Tíminn - 31.03.1976, Síða 24

Tíminn - 31.03.1976, Síða 24
METSOLUBÆKUH Á ENSKU í VASABROTI SÍS-FÓHIJH SUNDAHÖFN Callaghan vann aðra atkvæðagreiðslu í gær Reuter, London. James Callag- han, utanrikisráðherra Bret- lands, hlaut flest atkvæði i ann- arri umferð kosninganna til leið- togasætis brezka Verkamanna- flokksins i gær. Virtist hann vera orðinn öruggur um endanlegan sigur i kosningunum og þar af leiðandi verða næsti forsætisráð- herra Bretlands. Callaghan hlaut þó ekki meiri- hluta greiddra atkvæöa, svo að enn ein atkvæðagreiðsla þarf að fara fram. Callaghan hefur áður gengt embættum fjármálaráðherra, innanrikisráðherra og utanrikis- ráðherra, en það er hann nú. Callaghan hlaut i gær 141 at- kvæði, helzti keppinautur hans, Michael Foot, verkalýðsmálaráð- herra fékk 133, en fjármálaráð- herrann, Dennis Healey, fékk 38 atkvæði. Healey dettur nú sjálfkrafa út i kosningabaráttunni, og á mánu- dag verður kosið milli Callaghan og Foot. Endurnýja samning um útvarpsstöð Reuter/Madrid. Spánn og Bandarikin settust á mánu- dag að samningaborði til að ræða hugsanlega endurnýjun á samningi um heimild til handa útvarpsstöðinni Frjáls Evrópa til útsendinga frá Spáni. Útvarpsstöð þessi er mið- uð við útsendingar til Sovét- rikjanna, og var talið að spönsk stjórnvöld væru treg til að endurnýja samninginn, þar sem þau eru að leita eftir stjórnm álasambandi við Sovétrikin. Spænska rikisstjórnin bar nýlega til baka orðróm um að Bandarikin hefðu beitt þvingunum af einhverju tagi til að ýta við Spánverjum um endurnýjun samningsins. Herteknu svæðin: Sex Arabar létu lífið Reuter/London. Sex Arabar létu lifið i gær, þegar einhverjar mestu óeirðir, sem átt hafa sér stað siðan Israelsriki var sett á stofn, gengu yfir svæði þau i Galfleu, sem byggð eru af Aröb- um. Þú&ndir lögreglumanna og her- manna voru sendar á staðinn til að stöðva óeirðirnar. öryggissveitir hófu skothrið i nokkrum bæjum, þegar átök hóf- ust milli þeirra og hópa mótmæl- erida. Arabarnir beittu grjótkasti og hrópuðu margir slagorðið: „Palestina er arabisk”. Margir Arabar særðust, og fjöldi þeirra var handtekinn. Hundruð Palestinumanna stóðu að mótmælum i Sýrlandi og Egyptalandi til stuðnings Aröbum i Israel, en þeir eru um 350 þúsund, bæði kristnir og múhameðstrúarmenn, jafnframt þvi að sýna stuðning sinn við þá Araba, sem búa á herteknu svæð- unum á vesturbakka árinnar Jórdan. Öeirðirnar i gær eru þær mestu, sem átt hafa sér stað þar siðan ó- ánægja Araba á herteknu svæð- unum fór að leiða til ofbeldis, fyrir tveim mánuðum, og fylgdu þær i kjölfar þess, er israelski kommúnistaflokkurinn boðaði til verkfalls meðal arabiskra ibúa landsins, til að mótmæla þvi að rikisstjórnin tók eignarnámi um eitt þúsund hektara lands um- hverfis Nazaret. Landsvæði þessi voru áður i eigu bæði Araba og Gyðinga. í Kairó voru farnar mótmæla- göngur i gær, þar sem fordæmdir Fara fram á endur- tekningu réttarhalda Reuter, Osló.Fjórir af þekkt- ustu lagaprófessorum i Noregi hafa farið þess á leit við sovézk yfirvöld, að þau endur- taki réttarhöldin yfir Sergey Kovalyov, sem i desember á siðasta ári var dæmdur til sjö ára þrældóms og þriggja ára útlegðar fyrir,,andsovezkan. áróður og upplýsingadreif- ingu”. Prófessorarnir fjórir sögðu i blaðayfirlýsingu i gær, að til þess aðdæma megi mann eftir þeim sovézku lögum, sem við eiga um mál af þessu tagi, verði saksóknari að sanna, að hinn ákærði hafi sýnt „beina ætlun og það markmið að ætla að niðurlægja eða veikja sovézku stjórnina”. beir segja, i bréfi sinu til saksóknara i Moskvu, að ástæða sé til að ætla, að rétt- urinn hafi ekki i raun sannað þátttöku dr. Kovalyov i út- breiðslu upplýsinga, sem hann hafi vitað að voru rangar. Kovalyov var starfandi sem fulltrúi Amnesty International i Moskvu. Lagaprófessorarnir fjórir eru þeir J. Andenæs, Anders Bratholm, Frede Castberg og Torkel Opsahl. Spánn: Stjórnin svíkur loforð sín Reuter, Madrid. Rikisstjórnin hefur eyðilagt alla möguleika sina til að vinna með stjórnar- andstöðunni að þvi að finna frið- samlega leið til lýðræðis á Spáni, sagði Raul Morodo, leið- togi spænskra sósialista, i gær eftir að hann var látinn laus úr fangavist i aðalstöð lögreglunn- ar i Madrid. Morodo og fimm aðrir leiðtog- ar stjórnarandstöðunnar voru handteknir á mánudagskvöld, skömmu fyrir áætlaðan blaða- mannafund, þar sem þeir ætluðu að kynna nýmynduð samtök sósialista, kommúnista og annarra stjórnarandstæð- inga á Spáni. — Það voru mikil stjórnmála- leg mistök hjá stjórninni að stöðva blaðamannafundinn, og hér eftir þýðir ekki að tala um samstarf, sagði Morodo, en hann tók fram, að aðgerðir stjórnvalda myndu ekki breyta áætlunum samtakanna um að vinna að lýðræði á Spáni, eftir næstum fjörutiu ára einræðis- stjórn. Meðal þeirra sem handteknir voru, eru kommúnistaleiðtoginn Marcelino Camacho og leiðtog- ar tveggja annarra komm- únistaflokka. Enginn þeirra hefur verið látinn laus, en með Morodo fengu tveir aðrir frelsi. Rikisstjórnin á Spáni hefur aðvarað alla ritstjóra biaða og bannað þeim að birta yfirlýs- ingar frá samtökum stjórnar- andstæðinganna. Segir stjórnin, að slikt grafi undan rlkinu. Handtökur þessar og yfirlýs- ingar þykja i nokkurri mótsögn við fyrri yfirlýsingar stjórn- valda, einkum og sér i lagi við loforð Manuel Fragas innan- rikisráðherra um að stjórn- málalegum höftum verði aflétt i landinu. Tyrkland: Herstöðvar opnaðar, ef varn- arsamningur verður staðfestur NTB/Reuter, Ankara. Herstöðv- ar Bandarikjanna i Tyrklandi verða opnaðar á ný i lok septem- bermánaðará þessu ári, ef þingið i Washington samþykkir nýja varnarsamninginn milli Tyrk- lands og Bandarikjanna. bað var utanrikisráðherra Tyrklands, Ihsan Sabri Caglay- angil, sem upplýsti þetta i gær, þegar hann kom frá Washington. í óeirðum voru stjórnarhættir Israela á her- teknu svæðunum. Báru þátttak- endur i göngunni spjöld, þar sem Israelar voru meðal annars sak- aðir um þjóðarmorð og kúgun á arabiskum ibúum svæðanna. Hann lagði áherzlu á að ekki kæmi til mála að opna stöðvarn- ar, nema þingið samþykkti samn- inginn. Ef bandariska þingið samþykk- ir samninginn, verða herstöðv- arnar undir tyrkneskri stjórn, svo og allir bandariskir starfsmenn þeirra. Þess utan skal minnst helmingur starfsliðs vera tyrk- neskir liermenn. . Samkvæmt samningi þessum eiga Bandarikin að veita Tyrk- landi hernaðaraðstoð, sem nemur einum milljarði dollara á næstu fjórum árum. Þar að auki fær Tyrkland 280 milljón dollara lán frá Export-Import bankánum bandariska og hergögn fyrir um 86 milljónir dollara. Hergögn þau, sem um ræðir, átti Tyrkland að fá i fyrra, en bandariska þingið ákvað þá að stöðva öll hernaðarframlög til landsins vegna afstöðu þess i Kýpurmálinu. Yfirvöld i Tyrklandi svöruðu þá með þvi að loka tuttugu og sex bandariskum herstöðvum á tyrk- nesku yfirráðasvæði, en margar af þeim stöðvum voru útbúnar með rafeindatækjum til að fylgj- ast með hernaðarumsvifum i Sovétrikjunum. Caglayangil utanrikisráðherra upplýsti einnig i gær, að banda- riska stjórnin hefði samþykkt að afhenda Tyrkjum að minnsta kosti fjórtán þotur af Phantom- gerð, þrjátiu og sex aðrar flugvél- ar, sjötiu og tvær þyrlur, tuttugu kennsluflugvélar og tvo kafbáta, ef varnarsamningurinn kemst gegnum bandariska þingið. Stórveldin standa ekki i skilum Reutcr, Nairobi. Yfirmaður umhverfisverndaráætlunar Skæruliðar dæmdir fyrir vopnað rán Reuter/Tottori.Tveir fyrrver- andi skæruliðar úr japönsku ■iiHSHORNA Á IVIILLI Sameinuöu þjóðanna sagði i gær, að starfsemi stofnun- arinnar i umhverfisverndar- málum myndi stöðvast að fullu, ef aðildarlönd greiddu ekki styrki þá, sem þau hefðu lofað. Benti hann sérstaklega á Sovétrikin og Bandarikin. — Ef þau þrjú af fjórum helztu styrktarlöndum, sem nú eru i skuld, greiddu það sem þau hafa lofað, væri stað- an þolanleg, sagði yfirmaður- inn, dr. Mostafa Tolba. Sagði hann jafntramt, aö skuld Bandarikjanna væri um sjö milljónir dollara, Sovét- rikjanna um þrjár og hálf millión, Bretlands um sex hunaruð og fimmtlu þúsund og Kina um tvö hundruð og fimmtiu þúsund dollarar. Danskur halli Reuter, Kaupinannahöfn, Vöruskiptajöfnuöur Dan- merkur við önnur lönd var i febrúarmánuði óhagstæður um rúmlega eitt þúsund og sex hundruð milljónir danskra króna. Þessi halli er um það bil þrefaldur á við þann, sem var á skiptajöfnuðinum i sama mánuði á siðasta ári. skæruliðasamtökunum Rauði herinn, voru á mánudag dæmdir til ellefu ára fang- elsisvistar fyrir að ræna banka og pósthús. Dómurinn var kveðinn upp fyrir rétti i Tottori i Japan. Annar skæruliðanna, Juni- chi Matsuura, var dæmdur i sex ára fangelsi, en hann var einn af þeim sjö japönsku skæruliðum, sem krafizt var að látnir yrðu lausir, þegar skæruliðar tóku sendiráð Bandarikjanna i Kuala Lump- ur i ágúst siðast liðnum. Hinn skæruliðinn, Hiroshi Fukuda, var dæmdur i fimm ára fangelsi, fyrir hlutdeild að bankaráninu. I bankaráninu höfðu þeir haft um 9.800 sterlingspund upp úr krafsinu, en i pósthús- inu um 1.100 sterlingspund. Lestarslys Reuter/ Rio de Janeiro. — Tveir létu lifið og þrjátiu og átta slösuðust, þegar tvær járnbrautarlestir rákust á ná- lægt Rio de Janeiro á mánu- dagsmorgun. s Onnur lestanna var með mörg hundruð verkamenn innanborðs, sem voru á ieið til vinnu sinnar, hin, sem var hraðlest, var með fjörutiu og einn farþega. Alitið var að biluö sporskipt- ing hefði orsakað slysið. Tekinn af lifi fyrir þjálfun skæruliða............ Rcuter, Addis Ababa. Foringi hóps manna, sem starfrækt höfðu þjálfunarmiðstöð fyrir skæruliða, hefur verið tekinn af lifi i borginni Asmara, að þvi er fréttastofan i Eþiópiu sagði á mánudagskvöld. ltalskur borgari, Debini Ernesto, var dæmdur til lifs- tiðarfangelsis fyrir að eiga hlutdeild aö stofnun tveggja þjálfunarbúöa fyrir skæru- liðana. Sá sem var tekinn af lifi hét Osman Abdel Kekia, og var hann gjaldkeri hjá skipaflutn- ingafyrirtæki i Asmara. Hann var tekinn af lifi á laugardag, eftir að dómur yfir honum hafði verið staðfestur. Ellefu aðrir voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir aðild aö málinu, allt frá fimm ára til luttugu og fimm ára fangelsis.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.