Tíminn - 02.09.1976, Síða 3
Fimmtudagur 2. september 1976
TÍMINN
3
REYKJAVÍKUR-SKÁKMÓTIÐ
Svartur dagur
hjá íslendingunum
MÓL-Reykjavik. Sjöunda um-
ferö Reykjavikurskákmótsins
var tefld i gærkvöldi aö viö-
stöddum fáum áhorfendum. tJr-
slit skáka uröu sem hér segir:
Guömundur gaf skákina viö
Timman eftir 27 leiki og haföi
Guömundur þá mun verri stööu
og auk þess var skiptamunstap
óumflýjanlegt.
Vukcevich vann Inga f 28
leikjum.
Helgi gaf skák sina gegn
Keene i 33. leik, en þá var
mannstap óumflýjanlegt.
Þegar Gunnar gaf skák sina á
jnótiWesterinen i 30. leik var
hann fjórum peöum undir.
Margeir og Haukur sömdu um
jafntefli i 42. leik.
Björn tapaöi fyrir Friörik i 25
leikjum, en þá var drottning
hans innilokuö.
Skák Matera og Tukmakovs
fór i biö eftir 40 leiki og hefur
róssinn peöi meira i riddara-
endatafli.
Skák Antoshin og Najdorf var
flókin þegar hiln fór i biö
Sovétmaöurinn hefur peöi
meira og betri stööu.
Staöa efstu manna er sem hér
segir:
1. Timman 5 1/2 + biöskák
2. Friörik 5 1/2
3. Najdorf 4 1/2 + biöskák
4. Tukmakov 4 + biöskák
5. -6. Guöm. og Ingi 3 1/2 + biö-
skák
7. Keene 3 1/2
8. Antoshin 3+2 biöskákir
1 dag klukkan 11 veröa biö-
skákir tefldar en áttunda um-
feröin hefst klukkan 17.30 i
Hagaskólanum.
tfcukiarik /f T-L / 3 y £ 6 ? $ 9 /9 // U // // tf //
jL Helgi ólafsson X % 'k % ‘Jz 0 0 t
? Gunnar Gunnarsson 'U X o 0 o o
3 Ingi R Jóhannsson 'lx 1 I O o 1 l
iL Margeir Pétursson •h X Hi o 0 'A
£ Milan Vukcevich h i X 0 'íx Yi o
Heikki Westerinen 1 1 X 0 h O •k 'fl
X Raymond Keen i X i 0 l4 o 'h [h
Salvatore Matera X '/2. i o h o O
Vladimir Antoshin % X h 'k % 1
/ð Björn Þorsteinsson 0 0 % X O o o
// Jan Timman 1 1 \ \h X 1 1
Guðmundur Sigurjónsson < Hx 'lt 1li i ó X
Æ Friðrik ólafsson % •u i l 1 'A i X
Æ Miguel Najdorf 1 1 ‘A ‘h '/? \ X
/s Vladimir Tukmakov f O 1 1 ‘h 'Jn X
íí. Haukur Angantýsson & l! o ‘A o 1 0 X
TEKUR EKKI NEMA 20 MÍNÚTUR
AÐ FINNA FARANGURINN, ÞÓ
AÐ HANN HAFI LENT í ÁSTRALÍU
ASK-Reykjavik. — Farangurs-
leitartölvan hefur auöveldaö okk-
ur starfið gifurlega, sagöi John
Spencer, starfsmaöur Flugleiöa,
er Timinn ræddi viö hann I gær. —
Hún var tekin I notkun fyrr á
þessu ári, og þaö er óhætt aö
segja, að hún hafi verið i stanz-
lausri notkun siðan.
Flugleiðir voru formlega viður-
kenndur aðili að farangursleitar-
tölvu i vor, sem bandariska flug-
félagið Eastern Airlines rekur i
borginni Charlotte. Alls eru um 80
flugféiög aöilar aö tölvunni, en
John sagði að enn væru félög svo
sem Airoflot og EL AL utan þess.
Komi ekki farangur farþega
fram meö flugvél á áfangastaö og
leit meö heföbundnum hætti ber
ekki árangur, er lýsing á hinum
týnda farangri send I ákveönu
kerfi i tölvuna i Charlotte. Hún
gerir siöan samanburö á lýs-
ingunni á farangrinum frá Kefla-
vik, — sem er höfuömiöstöö
farangursleitar Flugleiöa, — og
öörum farangri, sem aöildarfélög
hafa gefið tölvunni upplýsingar
um. Sagði John, aö svar bærist
yfirleitt innan 20 minútna. —
Lengst höfum við fariö til Astra-
liu til að finna tösku fyrir islenzka
konu, sem var aö koma frá
London, sagöi John, — svo þaö er
augljóst, hve kerfiö er þægilegt.
Talva þessi er af geröinni
UNIVAC 494 og er ganghraöi
hennar einn billjónasti úr
sekúndu.
Sjálfkrafa samband viö hana er
um venjulegt fjarskiptakerfi
flugfélaganna áttatiu og er hún
opin allan sólarhringinn. Tekur
hún viö upplýsingum frá öllum
aðildarfélögum um glataðan
farangur svo og þeim, sem
eigendur finnast ekki aö, gerir
samanburö á lýsingum þeim, sem
berast viö þær, sem fyrir eru, og
skýrir frá niðurstööum. Til marks
um annir tölvunnar er aö 15.000 til
25.000 mál um glataðan farangur
farþega aöildarfélaganna eru aö
meöaltali i henni á mánuöi og
20.000 til 30.000 um farangur, sem
eigandi finnst ekki aö. Upplýsing-
ar um gla.taöa farangurinn
geymir hún i 60 daga, en hinar i 90
daga.
Loðnan:
Enginn afli þrátt
fyrir gott veður
—hs-Rvik. BHðuveöur var á
loðnumiðunum I gær, en engan
afla að hafa, að sögn Þorsteins
Jónssonar hjá Loðnunefnd.
Sagði hann, aö skipin væru
komin mjög djúpt út af Noröur-
landi, eftir aö hafa leitaö loðnu I
austnoröaustur, en ekkert haf-
rannsóknarskip er nú á miöun-
um. Arni Friöriksson er I slipp
og önnur skip eru bundin viö
verkefni.
Þorsteinn sagöist hafa heyrt,
aö sum loðnuskipanna væru
komin yfir lOOmilur frá landi og
tæplega er viö þvi aö búast, aö
„karlarriir” séu ánægöir meö á-
standið.
Aukin verðbólga
Reuter, Wiesbaden. — Verö-
bólga I Vestur-Þýzkalandi
jókst nokkuö i siöastliönum
mánuði, eftir aö hafa verið i
stööugri minnkun siöan i
febrúar.
Tölur frá flestum af ellefu
fylkjum landsins benda til, aö
veröhækkun á neysluvörum
hafi verið á milli 4.- og 4.7 af
hundraöi á ársgrundvelli
þennan mánuö, en I júli voru
þær um 4,1 af hundraöi.
Góð berja-
spretta um
land allt
ASK-Reykjavik. — Þaö er allt
morandi af berjum, sagöi sima-
mærin á Fosshóli i S-Þing, er
Timinn ræddi viö hana i gær. —
Ég veit til þess, aö i Yzta-Fells-
skógi hafa margir veriö að tlna
ber og það sést vist ekki högg á
vatni. Sjáif hef ég búið hér i 10 ár,
og ég man ekki eftir öðru eins.
1 sama streng tók Sverrir
Guðmundsson, Lómatjörn, en
hann sagöist halda að berja-
spretta væri einna bezt úti á
Fjörðum og á Flateyjardal. Góö
spretta er einnig i byggö, og sagöi
Sverrir, aö fólk heföi notfært sér
þaö töluvert. Fyrsta hélan kom i
Grýtubakkahreppi I fyrrinótt, og i
gær var skafheiöur himinn,
þannig aö búast má við nætur-
frostum.
—• Þaö er töluvert af berjum
inni áheiði, sagöi Sólveig Einars-
dóttir, Teigi, Vopnafiröi. — Þar er
aöallega aðalbláber aö hafa, en i
byggð er llka ágæt berjaspretta.
Óvenjumikið er af hrútaberjum i
ár.
Páll Þorláksson, Sandhóli I
ölfusi sagöi að spretta yröi aö
teljast góö. Hjá bæ Páls er aöal-
lega krækiber aö hafa, en lika
mun vera eitthvaö af bláberjum.
Biskup tslands hefur auglýst
Vallarnesprestakall I Múla-
prófastdæmi laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur rennur út 20.
september.
Haf rétta rróðstef na n:
Deilt um rétt auðhringa
til að nýta hafsbotninn
MÓL-Reykjavik. — Deilurnar
um réttindi auðhringa til að
hagnýta auðlindir botnsins á al-
þjóðlega hafsvæðinu utan efna-
hagslögsögu strandrikjanna, er
það ágreiningsefni, sem hefur
vakið mesta athygli á ráðstefn-
unni, sagði Þórarinn Þórarins-
son, fulltrúi Framsóknarflokks-
ins á fjórða áfanga Hafréttar-
ráðstefnunnar, I samtali við
Timann.
— Siöan ráöstefnan hófst, 2.
ágúst s.l., hafa nær allar um-
ræöur I fyrstu nefndinni snúizt
um aðeins eina grein 1. kafla, á-
samt uppkasti aö reglugerö,
sem fylgir henni. Enginn, sem
lætur þetta mál sig varöa, getur
sætt sig viö greinina eins og hún
er I fyrirliggjandi uppkasti og
hafa þrjár breytingartillögur
veriö lagöar fram, ein frá rikj-
unum 77, önnur frá Bandarikj-
unum og sú þriöja frá Sovétrikj-
unum.
— Þessi grein fjallar um
valdsvið væntanlegrar alþjóöa-
stofnunar, sem á aö stjórna nýt-
ingu auöæfa á alþjóölega hafs-
botninum. Menn viröast sam-
mála um, aö til þess aö annast
vinnslu umræddra auöæfa þurfi
sérstakt leyfi frá stofnuninni og
siöan fylgist hún meö, aö settum
skilyröum sé fullnægt. Leyfi til
vinnslu skulu annaö hvort veitt
sérstöku alþjóðlegu fyrirtæki,
sem er gert ráö fyrir aö veröi
stofnaö, eöa þá, aö leyfiö fái ein-
stakt riki eöa fyrirtæki, sem rik-
iö ábyrgist. En lengra nær ein-
hugurinn ekki.
— Samkvæmt bandarisku til-
lögunni er alþjóöastöfnuninni
nánast skylt aö veita þeim
einkafyrirtækjum leyfi, sem
hafa fullnægt settum skilyröum.
Samkvæmt tillögu rikjanna 77,
skal alþjóöastofnunin tilkynna
opinberlega, þegar sótt er um
leyfi, og gefa öllum kost á um-
sóknum. Stofnunin velur siöan
úr umsóknunum eöa hafnar öll-
um, Sovézka tillagan er loöin,
en vikur þó ekki langt frá þeirri
bandarisku.
— Raunverulega stendur
deilan um, aö Bandarikin vilja
tryggja forgangsrétt banda-
riskra fyrirtækja, sem eru kom-
in lengst meö rannsóknir á viss-
um svæðum, og heföu reyndar
sum þeirra sennilega þegar haf-
iö vinnslu, ef ekki væri veriö aö
biöa eftir niöurstööum ráöstefn-
unnar. Af hálfu fulltrúa Banda-
rikjanna hefur veriö látiö skina
i, aö þau geti ekki beöiö öllu
lengur, en hér er m.a. um aö
ræöa málma, sem Bandarfkja-
menn hafa mikla þörf fyrir og
flytja nú inn aö mestu leyti.
Þriöji heimurinn er ófús til aö
veita fyrirtækjum Bandarikj-
anna eöa annarra iönaðarvelda
óbeinan eöa dulbúinn forgangs-
rétt, enda er þaö álit ýmissa, aö
Bandarikin kunni aö skipta um
skoðun eftir forsetakosningarn-
ar, þvi fyrr geti þeir ekki slakaö
til.
— Um þessa 22. grein og meö-
fylgjandi reglugerö er búiö aö
karpa látlaust i fyrstu nefndinni
siöan ráöstefnan hófst i ágúst-
byrjun. Fyrir nokkru var full-
trúum frá 26 rikjum faliö aö
reyna aö ná samkomulagi, en
litiö hefur þokazt áleiðis á fund-
um þeirra. Talsveröur hluti um-
ræönanna hefur fariö i þaö, aö
fulltrúar Þriöja heimsins hafa
látið I ljós undrun yfir þvl, aö
Bandarikin skuli ekki treysta á
samkeppni þegar til kemur.
Rússar hafa lika fengiö aö
heyra, aö þeir væru ekki miklir
sósialistar, en samkvæmt til-
lögu þeirra má alþjóölega fyrir-
tækiö aldrei nýta meira en 50%
af þvi, sem nýtt er á alþjóölega
hafsvæöinu á hverjum tima og
þvi bendir fátt til þess, aö sam-
komulag náist um 22. greinina á
þessum fundi Hafréttarráö-
stefnunnar. Ef til vill frestast
hún um óákveöinn tima vegna
þessarar deilu.
— 1 annarri nefndinni, þar
sem rætt er um efnahagslögsög-
una, heldur sama þófiö áfram.
Þar er i gangi hópur 21 rikis,
eins konar undirnefnd, sem I eru
fulltrúar frá strandrikjunum og
fuiltrúar frá landluktu rikjun-
um.
I gær, miövikudag, var von á
Kissinger á ráöstefnuna og
ætlaöi hann aö tala viö Amail
Shingri forseta ráöstefnunnar. í
gær hófst einnig fundur I stjórn-
arnefnd ráöstefnunnar og þar
kemur sennilega fram hvernig
Amail Shingri ætlar aö reyna aö
leysa mál ráöstefnunnar, þann-
ig aö hægt veröi aö halda henni
áfram, en hann reynir aö stefna
aö samkomulagi um sameinaö-
an texta. Eins og nú horfir næst
annaö hvort samkomulag um
sameinaöa texta á ráöstefnunni,
eöa allt veröur I óvissu um
hvenær næsta ráöstefna veröur
haldin, sagöi Þórarinn aö lok-
um.