Tíminn - 31.03.1976, Síða 20

Tíminn - 31.03.1976, Síða 20
20 TÍMINN MiAvikudagur 31. marz 1976. Almennur borgarafundur um atvinnumál Rangæinga — haldinn d Hellu n.k. laugardag Gsal-Reykjavik — Verkalýðs- félögin i Rangárvallasýslu, sveit- arstjórnir og sýslunefnd Rang- æinga hafa boðað til almenns borgarafundar um atvinnumál i Rangárvallasýslu, n.k. laugardag kl. 14 i Hellubiói. Frummælendur verða Sigurður óskarsson, formaður Verkalýös- félagsins Rangæings, og Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri, Hellu. 1 samtali við Timann sagði Sigurður óskarsson, að atvinnu- mál i Rangárvaliasýslu heföu verið mjög ofarlega á baugi að undanförnu. Hann sagði, að næg atvinna hefði verið i sýslunni yfir sumarmánuðina, en atvinnuleys- is hefði nokkuð gætt að vetri til. — Helzti vinnumarkaður verkafólks i sýslunni er við virkjanaframkvæmdir á hálend- inu, og t.d. unnu við Sigölduvirkj- un á þriðja hundrað Rangæingar á siðast liðnu ári, sagði Sigurður. — Þessi starfsemi hefur haft af- gerandi þýðingu i atvinnumálum sýslunnarundanfarin ár, og hefur átt mikinn þátt i þvi að fólksflótti stöðvaðist. Þrátt fyrir þessa hagstæðu þró- un siöustu ára verður að lita á hana i ljósi þess aö hún byggist á timabundnum framkvæmdum, og þvi teljum við, að óvarlegt sé að treysta um of og of lengi á slik- an timabundinn atvinnumarkað fyrir ibúa byggðarlagsins. Við teljum að samhliða verði að byggja upp traustan atvinnu- markað i sýslunni — og til þess að ræöa þessi mál höfum við efnt til þessa borgarafundar, sagði Sigurður Óskarsson. Sérstaklega er félagsmálaráð- herra, þingmönnum Suðurlands- kjördæmis og fulltrúum þeirra stjómmálaflokka, sem ekki eiga þingmenn i kjördæminu, boðið á fundinn. RANGÆINGAR Almennur borgara- fundur um atvinnumál í Rangárvallasýslu Verkalýðsfélögin i Rangárvallasýslu, sveitarstjórnir og sýslunefnd Rangár- vallasýslu, hafa i sameiningu ákveðið að halda almennan borgarafund um atvinnu- mál i héraðinu, laugardaginn 3. april n.k. kl. 14. Fundurinn verður haldinn i Hellubiói. Frummælendur verða: Sigurður óskars- son, fulltrúi Verkalýðsfélagsins Rangæ- ings og Jón Gauti Jónsson, sveitarstjóri á Hellu. Fundarstjórar verða: Hilmar Jónsson, formaður verkamannadeildar Rangæings og Ólafur Guðmundsson, bóndi, Hellatúni. Félagsmálaráðherra mun mæta á fundinn og sérstaklega hafa verið boðaðir til fundarins þingmenn Suðurlandskjördæm- is og fulltrúar Alþýðuflokksins og Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna. Góð bújörð óskast til kaups með bústofni og vélum. Upplýsingar i sima 91-52991. Stór-Bingó á morgun að Hótel Sögu kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20. — Skemmtiatriði i hléinu. Skagfirzka söngsveitin Ungur — reglusamur maður óskar eftir atvinnu. Margt kemur til greina, hefur meistararéttindi. Upplýsingar i sima 7-14-64. Auglýsið í Tímanum Lesendur segja: Orðsending frd Þorsteini Pdlssyni, ritstjóra Vísis: ,,Ekki rétt með farið" Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Vísis. Hr. ritstjóri, Þórarinn Þórarinsson, dagblaðinu Timanum, Skuggasundi. 1 blaði þinu i gær er birt grein i dálknum „Lesendur hringja” undir fyrirsögninni: Hvers vegna vildi Visir ekki birta þetta bréf? 1 inngangi segir ennfremur: „Bréfið sem hér fer á eftir, var sent Visi.enfékkstekki birtþar.” Undir myndir af mér og Vilmundi Gylfasyni hefur þú sett þennan texta: „Þorsteinn Pálsson vildi af einhverjum ástæðum ekki birta bréfið hér að ofan, e.t.v. af tillits- semi við Vilmund Gylfason.” Þessar fuliyrðingar þinar eru uppspuni eins og svo margt ann- að, sem birtist i blaði þinu. Sannleikur málsins er sá, að i lok febrúarmánaðar barst lesenda- dálkum Visis, bréf það, er þú birt- ir i gær. Höfundur þess var Páll Finnbogason til heimiiis að Lang- holtsvegi 77 i Reykjavik. í bréfi sinu óskaði hann eftir að greinin yrði birt án nafns. Umsjónarmaður lesendadálka Visis hafði þegar i stað simasam- band við Pál Finnbogason til heimilis að Langholtsvegi 77 i Reykjavik. t bréfi sinu óskaði hann eftir að greinin yrði birt án nafns. Umsjónarmaður lesendadálka Visis hafði þegar i stað simasam- band viö Pál Finnbogason og fór þess á leit að fá að birta greinina undir nafni. Ástæðan var sú, að höfundurgerir Vilmundi Jónssyni fyrrum landlækni upp látæði, er hann spurði að dóttursonur hans ætti að bera nafnið Vilmundur. Það er regla i þessu blaði að birta ekki greinar, sem þannig fjalla um tilteknar persónur, nema undir nafni. Páll Finnbogason tjáði umsjónarmanni lesendadálka Visis, fyrst svo væri, að hann óskaði ekki eftir að blaðið birti greinina. Blaðið varð að sjálf- sögðu við þeirri ósk. Timalygin er alltaf söm við sig, Þórarinn, en ég vona samt að þú birtir þetta bréfkorn mitt til þess að hafa þó ekki sé nema einu sinni heldur það, er sannara reynist. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Visis. Fyrir hönd Timans tekur umsjónarmaður lesendadálks þessa undir þá skoðun að persónu- legar ávirðingar og skitkast manna eða stofnana á milli sam- ræmist ekki þeim reglum er gilda ættu um blaðaefni og blaðaút- gáfu. Samkvæmt þvi mun vali efnis hér verða háttað i framtið- inni. Það mætti þvi beina þvi til þeirra sem koma vilja málefnum eða skoðunum hér á framfæri að þeir láti órökstudd hnjóðsyrði eiga sig, svo og fullyrðingar ann- arra. Ekki sizt á þetta við um skit- kast á látna heiðursmenn. Ástæða til að athuga leiðir til sparnaðar d olíu hjá fiskibátum Mér hefur oft flogið i hug að koma nánar á framfæri þeim um- mælum sem viðskiptaráðherrann okkar lét sér um munn fara i sjónvarpsþætti fyrir nokkru sið- an, þegar verið var að ræða sparnaðarráðstafanir. Hann minntist þar meðal annars á fiskibátaflotann okkar og hvernig spara mætti eldsneyti i rekstri þeirra og ég held að það sé full nauðsyn að vekja athygli á þvi máli. Sjónvarpsþáttur þessi rifjaði upp fyrir mér gamalt viðtal, sem ég átti við vélafróöan mann. Sagði hann mér frá þvi að hægt væri að spara ógrynni af oliu á fiskibátunum, með þvi einu að nýta ekki vélarafl þeirra til fulls. Við getum tekið sem dæmi bát sem gengur eilefu sjómilur ef hann er pindur. Ef þess er gætt að keyra hann aldrei hraðar en niu eða tiu milur þá eyðir hann miklu minni oliu en ella. Án þess að ég vantreysti á nokkurn hátt sjómönnum til að sjá um bátana og rekstur þeirra vildi ég koma þeirri hugmynd á framfæri hvort ekki er mögulegt að innsigla hreinlega oliugjöf bát- anna, þannig að hún fari aldrei yfir ákveðið mark. Innsigli þetta mætti að sjálf- sögðu brjóta ef brýna nauðsyn ber til.þegar óhjákvæmilegt er að láta vélina ganga á fullu, en skip- stjóri yrði þá að gera grein fyrir ástæðunum til þess. Þessi ráðstöfun myndi ekki að- eins spara oliu, heldur einnig all- an annan viðhaldskostnað, þvi vélarnar myndu endast mun lengur. Einnig myndi fylgja þessu auk- Það liggur I augum uppi gildi þess ef mögulegt reyndist að koma við sparnaði i oliunotkun fiskibáta. Sjómenn og vélafróðir menn æltu að láta til sin heyra um þá möguleika. ið öryggi, þvi bátarnir myndu láta betur að stjórn. Þá má benda á i þessu sam- bandi, að eftir þvi sem ganghraði bátsins verður meiri, þeim mun dýrari verður hvermila sem bæt- ist við hann. Þetta er svipað og hitaveitan okkar, en það þekkjum við af gamalli reynslu að hækkun hitans i ibúðinni úr 24 gráðum i 25 gráður er mun dýrari en hækkun- in úr 21 gráðu i 22 gráður. 1 öllu falli myndi ekki saka að athuga hvort mögulegt er að gera einhverjar ráðstafanir til sparnaðar á þennan veg. HRINGIÐ í SÍAAA 18300 AAILLI KLUKKAN 11-12

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.