Tíminn - 23.06.1976, Qupperneq 2

Tíminn - 23.06.1976, Qupperneq 2
2 TÍMINN' Miövikudagur 23. júni 1976 Trékyllisvík á Ströndum, sem heita má kjarni byggöarinnar I Árneshreppi. AAikið kal í Trékyllisvík — nema í túnum, gébé Rvik. — Þaö er töluvert mikiö og almennt um kal I túnum hér, sagöi Guömund- ur Valgeirsson bóndi á Bæ, fréttaritari Tlmans I Tré- kyllisvik á Ströndum. Snjó- lftt var slöastliöinn vetur, en svellalög mikil, sem hélzt alveg fram yfir páska. Túnin eru og kalin hjá mörgum bændum og gróöur gisinn, þó ekki sé mikiö um samfelida bletti dauöa. Spretta er mjög Iltil hér ennþá, enda hefur er fengu kalk veriö fremur svalt I veöri, þótt veöur hafi aö ööru leyti veriö gott. Þá sagöi Guðmundur, aö þau tún skæru sig úr, þar sem kalk haföi verið boriö á fyrir þrem árum. Þau væru betur útlítandi en þar sem ekki hefði verið borið á. — Viö höfum verið að knýja á að fá kalksand til aö bera á túnin, enhann virðist hvergi fáanlegur, sagði hann. Kaupfélag Skaftfell inga sjötíu ára Fjárfesting 65 milljónir á síðasta ári hefurstarfað lengst allra hjá K.S. eða I 58 ár. Erlendur Einarsson, forstjóri S.Í.S., var gestur fundarins, og flutti hann félaginu árnaöaróskir S.l.S. og ræddi Erlendur um efna- hagsmálin, atvinnuþróun og fleira. Nokkrar tillögur voru sam- þykktar á fundinum. Fundar- stjóri var séra Ingimar Ingimars- son. Vlk I Mýrdal, höfuösetur kaupfélagsins. 69. aöalfundur Kaupfélags Skaftfellinga var haldinn aö Leik- skáium I Vlk laugardaginn 22. mal s.l. Rétt til setu áttu 23 full- trúar úr 8 félagsdeildum. í skýrslu formanns félagsstjórnar kom m.a. þetta fram: Félagið keypti eignir I Vlk, nýtt verzlunarhús og vöruskemmu á- samt eignarlóö. Lokiö var smlði Víkurskála og áframhald á smlði verzlunarhúss á Kirkjubæjar- klaustri, og standa vonir til þess að hægt verði aö taka hluta þess I notkun á þessu ári. Heildarfjár- festing á árinu nam 65 milljónum króna. Formaður gat þess, að mestu erfiðleikar, sem félagið hafði viö að fást, væri rekstrarfjárskortur. Aö lokum flutti formaður stjórn og starfsfólki þakkir fyrir vel unnin störf á liðnu ári. Framkvæmdastjórinn Matthias Glslason, minntist I upphafi skýrslu sinnar látínna félaga. Framkvæmdastjóri hvatti til samstööu og einingar um fé- lagið á erfiöum tímum og þangað bæri fólki aö beina viðskiptum sinum, en ekki til fjarlægari staða. Þessu næst las fram- kvæmdastjóri og skýrði reikninga félagsins fyrir sl. ár. Þrátt fyrir söluaukningu várö halli á rekstri félagsins um 2,3 millj. eftir að afskrifað hafði ver- ið um 5,5 millj. Heildarvelta fé- lagsins nam kr. 548,1 millj. og hafði aukist um kr. 194,6 millj. eöa 55%. Iðnaðar og þjónustufyrirtæki komu nokkuð vel út, en verzlun var erfið, auk þess sem vaxta- byrði jókst mikiö svo og allur rekstrarkostnaður. Heildar- launagreiðslur námu kr. 82,6 millj. af þeim vegna fjárfestingar kr. 17,2 millj. 321 komust á launa- skrá á s.l. ári, fastráönir voru um áramót 61. Or stjórn félagsins áttu að ganga Einar Þorsteinssdn' i Sólheimahjáleigu og Siggeir Björnsson I Holti, en voru báðir endurkjörnir. I stjórn félagsins eru: Jón Helgason I Seglbúðum formaður, Guðjón Guðjónsson I Hliö, Lárus Siggeirsson I Kirkju- bæjarklaustri, Siggeir Björnsson I Holti, séra Ingimar Ingimarsson I Vík, Sigþór Sigurösson I Litla - Hvammi og Einar Þorsteinsson á Sólheimahjáleigu. Endurskoð- endur Júllus Jónsson I Norður- hjáleigu og Ölafur J. Jónsson á Teygingarlæk. Félagið heldur upp á 70 ára af- mæli sitt um þessar mundir, en þaö var stofnaö áriö 1906 I Norð- urhjáleigu I Alftaveri. 1 tilefni þessara tlmamóta var haldið fjöl- mennt samsæti, en auk fulltrúa, stjórnar og nokkurra starfs- manna félagsins mættu margir gestir og félagsmenn. Jón Helga- son tók til máls og rakti hann sögu félagsins, og notaði tækifærið og þakkaði hinum fjölmörgu, sem stutt hafa félagið og unniö þvl gagn á liðnum árum. Sérstaklega var Einari Erlendssyni þökkuð störf I þágu félagsins, en hann Grásleppuhrognin: Hækkandi verð, góð meðhöndlun ASK-Reykjavik. — Þegar hafa verið fluttar út um 15.500 tunnur af grásleppuhrognum, og við ger- um okkur góðar vonir um, að heildartalan geti orðið um 17.000 tunnur, sagði Jón Þ. ólafsson hjá Fiskmati rlkisins. Meirihluti framleiðslunnar fer til Danmerk- ur og Þýzkalands eins og undan- farin ár. Mestur hluti grásleppuhrogn- anna, um 70%, kemur af svæöinu frá Ströndum að Þistilfiröi. Afgangurinn kemur úr Faxaflóa og Breiðafirði, en slfellt meira magn kemur þó af Austfjörðum. Þar hafa þessar veiðar verið lltt stundaöar þar til nú. Um gæði hrognanna, sagöi Jón, aö þau ykjust stöðugt. Þannig sagði hann, að engar kvartanir hefðu enn borizt frá erlendum kaupendum. Þess ber að geta, aö verkun hrognanna komst ekki undir eftirlit fyrr en 1971. Fram að þeim tima var ekkert heildar- eftirlit á landinu, og ennfremur voru hrognin ekki metin tíl út- flutnings fyrr en 1971. Lágmarksverð á tunnu er nú 230 dollarar, og hefur það hækkaö um fimm dollara frá þvf á sl. ári. Ólga vegna prófa úr 4. bekk Iðnskólans ASK-Reykjavlk. Nokkurrar óánægju virðist gæta hjá nemendum þeim, er gengu undir próf úr fjórða bekk iðnskóla Reykjavlkur. Aðsögn eins þcirra, Haildórs Haukssonar prentara var t.d. óeðlilega há hlutfallstala nemenda, er náði ekki prófum, en einnig voru nemendur ókátir yfir hinni nýju einkunnagjöf, er tekin var upp I vor. Þá sagði Halldór, að nemend- um heföi verið ætlað að greiða gjald, er meisturum þeirra hefði verið ætlað að greiða. Þetta hefði þýtt, að þeir nemendur, sem ekki höfðu innt tilskilda greiðslu af hendi, hefðu ekki fengið neitt að vita, hvort þeir hefðu náð prófum eða fallið. Þessum nemendum var sagt, að þeir gætu náö I skir- teini sin tveim dögum siðar — eftir aö hafa greitt skólagjaldið. Skólaslit fóru fram sextánda júni siðastliöinn. Aö sögn skólastjórans, Sveins Sigurðssonar, þá er hér um aö ræða gjald, sem notaö er til aö styrkja útgáfustarfsemi á vegum nemenda. Sá siður hefur löngum tlðkazt, að nemendur greiddu gjaldið, en stöan væri ætlazt til, að þeir innheimtu það hjá við- komandi meistara. Þá sagði Sveinn, að nemendum ætti þessi siður að vera kunnur, en hitt væri aftur á móti rétt, að þeir hefðu ekki fengið að vita um árangur fyrr en gjaldið hefði verið greitt. Hvað viðkemur þungum próf- um og hárri fallprósentu sagði Sveinn, að eftir væri aö ganga frá gögnum þar að lútandi, þannig að ekki væri enn vist, að um óeðli- lega háa tölu væri að ræða. Hitt væri svo aftur annaö mál, að próf hefðu verið I þyngra lagi, en próf- dómarar voru kennarar úr Tækniskóla Islands. I Litill lax úr Laxá i Aðaldal — Veiðin er heldur treg hérna ennþá, sagði Helga Halldórsdóttir, ráðskona I veiðihúsinu aö Laxamýri I gær. Um áttatlu laxar eru komnir á land og reyndist sá þyngsti þeirra vera 15 pund. Þetta er mun minni veiði en á sama tlma I fyrra. Þegar VEIÐIHORNIÐ talaði við Helgu 18. júnl sl. sumar, voru 120 laxar komnir á land. Von- azt er til, að laxinn fari að ganga á næstu dögum. Áin er fremur vatnslitil eins og er, snjór er nærri allur farinn úr fjöllum og litið hefur rignt að undanförnu. — Það sem okkur vantar núna, er rigning, sagði Helga. Nú er veitt á 12 stengur I Laxá I Aðaldal. nua«u Léleg veiði i Fnjóská Veiði hófst i Fnjóská hinn 15. júnl, og er veitt á þrjár stangir á neðsta svæðinu. Aö sögn Gunnars Árnasonar á Akur- eyri hefur svo til ekkert af lax gengið I ána ennþá, og taldi hann það ekkert óeðlilegt, þar sem oft gengi enginn lax fyrr en undir mánaðamótin júni- júli. Aðeins þrir laxar eru komnir á land. Sala á veiðileyfum hefur gengið mjög vel, svipað og undanfarin ár, mikið af leyf- um er selt til félagsmanna Stangveiðifélagsins Flúða. Gunnar sagði, að vatniö I ánni væri mátulega mikið núna og hún væri tær eins og spegill. Þó er hún nokkuð köld ennþá. Veiði I Fnjóská undanfarin þrjú sumur er sem hér segir: Sumariö 1973 veiddust 273 lax- ar, sumarið 1974 386 laxar og siðastliðið sumar veiddust 268 laxar. Dauf veiði i Flókadalsá — Það eru sárafáir laxar komnir á land, ekki nema 3-4 að ég held, sagði Ingvar Ingvarsson, Múlastöðum I gær, þegar VEIÐIHORNIÐ hafði samband við hann. Veiði hófst I Flókadalsá þann 18. júni sl. Ingvar sagði þó, að eitthvað hefði sézt af-laxi I ánni, og I gærmorgun töldu laxveiðimenn við ána sig sjá meira llf i henni en veriö hefur að undanförnu. — Það kemur aldrei mikill kraftur I veibina hjá okkur fyrr en undir mánaðamótin júni-júli eða jafnvel viku af júll. Laxinn gengur yfirleitt seint I Flókadalsá, en þar er að venju undanfarinna ára veitt á þrjár stengur. Vatniö er I góðu meðallagi I ánni, en fer minnkandi. Hún er tær og er farin að hitna nokk- uð, sagði Ingvar. A mánudag var sleppt 1500 niðurgöngu- seiðum I ána. A slðastliðnu sumri, sem var metlaxveiðisumar I Flókadalsá, fengust 611 laxar, en sumarið 1974 veiddust 414 laxar og 523 laxar sumarið 1973. Léleg neta- veiði i Hvitá Kristján I Ferjukoti sagði I gær, að veiðin hefði verið afar dræm siðustu viku. Sagði hann sem dæmi, að þegar hann Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.