Tíminn - 19.10.1976, Page 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 19. október 1976
Einar Hákonarson sýnir nú 88 málverk aö Kjarvalsstööum og stend-
ur sýningin til 25. október.
Þetta er fjóröa einkasýning Einars, en hann hefur tekiö þátt I mörg-
úm alþjóölegum sýningum og samsýningum hérlendis, og hlotiö verö-
laun erlendis fyrir málverk og graflk.
Myndin er af listamanninum viö eitt verkanna á sýningunni aö Kjar-
valsstööum. Tlmamynd: Gunnar.
Hagi n/f opnar nýja
og glæsilega
verzlun á Akureyri
KS-Akureyri. — Fyrir skömmu
efndi fyrirtækiö Hagi h/f á Akur-
eyri til kynningar á starfsemi
sinni. Tilefni þessarar kynningar
var þaö, að nú hefur fyrirtækiö
opnaö glæsilega verzlun að
Glerárgötu 26, þar sem fram-
leiðsluvörur þess eru til sýnis og
sölu.
I þessari nýju verzlun eru
eldhúsinnréttingar, hillusam-
stæöur, veggþiljur og fataskápar,
og eru skáparnir nýjung hjá
Haga. Eldhúsinnréttingar fram-
leiöir fyrirtækiö I f jórum flokkum
og I hverjum flokki er hægt aö
velja frá tveim og upp I sjö liti.
Eldhúsinnréttingarnar eru fram-
leiddar feiningum, frá 20 cm upp i
1 metra og því getur fólk keypt
hluta af eldhúsinnréttingu og slö-
ar bætt v iö, ef þvi sýnist svo. Verö
er mjög mismunandi eftir gerö-
um eöa frá 200 þúsundum og allt
aö 450 þúsundum. Ódýrastar eru
harðplastinnréttingar en dýrast-
ar eru þær, sem smfðaöar eru úr
massivu efni. Verzlunarstjóri
þessarar nýju verzlunar er óli Þ.
Baldvinsson.
Hagi h/f rekur verkstæöi aö Ós-
eyri 4 á Akureyri. Aö undanförnu
hefur fyrirtækiö mjög aukiö vél-
væöingu á verkstæöinu, og eru af-
köst nú helmingi meiri en þau
voru fyrir rúmlega ári.
Meöal þeirra nýju véla, sem
keyptar hafa veriö, er mjög
fullkomin vél, sem limir plastdúk
á þiljur, og er hún sú eina þeirrar
geröar hérlendis. Þá má einnig
nefna landsins fullkomnustu vél,
sem notuö er til þess aö ganga frá
köntum á innréttingum og þiljum.
A verkstæöinu á óseyri vinna nú
18 manns, en voru aðeins 2, þegar
fyrirtækiö hóf verkstæöisrekstur.
Aöalverkstjóri er Ingimar Friö-
finnsson.
Nú er á prjónunum hjá Haga
h/f aö stækka verkstæöiö, og þá
meö hugsanlegan útflutning á
vörum slnum fyrir augum. Aö
sögn forráöamanna fyrirtækisins
hefur gengiö vel aö selja fram-
leiösluvörur þess, og á þessu ári
er búizt viö, aö salan nemi milli 90
og 100 milljónum króna. Þá er
einnigáætlaöaðselja á árinu 1977
fyrir 150-180 milljónir
króna. Auk verkstæðisrekstursins
tekur fyrirtækiö aö sér steypu- og
járnavinnu I sambandi viö hús-
byggingar, og vinna aö staðaldri
viö þaö um 30 manns, en þaö er
töluvert breytilegt eftir árstlm-
um. Sigurður Hannesson múrara-
meistari stjórnar þeirri grein
starfseminnar. Siöastliöið ár
greiddi Hagi h/f um 40 milljónir I
vinnulaun og á þessu ári er áætl-
aö, aö sú upphæö veröi nálægt 60
milljónum.
Undanfarin 5 ár hefur fyrirtæk-
ið rekið verzlun aö Suöurlands-
braut 6 I Reykjavik og er
verzlunarstjóri þar Erlingur
Friöriksson. 1 stjórn Haga h/f
eru: Haukur Arnason, sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri,
Siguröur Hannesson, Óli Þ. Bald-
vinsson og Herbert Jónsson.
Haukur Arnason framkvæmdastjóri Haga h/f stendur hér hjá svefn-
herbergisskápum, sem fyrirtækið hefur nýlega hafiö framleiöslu á.
Myndina af Finni Jónssyni viö tvöverka hans á sýningu Listasafnsins tók Guöjón Einarsson.
Listasafn íslands:
Yfirlitssýning á verk
um Finns Jónssonar
t Listasafni islands stendur
nú yfir yfirlitssýning á verk-
um Finns Jónssonar.
Finnur Jónsson hélt siná
fyrstu einkasýningu I Reykja-
vik 1921, en slöan hefur hann
haldiö fjölmargar einkasýn-
ingar og tekiö þátt I mörgum
samsýningum, bæöi hér
heima og erlendis, m.a. átti
hann verk á sýningu Der
Sturm-hópsins 1925, á heims-
sýningunni I New York 1940 og
á sýningu Evrópuráösins 1970,
sem bar heitið, Evrópa 1925,
voru valin verk eftir Finn
Jónsson.
Finnur Jónsson hefur hlotiö
margvlslega viöurkenningu
fyrir list sina, heiöurspeninga,
viðurkenningarskjöl og fjöldi
boöa um sýningar. Þá má
nefna, aö hann er heiöursfé-
lagi í „Academica Internazti-
ona” (Tammaso Campanella)
i Róm, heiöursfélagi Félags
Islenzkra myndlistamanna,
hlaut „Förste premia” á
Listahátið Noröur-Noregs
1971. Finni hafa verið veitt
heiöurslaun frá Alþingi siðan
1973 og hann var sæmdur stór-
riddarakrossi hinnar islenzku'
fálkaorðu fyrir myndlistar-
störf 1976.
Að Kjarvalsstöðum stendur
nú listsýning, þar sem sýnd
eru 77 málverk, kaffi- og blek-
teikningar og átta höggmynd-
ir eftir Magnús A. Arnason.
Elzta málverkiö er frá 1917
en þau nýjustu eru unnin á
þessu ári.
Sýningin stendur út október-
mánuö.
Myndina af listamanninum
viö verk hans tók Gunnar.
ggMiW-A