Tíminn - 29.09.1976, Síða 3
Miðvikudagur 29. september 1976
TÍMINN
3
„Varla hægt að þver
fóta fyrir tunnum"
— sagði Matthías Þ. Guðmundsson,
verkstjóri hjó Bæjarútgerð Reykjavíkur,
en þar hefur verið saltað vel á annað
þúsund tunnur
gébé Rvik. — Það var saltað hér i
um niuhundruð tunnur af sild á
mánudag og ætli það verði ekki
fast að þvf lfka i dag, sagði
Matthias Þ, Guðmundsson,
verkstjóri i Bæjarútgerð Reykja-
vikur i gær. Tvö skip lönduðu afla
sinum hjá Bæjarútgerðinni á
mánudag, alls um 2800 kössum. —
Það er varla hægt að þverfóta
fyrir tunnum hér og þetta er búið
að vera rosaleg törn, sagði
Matthias, en við söltunina vinna
um 50-60stúlkur. Tveir bátar hafa
nú þegar fyllt veiðikvóta sinn eða
svo gott sem, en það eru Jón
Stefnt að því að
ríkið taki Landa
kotsspítala yfir
um dramót
ASK-Reykjavik. — Það ei
ekki ennþá búiö að ganga frá
kaupum rikissjóðs á Landa-
kotsspitala, sagði Páll Sig-
urðsson ráðuneytisst jóri i
Heilbrigðisráðuneytinu I sam-
tali við Timann i gærkveldi. —
Það hafa gengið tilboð og
gagntilboö á milii aðilanna, en
viö hér í ráðuneytinu höfum
reiknað með þvi að búið væri
að ganga frá málinu fyrir ára-
mót. Þannig að rikið væri eig-
andi aö spitalanum 1. janúar á
næsta ári.
Páll sagði að nú væri verið
að vinna að nýju kauptilboði af
hálfu fjármálaráðuneytisins
og heilbrigðisráðuneytisins,
en það tilboð verður lagt fyrir
rikisstjórnina öðruhvoru meg-
in við helgina.
Ekki
ákveðið
hvort
• r
sjon-
varpað
verður
— á fimmtudög.
um í vetur
ASK-Reykjavik. — ÍJtvarps-
ráð hefur ekki fjallað um þá
tillögu starfsmanna sjón-
varpsins hvort sjónvarpað
verður á fimmtudögum f vet-
ur, sagði Þórarinn Þórarins-
son, formaður ráðsins i sam-
tali viö Timann i gær. — Ekki
hefur heldur verið ákveðiö
hvenær tillagan veröur tekin
fyrir á fundi ráðsins.
Eins og Timinn hefur áður
greint frá, þá hefur Fjár-
málaráöuneytiö fullan hug á
þvi að draga frá launum
starfsmanna sjónvarpsins
vikuna er það féll niður.
Starfsmennirnir höfðu hins
vegar litinn áhuga á að tapa
launum og báru þvi fram
framangreinda tillögu.
Finnsson og Rauðsey. Átta skip
eru nú við sildveiðar á miðunum
eða á leið þangað.
Litill afli var hjá sildveiðibát-
um fyrir austan í gær, og sagði
Guðmundur Finnbogason á Höfn i
Hornafirði að tveir bátar hefðu
landað þar 50 tunnum i gær og á
Fáskrúðsfirði landaöi einn 70
tunnum. A mánudag var sildveið-
in hins vegar góð fyrir austan, þó
afli báta væri misjafn, frá tuttugu
og hátt upp i tvöhundruð tunnur.
Alls var þá landað rúmlega niu-
hundrúð tunnum. 1 gær hafði þvi
verið saltað tæplega tiuþúsund
tunnum af sild á Höfn i Horna-
firði.
Til Akraness komu Rauðsey og
Bjarni Ölafsson með fyrstu herpi-
nótasildina i ár og voru saltaðar
þar 1010 tunnur. Þar sem litið var
af stórsild i þessum förmum voru
um 864 tunnur saltaðar upp i hinn
Magnús
skipaður
verjandi
borgar-
Um fimmtiu til sextíu konur hafa unnið tvo siðastliðna daga við sfld-
■ arsöltun hjá Bæjarútgerðinni og eins og sjá má á þessari mynd, er
kappið mikið og enginn timi til að lita upp. Timamynd: G .E.
nýja samning við Sovétrikin, en
aðeins 146 tunnur fyrir aðra
markaði.
Óskar Halldórsson landaði i
Vestmannaeyjum og úr afla hans
voru saltaðar um 150 tunnur af
stórsild óg um 365 tunnur af milli-
sild og smásild.
stjóra
HV-Reykjavik. — Magnús
Óskarsson, vinnumálastjóri
Reykjavikurborgar, hefur verið
skipaður verjandi borgarstjóra,
Birgis isleifs Gunnarssonar, i
máli þvi, sem Reynir Þórðarson
hefur höfðað á hendur borgar-
stjóra, vegna frávikningar úr
starfi.
Magnús hefur farið fram á og
fengið frest til mánaðamóta
nóvember-desember til að skila
gögnum.
Islenzka jórnblendifélagið:
5 tilboð
bárust vegna
Grundartanga
gébé Rvik. — Nýlega voru opn- Verk það sem hér um ræðir,
uð tilboð í steypuvinnu vegna nær til undirstaða og steyptra
byggingarjánnblendiverksmiðju hluta eftirtalinna mannvirkja
á Grundartanga i Hvalfirði. verksmiðjunnar: Ofnhús, verk-
Áætlun ráðgjafa tslenzka járn- stæðisbygging, vöruskemma,
blendifélagsins hf., en þeir eru færibönd og hráefnislager.
Almenna verkfræðistofan, var
442,8 milljónir króna, en lægsta Eins og fyrr segir var áætlun
tilboðið sem barst hljóðaði upp á ráðgjafa tsl. járnblendifélags-
489,4 milljónir en það hæsta 610 ins kr. 442.880.322, en þessi voru
milljónir. Akveðinn er 45 daga tilboðin sem bárust:
frestur þangað til ákvörðun
verður tekin um hvaða tilboði Aðalbrauthf..kr. 489.459.355
verður tekið, en ráðgjafi tsl. Breiðholthf.kr. 465.090.400
járnblendifélagsins mun fjalla tstakhf.kr. 428.382.740
um mat tilboðanna, áður en Miðfellhf......kr. 516.603.250
endanleg ákvörðunverður tekin. Þórisós hf.kr. 610.003.250
Ný tegund af ís
um borð í skipin
gébé-Rvik. —Nýlega tók tsbjörn-
inn h.f. i notkun norskt isfram-
leiðslu- og afgreiðslukerfi, og
mun það vera hið fyrsta sinnar
tegundar sem sett er upp i landi.
— Þetta eru tvær isvélar, sem
hvor um sig framleiða 25 tonn af
is á sólarhring, sagði Jón
Ingvarsson, framkvæmdastjóri
hjá tsbirninum. tsklefinn, þar
sem isinn er framleiddur, rúmar
um 450 tonn af is, en kerfi þetta er
alveg sjálfvirkt og getur einn
maður séð um afgreiöslu á isnum
um borð i skip, en aörir taka á
móti isnum um borö. tsinn er
fluttur beint á færiböndum um
borði skipin, sem er mikill munur
frá þvi sem áður var, þegar allur
is var fluttur á bifreiðum að
skipshlið.
tsframleiðslu- og afgreiðslu-
kerfiþetta er frá norska fyrirtæk-
inu Finsam AS.,og að sögn Jóns
Ingvarssonar hefur þessi nýja
gerð rutt sér til rúms viða
erlendis. Afgreiðsluafköst kerfis-
ins eru allt upp I sextiu tonn af is á
klukkustund. — Þetta er ný gerö
af is, sem talinn er geyma fisk
betur en hinn hefðbundni is sem
við höfum hingaö til notað og
nefnt skelis, sagði Jón. Þessi is er
mun þykkari i eðli sinu heldur en
skelisinn, og talinn kæla mun
betur en skelisinn, sem er bæði
kaldari og þurrari.
Jón Ingvarsson sagðist vita til
að norsku skuttogararnir á Vest-
fjörðum heföu sams konar Isvélar
um borð, en að sér væri ekki
kunnugt um að þetta isfram-
leiðslu- og afgreiðslukerfi hefði
verið notaö i landi hér áður. Jón
kvað sjórr’enn vfirleitt mjög
ísinn er fluttur á færibandi úr
isklefanum um borö i skipið, en
áður var allur Is fluttur á
bifreiðum að skipshlið. Hér er það
Jón Finnsson GK 506 sem fær Is,
en skipið er nýfariö á sildveiðar.
— Timamynd G.E.
ánægða með þetta nýja af-
greiðslufyrirkomulag, ekki að-
eins að það tæki styttri tima,
heldur væri þessi is miklu betri en
skelisinn, sem fluttur var á bif-
reiðum að skipshlið áöur.
ávíöavangi
Er það skýringin?
Svavar Gestsson ritstjóri
Þjóðviijans er ákaflega
hreykinn af blaði sinu þessa
dagana, aðallega vegna viö-
tals Þjóðviljans við Einar
Agústsson utanrikisráöherra.
Aö sögn Svavars seldist Þjóð-
viljinn upp á flestum útsölu-
stöðum, þcgar viðtalið birtist,
enda þótt blaöiö væri prentað I
stærra upplagi en venjulega.
Þaö er að sjálfsögöu
ánægjulegt, ef þeim Þjóðvilja-
mönnuin tekst að sclja blað
sitt út á viðtöl viö Fram-
sóknarráöherra, þvi aö ekki
virðist blaðið seljast neitt
aukalega, þegar tekin eru viö-
töl við Alþýöubandalagsfor-
ingjana. Og kannski er þar
komin skýringin á þvi, hvers
vegna Þjóöviljinn vill ekki
taka einkaviðtal viö Lúðvik
Jósepsson, skattasérfræðing
Alþýöubandalagsins.
Galdraformúla
Lúðvfks myndi
auka söluna
En þarna
vaða Þjóð-
viljaritstjór-
arnir algeran
reyk. Þaö er
einmitl mjög
sennilegt, að
viðtal við Lúð-
vik um skatt-
a n a h a n s
myndi
trekkja. Þjóöviljinn gæti birt
mynd af nýju ..villunni” hans i
Stóragerði, sem er rélt hjá
húsi utanrikisráðherra. Svo
gæti Þjóðviljinn birt mynd af
sumarbústaö Lúðviks við
ÞingvöII, og kannski húseign
hans á Neskaupstað. Siðan
gæti Þjóðviljinn spurt Lúövik
að þvi, hvernig maður með
hans tekjur og lifnaðarhætti
notaði undanþáguákvæði
tekjuska ttslaganna. Sú
galdraformúla, ef Lúövik fæst
tilaö gefa hana upp, myndi cf-
laust leiða til þess, að Þjóð-
viljinn scldist ekki aðeins i 10-
12 þúsund eintökum heldur
kannski frckar i 40 þúsund
eintökum. Ekki er að efa, aö
ýmsir aiþingismenn Alþýðu-
bandalagsins, sem ekki búa i
neinum „villum”, hefðu
áhuga á að komast yfir
galdraformúlu Lúðviks f
skattamálum. Til að mynda
heiðursmaðurinn Eðvarð
Sigurðsson, sem greiðir milli
400-500 þúsund krónur i tekju-
skatt meðan Lúðvik greiðir
aðeins 575 krónur.
Skarð fyrir skildi
Ragnar
Júliusson
skólastjóri
Alftamýrar-
skólans cru ó-
venju fjölhæf-
ur maður.
Hann er ,auk
þess aö vera
skólastjóri,
borgarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
varamaöur i borgarráði. Auk
þess er hann formabur
fræösluráðs Reykjavikur-
borgar. Enn fremur er hann
formaður veiöi- og fiski-
ræktarráðs Reykjavikurborg-
ar. Þá var hann ekki alls fyrir
löngu kjörinn formaöur út-
geröarráös og tii skamms
tinta var hann formaður leik-
vallanefndar borgarinnar,
öll þessi yfirgripsmiklu
störf hefur Ragnar innt af
hendi af samvizkusemi, eins
og hans er von og visa, þrátt
fyrir miklar annir, sem fylgja
þvl aö vera skólastjóri eins
stærsta skóla borgarinnar. En
öllutn má ofgera. A fundi
borgarráös i gær sagöi Ragn-
ar af sér störfum sem leik-
vallanef ndarntaður vegna
timafrekra starfa i útgerðar-
ráði. —a.þ.