Tíminn - 22.05.1976, Blaðsíða 15
Laugardagur 22. mal 1976
TÍMINN
15
© Borgaryfirvöld
Umferðarmiðstöðin á
La ndspita lalóðinni
Þegar búiö er aö flytja Hring-
brautina og Miklubrautina niö-
ur i mýrina veröur að gera mjög
kostnaöarsamar tengingar aö
austan og vestan. Þá er að geta
þess, að Umferðarmiðstööin
mun króast inni á Landspltala-
lóðinni, þvi nýja hraðbrautin
kemur til með að liggja fyrir
sunnan hana, fast viö flug-
brautarendann, en til þess að
ganga forsvaranlega frá braut-
inni vegna flugumferðar,
verður liklega að grafa umferö-
ina þar niður i jörðina, þannig
að þar verður næstum þvi aö
gera undirgöng.
Tengingarnar á Miklatorginu
verða lika umfangsmiklar og
kostnaðarsamar, meðal annars
verður að rifa þristætt steinhús
(á kostnað rikissjóðs, Mikla-
braut 16).
Það kemur lika skýrt fram I
þessari greinargerð, að við telj-
um hvorki stööu rikissjóðs, né
borgarsjóðs vera með þeim
hætti nú, að þessir aðilar hafi nú
hundruð milljóna aflögu til þess
að flytja fullgerðar hraðbrautir
annað.
Við teljum farsæfla, ef þessir
peningar eru til að þeim sé variö
til þess að reisa einn spitala i
viðbót til þess að bæta úr skort-
inum á sjúkrarými.
— Hver veröur heildar-
kostnaöurinn við þessar fram-
kvæmdir?
— Það er ekki nokkur leið
fyrir mig að gefa tölur um það.
En miðað við þann kostnað, sem
maður sér við lagningu hrað-
brauta og umferðarmann-
virkja, sem núna standa yfir,
get ég ekki betur séð að réttara
sé að ræða um milljarða en
hundruð milljóna, jafnvel þótt
aðeins sé átt við sjálf umferðar-
mannvirkin. Þá er heldur ekki
reiknað með þeim stórfellda
kostnaði, sem hlýtur aö leggjast
á borgina, þegar Landspitalinn
er búinn að byggja upp á lóð-
inni. Þá eru núverandi, aðliggj-
andi götur ófullnægjandi, þvi
spitalinn er á alversta stað núna
hvað umferð viökemur, liggur
þétt upp að skuröpunkti mikilla
umferðaræða.
— Ég viöurkenni ýms rök,
sem hniga að uppbyggingu
Landspitalans á þessum stað.
Þetta verður og er kennslu-
spitali, sem þægilegt er að hafa i
námunda við Háskólann en mér
er þó til efs, að menn reisi al-
mennt stóra spitala viö fjölfarn-
ar umferðargötur eða við flug-
brautarenda, eins og þarna er
ráðgert að gjöra, sagði Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi að
lokum.
Greinargerðin
— Greinargerö þeirra Krist-
jáns Benediktssonar og Alfreðs
Þorsteinssonar kom mjög til
umræðu, enda skjal sem felur I
sér meginsjónarmið þeirra, er
gagnrýna þessa fjárfreku — og
að manni finnst, vanhugsuðu
framkvæmd borgarstjórnar-
meirihlutans. Verður hún hér
birt i heild, eins og hún var fram
lögð:
GreinargerC frá Kristjáni
Benediktssyni og Alfreð Þor-
steinssyni vegna tillögu skipu-
lagsnefndar frá 5. janúar s.l.um
færslu Hringbrautar o.fl.
I.
Til ákvörðunar borgarstjórn-
ar er tillaga skipulagsnefndar
frá 5. janúar s.l. um færslu
Hringbrautar til suðurs, tillaga
um deiliskipulag á Landspitala-
lóð frá fundi skipulagsnefndar
26. janúar s.l. og breytingartil-
lögur við samning milli rikisins
og Reykjavikurborgar sem
gerður var 13. des. 1969.
—0—
Flutningur á einni aðalum-
feröargötu borgarinnar —
Hringbrautinni ber vissulega
vott um, að skipulagsmálin eru i
megnasta ólestri hjá Reykja-
vikurborg.
—0—
Stórfelldar viðbótarbygging-
ar við Landspitalann á núver-
andi stað eru vægast sagt
óskynsamlegar með tilliti til
nálægðar við flugvöllinn og
þeirra gifurlegu umferöar-
vandamála, sem stækkunin
veldur.
-0—
Hvorki Reykjavlkurborg né
rikissjóður hafa efni á að verja
hundruðum milljóna króna i
færslur á götum og breytingar á
umferðarmannvirkjum til þess
eins að skapa möguleika tii
áframhaldandi viðbyggingu við
Landspitalann á núverandi
svæði. T_
11»
Varðandi færslu á Hring-
brautinni viljum við taka fram
eftirfarandi:
1. Akstursleiðin Mikla-
braut—Hringbraut er falleg
- og tiltölulega greiðfær leið
eftir endilangri borginni. Stór
hlykkur á Hringbrautina
niður undir enda na-sv flug-
brautar myndi lýta þá
heilsteyptu mynd, sem þessar
götur gefa borginni.
2. Mjög hlýtur að teljast óæski-
legt, að færa mikla umferðar-
götu eins og Hringbrautina
fast aö enda flugbrauta.
Skýrslur sýna, að flugvélum
hlekkist lang-oftast á við enda
flugbrauta.
3. Með færslunni mun aksturs-
leiðin lengjast um a.m.k. 80.-
Þetta virðist kannski ekki
mikiö I fljótu bragöi skoðað.
Sé það hins vegar haft I huga,
að um 20 þúsund bilar aka
þessa leið á hverjum sólar-
hring kemur i ljós, að
akstursleiö þeirra lengist um
1600 km eða riflega lengd
hringvegarins. Auövelt er að
leika sér að tölum og reikna
út, hvað þetta kostar reyk-
viska ökumenn á ári eða 10
árum.
t Norræna húsinu um helgina:
Bókasafn — Sýning á listmunum úr tré — Stig Pettersson
frá Sviþjóð.
Sýningarsalir I kjaiiara — Yfirlitssýning á verkum Síri
Derkert — Siöustu dagar, opiö 14:00-22:00. (Sýningunni
lýkur á sunnudagskvöld)
Samkomusalur Kvikmyndasýning ki. 16:00 á sunnudag.
Sýndar veröa kvikmyndir frá Þeiamörk i Noregi.
Veriö velkomin
NORRÆNA
hCjsio
4. Þótt rikissjóður taki að sér
greiðslu kostnaðar við lagn-
ingu sjálfrar götunnar og
greiði kostnað viö niðurrif
húsa við Miklubraut, munu
tengingar alfarið lenda á
borgarsjóði. Um þann kostn-
að liggja ekki fyrir nákvæmar
tölur. Augljóst er þó, aö þarna
er um nokkur hundruð
milljónir króna að ræða mið-
að við núverandi verölag.
III.
Til viðbótar þvi, sem að
framan er sagt um færslu
Hringbrautar, teljum við rétt að
drepa á nokkur atriði almenns
eðlis um þá stefnumörkun að
stækka lóð Landspitalans úr 7.5
ha i 22 og auka við byggingar á
lóðinni nokkuð i sömu hlutföll-
um, en breyting á samningnum
frá 1969 gerir ráð fyrir auknu
nýtirigarhlutfalli ú 0.6 I 1.0.
Stækkun Landspitalans, þar
sem hann nú er, um allt að
þreföldun til fjórföldun, mun i
framtiðinni skapa Reykjavikur-
borg næstum óyfirstiganlega
erfiðleika umferðarlega séð
vegna aukinnar umferðar að og
frá spitalanum. Engar áætlanir
liggja fyrir um, hvernig þau
mál verða leyst, né hvað það
kemur til með að kosta borgina.
—O-
Þrátt fyrir stækkun lóðar
Landspitalans, hlýtur aö þvi að'
koma, að lóðin verði fullnýtt og
finna veröi nýtt svæöi fyrir
áframhaldandi byggingar.
Sú spurning hlýtur þvi að
vakna, hvort ekki er einmitt
núna rétti timinn til að flytja
hluta spitalans út fyrir megin-
byggðina, þar sem athafnarými
er nægilegt og umferðin ekki
vandamál. Kemur þá i hug stað-
ur eins og Vifilsstaðir, þar sem
spitali er fyrir og landiö i eigu
rikisins.
—O—
Þá hlýtur það að orka mjög
tvimælis aö hyggja á stórfelldar
spitalabyggingar fast við flug-
völlinn og að hluta til i aðflugs-
geira na-sv brautarinnar 07-25.
Notagildi þessarar flugbrautar
kemur til með að skerðast veru-
lega, vegna bygginga spitalans.
Fyrr I vetur var skipulag flug-
vallarsvæðisins ákveðið fram til
ársins 1995. Spáö er, að umferð
um flugvöllinn muni allt að fjór-
faldast til þess tima. Hávaði frá
flugvélum er talinn hvimleiöur
og jafnvel skaðlegur heilbrigðu
fólki. Hvað þá heldur fyrir þá
sem sjúkir eri .
—0—
Okkur viröist að svo mörg og
stór verkeíni biði úrlausnar, að
þvi er varðar byggingu sjúkra-
stofnana, að tæplega sé rétt-
lætanlegt að verja stó.rum
fjárhæðum i flutning gatná og
annarra umferðarmannvirkja
til þess eins að fá samfellda lóð
fyrirLandspitalann á núverandi
stað.
Með þessum orðum lýkur
greinargerð þeirra félaga og nú
liggur að þvi er virðist ekki ann-
að fyrir en hefja framkvæmdir
að þessu mikla verkefni,— JG.
Til sölu
Gný blásari, blásararörum, og dreifistýri. Sími 93-2150. ásamt beygju
BRADLEY
Vagntengi og
D
ÞORf
SIMI B15DO ARMÚLA11
Viðtalstímar
alþingismanna
°9
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Þórarinn Þórarinsson alþingismaður verður til viðtals aö skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18, laugardaginn 22.
mai frá kl. 10 til 12.
Akranes
og nærsveitir
Fundurinn með Ólafi Jóhannessyni dómsmálaráðherra, sem
frestað var sunnudaginn 16. mai, verður haldinn i Framsóknar-
húsinu á Akranesi sunnudaginn 23. mai kl. 16.00.
Þar verður rætt um horfur i Islenzkum stjórnmálum, meðal
annars landhelgismálið.
öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Framsóknarfélag Akraness.
Leiðaþing á
Austurlandi
Boöum leiðaþing scm hér segir: A Bakkafiröi sunnudaginn 23.
þ.m. kl. 4. Vopnafirði mánudaginn 24. þ.m. kl. !) e.h. Ilalldór Ás-
grimsson. Vilhjálmur Hjálmarsson.
Húsvíkingar
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins verða til viðtals á skrif-
stofu flokksins á Húsavik miðvikudaginn 26. mai 1976 kl. 17-19.
Framsóknarfélag Húsavikur.
iullk
CMIÍM
Það má œtíð
treysta
Royal
Benzínsala við þjóðbraut,
Akranesi, ásamt aðstöðu
fyrir sæigætisverzlun er,
til leigu.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins, fyrir 26.
þ.m. merkt ,,Benzinsala”.
Sveit
Duglegur 11 ára gamall drengur óskar eftir að
komast í sveit, hefur verið í sveit áður og er
vanur öllum skepnum. Uppl. í síma 81053.