Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 19. október 1976 TÍMINN 7 „Fólksbíll, sem ó eftir að nó vinsældum" — segir Árni Filippusson, sölustjóri hjó Velti hf. um nýja VOLVO-bílinn SOS-Reykjavik. — Það er ekki að efa, að þessi fólksbíll á eftir að ná miklum vinsældum, hann hefur stórkostlega eiginleika af millistærðar bfl að vera, sagði Árni Filippusson, sölustjóri hjá Velti hf., þegar hann kynnti okkur hinn glæsilega VOLVO- fólksbil — VOLVO 343, sem er væntanlegur hingað á markað- inn. Þessi bfll er af svokailaðri miilistærð bila, og er honum ætlað að brúa bilið á’ milli VOLVO 66, sem hefur vakið mikla athygli, og VOLVO 240 geröarinnar. — Þessi bill er meö brattan afturenda og er hann hannaður með þaö fyrir augum að vera rúmgóður að innan, sagði Árni um leið og hann bauö okkur að setjast inn i bilinn, sem var mjög rúmgóöur og með afar þægilegum sætum. Árni sagði, að bilnum væri bezt lýst með orðum Robert Dethorey, for- stjóra Volvo-fólksbílaverk- smiöjanna, en hann sagði um VOLVO 343: — „Takmark okk- ar var að hanna bil i framúr- skarandi gæðaflokki. Ég þarf aöeins i þvl sambandi að nefna öll öryggisatriðin, stigalausu skiptinguna og hvað bfllinn er rúmgóður”. Arni sagði, að billinn væri bú- inn 70 hestafla vél og sjálfvirk- um, stigalausum girkassa, sem væru mjög góöir eiginleikar. — Hann er búinn drifi að aftan og hefur ótrúlega góða aksturs- eiginleika og liggur mjög vel á vegi. Yfirbyggingin á VOLVO 343 er hönnuð meö öryggi i huga og hefur að geyma öll öryggis- atriöi, sem Volvo 240 hefur, og ARNI FILIPPUSSON, sölustjóri. má þar m.a. nefna öryggis- grind, sem umlykur farþegana, öryggisþverbita i hurðum, öryggisstýrisbúnað, öryggisgler i framrúöu. Allt segir þetta sina sögu um gæði bilsins. En annars eru eiginleikar VOLVO 343 þessir: Þyngd bilsins er 978 kg og heildarþyngd 1400 kg. Vélin heitir B 14, fjögurra strokka 1397 cc. vél og er hún 70 hö (DIN) við 5500 sn/min. Þjöppu- hlutfallið er 9,5:1. Rafkerfið er 12V/45A og er vélin vatnskæld með lokuðu kerfi. Girkassinn er „Variomatic”, sjálfvirkur og stiglaus. Hemla-kerfið er tvöfalt, og eru diskahemlar ab framan, en skálahemlar að aftan. Lengd milli hjóla er 2,40 m breidd milli hjóla 1,35 m/1,38 m. Heildarlengd er 420 cm, heildar- breidd 166 cm og hæðin 144 cm. Beygjuþvermál er 9.20 m. Há- markshraðinn er 145 km/klst og hraðaaukningin 0-80 km/klst á 10,5 sek. Volvobílar klessukeyrðir Bandariska rikisstjórnin er nýverið orðin einn af stærstu viðskiptavinum Volvo. Stjórn- in hefur gert samning við Volvo um kaup á 24 Volvobil- um. Þessir Volvobilar verða eyðilagðir á nokkrum dögum. Þeim veröur keyrt hverjum á annan, á aðra bfla, veggi og vegamerki á um það bil 100 km hraða. Arekstrarnir eru hluti af sérstökum tilraunum, sem gerðar eru á vegum banda- riska öryggiseftirlitsins, til þess að komast að niöurstöðu um opinberar öryggiskröfur vegna bifreiöaframleiöslu framtiðarinnar. Volvobilarnir voru valdir i þessar tilraunir vegna þess að Volvo hefur haft forustu um öryggisbúnaö bila undanfarin ár, enda er öryggisbúnaöur Volvo oft á tiöum mörgum árum á undan opinberum reglugerðum t.d. með öryggisbelti, stýrisbúnað, rúður, hemlakerfi, o.fl. Þessar tilraunir af hálfu bandarisku stjórnarinnar munu vafalaust koma til með að hafa áhrif á framleiðslu- hætti bfla i framtiöinni, — enþegar um er aö ræöa öryggi bfla, sem framleiddir eru i dag, álita margir hæfustu sér- fræðingar, að Volvo sé mörg- um árum á undan öörum fra'mleiöendum. Góð AAassey Ferguson dráttarvél árg. 1971 til sölu með ámokst- urtækjum ásamt sturtuvagni 3ja tonna. Upplýsingar i sima 99-3799. Ferskfiskmatsmaður óskast til starfa í Reykjavik. Laun sam- kvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir er tilgreini m.a. menntun og fyrri störf sendist stofnuninni fyrir n.k. mánaðamót Framleiðslueftirlit sjávarafurða. Hátúni 4 a. Eins og sést á myndinni, er lögun VOLVO 343 hönnuð m.a. með það fyrir augum aö hreinsa afturrúðuna og koma i veg fyrir vindhnúta viðafturendann, og þar meöóþarfa vindmótstöðu og hávaða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.