Tíminn - 09.07.1976, Side 6
6
TÍMINN
Föstudagur 9. júH 1976
Hnignandi siðferði?
Aður hefur verið á það minnzt á þessari siðu að
ýmis teikn væru á lofti, sem boðuðu annað og breytt
siðferði frá þvi sem þjóðin hefur vanizt. Nú liður
ekki sá mánuður að dularfullt mannshvarf gerist og
einatt sannanlega morð. Fjárglæfrar og auðgunar-
brot virðast sifellt færast i aukana og það i öllum
stigum þjóðfélagsins. öll þessi tilvik eru varnaðar-
einkenni um hættulega hnignandi siðgæði.
Þvi er haldið fram af kunnáttumönnum að i
verðbólguþjóðfélagi þar sem rótleysi og staðfestu-
leysi þróast af ofsahraða, fylgi mjög sennilega auk-
in upplausn á flestum sviðum viðkomandi þjóðlifs.
Þessi fullyrðing ætlar að sannast napurlega á okkur
Islendingum. Fyrir fám árum vorum við þjóð sem
varla þekkti morð eða manndráp. Aðrar þjóðir
tóku okkur til viðmiðunar um litið, velheppnað
þjóðfélag. Þetta er nú breytt. Lengra er þó siðan
að fjármálasiðgæði þjóðarinnar tók á sig þann svip
er það hefur nú og er þar eflaust um að kenna mörg-
um samverkandi freistingum nýrikrar þjóðar, sem
erfitt var og er að standast. Okkur skortir þrek og
þolgæði til þess að auðgast á rólegan og staðfastan
hátt. Flest miðast við skjóttekinn gróða og skamm-
sýni.
Við höfum vaknað upp við vondan draum þar sem
sýnt er að fiskimið okkar fara óðum þverrandi.
Mörg dæmi væri hægt að taka af rányrkju þeirri
sem við höfum stundað, en þess gerist ekki þörf.allir
þekkja þau og eru vitandi um tilvist þeirra. Það
sem sárast er að við viljum samt ekki breyta um
lifsstil. Svarta skýrslan boðar ekki fagnaðarerindi
heldur beinlinis tortimingu ýmissa fiskitegunda við
ísland og við beittum þeim rökum i deilu okkar um
200 milna landhelgi. Samt ætlum við ekki að draga
úr fiskveiðunum eins og fiskifræðingar flestir telja
algera nauðsyn. Við ætlum enn að iðka siði
frumstæðra og vanþróaðra þjóða og hagnast sem
mest, á sem skemmstum tima án þess að ihuga
afleiðingarnar með skynsemi, heldúr er sleggja
látin ráða kasti.
Þannig eru einnig sjónarmið þeirra manna sem
nú messa hvað tiðast um aukinn gróða af hernum.
Burtséð frá þvi að allir hljóta að verða sammála um
að aukin þátttaka hersins i islenzku þjóðlifi treystir
enn frekar sess hans á islenzkri grund, þá virðist
það ekki skipta þessa menn nokkru hvernig eða
hvaðan peninga er aflað. Sjónarmiðið er að hér eru
auðfengnir peningar i seilingu og til þeirra gripum
við. Vissulega var það þáttur hins gamla siðgæðis
að mönnum var ekki sama hvaðan peningar voru
fengnir. Höfundur þessara lina vill trúa þvi að enn
sé, þrátt fyrir áróðursrykið sem talsmenn Aronsk-
unnar hafa þyrlað upp, mikill meirihluti þjóðarinn-
ar hlynntur hinu gamla siðferði, að menn eigi með
heiðarlegu vinnuframlagi að afla launa sinna.
Athyglisvert er að langflestir og áköfustu tals-
menn herleigunnar eru landsþekktir f jármálamenn
og hafa vasast i þeim málum frá þvi fyrir eða um
seinni heimsstyrjöldina. Með hliðsjón af þvi að þeir
hafa alizt upp við sjónarmið gullgrafarans um fljót-
tekinn gróða og þekkja ekki annað> eru hugmyndir
þeirra skiijanlegar. Almennur borgari á Islandi
hefur andstyggð á spilltu þjóðlifi, hann vill heiðar-
legt og réttlátt fjármálalif, hann hlýtur að hafna
hermanginu og skuggaviðskiptum þeim sem þar
viðgangast. Þannig verða talsmenn Aronskunnar
lifandi timaskekkja. PE.
Umsjónarmaður:
Pétur Einarsson
Nýjar hugmyndir um
skipan kjördæma og
kosningalaga á Islandi
Gins og áöur hefur veriö skýrt frá
hér þá er kominn Ut bæklingur á
vegum SUF, sem fjaliar um skip-
an kjördæma og kosningalaga á
tslandi.
Til þess aö vekja frekari athygli á
bæklingi þessum veröa birt hér
niöurlagsorö nokkurra þeirra
sem eiga greinar i honum. Ungir-
framsóknarmenn eru eindregiö
hvattir tii þess aö eignast þetta
ritverk og kynna sér þannig itar-
lega þær hugmyndir sem uppi eru
um breytingar. Bæklingurinn er
fáanlegur á Rauöárárstfg 18.
Rvk.
Jón Skaftason
„Ég vil aö endingu lýsa nokkr-
um skoöunum um grundvallar-
atriöi varöandi endurskoöunar-
markmiö stjórnarskrárinnar um
kjördæmaskipan og kosningalög:
1. Endurskoöunin veröur aö bein-
ast aö jöfnun kosningaréttar
kjósenda, hvar sem þeir búa.
Þó er eölilegt aö þyngd at-
kvæöis I dreifbýli sé meiri en i
þéttbýli.
2. Fyrirmæli um kjördæmaskip-
un og kosningafyrirkomulag
flytjist úr stjórnarskrá aö
mestu leyti yfir I kosningalög.
Aöeins meginatriöin haldist i
stjórnarskránni.
3. Hlutfallskosningar veröi i
nokkrum stórum kjördæmum,
t.d. 10 — þ.e. Reykjavlk og
Reykjaneskjördæmi veröi
hvoru skipt I 2 kjördæmi meö
eins miklum möguleikum fyrir
kjósanda aö velja á milli
frambjóöenda á listum og fært
er meö tilliti til sanngjarnra
áhrifa flokkanna á hVaöa fram-
bjóöendur þeir helzt vilja á
þing. Vitna ég I þessu sambandi
til danska kosningakerfisins.
4. Alþingi á aö vera I einni mál-
stofu, en ekki tveim.”
kjördæmi núgildandi skipulags
skapa allmörg svokölluö
„örugg sæti” hjá stærstu
flokkunum, þannig aö þing-
menn þessara flokka fá stööu,
er minnir á réttarstööu opin-
berra embættismanna. Sú
hreyfing og breyting, sem er
æskilegur fylginautur lýöræöis
er naumast fyrir hendi. Meö
þriggja manna kjördæmum
fækkaði öruggum sætum, og
kosningar fengju um leiö meiri
merkingu.
E. Kjördæmaskipunin tryggir
ekki nægilega tengsl þing-
manna og kjósenda.”
Jón Sigurðsson:
„Þaö er nú raunar ekki margt,
sem ég á eftir aö segja. Ég vií
aöeins rekja þaö, aö þau mark-
miö, sem ég hef lagt til grund-
vallar þessum oröum, eru þau, aö
þingmenn beri beina persónulega
ábyrgö andspænis kjósendum
sinum og kjósendur hafi greiöa
leiö aö fulltrúum sinum, og aö
kosningar séu ekki peningalegt
stórfyrirtæki. Þaö gefur auga
leiö, aö þegar kjördæmi eru mjög
stór, þá veröur kosningastarfiö
allt viöameira og krefst meira
fjármagns, og þaö út af fyrir sig
er vafasamt frá lýöræöissjónar-
miöi. 1 þriöja lagi miöa ég viö, aö
kjósendur hafi svo mikiö og
frjálst val sem fært þykir. 1 fjóröa
lagi, eins og ég gat um áöan, tel
ég mikilvægt, aö staöbundin rétt-
mæt sjónarmiö nái aö koma
fram, og aö kerfiö sé aö einhverju
leyti sveigjanlegt meö tilliti til
búferlaflutninga i landinu. I
5. lagi skiptir miklu að náö sé
einhverju þvi marki, sem viö gæt-
um kallaö skynsamlegt jafnvægi
milli réttlætis og jafnaöar i at-
kvæöisrétti, hvaö snertir þá mis-
jöfnu félagslegu aöstöðu, sem
þegnarnir búa viö vegna búsetu
sinnar. 1 sjötta lagi hlýtur það að
vega þungt, aö stuðlaö sé aö festu
I stjórnkerfinu og komið i veg
fyrir of mikla sundrung og upp-
lausn, um leiö og lýöræöislegur
breytileiki og sveigjanleiki eru
virtir. I sjöunda lagi veröur kerfiö
auövitaö aö vera hlutlaust and-
spænis flokkshagsmunum. Þaö er
alveg fráleitt, aö framsóknar-
menn falli i þá gryfju, sem aörir
flokkar hafa fallið I, aö gera til-
lögur eöa beita sér fyrir
breytingum á kjördæmaskipan og
kosningakerfi, sem miöast aöeins
viö flokkshagsmuni. A sama hátt
er það einnig fráleitt aö hverfa
frá skynsamlegum umbótum af
þeirri ástæöu einni, að þær kæmu
illa viö einhverja þá stjórnmála-
hreyfingu, sem lifir I núverandi
fyrirkomulagi, en myndi hverfa
af sjónarsviöinu, ef skynsamlegri
skipan yröi upp tekin. Þaö er eins
og Hákon Noregskonungur sagöi:
„Ég er lika konungur
kommúnistanna”. Þaö veröa allir
aö búa viö þá skipan sem upp er
tekin, og þvi er fyrir miklu, aö all-
ir geti unaö þolanlega viö sinn
hlut og einskis réttur-sé fyrir borö
borinn meö öllu. í áttunda lagi
veröur kerfiö svo, loks, aö vera
eftir föngum einfalt og skýrt.
Viö vitum þaö öll, aö ráöstefna
sem þessi og nefndir á vegum lýö-
veldisins eöa annarra koma þess-
um málum ekki fram, en þær eru
hins vegar mikilvægar til þess aö
ræöa málin, kynna þau og til þess
aö þrýsta á um framkvæmdirnar.
Vitaskuld veröur þaö svo næst,
þegar aö veröur gert, eins og áöur
aö kjördæmamáliö kemur
skyndilega upp, þegar pólitiskar
aöstæöur veröa meö þeim hætti,
að hentugt verður taliö aö hafa
kosningar um þessi mál. En hlut-
verk ráöstefnu sem þessarar er
þaö aö ræöa málið og kynna þaö,
þannig aö einhverjar málefna-
legar hugmyndir liggi fyrir og
hægt-sé aö ýta á um einhverjar
ákveönar tillögur, þegar þar aö
kemur.”
Sigurður Gizurarson:
„1 ljósi hinna helztu sjónar-
miöa, er máli viröast skipta viö
úttekt á kjördæmaskipun, vil ég
aö lokum segja þetta um núgild-
andi fyrirkomulag hlutfalls-
kosninga I stjórum kjördæmum:
A. Kjördæmaskipun er einföld aö
þvi leyti að kjósandi þarf aö-
eins aö setja kross viö bókstaf
þess lista, er hann vill kjósa. Aö
þessu leyti er tilhögunin I reynd
of einföld, þar sem kjósandi er
sviptur frelsi til aö velja per-
sónulega á milli frambjóöenda
eöa til aö setja saman sinn eig-
in lista. Hins vegar er kjör-
dæmaskipunin of flókin hvaö
varöar afleiöingar atkvæöa-
greiöslunnar. Kjósandi á erfitt
meö að gera sér grein fyrir,
hvort hann er aö kjósa eöa fella
uppbótarmann sins eigin flokks
eöa annarra, þegar hann lætur
atkvæöi sitt falla.
B. Kjördæmaskipunin telst rétt-
lát gagnvart 4—5 flokka kerfi
hér á landi. Meö uppbótarsæt-
um hafa þeir 4—5 flokkar, sem
boöiö hafa fram, fengið all-
viöunanlegt hlutfall þingsæta
miðað viö atkvæöatölu. Hins
vegar tekur tilhögunin ekki til-
lit til minnihluta, sem tengdir
eru tilteknum landsvæðum, eöa
a.m.k. sú hætta er fyrir hendi.
C. Kjördæmaskipunin er ekki
nægilega skilvirk, þ.. stuölar
ekki aö nægilega hreinum lin-
um i kosningum né heldur
nægilega traustum þingmeiri-
hluta hverju sinni aö baki rikis-
stjórn. Þannig missti „Vinstri
stjórnin” nauðsynlegan meiri-
hluta á Alþingi, er einn þing-
maður Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna hætti stuðn-
ingi viö hana á þingi.
D. Lokaðir listar og 5—6 manna
Seljum í dag:
1976 Austin Mini
1975 Austin Mini
1975 Vauxhall viva de luxe
1975 Ford Cortina XL
1974 Scout II V 8 sjálfskiptur vökvastýri
1974 GMC Jimmy V8 sjálfskiptur meö vökvastýri
1974 Chevrolet Nova
1974 Vauxhall viva de luxe
1974 Austin Mini
1974 Scout II 6 cyl. beinskiptur
1974 Citroen G.S. 1220 Club
1973 Chevrolet Blazer Custom
1973 Chevrolet Laguna 4ra dyra sjálfskiptur vökva-
stýri
1973 Chevrolet Laguna Coupe
1972 Land rover disel
1972 Opel Rekord coupe
1972 Saab 96
1971 Chevrolet Nova
1971 Opel Rekord 4ra dyra
1971 Citroen Ami 8
1971 Volkswagen Fastback G.L. 1600
1968 Plymouth Satellite 2ja dyra V8 sjálfskiptur.
Auglýsið í Tímanum