst húfa við hlið dauða lögregluþjónsins.
Ákærði maðurinn neitaði því, að hann ætti húfuna. En
hann starfar að því að innramma myndir og verður því
mjög oft að fara með lím. — Hef ur þú það mál á hendi?
— Nei, vinur minn, Merrival, sem er í Scotland Yard, bað
mig að gera þessa tilraun. Síðan ég klófesti peningafals-
arann með því að finna kopar- og zinkduft í ermasaum-
unum hans, er þýðing smásjárinnar að ná meiri viður-
kenningu. — Holmes leitá úrið sitt óþolinmóður á svip. —
Ég á von á nýjum viðskiptamanni, en hann er orðinn á
ef tir ákveðnum tíma. — En meðal annars, Watson, þekk-
ir þú nokkuð til veðreiða? — Það ætti ég víst að gera, því
að ég eyði helmingnum af lífeyri mínum í veðmál um
veðreiðar.
— Þá ætla ég að nota þig sem handhægan leiðarvtsi um
skeiðvöll og veðreiðar. Hef ur þú heyrt nafnið Sir Robert
Norberton? — Ég held nú það. Hann býr á Gamla herra-
setrinu. Ég var einu sinni þar í nánd í sumarbústað. í eitt
skipti lá við, að þú f engið með hann að gera.
— Hvernig var því nú háttað? — Það var þegar hann
lamdi SamBrewermeð hestasvipu en hann er alþekktur
veðlánari og okurkarl í Curzonstræti. Þetta var á New-
marketheiði, og karlinn lá hálfdauður eftir. — Þetta er
þó allsögulegt. En kemur Sir Robert oft fram á þennan
hátt? — Hann fær orð fyrir að vera hættulegur maður.
Hann er einnig einn mesti hestamaður og reiðfantur á
Englandi. Hann er einn þeirra manna, er samþýðast illa
sinni kynslóð. Hann gæti vel sómt sér sem hirðspjátrung-
ur, því að hann er íþróttamaður, hnefaleikari, veðmála-
maður við kappreiðar og ann vel fögrum konum.
— Ágætt Watson. Prýðileg lýsing. Mér f innst ég þekkja
manninn af henni. En getur þú nokkuð sagt mér um
Gamla herrasetrið?
— Aðeins, að það er i miðri afgirtri landareign, er því
tilheyrir. Þar er alið upp stóð af frægu kyni, og þar eru
líka svæði til tamningar hesta. — Og aðalþjálfarinn er
John Mason, sagði Holmes. Þú þarft ekki að undrast,
Watson, þó að ég viti þetta, því að bréf ið, sem ég held á,
er frá honum. En segðu mér eitthvað fleira um Gamla
herrasetrið. Ég hef nokkurn áhuga á því. — Þar eru líka
aldir upp litlir loðhundar, og má sjá þá á hverri hunda-
sýningu. Þeir eru af frægu kyni og taldir mesta metfé.
Lafðin á Gamla setrinu er mjög stolt af þeim. — Það
mun vera kona Sir Roberts? — Sir Robert Norberton hef-
ur aldrei gifzt, og líklega hef ur hann gert rétt í því. Hann
býr með systur sinni, lafði Beatrice Falder, sem er
ekkja.
— Þú átt við, að hún búi hjá honum? — Nei, nei. Sir
James, eiginmaður hennar, átti herragarðinn. Norber-
ton á ekkert í honum. Hún hefur eignarréttinn meðan
hún lif ir, en síðan hverfur hann til bróður hins látna eig-
inmanns hennar. En leigan af setrinu rennur til lafðinn-
ar, meðan hún lif ir. — Og bróðirin, Róbert, er víst hjálp-
legur við að eyða því fé?
— Það mun láta nærri. Hann er óróaseggur og hlýtur
að valda henni áhyggjum. Samt hef ég heyrt, að kærleik-
ar séu milli þeirra systkina. En hvað er nú um að vera á
Gamla setrinu? — Það er einmitt hið sama, sem ég óska
eftir að vita. Og ég vona, að hér sé maðurinn, sém getur
upplýst það.
Dyrnar höfðu opnazt, og manni var vísað inn í stof una.
Þetta var maður hár vexti, skegglaus, festulegur og al-
vörugef inn aðsjá. Ég hef tekiðéftir sama yfirbragði hjá
þeim mönnum, sem þurfa að stjórna pöróttum strákum
og illa tömdum hestum. Herra John Mason hafði hvort
tvegg ja þetta með höndum, og virtist svo sem hann væri
fær til þess. Hann hneigði sig með köldum virðuleik og
tók sér sæti á stóli, sem Holmes ýtti fram. — Þér hafið
f engið skeyti mitt, hr. Holmes? — Já, en það skýrir ekki
neitt. — Þetta er of viðkvæmt mál til þess að skrifa um
það í bréf i. Ég vildi aðeins ræða persónulega um það.
— Gott og vel. Þá erum við hér. — Þá er þetta f yrst af
öllu, hr. Holmes. Ég held, að húsbóndi minn, Sir Robert,
sé orðinn geggjaður.
Holmes hóf upp brýrnar. — Þetta er ekkert geðveikra-
hæli, hér hjá okkur. En hvers vegna segið þér þetta?
— Nú, herra, ef menn gera einn eða tvo undarlega
ÞRIÐJUDAGUR
24. febrúar
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Merkar konur frásögu-
þáttur Elinborgar Lárus-
dóttur Jóna Rúna Kvaran
leikkona les fyrri hluta
þriðja þáttar.
15.00 Miödegistónleik ar
Filharmoniusveit Lundúna
leikur „Cockaigne”?for-
leikinn op. 40 eftir Edward
Elgar, Sir Adrian Boult
stjórnar. Roman Totenberg
og óperuhljómsveitin i Vin
leika Fiðlukonsert eftir
Ernest Block. Vladimir
Golschmann stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn.Sigrún
Björnsdóttir stjórnar.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Til hvers 'eru skólar?
Arnór Hannibalsson flytur
fyrra erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
20.00 Lög unga fólksins.Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 Sónata III i C-dúr fyrir
einleiksfiðlu eftir Bach.
Itzhak Perlmann leikur. —
Frá tónlistarhátiðinni i
Salzburg i ágúst s.l.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur niunda erindi sitt:
Æðstiprestur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (8).
22.25 Kvöldsagan: ,,1 verum”
sjálfsævisa ga Theódórs
Friðrikssonar Gils Guð-
mundsson les siðara bindi
(22).
22.45 Harmonikulög Frankie
Yankovic leikur.
23.00 A hljóðbergi. „Bókin
bannaða” Judith Anderson
les söguna af ekkjunni Júdit
Ur apokrýfum bókum Bibli-
unnar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
24. febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Skólamál. Iðnfræðsla.
Þessi þáttur fjallar um
breytingar á skipulagi iðn-
fræðslunnar. Sýndar veröa
myndir úr verkdeildum iön-
skólanna i Reykjavik og
Hafnarfirði og rætt við Ósk-
ar Guðmundsson fram-
kvæmdastjóra Iðnfræðslu-
ráðs. Umsjónarmaður er
Helgi Jónasson fræðslu-
stjóri, en upptökunni stjórn-
aði Sigurður Sverrir Páls-
son.
21.05 Columbo. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.20 Austurþýski togaraflot-
inn. Fyrir nokkru var stór
floti austurþýskra verk-
smiðjutogara á Eystrasalti
og eyddi fiskimiðum
sænskra og finnskra
sjómanna þar. 1 myndinni
er lýst viðbrögðum fiski-
manna við eyðileggingunni.
Þýðandi og þulur Ellert Sig-
urbjörnsson. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
23.10 Dagskrárlok