Tíminn - 10.09.1976, Síða 20

Tíminn - 10.09.1976, Síða 20
* II. ------------ Köstudagur 10. september - -< FÓÐURVÖRUR þekktar UAA LAND ALLT fyrir gæði Guöbjörn Guöjönsson Heildverzlun Siðumúla 22 Símar 8S694 8. 85295 LEIKFANGAHÚSIÐ Skolavörðustig 10 - Sími 1-48-06 Ævintýra- maðurinn Póstsendum Skriðdrekar Þyrlur Jeppar Bátar f ALLAR TEGUNDIR" FÆRIBANDAREIAAA FYRIR c c .. . rslui Einnig: Færibandareimar ur ryðfriu og galvaniseruöu stáli ÁRNI ÓLAFSSON & CO. ................. 40088 'S 40098 —« MAÓ LÁTINN Búast má við harðnandi valdabaráttu í Kína Reuter.Hong • Kong.Pek- ing, I.oml on .Wasbington.— Mao Tse-tung, formaöur kinverska Kommúnistaflokksins, lézt i Peking, höfuðborg Kina, á miö- vikudag. Meö honum er genginn einn af valda- og áhrifamestu leið- togum heimsins, en völd hans i Ktna hafa verið og voru allt fram á dánardægur hans, óskoruð og afdráttarlaus. Um nokkurt skeið hefur verið vitað að Mao var ekki heill heilsu. 1 júnimánuði siðast- liðnum var tilkynnt, að hann gæti ekki lengur tekið á móti gestum, þar sem hann væri sjúkur. Hann hefur ekki komið opinberlega fram siðan þann 1. mai' 1971, en siðasti erlendi leið- toginn sem fékk áheyrn hjá honum var Zulifika Ali Bhutto, forsæbsráðherra Pakistan. Útvarpið i Peking skýröi fyrst frá láti formannsins. Dánartil- kynning var gefin út, og siðan voru leikin sorgarlög á götum úti, i útvarpi og sjónvarpi. Útvarpið i Peking og frétta- stofan Nýja Kina hafa skýrt frá þvi, að lik Maos verði lagt á við- hafnarbörur i Alþýðuhöllinni i Peking. Kinverkum leiðtogum, verkamönnum, bændum og her- mönnum verði boðið að votta leiðtoga sinum þar hinztu virð- ingu, Ekki hafði i gær verið tilkynnt hvenær útför Maos myndi fara fram, en jarðarfararnef nd hefur verið skipuð. 1 forsæti hennar er Hua Kuo-feng, for- sætisráðherra Kina, en auk hanseru skipaðir i nefndina þeir Wang Hung-wen, varaformaður kinverska Kommúnistaflokks- ins, Yeh Chien-ying, varnar- málaráðherra og Chang Chun-chiao, varaforsætisráð- herra, auk rúmlega þrjú hundruð og fimmtiu annarra aðila, sem emnig skipa nefnd- ina, meðal annars Chiang Ching, ekkja Maos. Lát Maos eykur nokkuð á óvissu þá sem rikt hefur i málefnum Kina. Búizter við, að nýafstaðin valdabarátta innan flokksins taki sig upp að nýju, með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum. Þá rikir nú einnig óvissa um það hvað fram undan er i tengslum Kina við önnur rfki. Ber þar hæst óvissu um framtíð tengslanna milli Kina og Bandarikjanna, sem þegar hefur reynt mikið á undanfarna mánuði. Þeir Bandarikjamenn, sem undanfarið hafa farið til Kina, segjast hafa mætt þar ýmsu, sem benti til þess, að Kinverjar væru orðnir óþolinmóðir vegna hægagangs I myndun stjórn- málasambands miUi rikjanna, á diplómatiskum grundvelli. Sjá nánar grein AAagnúsar Ólafssonar á bls. 8 . Spdnn: Verkföll í mótmæla- skyni Reuter, San Sebastian. — Verksmiðjur i landamæra- bænum Fuenterrabia, ná- lægt San Sebastian á Spáni, voru lokaðar i gær, vegna verkfalla, sem boöað var til i mótmælaskyni vegna dauða ungs manns, sem lögreglan skaut til bana i mótmælaað- gerðum gegn rikisstjórn landsins. Yfirvöld hafa skýrtfrá þvi, að Jesus Maria Zabala, tuttugu og fjögurra ára gam - all, hafi verið skotinn af lög- reglumanni, eftir að hann hafði barið lögreglumanninn með stól á veitingastað. Þetta var i annað sinn á fjór- um dögum, sem lögreglan gripur til skotvopna gegn mótmælendum i Baska- héruðunum i norðurhluta landsins, en þar hefur ríkt mikill órói. Yfirvöld drógu siðar yfir- lýsingu sina um málið til baka og sögðu að rannsókn þess héldi áfram. Zabala varö fyrir skoti þegar sveit óeirðalögreglu- manna hóf skothrið með gúmmikúlum og táragas- sprengjum til þess að dreifa hópi sex hundruð þjóðernis- sinnaðra Baska, sem efnt höfðu til mótmælaaðgerða. Smith stokkar upp í stjórn Rhódesíu: Skipar sérstakt „herráð" til að glíma við skæruliða Reuter, Salisbury. — Ian Smith, forsætisráðherra Rhódesiu, skip- aði i' gær, öllum að óvörum, ,,her- ráð”, undir forystu hins nýja varnarmálaráðherra rikisstjórn- ar hans, til þess aö hafa yfirstjórn á baráttu stjórnarhers hvita minnihlutans i landinu i skæru- liðastyrjöldinni þar, sem sifellt færist i aukana. Smith forsætisráðherra hefur nú leyst Pieter van der Byl, sem gegndi embættum bæði utanrikis- ráðherra og varnarmálaráð- herra, undan skyldum siöar- nefnda embættisins og skipað i hans stað Reginald Cowper, ráð- herra i samhæfingarmálum og almannaþjónustu, i embætti varnarmálaráöherra og til þess að stjórna hinu nýja herráði. Van der Byl tekur i staðinn við skyldum Cowpers i málefnum, sem varða almannaþjónustu. Smith rauf i gær þingdagskrá til þess að skýra þingheimi frá þessari ákvörðun sinni, sem kem- ur áóvart. Hann sagði að herráð- ið væri skipað til þess að létta á þvi mikla vinnuálagi, sem van der Byl hefði verið undir, enda ykist það i sifellu. Herráðið var skipað, eftir að fariðhafði fram nákvæm athugun á samhæfingu herafla landsins og stuðningi borgara við stjórnvöld hvita minnihlutans, gegn þeirri ógnun, sem þeim stafar af skæru- liðum,aðþvier Smithsagði i gær. Talið er, að þegar forsætisráð- herrann talar um vaxandi vinnu- álag i utanrikisráðuneyti, þá eigi hann við fyrirhugaðar tilraunir á alþjóðavettvangi til þess að finna friðsamlega lausn á stjórnmála- leguin vanda Rhódesiu. Um rekstur herferðarinnar gegn skæruliðunum sagði Smith, að styrjöldin við þá væri ekki lengur i neinum tengslum við stöðuna i stjórnmálum innan- lands i Rhódesiu. — Yfirlýsingar þær, sem leið- togar skæruliðanna hafa gefið opi nberlega, utan Rhódesiu, sýna, svo enginn möguleiki er á misskilningi, að markmið þeirra er einfaldlega og einvörðungu það, að ná algerum yfirráðum i landi okkar, gegnum uppgjöf rikisstjórnarinnar og þjóðarinn- ar, sagði Smith. — Markmið þeirra er ekki að koma á lýðræðisriki margra kyn- þátta, þar sem réttindi allra yrðu varin. Þeir ætla að koma á marx- isku kommúnistaeinræði, eins og við höfum séð skapast i ná- grannariki okkar Mósambik, sagði hann ennfremur. Hann sagði siðan, að i skæru- hernaði væri aðeins um tvennt að velja, það er uppgjöf eða algeran sigur og bætti svo við: — Það þýðir ekkert hálfkák. Þeir, sem tala um viðræður við skæruliðana, eru afvegaleiddir, ef þeir trúa að það geti leitt til annars en algerrar uppgjafar. Timann vantar fólk til blaðburðar i eftirtalin hverfi: Laufásvegur Skólavörðustígur Eskihlið Bólstaðahlíð Túnin Suðurlandsbraut Laugarásvegur Akurgerði Langagerði Seljahverfi Sendlar óskast fyrir hádegi 100.000 KR. VERÐLAUN ! í þriðju milljónustu fernunni af JROPICANA eru 100.000 kr. verðlaun Fékkst þú þér JROPICANA" í morgun? Sólargeislinn frá Florida

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.