Tíminn - 29.09.1976, Síða 16

Tíminn - 29.09.1976, Síða 16
u TÍMINN Miövikudagur 29. september 1976 A SUNNUDAGINN hefjast aö nýju sýningar l Þjóöleikhúsinu á barna- leikritinu LITLA PRINSINUM eftir Exupéry í leikgerö Michaels Meschke. Sýning þessi var sýnt á Listahatlö I vor en aöeins tvisvar sinnum. t sýningunni koma bæöi fram leikarar og leikbrúöur, og á Listahátiöarsýningunum i vor voru brúöustjórnendurnir sænskir, frá Marfónettleikhúsinu i Stokkhólmi, en fslenzkir leikarar fluttu textann. Nú hefur Þjóöieikhúsiö fengiö fslenzka brúöustjórnendur til liös viö sig. Eru þaö fjórir félagar úr Leikbrúöulandi, þær Bryndfs Gunnarsdóttir, Erna Guömarsdóttir, Hallveig Thorlacius og Helga Steffensen. Leik- brúöuland hefur sem kunnugt er á sföustu árum staöiö fyrir brúöuleik- sýningum í Reykjavik og viöar. Eins og f vor eru þaö leikarar Þjóöleik- hússins, sem tala fyrir brúöurnar og koma eftirtaldir leikarar viö sögu: Brfet Héöinsdóttir, Flosi Ólafsson, Hákon Waage, Erlingur Gisla- son, Steinunn Jóhannesdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir, sem fer meö hlutverk litla prinsins og stjórnar þeirri brúöu aö nokkru. Einn leikari kemur fram sýnilegur I leikritinu, er þaö Sigmundur örn Arn- grfmsson sem leikur flugmanninn. Heilsuverndarstöð Kópavogs óskar að taka á leigu 40-50 fm húsnæði fyrir ljósastofu, sem næst miðbæ Kópa- vogs. Upplýsingar veitir forstöðukona i sima 40-400 f.h. Útboð Tilboð óskast I 325 stk. þrffasa kWh-mæla, fyrir Raf- magnsveitu Reykjavikur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, R. Tilboöin verða opnuö á sama staö, miðvikudaginn 11. nóvember 1976, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Heilbrigðisv- og tryggingamálaráðuneytið 28. september 1976. Laus staða Staöa hjúkrunarfræöings viö heilsugæzlustööina Höfn I Hornafiröi er laus til umsóknar nú þegar. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneyt- ínu. Þessi hópur stýröi fslenzku hrossunum I frækilegri reiö yfir þver Bandarfkin, eins og frá var skýrt I Tímanum i gær. Þessa mynd tók G.E. af knöpunum viö Hótel Loftleiöir í fyrradag og lengst til hægri er Gunnar Bjarnason, em var fararstjóri, en knaparnir eru fimm Þjóöverjar, Svisslendingur og Austur- rfkismaöur. Nýtt lögfræðingatal FJ-Reykjavik. Lögfræöingatal, þriöja útgáfa, er komiö út og eru upptaldir allir íslenzkir lögfræö- ingar frá árinu 1900 til ársloka 1975. Höfundur er Agnar Klemenz Jónsson, sendiherra, en hann er og höfundur fyrri útgáfa, en einn- ig er hann höfundur mikils verks um Stjórnarráð tslands 1904-1961 Agnari til aöstoöar viö nýja Lög- fræöingataliö var Hjalti Zóphón- iasson, fulltrúi i dóms- og kirkju- málaráöuneytinu. Utgefandi Lögfræöingatalsins er tsafoldarprentsmiöja hf. en bókin er 655 blaðsiður aö stærö. Onnur athugasemd AÐ ÞVI hefur veriö látiö liggja I blöðum, aö setning eða setningar- hluti hafi veriö felldur úr athuga- semd þeirri frá Vilmundi Gylfa- syni, er birtist i Tlmanum á miö- vikudaginn i fyrri viku. Hiö rétta er, aö ég undirritaöur strikaöi yfir ávarpsorö athuga- semdarinnar, sem voru á þessa leiö: „Herra ritstjóri Jón Helga- son”. Annaö var ekki fellt niöur eöa aö neinu leyti brenglaö. Ávarpsoröin strikaöi ég út sam- kvæmt þeirri reglu aö fella þess konar ávörp niður, þegar athuga- semdirnar sjálfar beinast ekki aö þeim, sem ávarpaður er. Enginn hefur fyrr taliö það niöurfellingu, svo aö ég minnist eftir fjörutiu ára blaðamennsku. En hvort hér er um sök aö ræöa, getur hver og einn metiö þaö, er hann veit málavexti. Sjálfum finnst mér mörgum oröum eytt af litlu til- efni. —jh Kynning á Bolsoj leik- húsinu í MIR-salnum I MIR-salnum aö Laugavegi 178 hefur veriö opnuö sýning á ljósmyndum frá starfi Stóra leikhússins, Bolsoj-leikhússins i Moskvu, i tilefni 200 ára afmælis þessa fræga óperu- og ballettleikhúss. Veröur sýn- ingin opin næstu vikur, á þriöjudögum og fimmtudög- um kl. 17.30-19 og á laugardög- um kl. 14-18. I sambandi viö Bolsoj- sýninguna i MÍR-salnum veröur efnt til kvikmynda- sýninga og fyrirlestrahalds. Sunnudaginn 17. október kl. 15 veröur Natalja Konjús ballettmeistari gestur MÍR og rifjar þá upp minningar frá starfsferli sinum viö Bolsoj- leikhúsiö. Natalja Konjús er nýkominn til starfa viö Þjóö- leikhúsiö sem ballettmeistari og listrænn stjórnandi Is- lenska dansflokksins, en hún var sólódansari viö Bolsoj- leikhúsiö á árunum 1932-1943, fór þar meö mörg hlutverk og starfaöi meö ýmsum frægum listamönnum, m.a. Galinu Úlanovu, ballerinunni heims- frægu, en kvikmynd um hana veröur sýnd aö loknu spjalli ballettmeistarans. Kvikmyndirnar sem sýndar veröa i MÍR-salnum á laugar- dögum kl. 15 eru allar ná- tengdar starfi Bolsojlejkhúss- ins og listamönnum þar. Sýn- ingar veröa sem hér segir: Laugardaginn 2. október veröur óperan „Evgenl Onégin” eftir Tsjækovskl sýnd, en þetta er sú ópera sem Bolsoj-Ieikhúsiö I Moskvu hefur sýnt oftast eöa um 1930 sinnum alls. Laugardaginn 9. október verður óperan „Boris Godúnof” eftir Músorgski sýnd og þar fer hinn frægi söngvari Boris Púrogof meö aðalhlutverkiö. Laugardaginn 16. október veröur sýnd heimildarkvik- mynd um eina af frægustu dansmeyjum vorra tima, Maju Plisetskaju, og þar sést hún í ýmsum af frægustu hlut- verkum sinum. Laugardaginn 23. október veröur loks sýnd óperan „Spaöadrottningin” eftir Tsjækovski. Slöar i vetur eru ráögeröar sýningar á ýmsum sovéskum kvikmyndum i MIR-salnum, t.d. veröa nokkrar gamlar og nýjar ævintýramyndir sýndar þar i nóvember og desember n.k. Aðgangur aö Bolsoj-kynn- ingunni i MIR-salnum, Lauga- vegi 178, er öllum heimill. (Fréttatilkynning frá MIR)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.