Tíminn - 19.10.1976, Side 15
Þriðjudagur 19. október 1976
TÍMINN
15
Geir og félagar lögðu
Dankersen að velli...
— unnu auðveldan sigur (20:15) á einhæfu Dankersen-liði
ARNl INDRIÐASON...fyrir-
liði landsliðsins, sést hér
skora, eftir aö hafa brotizt i
gegnum varnarmúr Danker-
sen.
(Timamynd Gunnar)
BARÁTTA og aftur barátta, var einkennandi fyrir leik
íslenzka landsliðsins í handknattleik, sem vann góðan
sigur (20:15) yfir Dankersen í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn. Baráttuglaðir Islendingar settu hina létt-
leikandi leikmenn Dankersen útaf laginu, svo þeir náðu
sér aldrei á strik og máttu þola sitt fyrsta tap á Islandí.
Islenzku leikmennirnir, sem
höfu 9:7 yfir i hálfleik, gérðu út
um leikinn i siðari hálfleik, þegar
þeir breyttu stöðunni úr 9:10 i
20:13með mjög yfirveguðum leik.
Geir Hallsteinsson lék aðalhlut-
verkið þennan leikkafla, og gerði
hann leikmönnum Dankersen,
sem léku fasta vörn, oft lifið leitt.
Það var greinilegt, að Dankersen-
leikmennirnir þoldu ekki mótlæt-
ið — þeir fundu ekkert svar við
sterkum varnarleik Islendinga,
og allt gekk á afturfótunum hjá
þeim.
Dankersen-liðið er skipað
sterkum og stórum leikmönnum,
sem sýna „taktiskan” leik á
hæsta stigi, en allur leikur þeirra
gengur út á leikfléttur og kerfi.
Kraftur þeirra var aðdáunar-
verður, en þrátt fyrir allt er
Dankersen-liðið of háð „taktik-
inni”. — Það sást bezt, þegar hún
brást vegna geysisterks varnar-
leiks landsliðsins, þá voru leik-
menn Dankersen ekki nógu sjálf-
stæðir til að vinna rétt úr spilun-
um. Leikur þeirra varð allur
fálmkenndur og þeir reyndu i ör-
væntingu sinni að brjótast i gegn-
um miðjuna, og þannig að þjappa
varnarvegg tslendinga saman.
Um tima gekk ekkert upp hjá
leikmönnum Dankersen, og þeg-
ar hringlandahátturinn stóð hæst
i siðari hálfleik, yfirgaf Ölafur H
Jónsson völlinn, greinilega ekki
ánægður með það, sem þjálfari
liðsins var að láta Ieikmenn sina
gera. Ölafur kom ekki meira inn á
eftir það, enda hafði hann ekkert
fengið að gera — leikmönnum
Dankersen tókst aldrei að opna
linuna. svo að Ólafur yrði frir.
Islenzka landsliðið lék sterka
vörn, en sóknarleikurinn hefur oft
verið betri. Þó er ekki hægt að
loka augunum fyrir þvi, að
sóknarleikurinn var mjög góður
og yfirvegaður um tima i siðari
hálfleiknum. — Það sáust oft
mjög góðar fléttur hjá islenzku
strákunum, sem voru útsjónar-
samir og fundu oft göt i varnar-
vegg Dankersen, sem þeir not-
Jenuz
kominn
— sd Valsmenn
vinna stórsigur
(20:15) á FH í
gærkvöldi
Pólski landsliösþjálfarinn
Jenuz Czerwinski er kominn
til landsins — hann var meðal
áhorfenda i Hafnarfiröi i gær-
kvöldi, þar sem Valsmenn
unnu góðan sigur (20:15) yfir
tslandsmeisturum FH i
spennandi leik. ólafur Bene-
diktsson átti stórleik f marki
Valsmanna og varði hann oft
stórglæsilega. Valsmenn tóku
leikinn strax i sinar hendur
(5:1) og héidu þeir forskotinu,
þar til FH-ingum tókst að
minnka muninn i eitt mark
(16:15) rétt fyrir leikslok. En
Vaismenn náðu góðum loka-
spretti og tryggöu sér öruggan
sigur. Markhæstu menn Vals
voru: Jón K. 4, Þorbjörn 4,
Steindór 3og Jón Pétur 3. Geir
skoraði flest mörk FH, eða 6,
en Viðar skoraöi 4.
Haukar unnu sigur (23:19) á
Gróttumönnum i hinum 1.
deildarleiknum.
færðu sér að fullu. Þegar lands-
liðið náði 7 marka forskoti
(20:13), þá hafði það leikið mjög
beittan og ákveðinn sóknarleik,
enda skoruðu leikmenn liðsins 10
mörk úr 12 sóknarlotum — tvis-
var misstu þeir knöttinn, vegna
slæmra mistaka.
Leikur landsliðsins var betri en
búast mátti við — það er greini-
legt að landsliðsuppistaðan er i
uppsiglingu, og með nokkrum
breytingum er hægt að gera liðið
mjög öflugt. Leikmenr eins og
Olafur H. Jónsson, Axel Axelsson,
Gunnar Einarsson og Jens Jens-
son ættu allir að styrkja liðið mik-
ið og skapa meiri breidd i það, en
allir þessir leikmenn hafa yfir
miklum krafti að ráða, sem er
nauðsynlegt góðu landsliði.
Þ.e.a.s., að Ólafur er gifurlegur
baráttumaður i vörn og sókn,
Axel góð langskytta, sem hefur
auga fyrir linusendingum, Gunn-
ar er okkar bezta vinstrihanda-
skytta og ógnar mest á hægri
kantinum, og Jens er nú tvimæla-
laust okkar bezti hornamaður.
— SOS
„EKKI
KOMNIR
Á SKRIÐ'
— segir Karl
Benediktsson
— Ég er ánægöur með nokkra
kafla, — aðra ekki, sagði Karl
Benediktsson, iandsliðsnefndar-
maður, eftir ieik landsliðsins
gegn Dankersen. —Það er margt
eftir að gera i sambandi við leik
liðsins, og þetta veröur ekki gott
fyrr en æfingar liðsins byrja á
fullu — þá fyrst verður hægt að
sjá hvað i liðinu býr.
— Eins og stendur er liöið al-
gjörlega æfingarlaust, en þetta
kemur allt, þegar Januz Czer-
winsky kemur til landsins — þá
verður farið að móta landsliðið
fyrir átökin i vetur, sagöi Karl.
Geir sýndi gamla,
góða spretti...
— skoraði 5 gullfalleg mörk og ógnaði stöðugt með
hreyfanleika sínum og krafti
Geir Hallsteinsson og Björgvin
Björgvinsson, voru menn dagsins
hjá islenzka landsliðinu, sýndu
þeir oft sinar sterkustu hliðar.
Geir var mjög ákveöinn i sókninni
og skoraði 5 glæsileg mörk — þrjú
eftir að hann hafði leikið varnar-
vegg Dankersen grátt með
gegnumbroti. Þá skoraði hann
tvö mörk meö langskotum — eitt
eftir upphopp og hitt með góðu
kyrrstæðuskoti.
Björgvin var sterkur á linunni,
og þurftuleikmennDankersen aö
hafa góðar gætur á honum. Bjarni
Guömundsson úr Val, vakti
einnig athygli — hann er nú orö-
inn miklu yfirvegaöri leikmaöur
en hann hefur veriö, fljótur og
ákveöinn. Þorbergur Aöalsteins-
son skilaöi hlutverki sinu einnig
ágætlega — meö smá reynslu, á
hann eftir aö veröa miklu sterkari
leikmaöur. Annars var þaö Arni
Indriöason, fyrirliöi landsliösins,
sem vakti mesta athygli hjá
undirrituöum. Þessi sterki og ró-
legi leikmaöur, sem ber þó frekar
litiö á, er ómetanlegur styrkur
fyrir liöiö. — Hann heldur alltaf
ró sinni á hverju sem gengur, og
gerir sjaldan mistök. Ami er
sterkur varnarspilar og útsjónar
samur i sókn. Yfirvegun hans
kom bezt i ljós, þegar hann tók
vitaköstin, eftir aö þeir Geir og
ölafur höföu misnotaö þrjú vita-
köst— látiö verja hjá sér. Ami fór
sér engu óðslega I vitaköstunum
— en skoraöi þrisvar sinnum
örugglega, og I eitt skiptiö sendi
hann knöttinn á milli fótanna á
markveröi Dankersen.
Islenzka liöiö skoraði 9 mörk úr
22 sóknarlotum I fyrri hálfleik,
sem er ekki nógu góöur árangur. t
siðarihálfleik var útkoman betri,
en þá voru skoruö 11 mörk úr 19
sóknarlotum. Alls voru þvi skoruö
20 mörk úr 41 sóknarlotu, sem er
ágætis úrkoma.
ÞEIR
SKORA
Sóknarloturnar skiptust þannig
á leikmenn liösins — fyrst mörk,
þá skottilraunir, knettinum tapaö
og siöan innan sviga, hvaö leik-
menn hafa „klúöraö” mörgum
sóknarlotum:
Geir...............5 -8-1(4)
Arni..............4 (4)-4-0(0)
Björgvin...........3 -3-1(1)
Þorbergur..........2 -3-0(1)
Bjarni.............2 -3 - 1 (2)
Ólafur.............2 -6-1(5)
Þórarinn...........1 -1-1(2)
Þorbjörn...........1 -1-1(1)
Viggó..............0 -4-1(5)
Birgir.............0 -0-1 (1)
Mörkin voru skoruð þannig — 5
eftir gegnumbrot, 5 með lang-
skotum, 3 úr hornum, 3 úr vita-
köstum, 3 af linu og aðeins-eftir
hraöupphlaup. —SOS