Tíminn - 02.09.1976, Qupperneq 7
Fimmtudagur 2. september 1976
tíminn;
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús-
inu við Lindargötu, sfmar 18300 —-18306. Skrifstofur í;
Aðaistræti 7, slmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 50.00. Aákriftar-
gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f.
Upprifjun um
Filistea
Fyrir mörgum áratugum skrifaði Jónas frá
Hriflu frægar greinar i Skinfaxa, timarit ung-
mennafélaganna, um Filisteana — mennina, sem á
þeirri tið læddust með veggjum og riðu um héruð
þeirra erinda að féfletta menn með sviksamlegum
hætti, er ekki varð á haft að lögum, og rýja þá
eignum sinum. Þessar greinar urðu verðug refsing
mörgum ófyrirleitnum fjárplógsmönnum, sem
skilið höfðu eftir sig auðn, þar sem þeir fóru um og
fengu beitt klækjum sinum i skiptum við heiðarlegt
og hrekklaust fólk. Þær urðu lika mörgum við-
vörun, þegar að garði bar sléttmálga gesti með bros
á vör, en fláttskap i huga.
Nú fúna bein þessara viðsjálsmanna.
Mikið vatn er til sjávar runnið siðan þetta gerðist.
Sjálfsagt hafa alla þessa áratugi fundizt með þjóð-
inni menn,sem kusu sér það mannskemmandi hlut-
skipti að þræða slóð Filisteanna — fjáraflagötuna
meðfram glæpaveginum. En mismikil brögð hafa
áreiðanlega verið að þvi.
Nú um langt skeið höfum við búið við það þjóðfé-
lagsástand, sem er gróðrastia fyrir fégirnd og
lausung, og kjörinn leikvangur fyrir ófyrirleitna
menn, likt og raki i húsum býður óþrifum heim.
Látlaus verðbólga, tillitslaust lifsgæðakapphlaup,
næstum þvi tilbeiðsla á peningavaldi og gróða — allt
þetta myndar þann myrkvið, þar sem þeir fá
sér bezt við komið. 1 kyrrlátu, umbrotalitlu þjóðfé-
lagi i hægum vexti eru tækifærin færri — i umróts-
þjóðfélaginu okkar gefast þau mörg, og það þeim
mun fremur sem það hefur áreiðanlega verið van-
búið á mörgum sviðum til vamar gegn all konar
klækjabrögðum innan flókins fjármálakerfis.
Engan þarf þess vegna að furða, þótt hákarlar
hafi leitað sér bráðar með uggana ýmist undir yfir-
borðinu eða ofan þess. Sögur eru uppi, og næstum
opinskátt verið sagðar i blöðum, um fólk á meðal
okkar, sem beitt hafi nokkurn veginn sömu vinnu-
brögðum við fjárafla sinn og Filistearnir gömlu. En.
fleiri eru þeir, og meira á orði hafðir, er farið hafa
aðrar brautir, sem siður voru hugsanlegar á fyrri
tið vegna fábreytni samfélagsins, og er þar átt við
ávisanamisferlið, sem á flestra vömm er.
Saga þessara Ný-Filistea er þó ekki að hefjast
þessi árin. Hún á rætur i liðnum áratugum, og til
em þeir menn, og fleiri en einn, sem orðið hafa fyrir
löngu nafnfrægir, ef unnt er að nefna frægð i þessu
sambandi, vegna sérlegrar meðhöndlunar þeirra á
þeim gjaldmiðli, sem nefnist tékkar. En hitt er
verra en ógæfuferill fárra manna, ef hátterni þeirra
hefur að meira eða minna leyti verið tekið til fyrir-
myndar af mörgum öðmm. Sú leynd, sem haldið
hefur verið fram að þessu yfir ávisanamisferli þvi,
sem upp hefur komizt i Seðlabankanum við rann-
sókn, er þó tók aðeins til fimm hundruð daga, hefur
orðið kveikja magnaðra sögusagna, saklausu fólki
til mestu hrellingar, eins og allir kannast við.
Ekki bætir úr skák, að i viðtölum i blöðum, raunar
við ónafngreinda menn, sem þó eru titlaðir hátt-
settir i bönkum, hefur verið látið að þvi liggja, að
þessu lik ávisanasvik séu tæpast umtalsverð, hafi
viðgengizt vitt og breitt og að helzt verður skilið,
verið alkunna. Flestir munu þó lita svo á, að þá
fyrst taki i hnúkana, ef þetta er annað enómerk orð.
—JH.
Tvísýnar kosningar
framundan í Svíþjóð
Getur rauðgræn stjórn haldið hægri mönnum frd?
Olof Palme
SUNNUDAGINN 19. sept-
ember nk. ganga sænskir
kjósendur aö kjörboröinu til
að kjósa sér nýja þingmenn —
eöa þá gömlu aftur. Þessar
kosningar eru athyglisveröar
að þvi leyti, aö nú er meö öllu
óljóst, hvort sósialdemókratar
(eöa jafnaöarmenn) — flokkur
Olofs Palme — halda um
stjórnartaumana eftir þær.
Þegar er fariö aö ræöa um
væntanlega samsteypustjórn
borgaraflokkanna, og þá undir
stjórn Thorbjörns Falldins —
formanns Miöflokksins. En
menn veröa aö gæta aö sér i
slikum vangaveltum, þvi ekki
má gleyma þeim möguleika,
aö rauðgræn samsteypustjórn
veröi mynduö I Sviþjóö, þ.e.
stjórn sósialdemókrata og
Miöflokksins. Slik stjórn hefur
áður setiö viö stjórnvölinn, og
auk þess veröur aö hafa i
huga, aö töluveröur mismunur
er á milli stefnuskrá Miö-
flokksins annars vegar og yf-
irlýstri stefnu hinna borgara-
flokkanna hins vegar.
ÞINGKOSNINGAR fóru
siðastfram i Sviþjóö árið 1973,
en þar i landi fara þær fram á
þriggja ára fresti. Fyrir þær
kosningar höföu borgara-
flokkarnir — Miöflokkurinn,
Þjóöflokkurinn og Hægfara
Sameiningarflokkurinn —
komiö sér saman um nokkurs
konar samstarf. En þar sem
slikt er ekki fyrir hendi I dag,
þá má ekki útiloka rauögrænu
stjórnina.
AGREININGUR borgara-
flokkanna er aöallega tvenns
konar. Annars vegar virðist
Hægfara Sameiningarflokkur-
inn (Moderata Samlingsparti-
et), sem er hægrisinnaöur,
ekki geta sætt sig viö stefnu
hinna tveggja i almennum
þjóðfélagsmálum. Hinir svo-
kölluöu miöflokkar, þ.e. Þjóö-
flokkurinn, sem er frjálslynd-
ur, og Miðflokkurinn, sem hét
áður Bændasamtökin, hafa al-
gjörlega útilokaö samsteypu-
stjórn borgaraflokkanna,
nema hugmyndafræði þeirrar
stjórnar yrði grundvölluö á
skoðunum miöjumanna.
Fyrir kosningarnar 1973, þá
fékk Falldin loforð frá Gösta
Bohman, leiötoga Hægfara
Sameiningarflokksins, þess
efnis, að þeir myndu ekki
standa á móti þessari hug-
myndafræöi, ef til samsteypu-
stjórnar borgaraflokkanna
kæmi. En Falldin hefur ekki
fengiö neitt slikt loforð fyrir
þessar kosningar.
FALLDIN hefur sagt, aö
fengi hann slikt loforö, þá
stæði ekkert I veginum fyrir
samsteypustjórn borgara-
flokkanna.
En hvað sem veldur, þá
viröist hann samt hafa gleymt
einu mesta hitamálinu — deil-
unum um kjarnorkuverin.
Miðflokkurinn hefur gert deil-
urnar um kjarnorkuverin aö
aöalkosningarmáli sinu. Hef-
ur Falldin lýst þvi yfir, aö ekki
komi til mála annaö en að
hætta við allar áætlanir um
uppbyggingu kjarnorkuvera i
Sviþjóð, en þau eru reyndar
oröin fjölmörg. Hinir flokk-
arnir munu eiga i erfiðleikum
með aö standa gegn þessari
skoöun og tæplega getur Miö-
flokkurinn hörfaö, þar sem
hann hefur gert svo mikið úr
þessu máli.
ÞA ER komið aö spurning-
unni um hugsanlega sam-
steypustjórn Miöflokksins og
Sósialdemókrata.
Tvisvar áður hafa þessir
flokkar setiö saman i stjórn og
sumir álita, aö ekki sé loku
skotið fyrir þá þriöju. Falldin
hefur reyndar algjörlega
hafnað þeirri hugmynd. Hann
segir, aö Sósialdemókratar
hafi fjarlægzt alltof mikið
stefnu Miöflokksins meö þvi
aö stefna að hinu aukna miö-
stjórnarvaldi. Ef slik sam-
steypustjórn gæti oröiö aö
raunveruleika, þá veröur
Sósialdemókrataflokkurinn aö
slá verulega af stefnu sinni I
almennum þjóöfélagsmálum.
En slikt er vel hugsanlegt, ef
Olof Palme ætlar sér aö vera
áfram I stjórn.
EN EITT er alveg áreiöan-
legt. Augu manna munu aö
miklu leyti hvila á aðgeröum
Miöflokksins. Þeir hafa komið
vel fyrir, það sem af er þessari
kosningabaráttu og i fyrsta
skipti eru einhverjir mögu-
leikar á þvi, aö flokkurinn
komist til valda.
Hvort þeir muni velja
sér Sósialdemókrata sem
samstarfsmenn eöa borg-
araflokkana er á huldu. Aö
visu telja flestir, aö sam-
starfiö viö Sósialdemókrata sé
nær þvi útilokað, en eins og
komiö hefur fram að ofan, þá
gæti það þó oröiö.
Einnig spilar þar inn i, aö
hart er nú lagt aö Palme, aö
gera einhverjar breytingar,
þvi aö mikil óánægja er I Svi-
þjóö með margt i kerfinu. Til
að mynda eru menn ekki alltof
ánægöir meö skattakerfið,
sem þykir jafnvel verra en
okkar hérna á tslandi.
MÓL.
Thorbjörn Falldin.