Tíminn - 23.06.1976, Page 13

Tíminn - 23.06.1976, Page 13
Miðvikudagur 23. júni 1976 TÍMINN, 13 A. Conan Doyle: 7 Húsið ,,Þrjár burstir" (The Three Gables) eitthvert takmark í lifinu. Fyrst það takmark má ekki vera ást þín, laf ði mín, þá mun það miða að f ullkominni hefnd frá minni hálfu...." — Skrítinn ritháttur á þessu, mælti Holmes um leið og hann rétti umsjónarmanninum blaðið. Tókuð þér eftir því, að þessi „hann", sem nef ndur er f yrst í greininni, er siðar orðinn að „ég". Höf undurinn er svo sokkinn niður í frásögnina, að hann ruglar saman fyrstu og þriðju per- sónu. Honum hefur án efa fundizt, að hann væri sjálfur söguhetjan. — Þetta virðist vera óvenju fátæklegt efni, sagði um- sjónarmaðurinn um leið og hann stakk blaðinu aftur í vasabók sína. — Eruð þér að fara. — Ég held að hér sé ekkert verkef ni fyrir mig, þegar málið er í svo góðum höndum. En meðal annars, frú Maberley, sögðuð þér ekki, að þér hefðuð löngun til að ferðast? — Það hefur jafnan verið óskadraumur minn að ferð- ast, hr. Holmes. — Og hvert vilduð þér helzt fara? Til Kairo, Madeira, Riviera? — Hefði ég fé til þess vildi ég helzt ferðast umhverfis jörðina. — Rétt er nú það. Umhverfis jörðina. Jæja, verið þér sælar. Verið getur að ég líti hér inn í kvöld. Þegar við vorum komnir út og gengum framhjá glugganum, sá ég að umsjónarmaðurinn brosti og hristi höfuðið. Égáleitaðþaðþýddi sama og hann segði: Þess- ir ofvitar hafa ævinlega snert af brjálsemi. — Nú, Watson, höfum við bráðum lokið ferð okkar, sagði Holmes, er við vorum aftur komnir inn í skarkala Lundúnaborgar. Ég held að bezt sé að fá lausn á málinu nú þegar. Gott er líka að hafa þig með, því réttast er að hafa vitni til staðar, þegar maður á tal við slíka konu sem Isadoru Klein. Við höfðum náð í hestvagn og ókum hratt til Grosvenor Square. Holmes hafði setið þögull um stund, en reis nú við allt í einu. — Meðal annars að segja, Watson, ég býst við að þú sjáir nú þegar, hvernig þessum málum er háttað? — Nei, ekki get ég sagt það. Ég þykist aðeins skilja, að við séum á leið til að f inna konuna, sem stendur að baki öllu þessu fargani. — Alveg rétt. En vekur ekki nafnið Isadora Klein nein- ar endurminningar hjá þér? Hún var nafntoguð fegurðardís. Engin kona þótti jafnast við hana. Hún er af spönskum ættum, kvistur af fornum aðli, sem hafa verið forustumenn í Pernambuco í marga ættliði. Hún giftist gömlum, þýzkum sykurkóngi, Klein að nafni og varð nokkru siðar ekkja, hin auðugasta og fegursta ekkja, er sögur fóru af. Hófst nú röð ævintýra fyrir henni, þar sem hún þjónaði einungis eigin lund og duttlungum. Hún átti ýmsa elskhuga, og einn þeirra var Douglas Maberley, sem þá var einn mesti glæsimaður í London. Hvað hann snerti þá var kynning þeirra Isadoru ekkert lausungarævintýri. Hann var engin samkvæmis- hetja, heldur traustur og fastlyndur maður, sem gaf allt og vænti alls í staðinn. Hún var aftur eins og fagurt fiðrildi og alveg miskunnarlaus í eðli sínu. Þegar duttlungum hennar var fullnægt, þá var ævintýrinu lokið fyrir henni. En væri mótleikandi hennar á annari skoð- un, kunni hún jafnan ráð til að sannfæra hann um frá- hverfi sitt. — Þetta hefur þá verið hans eigin saga. — Já, nú ferð þú að skilja samhengið. Nú heyri ég að hún sé í þann veginn að giftast hinum unga hertoga af Lomond, sem gæti nærri því verið sonur hennar aldurs vegna. Móðir hertogans setur kannski ekki fyrir sig aldursmuninn, en hneykslismál gæti og mundi gera slíkt hjónaband óhugsandi. Það er því brýn nauðsyn að...., en nú erum við komnir. Þetta var eitt fegursta húsið á götuhorni einu í West End. Þjónn, sem líktist mest vélbrúðu tók við nafn- spjöldum okkar og kom aftur með þau skilaboð, að frúin væri ekki heima. — Þá bíðum við þangað til hún kemur, svaraði Holmes. — Þetta þýðir aðeins að hún er ekki heima f yrir ykkur, sagði þjónninn. — Gott og vel, sagði Holmes, það þýðir að við þurfum ekki að bíða. Gerið svo vel að færa húsmóður yðar þenn- an miða. Hann skrifaði nokkur orð á blað úr vasabók sinni, braut það saman og fékk þjóninum. — Hvað skrifaðir þú, Holmes?, spurði ég. — Ég skrifaði aðeins þetta: Hvort á það að vera, við 23. júni 7.00 Morgunútvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Mynd- in af Dorian Gray” eftir Os- car Wilde Valdimar Lárus- son les þýöingu Siguröar Einarssonar (19). 15.00 Miödegistdnleikar Augustin Anievas leikur á pianó Tilbrigöi og fúgu op. 24 eftir Brahms um stef eftir Handel. AlfredPrinz og Fil- harmonlusveit Vinarborgar leika Klarlnettukonsert (K622) eftir Mozart, Karl Munchinger stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikár 17.00 Lagiö mitt Anne-Marie Markan kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 17.30 „Eitthvaö til aö lifa fyr- ir” eftir Victor E. Frankl Hólmfriöur Gunnarsdóttir les þýöingu sina á bók eftir austurriskan geölækni (7). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 tslensk plöntunöfn Stein- dór Steindórsson fyrrum skólameistari flytur erindi. 20.00 Einsöngur: Magnús Jónsson syngur lög eftir Skúla Halldórsson Höfundurinn leikur undir á planó. 20.20 Sumarvaka a. „Heim- þrá”, saga eftir Þorgils gjallanda Kristján Halldórsson I Saurbæ, Skeggjastaöahreppi, segir söguna utanbókar. b. Kveö- iö I grini Valborg Bentsdótt- ir fer meö léttar stökur. c. Um eyöibýli Agúst Vigfús- son les stutta frásöguþætti eftir Jóhannes Asgeirsson. d. Kórsöngur Karlakór Reykjavikur syngur lög eft- ir Sigvalda Kaldalóns. Söngstjóri: Páll P. Pálsson. 21.30 Ctvarpssagan: „Siöasta freistingin” eftir Nikos Kazantzakis Siguröur A. Magnússon les þýöingu Kristins Björnssonar (43). 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Kvöldsag- an: „Hækkandi stjarna” eftir Jón Trausta Sigriöur Schiöth les sögulok (7). 22.40 Djassþátturí umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR 23. júni 1976 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Augiýsingar og dagskrá. 20.40. Á Suöurslóö. Breskur framhaldsmyndaflokkur byggöur á sögu eftir Wini- fredHoltby. 11. þáttur. Eng- inn veit sina ævina.Svo viröist sem jólahaldiö ætli aö veröa fátæklegt hjá Holly-fjölskyldunni, en þá kemur Huggins færandi hendi. Tengdamóöir MitcheUs kemur I heimsókn og tekur dóttur sina heim meö sér. Carne óöalsbóndi er ekki heiU heilsu, og gamU verkstjórinn hans, Castle, liggur fyrir dauöanum. Huggins reynir aö fá Carne til aö styöja „Fenja-áætlún- ina”, en Carne rekur hann á dyr. HoUy hefur loks tekist aö ná I frú Brimsley, og aUt bendir til, aö Lydia komist aftur I skólann. ÞýÖandi Óskar Ingimarsson. 21.30 Heimsstyrjöldin sföari. Sprengjan, 1 águstmánuöi 1945 var kjarnorkusprengj- um varpaö á tvær japansk- ar borgir, Hiroshima og Nagasaki, og þá gáfust Jap- anir upp. Þýöandi og þulur Jón O. Edwald. 22.25 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.