Tíminn - 09.04.1976, Síða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 9. april 1976.
Nú hefur lafði Lucan gleymf morðtilrauninni
Munið þið eftir lafði Lucan?
Fyrir rúmu ári hafði maður
hennar Lucan lávarður nærri
orðið henni að bana. Hún er nú
búin að jafna sig eftir áfallið, og
er meira að segja orðin ástfang-
in á ný, en af öðrum manni.
Richard John Bingham.Lucan
hefur enn ekki fundizt, en hann
hvarf eftir morðtilraunina.
Hann er eftirlýstur i 120 löndum.
Fólk hefur þótzt sjá hann i
Suður-Afriku og á Spáni. Margir
halda þvi fram, að hann hafi lát-
ið gera aðgerð á andliti sinu, til
þess að þekkjast ekki. Scotland
Yard heldur þvi' fram, að hann
sé ekki lengur á lifi, og flestír
vina hans eru sömu skoðunar.
Þeir telja, að hann hafi framið
sjálfsmorð. Það var það eina,
sem herramaður eins og hann
gat gert, eftir það, sem á undan
var gengið. Aðfaranótt 8.
nóvember 1974 skjögraði
greifynjan af Lucan inn á krá
eina i London. Konan er 35 ára
gömul, og heitir Veronica. Hún
var ötuð blóði og var með mikið
sár á höfðinu. — Morð, morð,
hrópaði hún. Hjálpið mér. Ég
slapp frá morðingja. Þegar svo
lögreglan kom heim til hennar
fann hún barnfóstruna liggja
dauða á kjallaragólfinu. Hún
hét Sandra Rivetts, og hafði
greinilega verið barin til dauða.
Uppi á lofti sváfu vært og rótt
þrjú börn Lucanhjónanna.
Lucan lávarður og kona hans
voru ekki sérlega hamingju-
samlega gift. Lucan lávarður
var fjárhættuspilari, og var að
drukkna i skuldum, þegar hér
var komið sögu, og voru þau
hjónin reyndar hætt að búa
saman. Viö yfirheyrslur sagði
lafði Lucan, að hún heföi heyrt
einhvern hávaða niðri i kjallara
þessa nótt. Hún stökk þangað
niður, og var þá barin fjórum
sinnum i höfuðið. Þarna niðri
var niðdimmt, svo hún sá ekki,
hver hafði lamið hana, en hún
heyrði hins vegar rödd manns-
ins. Hann reyndi að kyrkja
hana, en henni tókst að rifa sig
lausa og komast út úr húsinu.
Allt bendir til þess, að lávarður-
inn hafi ætlað sér að myrða
konu sina, en fyrir einhver mis-
tök hafi hann þess i stað drepið
barnfóstruna. Þegar hann kom
svo auga á konuna, ætlaði hann
sér að láta hana fara sömu leið
og barnfóstran hefði farið á
undan henni. Hann komst undan
i dökkgrænum Ford Corsair-bil,
og frá þeirri stundu, sem hann
steig upp i bilinn hefur ekkert
heyrzt frá honum. Þó er vitað,
að hann komst til nokkurra vina
sinna i Sussex, þar sem hann
sagði frá þvi, að hann hefði orð-
ið fyrir voðalegri óhamingju.
Hann hefði komið heim, og séð
mann vera i þann veginn að
drepa konu sina. — Maðurinn
hvarf, þegar ég birtist, sagði
hann. Ég flýtti mér fram i bað-
herbergið til þess að ná i blautt
handklæði til þess áð leggja á
sár konunnar minnar, en þegar
ég kom aftur var hún horfin.
Hann sendi bezta vini sinum,
William Whand-Kydd bréf, þar
sem hann sagði honum frá þvi,
hvað komið hefði fyrir. Þar stöð
einnig: — Veroniea mun segja,
að ég hafi gert þetta. Hann fór
siðan lika frá vinum sinum, og
hvarf á nýjan leik. Þegar bill
lávarðarins fannst i Newhaven,
var hann ataður blóði, og reynd-
ist það vera af sömu blóðflokk-
um og blóð bæði barnfóstrunn-
ar og frúarinnar. Lucan lávarð-
ur elskaði börn sin framar öllu
öðru. Þess vegna hlýtur hann að
hafa ætlað sér að fremja þetta
morð til þess að fá yfirráð yfir
börnunum. Nú er liðið rúmt ár,
og lafði Lucan er búin að fá lit i
kinnarnar aftur. Hún er orðin
ástfangin á nýjan leik. Eftir tiu
ár verða áreiðanlega allir búnir
að gleyma Lucan-málinu. Ef
lávarðurinn er enn á lifi, þá
treystir hann þvi að minnsta
kosti. Hér sjáið þið mynd af
lávarðinum, eins og hann leit út
þegar hann hvarf, hvort sem
hann hefur látið breyta útliti
sinu nú eða er dáinn. 1 húsinu
sem myndin er af, var morðið
framið — kannski var það mis-
tök. Og svo er hér að lokum
mynd af hinni laglegu lafði
Lucan.
— Viðbúinn.
— Þú hugsar bara um hvernig þú
hefur það, Jónatan. Aldrei spyrðu
hvernig mér lfður.
DENNI
DÆAAALAUSI
llann kemst yfir töluvert af mold
daglega, já og töluvert af mold
kemst yfir hann lika!