Tíminn - 24.02.1976, Blaðsíða 24

Tíminn - 24.02.1976, Blaðsíða 24
fyrir yóóan mai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Angola í OAU Reuter/Addis Ababa. Sendi- nefnd frá Angola tók i fyrsta skiptiö þátt i störfum Eining- arsamtaka Afríkuríkja, OAU, er utanrikisráðherrafundur samtakanna hófst i Addis Ababa i gær. Fulltrúar annarra aðildar- rikja OAU fögnuðu angólsku sendinefndinni ákaft, er hún gekk inn í fundarsalinn i byrj- un utanrikisráðherrafundar- ins. t setningarræðu fundarins sagði æðsti maður stjórnar- innar i Eþiópiu, Teferi Bante, hershöfðingi, að eftir hinn sér- staka leiðtogafund samtak- anna, sem haldinn var i Addis Ababa fyrir sex vikum, hefðu flestar þjóðir heims álitið að riki Afriku væru skipt i tvær andstæðar fylkingar, sem ekki hefði tekizt að komast að samkomulagi um Angólamál- ið á fundinum. Bante sagði, að nú hefði lausn verið fundin á Angola- málinu, og þá lausn hefði ang- ólska þjóðin sjálf fundið. Yfirmaður herafla Portúgals: HERNUM VERÐUR BEITT, EF NAUÐSYN KREFUR — til að tryggja að kosningar fari fram Reuter/Lissabon. Yfirmaður her- afla Portúgals, Antonio Ramalho Eanes sagöi i gær, aö herinn yröi látinn skerast I leikinn, ef nauð- synlegt rcyndist, til aö try ggja, aö kosningarnar i Portúgal aö vori komanda, gætu fariö fram meö eðlilegum hætti. Tilefni þessara ummæla herhöföingjans er þaö, að til skotbardaga kom f fyrra- kvöld á utifundi, sem Mario Soares, ieiötogi sósialistaflokks- ins i Portúgal efndi til. Fundurinn fór fram i borginni Benavila, suður af Lissabon, og voru hermenn og þjóðvarðliðar sendir á staðinn til að koma á röð ogreglu. Sex manns slösuðust i á- tökunum, þar á meðal einn af helztu leiðtogum sósialistaflokks- ins, Aire Rodrigues. Sósialistar kenna kommúnist- um um að til átaka kom á fundin- um. Segja þeir kommúnista hafa ráðist að fundarmönnum með grjótkasti og barsmiðum. Segja sósialistar þetta árás á lýðræðið i landinu. 25. FLOKKSÞING SOVÉZKRA KOMMÚNISTA HEFST í DAG Reuter/Moskvu. Leiötogar kommúnistaflokka og vinstri flokka hvaöanæva úr heiminum streymdu til Moskvu i gær til aö taka þátt I störfum 25. flokksþings sovézka kommúnistaflokksins, sem hófst f morgun, f anda sam- starfs og bræðralags, aö þvi er skýrt var frá af opinberri hálfu i Moskvu I gær. Meðal gesta, er sækja flokks- þingið, eru Fidel Castro, leiðtogi kúbanska kommúnistaflokksins, Le Duan, leiðtogi kommúnista i Norður-Vietnam, og Ceausescu, formaður kommúnistaflokks Rúmeniu, og forseti landsins. Auk þessara leiðtoga eru nokkrir leið- togar vestrænna vinstri flokka, sem stöðugt fjarlægjast sovézka kommúnistaflokkinn vegna skoð- anaágreinings. Marchais, leiðtogi franska kommúnistaflokksins situr ekki þetta flokksþing, og hefur það vakið mikla athygli. Mestur gaumur verður gefinn að ræðu flokksleiðtogans, Brjeznjevs, sem gefa mun yfirlit yfir stöðuna i innanrikis- og utan- rikismálum og þróun þeirra mála siðustu fimm árin. Beirut: SENDIRÁÐ KANADA TEKIÐ Reuter/Beirut. Vopnaðir menn ruddust inn i sendiráð Kanada i Beirut i gær og tóku þaö á sitt vald. i fyrstu voru 24 teknir i gislingu, en stuttu sið- ar var sjö konum sleppt iaus- um. Leiðtogi mannanna, er sendiráðið tóku, krefst þess m.a. að börn hans fjögur, sem nú eru i Kanada ásamt móöur þeirra, verði send aftur til Beirut, og aö hann fái 450 þús- und kanadiska dollara i bætur. Kröfur mannsins munu vera nokkuð óljósar. Hann hefur þó hótað aö taka gislana af lifi, veröi ekki gengið að kröfum hans. Lögreglumenn og hermenn hafa umkringt sendiráðsbygg- inguna, og embættismenn reyna að semja við leiðtoga mannanna. Maðurinn mun ekki heill á geðsmunum að þvi er lögregl- an telur, enda hefur Viann dvalið á geðsjúkrahúsum i Beirut. KNUT FRYDENLUND í BRÚSSEL TIL VIÐRÆÐNA VIÐ JOSEP LUNS UM FISKVEIÐIDEILUNA — fór ekki samkvæmt beiðni íslenzku ríkisstjórnarinnar sagði Einar Águstsson Knut Frydenlund. Reuter/Osló. Knut Frydenlund, utanrikisráöherra Noregs, hélt I gær til Briissel, til viðræöna viö Joseph Luns, framkvæmdastjóra Nato, um möguleika á þvi, aö Norðmenn geti tekiö aö sér sátta- semjarahlutverk i fiskveiöideiiu tslendinga og Breta, aö þvi er talsmaöur norska utanrikisráðu- neytisins sagði I gær. Talsmaður ráðuneytisins, Egil Helle, sagði i gær, að norska stjórnin vinni nú að tillögugerð, sem rniðaði að þvi að koma á við- ræöum milli íslendinga og Breta að nýju. Helle sagði, að bæði Bretum og Islendingum hefði veriö skýrt frá þessu frumkvæði Norðmanna, en ekki væri ljóst, hvort það leiddi til þess, að samningaviðræður yrðu hafnar að nýju. Tfminn hafði samband við Ein- ar Agústsson, utanrikisráðherra i gær. Kvaðst hann ekki vita, hvers eðlis tillögur Frydenlunds væru og gæti hann þvi ekkert um málið sagt. Frydenlund hefði haft sam- band við sig I fyrradag og tjáð sér að hann myndi ræða við Luns. Einar kvað Frydenlund þvi ekki hafa farið til Briissel að beiðni Is- lenzku rlkisstjórnarinnar. Angola: Erlendum fréttamönnum verður vísað úr landi Nýr sendiherra USA hjá NATO Reuter/Washington. Ford Bandarikjaforseti útnefndi Robert Strauz-Hupe, núver- andi sendiherra Bandarikj- anna i Sviþjóö, sem næsta sendiherra Bandarikjanna hjá Nato. Strauz-Hupe er72 ára að aldri, fæddur I Vinarborg. ER NAMIBIA NÆST Á LISTA KÚBÖNSKU HERMANNANNA? Reuter/Helsinki. Fulltrúi þjóð- fylkingar Suövestur-Afriku (Namibiu) i Skandinaviu, Ben Amathila, sagöi i gær, að ef Suö- ur-Afrikustjórn hefði ekki kallað herlið sitt frá Namibiu fyrir 31. ágúst nk. mættu þeir búast viö þvi aö til hernaðarihlutunar, annaö hvort af háifu Sameinuöu þjóö- anna eða kúbanskra hermanna, kæmi I landinu. 31. ágúst eiga kosningar aö fara fram i Namibiu undir eftirliti og umsjón Sameinuöu þjóðanna. Reuter/Lissabon. Angola hefur á- kveöiö að hleypa engum eriend- um fréttamönnum inn fyrir landamæri sin, og þeir frétta- menn, sem þegar eru komnir til landsins, verða að vera farnir þaðan áöur en vika er liöin, nema fréttamenn alþjóðlegra frétta- stofa, að þvi er dagblaö kommún- ista i Lissabon O Diario, skýröi frá i gær. Dagblaðið skýrði svo frá, að á- kvörðun þessihefði verið tekin til þess að gefa innlendum upplýs- ingamiðlurum færi á að endur- byggja eigin fréttaþjónustu frá grunni. Dagblaðið skýrði frá þessu i eins konar tilkynningatón frá upplýsingamálaráðuneyti stjórn- arinnar i Angola, þar sem öllum erlendum fréttamönnum var til- kynnt, að vegabréfsáritanir þeirra væru afturkallaðar. Flóttamannavandamólið i Angola: 6000 FLOTTAAAENN FLUTTIR TIL PORTÚGALS í ÞESSARI VIKU Reuter/Windhoek, Suðvestur- Afriku. Um fjögur hundruö poriúgalskir flóttamenn frá Angóla komu flugleiðis I gær til Windhoek i Suðvestur-Afriku frá flóttamannabúðum i suður- hluta Angóla. Eru nú að hefjast skipulagöir flutningar flótta- manna þcssara til Portúgals. Áætlað er að fljúga með sex þúsund flóttamenn, alla portú- galska, til Lissabon i þessari viku. brjú þúsund flóttamenn verða þá eftir i flóttamannabúð- unum i suðurhluta Angóla, skammt norðan við landamæri Namibiu og Angóla. Það eru suður-afriskar her- flugvélar, sem fljúga með flóttamennina til Windhoek, en þar taka við þeim vélar frá portúgalska flugfélaginu T.A.P. Fyrsta ferðin til Lissabon var farin i morgun. Þá verður einnig flogið með þá flóttamenn til Lissabon, sem flúðu frá Angola á skipum og bátum til Walsisfióa i Namibiu, en þeir urðu sem kunnugt er að biða marga daga á bátum sin- um úti fyrir strönd landsins, áður en stjórn Suður-Afriku heimilaði þeim að stiga á land. Oruggt má telja, að ekki bíður björt framtið þessara flótta- manna, er þeir koma til Portú- gals. Sjólfsmorð algeng í japönskum skólum Reuter/Tokyo. samtals 46 nemendur i gagnfræöa- og menntaskólum I Tokyo frömdu sjálfsmorö siöustu þrjú árin, og 8 aðrir geröu misheppnaöar tilraunir til þess, á sama tima, aö þvi er skýrt er frá i nýbirtri skýrslu fræösluráðs Tokyoborgar. Helztu ástæður sjálfsmorð- anna og tilraunanna eru versnandi samkomulag nem- endanna við foreldra sina og kennara, fall á prófum eða lé-. legur námsárangur. Fræðsluráðið hefur i hyggju að gefa út leiðbeiningar til kennara um það, hvernig þeir geti reynt að koma i veg fyrir sjálfsmorð og sjálfsmorðstil- raunir nemenda sinna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.