Tíminn - 31.03.1976, Page 2

Tíminn - 31.03.1976, Page 2
2 TÍMINN Miövikudagur 31. marz 1976. Bíldudalur: Bátur keyptur og gripið til skelfiskvinnslu meðan frysti- húsið er í enduruppbyggingu MÓ—Reykjavik. — Það hafa um 80 manns verið á atvinnuleysis- skrá á Bildudal meirihluta vetr- ar, þó að ibúar þar séu ekki nema um 350. Astæðan fyrir þessu er fyrst og fremst sú, að verið er að byggja upp frystihús staðarins og þvi hefur vinna i þvi legið niöri i vetur. Nú hefur verið gert átak til að rétta atvinnulifið við og brúa bilið þar tii frystihúsið kemst aft- ur igagnið, en vonaztertil að það veröi I júni eða júli. Ákveðið hefur verið að hefja skelfiskvinnslu og verður hún starfrækt þar til frystihúsið kemst i gagnið. Við þá vinnslu er reiknað með að 35 tii 40 manns fái vinnu. Þá hefur verið keyptur 250lesta báturtil Bildudals og kemur hann þangað næstu daga, en er það hlutafélagið, sem á frystihúsið, sem kaupir hann. Afla hans á að salta að hluta, auk þess sem verka á skreið. 1 þriðja lagi hefur verið ákveðið að byggja 6 ibúðir samkvæmt ákvæðum um byggingu leigu- ibúða á vegum sveitarfélaga og eruframkvæmdiraðhefjast. Með réttu hefðu framkvæmdir ekki átt að hefjast fyrr en í sumar, en vegna hins slæma atvinnuástands var ákveðið að gera undantekn- ingu og leyfa að byrja fram- kvæmdir nú þegar. Þessi þrjú atriði munu leysa vanda BHddælinga þar til lokið verður við endurbyggingu frysti- hússins en þá munu allir fá næga vinnu þar. Atv innuleys istryg ginga s jóður og fleiri opinberir aðilar leggja þessari uppbyggingu lið, en i vet- ur hefur atvinnuleysistrygginga- sjóður þurft að greiða um tvær milljónir króna i atvinnuleysis- bætur á Bildudal. Telja vist allir eðlilegra að verja fénu til at- vinnuuppbyggingar, en greiða at- vinnuleysisbætur. Teóddr Bjarnason sveitarstjóri á Bildudal sagði i viðtali við blaðamann Timans, að mikil gróska hefði verið i ibúðarhúsa- byggingum á BQdudal á siðasta ári. Þá voru þar 20 einbýlishús i byggingu, en það er álika mörg hús og þar höfðu verið byggð á 20 eða 30 árum. Aðallega er það ungt fólk sem er að byggja og mikill hugur er i unga fólkinu að efla staðinn sem mest. Vonandi gengur ibúunum vel að komast yfir þann erfiða hjalla, sem undanfarið hefurver- ið i atvinnulifinu og lita björtum augum til framtiðarinnar. OLAFUR ÓLAFSSON KRISTNI- BOÐI LÁTINN Ólafur ólafsson kristniboði er látinn, rösklega áttræður. Hann fæddist og ólst upp i Norðurárdal i Borgarfirði og stundaði fyrst nám i Hvitárbakkaskóla. Seinna fór hann á kristniboðsskóla i Noregi, og lauk þaðan prófi árið 1920. Eftir það var hann við framhalds- nám i Ameriku og málanám i Kina, þar sem hann gerðist svo kristniboði, fyrstur íslendinga. Starfði hann i Honan-héraði frá 1921-1937, að hann hélt heim til ættlands sins og gerðist fram- kvæmdastjóri Sambands is- lenzkra kristniboðsfélaga. Ólafur starfaði á efri árum i fjölda kristilegra félaga, ritaði og þýddi bækur og flutti fyrirlestra. Kona Ólafs er Herborg Jósefs- dóttir Eldevik, bóndadóttir úr Orkadal i Noregi. |lllllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllll!ll!llllllllll| I á+ • •• 1 (Sjo Isæmdirl iFálka- j oröurn | = Forseti tslands sæmdi i h |j gær eftirtalda islenzka rikis- = = borgara heiðursmerki hinn- h = ar islenzku fálkaorðu. = Alfreð Eliasson, forstjóra j| M Flugleiða h.f. stórriddara- j| = krossi, fyrir störf i þágu Is- = = lenzkra flugmála. = = Finn Jónsson listmálara, h = stórriddarakrossi, fyrir = M myndlistarstörf. j| = Val Gislason, leikara, stór- = = riddarakrossi, fyrir leik- M = listarstörf. = p Orn O.Johnson, forstjóra j| = Flugleiða h.f. stórriddara- = !| krossi,fyrir störf i þágu is- M M lenzkra flugmála. E Egil Hallgrimsson fýrrv. M = kennara, riddarakrossi, = = fyrir hlut hans að stofnun ^ jj Visindasjóðs og stuðning við |j = hann. = = Frú Guðrúnu Vigfúsdóttur, = = vefnaðarkennara, Isafirði, || ^ riddarakrossi, fyrir störf i ^ jl þágu islenzks ullariðnaðar. EE = Hjört Hjartarson, fyrrv. M = formann Verzlunarráðs = = Islands riddarakrossi, fyrir |j jjj störf að félagsmálum = = verzlunarmanna. =IIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIill!lllllll= B.S.R.B. og ríkið: Samkomulag gébé Rvik — 1 gær tókst loksins samkomulag milii fjármálaráð- herra og BSRB uii samningsrétt- armál opinberra) starfsmanna, .ar sem m.a. var ákveðið, að lög um réttindi og skyldur starfs manna rikisins verði endurskoð uð. Miðað er við að æviráðning verði ekki felld niður, én þrengd, þannig að þeir sem þegar hafi æviráðningu,haldi henni. Þá felst i samkomuiaginu, að felld verði úr gildi lög frá 1915 urn bann við verkfalli opinberra starfsmanna. Samkomulagið er háð þvi að samningar takist i yfirstandandi samningaviðræðum BSRB og rikisins. Mun fjármálaráðherra við undirskrift væntanlegra samninga gefa yfirlýsingu um flutr.ing frumvarps um samn- ingsréttarmálíð á Alþingi. Hér á eftir fara nokkur önnur meginatriði i þessu sam- komulagi: Aðalkjarasamningar verði gerðir af heildarsamtökunum, en einstök félög hafi heimild til að gera sérkjarasamninga, og að við gerð aðalkjarasamninga riki verkfallsréttur, en gerðardómur úrskurði um sérsamninga ein- stakra félaga. 1 aðalkjarasamn- ingi verði ákvæði um föst laun, fjölda launaflokka, vinnutima, laun fyrir yfirvinnu, orlof, ferða- kostnað, fæðiskostnað, trygging- ar, starfsmenntun og meginregl- ur um röðun i launaflokka. í sér- kjarasamningum verði kveðið á um röðun starfsheita og einstakra starfsmanna i launaflokkum, svo og kjaraatriðið, sem ekki eru I aðalkjarasamningi og eigi eru lögbundin. Þá er þess getið, að aðalkjara- samningur gildi i minnst 24 mán- uði, og þeim samningi, sem vænt- anlega verður gerður nú, má segja upp miðað við 1. júli 1977 með verkfallsrétti. Verkfallsrétt- ur fylgir aðalkjarasamningi, en náist ekki samkomulag aðilanna og komi til verkfallsboðunár, er sáttanefnd skylt að leggja fram sáttatillögu. Þá fyrst kemur verkfall til framkvæmda ef sátta- tillaga hafi verið felld i allsherj- aratkvæðagreiðslu, og þurfa a.m.k. 50% félagsmanna að taka þátt i henni. Til að fella sáttatil- lögu þarf atkvæði 50% þeirra, sem þátt taka i atkvæðagreiðsl- unni. Þá mun kjaradeilunefnd á- kveða hvaða einstakir starfs- menn skuli vinna i verkfalli, og skulu 9 menn eiga sæti i nefnd- inni, 3 valdir af fjármálaráð- herra, 3 af BSRB, 2 kjörnir af sameinuðu Alþingi og 1 skipaður af hæstarétti. Ver í þjónustu Landhelgisgæzlunnar — gæti jafnvel farið segir Baldur Möller gébé Rvik — Ákveðið hefur verið að Landheigisgæzian fái pólska togarann Ver AK 200 til gæziustarfa og að sögn Baldurs Möller ráðuneytisstjóra i dóms- málaráðuneytinu, gæti jafnvel komið til greina að skipið færi til gæzlustarfa öðru hvoru megin við helgina. Ekki hefur verið gengið endanlega frá samningum við forráðamenn Krossanes h.f., Akranesi, sem eru eigendur tog- arans, en Baldur sagði að þeir hefðu gert bæjarráði Akranes grein fyrir leigunni i gær og aö Ver AK 200 til gæzlustarfa um ríæstu helgi, reiknað væri með að ganga endanlega frá samningum i dag. — Það ber ekkert i milli sem gæti stöðvað samningana, sagði Baldur, — að visu liggja lokatölur um verð á leigunni og leigutim- inn, ekki fyrir, en sennilega verð- ur endanlega gengið frá þvi i dag. Sagði Baldur, að ekki þyrftc að gera neinar breytingar á Ver AK, hann væri tilbúinn til að fara út hvenær sem væri og gæti það jafnvel orðið öðru hvoru megin við helgina. Ekki gat Baldur Möller svarað þvi hvort til greina kæmi að hinn togarinn, sem i athugun var á- samt VER AK að kæmi til greina sem varðskip, myndi verða leigö- ur Hafrannsóknastofnuninni, en sagði að samningar um leigu á togara fyrir stofnunina væri trú- lega á næstu grösum. Hinn tog- arinn var Engey RE 1, en eigend- ur hans eru Isfell hf. I Reykjavik. Að öllum likindum verður hann tekinn I þjónustu Hafrannsókna- stofnunarinnar. Báðir þessir togarar eru pólsk- ir, smiðaðir 1974. Engey RE 1

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.