Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 19

Tíminn - 19.10.1976, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 19. október 1976 TÍMINN 19 flokksstarfið Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður veröur til viðtals á skrif- stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstfg 18, laugardaginn 23. okt. kl. 10-12. Kópavogur Freyja, félag Framsóknarkvenna, heldur aðalfund sinn mið- vikudaginn 20. okt. kl. 20,30 að Neðstutröö 4. Mætið vel og stund- vfslega. — Sjórnin. Framsóknarvist ó Flateyri 22. okt. 29. okt. og 5. okt. Framsóknarfélag önundarfjarðar verður með þriggja kvölda spilakeppni i samkomuhúsinu Flateyri föstudagana 22. okt., 29. okt. og 5. nóv. Byrjað verður að spila kl. 21.00 öll kvöldin. Verðlaun fyrir hvert kvöld og heildarverðlaun. — Allir velkomnir. Húsvíkingar Vegna hagstæðra samninga Framsóknarfélags Húsavikur viö Samvinnuferðir bjóðum við Framsóknarfólki sérstakt afsláttar- verð á Kanarieyjaferðum i vetur. Upplýsingar gefur Aðalgeir Olgeirsson, simi 41507 á kvöldin. Einnig munu liggja frammi upplýsingabæklingar á skrifstofu flokksins i Garðar. Stjórnin. Akranes Halldór E. Sigurðsson, ráðherra, veröur til viötals í Framsóknarhúsinu á Akranesi frá klukkan 20:30 á fimmtudagskvöld. Egilsstaðir - Fljótsdalshérað Haldinn verður almennur fundur um skatta- mál i barnaskólanum Egilsstöðum fimmtu- daginn 21. október kl. 20.30. Frummælandi verður Halldór Asgrimsson, alþingismaður. Allir velkomnir — Framsóknarfélögin. Húsvíkingar Frá 1. október að telja veröur skrifstofa Framsóknarflokksins á Húsavik opin á miðvikudögum og fimmtudögum milli kl. 18 og 19og á laugardögum millikl. 17 og 19. Bæjarfulltrúar flokksins verða til viðtals á skrifstofunni á mið- vikudögum kl. 18 til 19, og eru bæjarbúar hvattir til aö notfæra sér þá þjónustu. Breiðholtsbúar — takið eftir BRIDGE HFÍB gengst fyrir bridgekvöldum I Breiöholti næstu þriðjudags- kvöld. Fyrsta spilakvöldiö veröur þriðjudaginn 19. okt. nk. i salarkynnum Kjöts og fisks að Seljabraut 54. Byrjaö veröur að spila kl. 20-20.30. Byrjendum verður leiðbeint. Allir bridgeáhugamenn eru velkomnir. Hverfasamtök framsóknarmanna I Breiðholti. Kópavogur Freyja, félag Framsóknarkvenna, heldur aðalfund sinn mið- vikudaginn 20. okt. kl. 20.30 að Neðstutröð 4. Venjuleg aðalfund- arstörf. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Fundurinn um félagsmál og fleira verður haldinn að Rauðarár- stig 18, n.k. fimmtudag kl. 20.30. Fjölmennið og takið með ykkur kaffibrúsann. — Stjórnin. Keflavík - Nógrenni Aðalfundur Bjarkar, félags Framsóknarkvenna Keflavikur og nágrennis, verður haldinn I Framsóknarhúsinu að Austurgötu 26, fimmtudaginn 21. okt. kl. 8.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Vetrarstarfið rætt, önnur mál. — Stjórnin. 0 verandi ritstjóra að vera full- kunnugt um þessi vinnubrögö blaðanna. Eyjólfur Konráð spyr i bréfi sinu til Þórarins Þórarinssonar, hvaða bann það hafi veriö, sem honum hafi borið að hlýða. Þessu er fljótsvarað. Ráðuneyt- ið haföi ekki veitt leyfi til slátrunar i sláturhúsi Slátur- samlagsins á Sauðárkróki og þar af leiöandi var bannað að slátra i húsinu. Undirritaður telur, að al- þingismaðurinn hafi skiliö þessa setningu mæta vel, þó svo aö hann vilji gera blaðamann- inn tortryggilegan fyrir það, aö orða setninguna á þann veg, sem hann gerði. „Bann” var kannski ekki alveg rétta oröið i þessu tilviki, en allir skildu þó hvað við var átt. Alþingismaðurinn er með öðr- um orðum, að gera hismið aö aðalatriði i stað kjarnans. Vel má vera að þessi aðferð henti vel alþingismanninum til þess aö slá ryki i augu fólks, en smeykur er ég um það, að slikt geti stundum „dregið dilk á eftir sér”. Gunnar Salvarsson. íþróttir Almennt laugardaginn eða einhvern tima á næstunni verður þessi leikur sýndur i Islenzka sjónvarpinu. Þaðer eins og allur vindur sé úr liði Bristol City eftir góöa byrjun I sumar. Nú tapaði liðið á heima- velli I annað skiptið I röð. Mark frá Worthington gerði út um leik- inn, sem lyktaði með 1-0 sigri Leicest"r. Bristol City hefur nú boðið I Norman Hunter frá Leeds, sem þeir vona að geti styrkt til muna vörnina hjá sér. West Ham liðið á slæma daga núna. Ennþá eitt tap, I þetta skiptið á heimavelli fyrir Ips- wich. Clive Woods skoraði bæöi mörk Ipswich, sem með þessum sigri sínum hefur skotizt upp meöal efstu liða fyrstu deildar. West Ham notaði „Pop” Robson I fyrsta sinn eftir að hann kom afturtil þeirra frá Sunderland, en það breytti engu um gang mála. Sunderland hefur ekki ennþá unnið leik i fyrstu deild, og enná einu sinni varð liðið að blta I það súra epli aö tapa á heimavelli. I þetta sinn fyrir Aston Villa, en sigurmark þeirra skoraði Alex Cropley, hans fyrsta mark eftir flutninginn frá Arsenal. Ahangendur Sunderland voru mjög óánægðir með leik sinna manna, og streymdu þeir af vell- inum löngu áður en leiknum var lokiö. Leeds liðið virtist vera að sækja I sig veðrið. Nú hefur liðið unnið tvo leiki I röð á útivelli, á laugardaginn var það 2-1 sigur yfir Norwich á Carrow Road. Bræöurnir Frank og Eddy Gray skoruöu mörk Leeds, en Gibbons skoraði mark Norwich. 011 komu mörkin I seinni hálfleik. Og á Maine Roadi Manchester mættust einhver mestu sóknar- liðin I ensku knattspyrnunni, Manchester City og Q.P.R. ötrú- legt en satt þá urðu úrslitin I þeim leik 0-0, en bæöi liðin misnotuöu vltaspyrnu. Don Masson sparkaði langt yfir markið, en Dennis Tueart skaut langt framhjá markinu. Manchester City sótti mun meira i leiknum, en Phil Parkes sýndi mjög góða mark- vörziu og átti stóran þátt I því að Q.P.R. fór mað annað stigið heim til Lundúna. ó.O. Að þvi er varðar fjárveitingar til Landhelgisgæzlunnar var fariö að óskum ráðuneytisins. Um kirkjumálin er hins vegar það að segja, að þau hafa lengi verið heldur neöarlega á blaði hjá fjárveitinganefnd og svo er nú enn i þessu frumvarpi, þó aö nokkrar lagfæringar hafi þar verið gerðar. Mikil fjárvöntun er vegna ýmissa framkvæmda i þessum málum, til dæmis varðandi bygg- ingar á prestssetrum og reyndar fleiri. Ég vona, að fjárveitinganefnd sjái sér fært að gera einhverjar lagfæringar i þvi efni, enda þótt mér sé ljóst, aö fjárveitinga- valdinu er þröngur stakkur skor- inn. Um viðskiptaráöuneytið er ekki neitt sérstakt aö segja i þessum efnum. Fjárveitingar til þess eru i ákaflega föstum skoröum og ef ég man rétt, þá er einmitt lang minnst hækkun á útgjöldum þess, af öllum ráðuneytunum. Nú, eins og áður höfum viö þurft að sætta okkur við, aö það hefur reynzt ógerlegt að taka með öllu tilgreina þann óskalista, sem lagöur er fram. Þetta gildir um þau ráðuneyti, sem ég hef með höndum, eins og öll önnur. Ég vil hins vegar að lokum undirstrika það, að ég er almennt ánægður meö fjárveitingarnar til dóms- málanna. 0 Þó er yröum sem gefin hafa veriö. t Sundahöfninni hafa Sambandið og Mjólkurfélagið að visu að- stöðu, en aö öðru leyti virðist hún byggð fyrir Eimskipafélagið ein- vöröungu. Viö erumþóbjartsýnirl dag, og ætlum ekki að gefast neitt upp, sagði Magnús aö lokum, enda hef ég trú á þvi aö úr greiðist fyrir okkur hvað úr hverju, með hjálp Guðmundar G. Þórarinssonar og fleiri góðra manna. 0 Garnaveiki ar, t.d.slæmartennur eðaM'ma- veiki og fleira, sagöi Sigurður. Hins vegar liöur minnst eitt ár frá þvi að skepnan tekur smit, þangaö til einkennin byrja að koma i ljós, en það er alltaf var- hugavert þegar kindur, einkum ungar kindur, þrifast ekki. Allar slikar kindur ætti að rannsaka nú. Garnaveikisýklar berast meö saur.oggeta lifað svo mánuðum skiptir utan kindar. Einnig sagði Sigurður að sýklar gætu borizt með skófatnaöi manna. Þegar garnaveiki kemur upp á nýjum staö, er nauðsynlegt aö takmarka samgang fénaðar, og sýna ýtrustu aðgætni varöandi hreinlæti á skófatnaði fólks, sem fer á milli bæja, sagði Sigurður. — Það er fyrst og fremst komiö undir heima- mönnum hvernig tekst til meö varnirnar. Við veröum og vilj- um byggja á þeim i þvi sam- bandi, og nauðsynlegt er að samvinnan sé góð milli okkar og heimamanna, sagði Siguröur. Sigurður sagöi, að ekki væri ljóst hvernig garnaveikin hefði borizttil Vestfjarða, en sýklarn- ir lifðu svo mánuöum skipti ut- an kindar og gætu borizt með ýmsu móti, t.d. meö heyi eöa öðru fóðri af vafasömum svæö- um, einnig öörum ógætilegum flutningum á ýmsum vörum, sem atazt hafa taöi úr smituöu eða sýktu sauðfé, nautgripum eða geitfé, t.d. ullarballar. Óheimilt er að flytja hey til ósýktra staða af smituðum svæðum, nema fá til þess leyfi Sauðfjárveikivarna sem byggir þá á könnun á viökomandi staö, sagði Sigurður. — Bólusetning er aöalvarnar- ráðið gegn garnaveiki, en hún dugar ekki sem einasta vörn, sagði Sigurður Siguröarson dýralæknir. Hann sagöi, að það myndi sennilega taka um tvær vikur að vinna úr þeim blóð- sýnishornum, sem hann haföi með sér að vestan, til rannsókn- ar að Keldum. Náið verður fylgzt með ástandi sauðfjár i Reykjafjaröarhreppi og viöar ef ástæða þykir tU. RowenfA Straujárn, brauðristar, brauðgrill, hárþurrkur, hárþurrkuhjálmar, hárliðunarjárn, hárburstar, djúpsteikingapottar, hraðgrill, hitaplötur og kaffi- vélar — fást i næstu raftækjaverzlun. Heildsölubirgðir: Halldór Eiríksson & Co. — Armúla 1A — Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.