Tíminn - 22.06.1976, Síða 7
Þri&judagur 22. júnl 1976
TÍMINN
7
arsson Dungason, Lord oi
Hecla”.
Upp úr þessu hefst nýtt skeið i
lifi Dunganons. Alls konar
skjalagerð vegna hertoga-
dæmisins verður rúmfrek og
hann gerist félagi i danska rit-
höfundafélaginu.
„Yrkir, m.a. sléttubönd á
frönsku, og rekur framhaldandi
astro-erótiskan ektaskaps-
kontór i Höfn. Kemst yfir
Völuspá ,,á gyðingamáli”. Guð-
mundur tviburabróðir hans
finnur upp einfasamótorinn. At-
burðir á Skáni. Samin „Stamt-
afla”, þarsem ætt hans er rakin
um Jón Loftsson Oddaverja og
Harald hárfagra til Njarðar
rika i Nóatúnum. Tekur að
hyggja að skjaldarmerki.
,/Völuspá á
hebresku"
1942: Halldór Laxness birtir
„Völuspá á hebresku” i Sjö
töframönnum. Karl Einarsson
Dunganon i Berlin, býr i Wundt-
strasse 64, 1 t.v. Gerist frétta-
þulur þýzka útvarpsins til Fær-
eyja. Rekur húsnæðismiðlun.
Vinnur aö ljóðabálkinum
»AURORA BOREALIS. Lætur
yfirvöld kalla Guðmund bróður
sinn til Berlinar, þar sem dr.
Otto Hahn reynir atómklofnun-
arformúlu hans.
Reaktion CdS4 + 4 Mg — CdS
+ 4 MgO— Fe við Kaiser Wil-
helm Institut. Arangur nei-
* kvæður. Karl kvænist Christine
Ursula Hohmann 21.12 1943.
Tekur upp skjaldarmerki ætt-
föður sins, Jóns Loftssonar:
. 1943-45: Er ýmist i Berlin eða
l Kaupmannahöfn. Les margra
^ vikna „fréttasendingar” inn á
plötur og hlustar á þær i Höfn.
Vinnur að ljóðabálkunum FATA
MORGANA og MEMORIA LI-
BELLI. Tekur að yrkja glasa-
kvæði. Hjúskapurinn leysist
upp. Stofnar heimssamtökin
AMIGOS de la RAZA HISP-
ANO-AMERICANA og skjalda-
merkjafélagð SOCIETAS HER-
ALDICA ISLANDICA.
Cormorant, forseti þess, gefur
út staðfestingu á skjaldarmerki
Dunganons, hertoga af St.
Kilda. Visað úr rithöfundafélag-
inu danska.
Styrkur úr
Sáttmálasjóði
1947: Fer til tslands að skoða
Heklugosið: kveikir i vindli við
eldana. Kemur til Oslóar á
heimleið: á þann 25.7 viðtal við
Ein myndanna á sýningunni.
norskt blað um Hekluförina.
Fær 1000 kr. styrk úr sáttmála-
sjóði til útgáfu LES HEURES
SONORES. Eykur við titil sinn:
Leyndarhirðir Hekluglóða.
1948- ’52: Lýkur við ljóðabálk-
inn LINGUA FLORAE I-III
bindi. Skoðar sykurrófur á
Skáni. byrjar að teikna og lita
myndir.
1961-62: Fer til tslands i boði
Ásbjarnar Ólafssonar. Heldur
sýningu á 100 myndum sinum að
Bergstaðastræti 19, lágmarks-
verð $50.000.00. Slær marga
landa sina til riddara og skipar i
leyndarembætti á St. Kilda.
Fyrir tilstuðlan Ragnars
Jónssonar og Asbjarnar kemur
út fjöltungubókin CORDA AT-
LANTICA, Universal edition of
St. Kilda 1962, prentuð by The
Vikingpress Company, Ultima
Thule, skrásett numéroT. 330135
chez la sociéte Psycho-Astral,
Bruxelles-Ixelles, Belique”.
Karl Einarsson Dunganon lézt
i Kaupmannahöfn 25. febrúar
árið 1972 og var borinn til grafár
i Friðriksbergskirkjugarði.
Byrjaði aö mála
á sextugs aldri
Karl Einarsson fer ekki að
mála myndir fyrr en hann er
kominn á sextugsaldur. Þær
myndir sem sýndar
eru i Bogasal, eru allar frem-
ur smáar. Máíaðar meö oliulit-
um á pappa og siðan er lakkað
yfir þær með glæru glansandi
lakki.
Hann var fastheldinn á mynd-
ir sinar, og kom þeim fyrir i sér-
stökum möppum með skjaldar-
merki. MUSEO DUNGANON,
safn Dunganons. Myndirnar eru
margar málaðar við ljóð hans
og hann málar seriur um
Myndaflokka um sjó, dýr g
Austurlönd, nær.
Myndir hans eru mjög per-
sónulegar og eru að minu mati
gjaldgeng myndlist hvar sem
er. Undir gleri eru ýmsar
myndir af skjölum Dunganons,
en hann arfleiddi islenzka rikið
að skjölum sinum og myndum.
Sýningin er vel upp sett, og frá-
gangur er til fyrirmyndar, en ég
held að þeir Steinþór Sigurðsson
og Björn Th. Björnsson hafi
annazt undirbúning af hálfu
listahátiðar.
Meðan undirritaður stóð við á
sýningunni var þar staddur
einn, sem hlotið hafði „riddara-
tign” af Dunganon, hertoga.
Það var Hákon Guðmundsson,
fv. yfirborgardómari, en þeir
voru frændur sem áður sagði og
mátu hvorn annan mikils.
Dunganon og
Hundertwasser, hliöstæö-
ur?
Dunganon hefur unnið sér
nokkra frægð með uppátækjum
sinum og lifshlaupi. Tiltölulega
hljótt hefur þó verið um nafn
hans þar til nú að haldin er sýn-
ing á verkum hans.
Það merkasta er þó liklega
eftir, bvi að hinn frægi listmál-
ari Hi.ndsrtwasser hyggstgefa út
listaverkabók með verkum
Karls, en sem kunnugt er þá
stendur yfir stór sýning á verk-
um Hundertwassers i Listasafni
Islands. Listamaðurinn leit við
á sýningu Karls Einarssonar og
hreifst mjög af verkum hans og
uppátækjum. Hundertwasser
frestaði utanför 'sinni um tvo
daga til þess að geta kynnt sér
myndlist Dunganons.
t sjálfu sér er það ekki svo
undarlegt, ef borinn er saman
lifsferill þeirra, þvi að þá kemur
margt skringilegt i ljós. Þeir
Hundertwasser hafa verið ein-
kennilega likir um margt. Má
þar fyrst telja, að báðir breyta
þeir um nafn. Karl verður Karl
Einarsson Dunganon og
Friderich Stowasser verður
Friderich Hundertwasser.
Báðir verða þeir viöskila við
skólakerfið, en taka út þroska
sinn i skóla lifsins, og þá mikið á
flakki um heiminn. Dunganon
tekur sér hertoganafnbót og gef-
ur út sin eigin frimerki.
Hundsrtwasser er heimsfrægur
frimerkjateiknari lika, og á
sýningu hans eru m.a. frimerki.
Karl Einarsson var örlátur
maður á allt, nema myndir sin-
ar. Þær voru ekki falar hvorki
fyrir offjár né ab gjöf, og hann
skrásetur myndir sinar með
dularfullu skrásetningarkerfi.
Hundertwasser er ákafur safn-
ari eigin verka og árið 1958
byrjar hann að númera verk
sin, smá og stór. öll verk fá
númer, og Hundertwasser
„heimsækir” myndir sinar
hvenær sem hann getur þvi viö
komið.
A sýningu Dunganons er si-
keyrt segulband með allskonar
efni, sém hann flytur sjáifur, en
uppi keyrir Hundertwasser
„Regndag” sinn sem ákafast,
en það er kvikmynd, sem hann
gerði um sig með Peter
Schamoni.
Svona má nær endalaust
rekja tengsl þessara tveggja
manna — og finna þeim hlið-
stæður.
Mikið er um titlatog utan um
myndlist þeirra beggja. Stór-
menni eru verndarar Hundert-
wassers, doktorar, stjórnmála-
menn og þjóðhöfðingjar, og
sjálfur Bruno Kreisky, forseti
Austurrikis, ritar formála i sýn-
ingarskrá Hundertwassers, en
samantekið hefur skrá
Dunganons „Surveilleur de la
Chambre aux Armoires de
L’Ues Crymogæa, duché St.
Kilda.” og maður spyr sig hvaö
er tilbúningur? Að lokum má
þess geta, að sýningarskrár
beggja eru svartar „sálma-
bækur” i nákvæmlega jafn
stóru broti, hvort sem það er til-
viljun eða ekki.
Ekki skal spáð um það hér,
hvort snillingnum Hundertwass-
er tekst að gera Dunganon
heimsfrægan, gera tilbúninginn
að raunveruleika og raunveru-
leikann að tilbúningi, en mynd-
list Karls Einarssonar stendur
fyrir sinu, ef út i það er farið, og
þaðgerirskáldskapurhans lika.
Jónas Guömundsson.
nú til þess að reisabyggingar úr
léttu efni, þegar ekki er um há-
hýsi að tala. A þessu sviöi vilja
þeir nú fylgjast af kostgæfni
með breácri framleiðslu ál-
bygginga, sem fluttar eru I
flekum eöa hlutum og reistar á
skömmum tima fyrst og fremst
sem útihús, þar sem styrktar-
og burðarstoðir og sperrur eru
úr ryövörðu stáli, klæðning öll
úr áli, en byggingarnar eru
reistar á heimageröum
steyptum grunni.
Abacus-fjós heitir sérstök
gerö álfjósa, sem framleidd eru
nú i Bretlandi og fariö er aö
flytja I flekum eða einingum til
annarra landa. Þau eru eigin-
lega verksmiðjuframleiösla frá
Manchester, m.a. gerð sem
fjögurra raöa hvilubásafjós og
tveggja raða hjaröfjós meö
jötum og fóðurgeymslu. Aðrar
geröir eru einnig framleiddar
en naumast áhugaefni fyrir
okkur.
Á staönum er grunnur
steyptur meö viöeigandi frá-
gangi og aðstöðu til brottflutn-
ings þvags og mykju og til-
tekinni aðstö&u til starfa við
mjaltir og mjólkurmeðferö. Á
grunninum er svo álfjósið reist,
þegar það er komið á staðinn
sem einingar.
Stálstoðir og sperrur eru sink
húðaðar svo og stoöir allar, sem
bera þakið uppi, en þær eru jafn
framt takmörk milli bása.
Þegar búið er að reisa hina
sinkvörðu stálgrind eru allar
markalinur dregnar meö þvi i
stórum ‘ dráttunum, en svo
kemur álklæðningin utanvert og
að innan einangrunin.
Til varnar gegn hnjaski af bú-
fé og störfum innanhúss er að
sjálfsögðu nauösynlegt að klæða
að nokkru hiö innra. Það má
gera með ýmsu efni, sem viö-
eigandi þykir, rétt eins og viö
höfum gert til þessa þegar
steinsteyptir veggir og ein-
angrun hefur verið rikjandi.
Þar gæti islenzkt ál sjálfsagt
komið til greina, sem plötur af
hæfilegri þykkt. Viö höfum
þegar mörg dæmi um notkun ál-
pappirs, sem klæöningu innan-
húss.
Til umhugsunar. Hér hefur
verið bæði skrafað og skrifaö
um ný viðhorf til fjölbreyttari
starfsemi á okkar landi og ekki
aö ástæðulausu. Aætlanir eru
um járnblendiverksmiðju viö
Katánes, saltvinnsluverksmiðju
á Reykjanesi, og sykurverk-
smiöju i Hverageröi.
Ég ber ekki skyn á hag-
kvæmni umræddra fyrir-
hugaðra fyrirtækja, en ég tel
vist aö vaxandi Ibúafjöldi þjóö-
arinnar krefjist fjölbreyttari
hlutverka til llfsframfæris, en
gerzt hefur til þessa. Hitt er
alveg vlst, að á undan öllum
nefndum fyrirhuguðum fyrir-
tækjum er nærtækara að sinna
efnum, sem að minni hyggju eru
miklu hagrænni og þar á meöal
byggingarefnaframleiðslu úr
álinu i Straumsvik.