Tíminn - 23.06.1976, Side 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 23. júni 1976
Tamin dýr hafa ávallt skipaö veglegt hlutverk i fjölleikahúsinu. Sum hafa náö mikilii frægö og hafa
oröiö sirkusum haldreipi I frama og aösókn. Hér er plakat frá árinu 1912 (franskt) sem sýnir apann
Moritz (Maurice).en hann var meö fádæmum „mannlegur” og vel búinn hæfileikum. Hann var frægur
fyrir fótfimi sina og sýndi listir á reiöhjóli auk annars.
Bill Webb og hiö fræga „dauöastökk” hans. Listamaöurinn iét
sig falla ofan úr hvelfingunni i sirkustjaldinu og niður i
„sliskjuna”, sem dró úr fallinu.
Plakatiö er frá árinu 1914, en ekki vitum viö hvernig ævi þessa
ofurhuga endaöi.
Solmu Makela meö kaninu i
pipuhatti
slikum frimerkjum til sýnis á
sýningunni, en henni lauk 16.
júni, s.l.
Ég veit ekki hvort fjölmenni
var á sýningum Solmu Mákefd,
en sýningin „Spjöld úr heimi
fjölleikahúss” var mjög
skemmtileg og fróöleg, sér i lagi
liklega fyrir þá sem nutu leið-
sagnar töframannsins.
Jónas Guömundsson
TIVOLI
IhtWwiilMUl
*Slaget ncl lYnÍii’icia
umwiKliuíjiat
‘JPi «JJif alre I
STOR COltfCERT
I I AMrhmfrr, mmAcr AmlmU tl I, Umktr.
Paö"Tli eafret.
Ciim y
100 ára gamalt sirkusplakat
frá TIVOLI i Kaupmannahöfn.
Þetta er eina eintakið, sem
vitaö er um i heiminum, sem
varöveitzt hefur.
Eitt af þvi sem fer framhjá
garöi á tsiandi er sirkusinn,
þetta fjölþjóöa fyrirbrigöi, sem
er partur af árstiöum margra
landa, sem liggja á þjóövega-
kerfi meginlandanna. Sigaunar
streyma yfir löndin meö angur-
værum söng, slá tjöldum og
sirkusinn hefst.
Fjölleikar, fjölleikalist meö
trúöum leikfimimönnum og
töframönnum er okkur fram-
andi list.
Sirkusinn, eöa farandsýning-
ar fimleikamanna, trúöa og
dýratemjara eru þó með elztu
TOFRAMAÐUR I
NORRÆNA HÚSINU
listgreinum Iheiminum, og sögu
fjölleikahúsanna má rekja 2-
3000 ár aftur I timann. Fjöl-
leikahús Rómverja rúmuöu tug-
þúsundir áhorfenda. Viö höfum
þó kynnztsirkusnum betur, eftir
aö feröalög til útlanda uröu al-
menn og svo hefur sjónvarpiö
sýnt ýmsar myndir frá fjöl-
leikahúsum Evrópu og Ame-
riku.
Töframaður á
listahátið
Þaö þótti þvi nokkrum tiöind-
um sæta, þegar finnski sjón-
hverfingamaðurinn Solmu
Makela kom hingaö til lands á
listahátíö. Hann hefur fengizt
viö sjónhverfingar allt frá
æskudögum sinum og sjónhverf-
ingar hafa verið starf hans I 35
ár.
Solmu Má’kela hafði hér fimm
sýningar á töfrabrögöum, i Nor-
ræna húsinu viö ágætar undir-
tektir. Undirritaöur sá sýningu,
sem hann haföi á sjómannadag-
inn fyrir Sjómannadagsráö, og
það veröur aö segjast eins og er,
að hún var frábær og furðuleg I
senn.
Auk annars kom Solmu
Mákelá hingað til lands meö
hluta af safni sinu, aöallega
veggspjöld og frlmerki, en hann
hefur safnað bókum og ööru um
fjölleika i áratugi, og á nú eitt
merkasta safn I Evrópu af
veggspjöldum um fjölleika og
sjónhverfingalist. Skipta mynd-
ir hans nú þúsundum, og bóka-
titlarnir eru yfir 40 metrar i hill-
um.
Solmu Makela kom með um 40
veggspjöld hingað til lands. Þar
á meöal 102 ára gamalt plakat
frá Tivoli i Kaupmannahöfn, en
það er eina eintakið sem til er I
heiminum af þvi. Þetta er þó
ekki elzta sirkusplakatið, sem
sýnt er, heldur er þaö plakat frá
Cirque National de Paris frá
1850, og fleiri eru frá siöustu öld.
Plaköt Solmu Mákelá eru frá
fjölmörgum löndum og þau eru
sum afar vel gerö, unnin af fær-
um grafikerum og eru prentuö I
litum fyrir hálfri öld eöa
meira. Margir heimsfrægir
listamenn hafa gert sirkus-
plaköt og málað myndir af fjöl-
listafólki, og má þar telja fræg-
astan Picasso, sem tók ástfóstri
viö fjölleikahúsmyndir.
Margar þjóðir hafa gefiö út
frimerki um sirkus og fjöllista-
menn, og voru þrjú spjöld meö
Þaö var hressilegur hópur
leikara, sem lagöi upp i leikför
frá Reykjavik áleiöis vestur
og norður um land fyrir
skömmu. Myndin var tekin,
þegar leikarar Leikfélags
Reykjavikur voru aö leggja af
staö meö leikinn Saumastof-
una, sem sýnd veröur viöa um
land næstu vikur. Fyrsta sýn-
ingin var á Akranesi, og var
leiknum mjög vel tekiö. Næsta
sýning var á Arnarstapa, og i
kvöid, miövikudagskvöld,
veröur sýning aö Logaiandi. A
Hellissandi veröur Sauma-
stofan sýnd á fimmtudags-
kvöld, og i Búöardal á föstu-
daginn. Leikförinni lýkur um
20 júli, en þá veröur hópurinn
búinn aö hafa viökomu viöa á
Vestur- og Noröurlandi.
Ársfundur Sambands sunnlenzkra kvenna:
Eflum eigin hag
kaupum íslenzkt
— var dskorun fundarins til landsmanna allra
Stjas-Vorsabæ. — 48. ársfundur
Sambands sunnlenzkra kvenna
var haldinn i Hverageröi dagana
29. og 30. mai s.l.
1 sambandinn eru 29 kvenfélög
meö 1322 félögum. Starf fél-
aganna er þróttmikiö og gott, og
vinna þau aö ýmsum framfara-
og menningarmálum, hvert i
sinni heimabyggð.
A fundinum fluttu erindi Sigur-
veig Siguröardóttir, varafor-
maður Kvenfélagasambands Is-
lands og kynnti starfsemi Kven-
félagasambandsins og Arni
Jónasson, fulltrúi Stéttarsam-
bands bænda, sem f jallaði um lif-
eyrissjóö bænda og réttarstööu
bændakvenna til sjóösins og kosn-
ingarrétt þeirra til búnaöarfélag-
anna.
Aö loknu erindi sinu færöi Arni
formanni SSK, Sigurhönnu Gunn-
arsdóttur, starfsstarfstyrk þann,
er Stéttarsamband bænda veitir
til kvenfélagasambanda á sam-
bandssvæðinu. Færöi formaður-
inn þeim þakkir fundarins.
A vegum SSK starfa fasta-
nefndir, sem unniö hafa mikiö
starf. Sambandiö hefur staöiö
fyrir ýmiss konai- fræðslu á sam-
bandssvæöinu, svo sem nám-
skeiöum, sýnikennslu og náms-
hringjum. Einnig eru árlega
haldin tvötveggja daga námskeið
i samstarfi viö garöyrkjuskóla
rikisins að Reykjum i ölfusi, j
matreiðslu grænmetis, blóma-
skreytingum og fleiru — og eru
þau mjög vinsæl.
Margar tillögur og ályktanir
voru samþykktar á fundinum, svo
sem þakklæti til menntamálaráö-
herra fyrir framtak hans að veita
ekki áfengi i opinberum veizlum.
Þá var skoraö á foreldra barna á
grunnskólastigi, að vera vel á
verði gagnvart nýframkomnum
tillögum um skiptingu landsins i
skólahverfi. Óskað var eftir þvi,
að námskeiö yröi haldið fyrir
konur i minni háttar viðgerðum á
bilum.
Fundurinn sendi eiginkonum
varðskipsmanna kveðjur sinar og
þakkir, og taldi aö með framtaki
sinu heföu þær vakiö þjóöina til
umhugsunar um störf eigin-
manna sinna og allra islenzkra
sjómanna.
Askorun Sambands sunn-
lenzkra kvenna til allra lands-
manna er þetta: EFLUM EIGIN
HAG — KAUPUM ISLENZKT. I
stjórn Sambands sunnlenzkra
kvenna eru eftirtaldar konur:
Sigurnanna Gunnarsdóttir, Læk,
ölfusi, formaöur, Gunnhildur
Þórmundsdóttir, Selfossi, gjald-
keri og Birna Frimannsdóttir,
Hveragerði, ritari.