Tíminn - 31.03.1976, Side 3

Tíminn - 31.03.1976, Side 3
Miðvikudagur 31. marz 1976. TÍMINN 3 Halldór E. Sigurðsson ráðherra: Ef fjármagn væri fyrir hendi, yrði hiklaust byggður betri vegur yfir Holtavörðuheiði í ófærð á Holtavörðuheiði Mó-Reykjavik — Holtavörðu- heiðin hefur verið með snjóþyngri stöðum á landinu i vetur, enda hefur þar verið rikjandi suðvest- anátt, en þá leggur þar mikil snjóalög. Þó hafa tveir kaflar af veginum staðið sig vel og sjaldan teppzt vegna snjóa, en báðir þess- ir kaflar hafa nýlega verið byggð- ir upp. Hafa þeir sýnt að vel má gera ágætan vetrarveg yfir Holtavörðuheiði, sé þar gerður nýr, uppbyggður vegur. Bilstjórar sem þennan veg aka Fundur í Lög- bergi í kvöld Stúdentafélagið gengst fyrir fundi i Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla íslands, kl. 20,30 i kvöld, miðvikudag. Þar mun Þröstur Sigtryggsson skipherra ræða ástandið á miðunum. mest, eru mjög óánægðir með hve litlu fjármagni er varið til hans. Til að leggja áherzlu á óánægju sina lögðu þeir vörubilum sinum utan við Alþingishúsið i gær, gengu á fund samgönguráðherra og afhentu honum kröfubréfjum betri veg yfir heiðina. Halldór E. Sigurðsson sam- gönguráðherra kvaðst oft hafa fengið bréf um dagana, en aldreí hefði hann fengið bréf afhent með slikri viðhöfn. Kvaðst samgöngu- ráðherra vart hafa vitað hvaðan á sig stóð veðrið, þegar honum var sagt að hjörð manna vildi tala við sig, og undrunin hefði vaxíð, þeg- ar i ljós hefði komið, að i fylgd mannanna var sjónvarpsfólk með myndavélar. Samgönguráðherra sagði, að i bréfinu hefði ekkert staðið annáð en það sem hann vissi, enda væri langt frá þvi að þessi vegur væri einsgóður oghann þyrftiað vera. Kvaðst hann hiklaust myndu láta gera þar betri veg, ef fjármagn væri fyrir hendi. — Það skiptir öllu máli að byggja vegi landsins sem bezt upp, sagði samgönguráöherra, — þvi þannig sparast snjómokstur. Ég sé alltaf eftir þeim peningum, sem fara i snjómokstur, en hjá þvi er ekki hægt að komast, með- an vegakerfið er ekki betra en raun ber vitni. Frá áramótum hefur rúmlega sjö milljónum króna verið varið til snjómoksturs yfir Holtavörðu- heiði, og kostar það um 300 þús- und kr. að opna veginn hverju sinni. Engu fé var varið til uppbygg- ingar vegar yfir Holtavörðuheiði á siðasta ári, og samkvæmt þeirri vegaáætlun, sem samþykkt var á Alþingi i fyrra, er ekki gert ráð fyrir neinu fé til uppbyggingar þar i ár. Hins vegar er sú áætlun nú til endurskoðunar. Ekki liggur fyrir nein kostnaðar- áætlun um uppbyggingu vegar yfir Holtavörðuheiði, en þar hafa snjóalög verið könnuð. A grund- velli þeirra athugana mun vegar- stæðið siðar verða valið. KS—Akureyri. — A mánudags- kvöldið bættist Flugfélagi Norðurlands h.f. ný flugvél i flota sinn. Vél þessi er af gerðinni De Havilland Twin Otter 200, og tek- ur hún 19 farþega. Smiðaár vélar- innar er 1968, og er hún keypt frá Sviþjóð. Flugmenn og flugvirkjar FN hafa að undanförnu dvalizt i Sviþjóð til þjálfunar og flugu þeir vélinni heim. Flugfélag Norður- lands mun sjá um þjálfun nýrra flugmanna á Twin Otter vélina, og tveir flugvirkjar munu á næst- unni fara á námskeið De Havilland i Kanada. Otter-vélin mun nú bera hitann og þungann af áætlunar- og leiguflugi félags- ins. Þó verða Beechcraft-vélarn- ar notaðar enn um sinn. Óhætt mun að fullyrða, að þessi nýja flugvél valdi gerbreytingu á flug- vélarekstri FN. Vélin er mjög hagkvæm i rekstri, og getur. auk þess athafnað sig auðveldlega á öllum ftugvöllum landsins. Flug- vélinni munu fljúga tveir flug- menn. Flugfélag Norðurlands er um þessar mundir að ljúka bygg- ingu verkstæðis og flugskýlis á Akureyrarflugvelli. Verður þá hægt að hýsa Otter-vélina i upp- hituðu húsnæði, og auðveldar það mjög allt viðhald og eftirlit. Sumaráætlun Flugfélags Noröur- lands hefst fyrsta mai, og verður þá flogið til niu ákvöröunarstaða, fjórum sinnum i viku til Raufar- hafnar, Þórshafnar og Vopna- fjarðar, þrisvar til Egilsstaða, tvisvar i viku til Isafjarðar, Siglu- fjarðar, Grimseyjar, Húsavikur og Kópaskers. Hjá FN starfa nú 3 flugvirkjar og 3 flugmenn. Flug- félag Islands annast alla af- greiðslu fyrir-félagið, þegar um áætlunarflugeraðræða. FN á nú, auk Twin-Otter vélarinnar tvær 10 farþega Beechraftvélar og eina Piper Aztec, sem notuð er m.a. til sjúkraflugs. A efri myndinni er nýja flugvél- in á Akureyrarflugvelli og á neðri myndinni eru flugmennirn- ir.Sigurður Aðalsteinsson og Torfi Gunnlaugsson. (Tima- myndir Friðrik Vestmann). Fráleitt að borqar- yfirvöld leggj stein í götu vöru- mark- aðar KRON Á FUNDI miðstjórnar Alþýðusambands tslands, fimmtudaginn 25. marz, var eftirfarandi samþykkt gerð með samhljóða atkvæðum: „Miðstjórn ASI vill af gefnu tilefni lýsa þvi yfir, að hún telur að stofnun stórs vörumarkaðar á vegum samvinnuhreyfingarinnar yrði mjög mikilvægt spor i þá átt að tryggja sem lægst vöruverð. Þvi telur miðstjórnin fráleitt, að borg- aryfirvöld leggi nokkurn stein i götu þessa þjóðþrifa- máls, heldur greiði á allan hátt fyrir þvi að slikt fyrir- tæki geti risið hið fyrsta á höfuðborgarsvæðinu, m.a. með þvi að heimila Kaupfé- lagi Reykjavikur og ná- grennis hentuga lóð fyrir þann vörumarkað, sem það hyggst reisa." Kartöflur koma til landsins í kvöld MÓ—Reykjavik. — I kvöld er Urriðafoss skip Eimskipaféiags- ins væntanlegt með 150 lestir af kartöflum frá Hollandi til Reykjavikur og standavonir til aö þessar kartöflur komist i verzlan- ir fyrir helgi. Verð á þeim mun verða um 90 kr. kg. i heildsölu. 1 gær var verið að lesta 100 tonn af kartöflum i Rotterdam um borö i Laxfoss, sem fer væntan- lega til Reykjavikur i dag. Ennfremur er gert ráö fyrir að annað islenzkt skip lesti 300 tonn af kartöflum i Póllandi í dag og er það væntanlegt til Reykjavikur 6. aprfl. Ef flutningar til landsins ganga eðlilega, þá ætti að vera tryggt að ekki verði frekar skortur á kartöflum hér á landi á þessu ári. Meðan á kartöfluskortinum stóð barst Grænmetisverzlun land- búnaðarins tilboð frá innlendum heildsala um að útvega verzlun- inni mexikanskar kartöflur af- greiddar i Hollandi. Verðið á þeim átti að vera 1540 gyllini tonniðkomið um borð i skip eða rúmlega 100.00 kr. hvert kg. Daginn áður hafði Grænmetis- verzlun landbúnaöarins hins veg- ar fest kaup á mexikönskum kartöflum i Rotterdam fvrir 973 gyllini hvert tonn eða a «4.00 kr hvert kg. komið um borð i skip. Það eru þær kartöflur sem væntanlegar eru hingaðtil lands i kvöld. Reiknaö er með að heild- söluverð á þessum nýju kartöfl- um verði90kr. hvertkg. eöa 10.00 kr. lægra, en heildsalinn vildi láta Grænmetisverzlunina greiða. RADDIR LESENDA i GÆR hóf Timinn þjónustu við lesendur slna, simaþjónustu fyrir þá, sem vilja koma einhverju á framfæri. Simaþjónusta þessier milli klukkan 11 og 12 og simanúmerið er 18300. Þá var og tekinn upp sá háttur að leggja spurningu fyrir vegfarendur. Eins og skýrt var frá i blaðinu i gær birtist þetta efni i fyrsta skipti hér á bis. 3. Nú hefur þvi verið valinn fastur staöur i blað- inu og birtast raddir lesenda og vegfarenda nú á bls. 20 og 21. Þessi hátturinn veröur iiafður á að undanskildunt fimmtudögum og laugardögunt, þegar aðalblaðiö er 16 siður, en þá mun Land- fari birtast að venju.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.