Tíminn - 08.07.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 8. júli 1976
Hún
vinnur
eins og
kola-
námu'
maður
Nadia’litla Comaneci er fjórtán
ára gömul. Hún er 153 cm og 37
kg. Iþróttafréttaritarar kalla
hana stundum i gamni stærstu
fló i heimi. Rúmenar setja allt
sitt traust á hana, og vonast til
þess a6 hún eigi eftir a6 færa
þeim gull á Olympiuleikunum i
Montreal i sumar. Nadia er fim-
leikakona, og margir vilja halda
þvi fram, aö hún sé ný Olga
Korbut. Þetta mun þó ekki vera
rétt, þvi hún er miklu betri
heldur en Olga er, e6a á eftir aö
verða. Taliö er, að hún eigi eftir
a6 ver6a bezta fimleikakona i
heimi, þegar fram llða stundir.
Nadia og þjálfarinn hennar Bela
Karoly æfa af miklu kappi fyrir
Olympiuleikana. A leikunum
mun Nadia sýna ýmsar listir, og
gera margt, sem ekki var taliö
hægt fyrir nokkrum árum.
Þegar Nadia var ekki nema 10
ára gat hún gert allar helztu
jafnvægisæfingar, sem fim-
leikakonur reyna viö, og hún gat
lika gert allt þaö, sem færöi
Olgu þrenn gullverölaun á
Olympfuleikunum 1972. Hún
varö þó aö biöa þangaö til hún
varö 13 ára til þess aö fá aö sýna
heiminum, hvaö hún gæti.
Nadia býr meö foreldrum sinum
og yngri bróöur i þriggja her-
bergja ibúö. íbúöin rúmar
tæpast lengur þær hundraö brúð
ur, sem Nadia hefur kaypt I
utanlandsferöum sinum. Hún á
ekki annaö fristundastarf en aö
safna dúkkum, en hún hefur
hins vegar aldrei tima til þess
aö leika sér aö þeim. Þaö er
erfitt verk aö þjálfa, ætli maöur
sér aö ná árangri, sem er á
heimsmælikvaröa. Tvisvar
sinnum á ári leita þjálfarar i
Rúmeniu aö hæfileikastúlkum I
leikfimi. Ariö sem þeir fundu
Nadiu, voru valdar eitt hundraö
telpur, sem siöan voru látnar
gangast undir sérstakt hæfnis
próf. Eftir þaö voru 80 sendar
heim aftur. Þegar áriö var liöiö,
voru ekki nema 5 af þessum eitt
hundraö eftir. Hinar voru ekki
nægilega taugastyrkar, eöa
Hkamsbygging þeirra var of
þunglamaleg, eöa hryggurinn
ekki nægilega sveigjanlegur.
Næstu ár á eftir æföi Nadia þrjá
tima á dag fimm daga vik-
unnar. Prófessor Hollman viö
Iþróttaháskólann I Köln segir:
— Þetta er barnaþrælkun, sem
undir flestum öörum kringum-
stæöum er bönnuö meö lögum.
Þetta er álika erfitt og dagsverk
I kolanámu. En þessi mikla
vinna bar árangur. A slðast-
liönum vetri ferðaöist Nadia um
Bandarikin og Kanada — þar
tók hún þátt i þrem sýningum,
og sex sinnum tók hún þátt í
keppni. Á hverjum morgni æföi
hún auk þess i þrjá tima sam-
fellt. Hún tók svo með sér heim
aftur til Rúmeniu nokkrar
dúkkur, og minningar frá
Disneylandi. Þaö var einasta
skemmtunin, sem hún haföi haft
af ferðinni. Hún haföi auk þess
orðiö aö hafa meö sér skólabæk-
urnar sinar, þvi þótt undarlegt
megi viröast, er hún I skóla, og
þaö sem meira er, hún er meö
beztu nemendum i sinum bekk.
En fólk segir, aö Nadia hafi
aldrei fengiö aö vera barn, þótt
ljósmyndaranum hafi tekizt aö
ná mynd af henni þar sem hún
er aö naga á sér neglurnar. Þaö
sannar þó kannski ekki neitt,
þvi margir fullorönir gera þaö
Ííka.
DENNI
DÆMALAUSI
Til hvers ertu aö brosa?