Tíminn - 23.06.1976, Síða 8

Tíminn - 23.06.1976, Síða 8
8 TÍMINN Miðvikudagur 23. júni 1976 Birkifiðrildi, skógarmaðkar og nag þeirra. Ingólfur Davíðsson: UDUN GARDA ER TRÚNAÐARSTARF skal liöa unz óhætt er að ganga um garðinn aftur. Oft er það um hálfur mánuöur unz lyfin hafa sundrazt og orðið hættulaus. Á spjaldinu skal einnig skrá nafn þess er framkvæmdi eða sá um úðunina. Steftit er að því aö framleiða hættuminni, en þó árangursrik lyf, en þau sem nú eru algengust. Pyretrum t.d. er ekki teljandi eitrað. Hlifið fugl- um og hreiörum þeirra eins og hægt er. Allir hafa yndi af fugl- um ogmargir þeirra eyða miklu af skaölegum skordýrum og eru hinir þörfustu. Ef úðunarvökvi lendir á matjurtum má ekki neyta þeirra fyrr en aö 2-4 vikum liðn- um. Flestir garöræktendur munu þekkja blaðlýs og skógarmaðka og kannast við skemmdir af völdum þeirra. Blaðlýs eru ör- smáar, en þó flestar sýnilegar með berum augum. Þær eru grænar eða dökkar á lit og hreyfa sig flestar litið, en þó koma lika fram fleygar kyn- slóðir þeirra, er fljúga af einni jurtategund á aðra. Ein tegund- in lifir t.d. til skiptis á ribsi og álmi. Blaðlýs sjúga safa úr jurtablööum og brumum til skemmda og gefa lika frá sér hunangsdögg, er flugur o.fl. sadcja i. A álmi vefjast blöðin saman utan um lýsnar, og ná lyf varla nægilega til lúsanna er svo er komið. Blöð á ribsi frá ljósa bletti og hálfvisna. Stund- um koma á þau upphleyptar bólur af sogi lúsanna. A greni lifir örsmá blaðlús er valdið getur brúnlitun og falli barrnálanna. Furulúsin sést á vattkenndum hnoörum er hún gefur frá sér. Þessi lús hefur veriö skæð á skógarfuru, en fjallfuran þolir hana betur. Skógarmaðkar eru lirfur fiðrildategunda, einkum af „fetara- og vefaraættum”. Fetararnir likt og spanna sig á- fram, en hreyfingar vefara eru liflegri og sveiflukenndar. Allir þessir skógarmaðkar naga lauf trjáa og runna og valda þvi aö þau verða götótt og vefjast utan um maðkinn. Þeir spinna laufin að nokkru saman með silkiþráð- um og geta látið sig siga til jarð- ar i silkiþræði. Það sést t.d. ef þeir t.d. drepast ekki strax við úðun. Talsvert er farið að bera á blaðlús og skógarmöökum i görðunum. Úðunarmenn eru lika komnir á kreik með tæki sin, og á góðviðrisdögum heyr- ist dynur i úðadælum og fnykur af lyfjunum berst inn um dyr og glugga, ef opnireru. Úöun trjáa og runna er ill nauðsyn og jafn- framt mikiö trúnaöarstarf, þvi að bæöi þarf úðunin að vera vandlega framkvæmd og fullrar varúðar gætt. Flest skordýra- eyöingarlyf eru allmjög eitruð. Lyfjunum er skipað i fjóra flokka X, A, B og C eftir þvi hve eitruö þau eru, þannig að hættu- legustu lyf teljast i X-flokki, þau næsthættulegustu i A, en hin meinlausustu i C-flokki.Lyf i X og A flokkum mega þeir einir nota, er lært hafa til þess og fengið leyfi eiturefnanefndar að nota þau. Var haldið námskeiö i notkun plöntulyfja i Garöyrkju- skóla rikisins I vor og sóttu þaö margir viðs vegar af landinu. Fyrsta boöorð úöunarmanna er að fýlgja nákvæmlega notkun- arreglum á umbúðum lyfjanna. Þær reglur hafa reyndir menn samið að loknum tilraunum. Geymið lyfin örugglega i læstum skáp eða herbergi, út af fyrir sig og geymið aldrei lyf i i- láti, sem merkt er einhverju öðru. Ella geta hættulcp mis- grip átt sér stað. Farið varlega með lyfjaleifar og ilát undan lyfjum. Sá sem úðar skal jafnan gera aövart og sjá um aö dyrum og gluggum sé lokað áður en byrj- aö er á verkinu. Ella getur eitr- aður úðamökkurinn borizt inn. Þvott, fatnað til viðrunar o.s.frv. skal að sjálfsögðu taka inn. Gætið þess að börn eða aör- ir séu ekki i nánd meðan úöað er. Bezt er að úða i þurru, hægu og hlýju veðri, þá veröur úöunin árangursrikust. I vindi getur úðinn borizt langt og lent I ná- búagarða og hús. Flest lyfin verka bezt i hlýju veðri, þá eru lika skordýrin mestá kreiki, svo lyfin ná betur til þeirra en ella. t sterku sólskini, og einnig i kulda, er hætta á sviðnun laufs af völdum lyfjanna. Lyf, er reynzthafa vel á Norðurlöndum reynasthér bezt að öðru jöfnu, þvi að skilyrði eru þar likust. Bezter aðúða fljótlega eftir að meindýranna veröur vart, ef veður þá leyfir. Sum tré þarf varla að úöa, t.d. gljáviöi og gullregn, þvi aö óþrifin sækja lítið á þau. Úðaða garða skal úðunar- maður merkja strax og verkinu er lokið. Skal hann setja upp og festa vel spjald Tir haldgóöu efni. Á spjaldinu skal standa með hvaða lyfi var úðað og hvenær — og hve langur timi Ekki eru blaðlýs og skógar- maðkar bundnir við garða eða ræktuð tré, heldur er hvort tveggja algengt úti i náttúrunni i skógi og kjarri. Leggjast lika stundum á berjalyng og ber og ýmsar villtar blómjurtir i lús- eða maðkaárum. Oft ber mest á lús og maðki i þéttbýli, þar sem garður er við garð og óþrifin berast auðveld- lega á milli. Er fremur þörf á að úða þar árlega en annars stað- ar. Og bezt er að komast hjá notkun eitraðra lyfja ef hægt er. Litlar bfúnar pöddur, stikils- berjamaurar, skriða stundum utan úr görðum og grasi upp húshliðar og inn um glugga til ó- þrifa. Gegn þeim dugar oft furðanlega að úða oft öfluglega með köldu vatni úti fyrir húsinu. Það leiöir af sjálfu sér, að sá sem úðar með sterkum lyfjum þarfaðsýna ýtrustu varúð til að verða eÚci fyrir eitrun sjálfur. Skógarmaðkur 5-falt stækkaður. Almlús (ribsrótaiús).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.