Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 20

Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 20
TÍMINN Þriðjudagur 22. júnf 1976 20 Húsvörð vantar að Hrafnagilsskóla i Eyjafirði. Æskiiegt er að hann geti jafn- framt tekið að sér handavinnukennslu drengja. Upplýsingar um starfið gefa Sigurður Aðalgeirsson, skólastjóri, Hrafnagilsskóla og Bjartmar Kristjánsson, Syðra-Lauga- landi. gj Heilbrigðisfulltrúi w Sauðórkróki Starf heilbrigðisfulltrúa fyrir sauð- árkrókskaupstað er laust til umsóknar. Óskað er eftir að ráða heilbrigðisfulltrúa með sérmenntun i heilbrigðiseftirliti, eða sem er talinn hæfur til starfsins að mati heilbrigðisnefndar Sauðárkróks og Heil- brigðiseftirlits rikisins. Launakjör og starfstimi verða ákveðin af bæjarstjórn Sauðárkróks. Skrifleg umsókn berist bæjarráði Sauðár- króks, bæjarskrifstofum við Faxatorg, fyrir 28. júni 1976. Sauðárkróki 10. júni 1976. Bæjarstjórinn á Sauðárkróki Þórir Hilmarsson. auglýsir Nýkomnir varahlutir í: BÍLA- PARTA- SALAN Taunus 17M 1966 módel. Taunus 17M 1968 og 1969 módel. Saab. Peugeot 404. Chevrolet 1965. Benz sendiferðabil 319. Willys 1954 og 1955. Gipsy jeppa á fjöðrum. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10. Simi 1-13-97. Sendum um allt land. f \ Bílasalan Höfðatúni 10 SELUR ALLA BÍLA: Fólksbíla — Stationbíla Jeppa — Sendibila Vörubila — Vörufíutningabila 14 ára reynsla i bilaviðskiptum. Opið alla . virka daga kl. 9—7, laugardaga kl. 1—4. ■ Bilasclan Höfðatúni 10 Lesendur segja: Hrólfur skrifar: Fyrir hverja er listahótíð haldin? Erlendir listamenn eiga að sjáifsögðu að vera velkomnir á Lista- hátið, en ekki þó svo að þeir séu i meirihluta meðal þátttakenda. Nú er afstaðin Listahátið 1976 og framundan væntanlega frið- sæld i menningarneyzlu þjóðar- innar. t>að er mikil blessun. Ekki svo að ég telji Listahátið truflandi. Hreint ekki, þvi ég fæ engin merki séð um að hún hafi á nokkurn máta hnekkt fram- gangi lifsþægindakapphlaups okkar, né heldur að þessi aukna menningarneyzla hafi dregiö úr annarri neyzlu að neinu marki. Það er ef til vill einmitt það hversu litil áhrif þessi menningarskriða hefur haft sem vekur spurningar i hugum okkar. Til hvers erum við, með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn, að stofna til hátiðar af þessu tagi, ef hún svo hefur ekki áhrif á þjóðlif okkar meðan hún stendur? Hver er tilgangur Listahátiðar? Er hann ekki sá að vekja fólk — mig, þig og aðra sem teljast til almúgans i þessu landi — til umhugsunar um list, listsköpun og listtúlkun? Er til- gangurinn ekki sá að gefa fólki færi á aö njóta listar, þess fremsta og bezta sem menning heimsins hefur upp á að bjóða i þeim efnum, og slðan að vekja umræður um listir og það sem listir boöa i saumaldúbbum, kaffitlmum, á börum og jafnvel i svefnherberginu? Eða, er tilgangur listahátiöar i Reykjavik einvöröungu sá að fullnægja opinberunarhvötum fámenns hóps manna, auk þess að metta höfðingjaþrá annars, nokkru fjölmennari, hóps. Ég er þar ekki dómbær um og ef til vill er það enginn. Þó verð ég að segja það eins og er, að margt i sambndi við þessa Listahátlö hefur komið nokkuð spánskt fyrir sjónir. Sumt hefur jafnvel vakið mig til um- hugsunar um það hvað er að gerast á listasviðinu hér heima. Eitt þessarra atriða voru skrif tónlistargagnrýnenda tveggja dagblaða I Reykjavik um tón- leika klarinettusnillingsins Benny Goodman. Annar þessara spekinga var óánægður með framlag þessa konungs sveiflunnar á tónleikunum og sagði að sveiflunnar hefði litt orðið vart og þá sjaldan að henni heföi brugðið fyrir þá hefði hún verið bragðdauf. Hinn spekingurinn, aftur á móti, gekk greinilegaharöánægðuraf fundi meistarans, þvi hann hafði svo sannarlega heyrt sveiflu á hljómleikum hans og þótti hún bæði mikilfengleg og góð. Nú má spyrja sem svo, þótt vissulega sé eðlilegt og gott að menn séu ekki sammála, hvort það sé ekki æskilegt, þrátt fyrir allt, að þeir sem dæma eiga tón- list og ausa yfir okkur úr vizku- brunnum staum um þá listgrein, viti að jafnaði hvað þeir eru að fjalla um? Er ekki æskilegt að maður sem dæma á um sveiflu, viti hvað sveifla er? Annar hvor þeirra spekinganna tveggja veit það ekki, svo mikið er vist. Annað atriði sem vert er að huea n5 pr 'bað sem borið var á huga ^Jl Ll pop-unnendur. Þar var farið inn á braut sem ég hygg að stjórnendur lista- hátfðar ættu I framtiöinni að taka sér nokkuð til fyrir- myndar. Fyrir utan það aö flytja á tónleikum þessum ein- vörðungu innlent efni, voru þeir og skipulagðir þannig að efni þeirra höfðaði til ákaflega breiðs hóps manna og kvenna. Þar i, hygg ég einmitt að liggi sá tilgangur — sú marksækni — sem ætti með réttu að vera með Listahátið. A tónleika þessa komu unnendur hljóm- sveitarinnar Paradis og nutu þess að horfa og hlusta á goð sin. En þeir horfðu og hlustuðu einnig á Megas, Spilverk þjóð- anna og Gylfa Ægisson. Þannig má búast við þvi aö tónleikarnir hafi bæði verið þeim skemmtun, svo og að þeir hafi vikkað hug þeirra og sjóndeildarhring að nokkru marki. Hið sama má að sjálfsögðu um þá segja sem komu til að hlýða á Megas, Spilverkið eöa Gylfa. Þetta atriði mætti taka til fyrirmyndar um skipulag næstu Listahátiðar. Þaðværi, að minu mati, rétt að stefna að meiri samblöndun atriða, jafnvel list- greina. Hvað væri til dæmis á móti þvi að hafa málverka- eða höggmyndasýningu i anddyri þess húss sem hýsir hljómleika Listahátiðar? Eða þá að i hléi á hljómleikum væri lesið upp úr verkum skálda ogsvo framveg- is. Með þessu móti hef ég trii á að Listahátiö gæti öölazt meira gildi en nú er, fyrir stærri hdp manna. Þá er það þriðja atriðið, sem að mörgu leyti hefur svipuð á- hrif og atriðið númer tvö. Það er hlutföll erlendra og innlendra listamanna á Listahátiö. Ég tel skýlaust að þáttur er- lendra listamanna á Listahátið sénú allt of stór. Innlendir lista- menn á dagskrá hennar eru of fáir og hlutföll þessi fæla fólk frá hátiðinni — þvl finnst hún ekki koma sér við. Eriendir gestir á Listahátið eru nauðsyn, bæði sem tilbreyt- ing fyrir hinn almenna listneyt- anda, svo og til þess að innlendir iistamenn geti kynnst þeim af eigin raun og þroskast af. Þeir eiga þó aö vera gestir, það er að þeir eiga að vera fáir, eins kon- ar bragðbætir eða eftirréttur á hátiðinni, rétt til að gefa henni ofur,wínn erlendan blæ. LisAhátið sem slik á, að minu mati, fyrst og fremst aö byggj- ast á framlögum islenzkra lista- manna, þvi það eru fyrst og fremst þeir sem skipta máli hér sem listskapendur, það eru þeir sem tengja fólkið i landinu við list og listneyzlu. Verði Listahátið i framtiðinni byggð á framlagi innlendra listamanna að mestu leyti, með erlendum „sælgætismolum” inn á milli, þá hef ég trú á að áhrif hátiðarinnar myndu ná út fyrir þann þrönga hóp sem nú hefur gagn af henni. Hrólfur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.