Tíminn - 10.09.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.09.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 1«. september 1976. Slökkviliösmenn rifa þakplötur til þess aö komast aö marhálminum undir þakinu á Laugavegi 46. Timamynd: Gunnar Annir hjá slökkvi- liði í hádegi — Þrjú útköll á rúmum hálftíma í gær Gsal-Reykjavik — A rúmum hálf- tima um hádegisbiliö í gærdag var slökkviliöiö i Reykjavik þri- vegis kallaö út vegna elds. Fyrst var slökkviliöiö kallaö út kl. 12.09, en þá var eldur i timburskúr, áfastur ibúöarhúsinu Blesugróf 21. Þar var eldur i oliukynditækj- um og logaöi glatt, þegar slökkvi- liöiö kom, aö sögn varöstjóra slökkviliösins. Slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann komst i ibúöarhúsið, en skemmdir urðu talsveröar i skúrnum. Þegar slökkvistarfi var að ljúka i Blesugróf var tilkynnt um eld að Lokastig 7, en þar hafði panna gleymzt á eldavél, og lagði þaðan nokkurn reyk. Enginn eld- ur var, en kjötið sviönaði veru- lega á pönnunni. Nokkru siðar var tilkynnt um eld að Laugavegi 46, ogvar mikill reykur og hiti i viðbyggingu við húsið, þegar slökkviliðið kom á staðinn. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins, og urðu svo til engar skemmdir vegna vatns, en ibúðin er mikið skemmd af eldi. Eldurinn kviknaði undir borði hjá vaski i eldhúsi og læsti sig i veggfóður. Með veggfóðrinu barst eldurinn eftir gangi og fram i stofu. Slökkviliðsmenn rifu einnig fjórar plötur af þaki viðbygg- ingarinnar til þess að komast i marhálm, sem þar var undir, en i slikum hálmi getur eldur leynzt mjög lengi. • •• Sjo hundruð þúsund Skaöabótakrafa sú, sem þýzki rannsóknarlögreglu- maöurinn Karl Schutz gerir á Morgunblaðið fyrir róg og mannorösspjöll vegna birt- ingar tveggja teikninga, þar sem hann er færður i gervi hinna illræmdu SS-sveita nazista, nemur sjö hundruö þúsund krónum. Mál þetta verður tekiö fyrir hjá sakadómi i dag, og hafa ritstjórar Morgunblaös- ins þá verið kallaöir fyrir til þess að svara til saka. Karl Schutz. „Ekki nein lausn að loka Tónabæ" — segir Omar Einarsson, framkvæmdastjóri Tónabæjar Gsal-Reykjavik. — Þaö þýöir ekki að hlaupast undan þessu vandamáli, og þar af leiöir aö þaö er engin lausn aö loka Tóna- bæ, enda hef ég ekki trú á þvf aö það verði gert, sagöi Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri Tónabæjar, i samtali viö Tím- ann i gær, en ástandiö á þeim bæ, og þó einkum þar fyrir utan, hefur verið svo slæmt að uiulan- förnu að Æskulýösráð, sem rekur Tónabæ, hefur skipaö sér- staka vinnunefnd til þess aö kanna framtið þessa skemmti- staöar unga fólksins. Akveöið hefur veriö, að loka Tónabæ næstu tvær helgar, en þáeiga aðliggja fyrir tillögur til úrbóta i þessum efnum frá vinnunefndinni. — Það þýðir — að minum dómi — ekkert að loka húsinu, ómar Einarsson framkvæmda- stjóriTónabæjar i anddyri húss- ins. Tímamynd: Gunnar. nema að fyrir liggi hvað eigi að gera fyrir unglingana, sagði Ómar. — Ef húsið verður selt, eins og rætt hefur verið um, verður lika að liggja fyrir hvað gert verður við það fé, sem fæst fyrir húsið. Við getum ekki kastað vandanum frá okkur og bara þvegið hendur okkar. Það er engin lausn. Ómar kvaö ekki hljómgrunn hjá Æskulýðsráði fyrir lokun Tónabæjar, nema að vinnu- nefridin kæmi fram með ein- hverjar tillögur, sem hægt væri að sætta sig við. — Stærsta vandamálið hér eru dansleikirnir á föstudags- kvöldum. Þó má ekki dæma staðinn eingöngu út frá þeim kvöldum, þvi að yfirleitt er á- standið ágætt önnur kvöld. Við verðum að gera okkur grein fyr- ir þvi, að Tónabær er eini skemmtistaður unglinga á öllu Stór-Reykjavikursvæðinu, og þvi þarf það ekki að koma nein- um á óvart þótt unglingarnir flykkist hingað. Það verður þó að játa, að ástandið hér siðari hluta sumars á föstudagskvöld- um hefur verið fyrir neðan allar hellur og ég hygg að ástæðan fyrir þvi sé að nokkru leyti sú, að aðrir skemmtistaðir hafa tekið upp mun strangari passa- skyldu, og þvi hafa unglingar allt upp undir tvitugt leitað hingað i auknum mæli. Sumt af þessu fólki, og það sem svertir staðinn mest, er ekki i skóla að vetrinum, heldur hefur farið snemma út i atvinnulifið. Þetta fólk hefur gnægð fjár, oft bila, og það stendur fyrir partium hér fyrir utan langt fram eftir nóttum. Það virðist hafa nóg af áfengi, og það er stutt að sækja blandið i sjoppuna hérna við hliðina. Þetta fólk og margt annað gerir enga tilraun til þess að komast hér inn. Sumir kom- ast að vi'su ekki inn sökum ölvunar.og komið hefur fvrir að uppselt hefur verið. Hins vegar eru margir, sem aldrei reyna að leita inngöngu, heldur hreiðra um sig hérna fyrir utan, enda skjólgott hér siðan stóra bygg- ingin reis hér við hliðina. ómar sagði, að krakkarnir, sem hanga fyrir utan, settu ljót- anblettá allan þann fjölda, sem væri inni á dansleiknum og hegðaði sér vel. — Það má ekki dæma Tónabæ út frá þeim hóp, sem hangir hér fyrirutan lonog don, oft langt fram eftir nóttu, viö brennivinsdrykkju og slags- mál. Það er ekki réttlátt gagn- vartöllum hinum sem hegða sér vel, sagði hann. Ómar kvaðstekki hafa neina lausn á takteinum i sambandi við þennan vanda og sagði, að þetta væri miklu stærra vanda- mál en svo, að það yrði leyst i einu vetvangi. — Þetta er vandamál, sem þarf að ræða við ýmsa aðila, þ.á.m. lögregluyfir- völd, en ljóst er, að það verður með einhverjum ráðum að fyr- irbyggja þessi skrDslæti. Tóna- bær er miðstöð fyrir unglinga á öllu Stór-Reykjavikursvæðinu, og þvi er það dálitið hlægilegt, að heyra æskulýðsfulltrúa hér i nágrannabyggðarlögunum halda þvi fram, að þeir eigi ekki við neitt unglingavandamál að striða, heldur aðeins þeir i Reykjavik. Það var gerð könn- un hér i fyrra á þvi úr hvaða byggðarlögum gestir hússins væru, og i ljós kom, að allt upp undir 30% af krökkunum voru frá Hafnarfirði, Kópavogi, Garðahreppi, Seltjarnarnesi, Mosfellssveit og öðrum byggð- arlögum lengra frá. Ómar sagði að lokum, að aldrei fyrr hefðu borizt jafn- margar kvartanir frá ibúum i næstu götum við Tónabæ og sið- ustu vikur. — Það verður fundur meðlögreglu á morgun og fund- ur i vinnunefndinni annað kvöld sagði ómar Einarsson. Einar Eyjólfsson eigandi Sunnukjörs fyrir utan verzlun sina. Timamynd: Gunnar. ,,Erum með tilbúna fleka til að setja í gluggana" — segir Einar Eyjólfsson, eigandi Sunnukjörs Gsal-Reykjavik. — Það verður stórléttir fyrir okkur ef Tónabæ verður lokaðog ég segi þaðsatt, að það er von min að Tónabæ verði lokað að fullu, og hygg ég að þar tali ég fyrir munn allra i hverfinu, sagði Einar Eyjólfs- son, eigandi Sunnukjörs, sem er i sama liúsi og Tónabær. Það hefur iðulega komið fyrir, að rúður hafi verið brotnar hjá Einari, og sagði hann, að senni- lega hefðu á milli fjörutiu og fimmtiu rúður verið brotnar i verzluninni á siðustu fjórum til fimm árum, þar af sennilega upp undir tiu i sumar. — Á föstudagskvöldum má maður alltaf eiga von á þvi, að lögreglan hringi og tilkynni um rúðubrot. Við þetta verður maður að sætta sig og gjöra svo vel að vera heima um helgar. Þegar lögreglan hringir og til- kynnir um brotið verður maður aðfara hingaðog fylla upp i göt- in, en viðhöfum látið útbúa sér- staka fleka, sem hægt er að skella i gluggana, sagði Einar. Við inntum hann eftir þvi, hvort hann hefði orðið fyrir ein- hverju fjárhagstjóni vegna rúðubrotanna og kvað hann nei við, enda ætti tryggingarfélag húsnæðið. Einar sagði, að þótt rúðurnar væru brotnar væri ekki mikið um það að krakkarnir færu inn i verzlunina. Hins vegar hirtu þau oft eitthvað úr gluggunum. — Þetta er geysimikið álag og erfitt að búa við þetta, sagði Einar Eyjólfsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.