Tíminn - 19.10.1976, Síða 17
Þriöjudagur 19. október 1976
TÍMINN
17
Arsenal á
uppleið...
Auðveldur 2:0 sigur yfir Stoke á Highbury
( fyrra var Q.P.R. tví-
mælalaust bezta lið London
en í ár er eins og þessi titill
sé að færast yfir til Arsen-
al. Liðið lék á móti Stoke
sinn bezta leik um langan
tíma/ og 2-0 tap getur Stoke
einungis þakkað Peter
Shilton í markinu. Hann
varði hvað eftir annað
stórglæsilega/ og sá til þess
að tapið varð ekki stærra.
Liö Arsenal er góö blanda af
reyndum leikmönnum og ungum
og upprennandi stjörnum einsog
Liam Brady, Trevor Ross, Frank
Stapleton óg David O’Leary. En
bezti maður Arsenál á laugardag-
inn var án efa gamla „brýnið”,
Alan Ball, sem virtist vera alls
staðar á vellinum. Einnig átti Ge-
orge Armstrong góðan leik á
kantinum, og lék hann bakveröi
Stoke oft grátt.
Þrátt fyrir mýmörg tækifæri i
fyrri hálfleik skoraði Arsenal að-
eins einu sinni. Ross gaf sendingu
inn i vitateig Stoke, Ball lagði
knöttinn fyrir fætur Pat Rice,
sem skoraði meö föstu vinstrifót-
ar skoti. Eins og áður er sagt, var
það aðeins frábær leikur Shilton i
marki Stoke, sem kom I veg fyrir
fleiri mörk.
Snemma í seinni hálfleik lék
Brady einu sinni sem oftar á
nokkra varnarmenn Stoke og
lagði knöttinn fyrir fætur McDon-
ald, sem þurfti aðeins að ýta
knettinum inn af tveggja metra
færi. Loksins mark frá „Super-
Mac”. Þaö sem eftir lifði af
leiknum var stanzlaus pressa á
mark Stoke, en Shilton sá við öll-
um tilraunum Arsenal. Hann var
sá eini i liðinu, sem eitthvað barð-
ist, hinir léku allir eins og svefn-
genglar, þeir höfðu greinilega
engan áhuga á leiknum, en ein-
hver óánægja mun vera meðal
leikmanna Stoke.
Liðin voru þannig skipuð:
Arsenal: Rimmer, Rice,
Storey, Ross, O’Leary, Howard,
Ball, Brady, McDonald, Staple-
ton, Armstrong.
Stoke:Shilton, Lumsden, Pejic,
Bithell, Dodd, Bloor, Salmons,
Greenhof, Conroy, Hudson,
Sheldon.
— ó.o.
ALAN BALL...lykilmaöurinn
snjalli hjá Arsenal.
Chelsea heldur
sínu striki
Chelsea hefur nú náö góöri forystu I annarri deildinni eftir 4-3 sigur
sinn yfir Oldham á Stamford Bridge. Þegar I hálfleik var staöan oröin
4-2, mörk Chelsea geröu Swain, Wicks, Finnieston og eitt var sjálfs-
mark Bell. Fyrir Oldham skoruöu Robins og Young i fyrri hálfleik, en
Shaw i þeim siðari, og undir lok leiksins mátti oft engu muna, aö Old-
ham tækist aö jafna leikinn. En hinir ungu leikmenn Chelsea héldu
þessum eins marks mun til mikillar gleöi fyrir þá 25.825 áhorfendur,
sem fylgdust meö leiknum.
Derek Hales skoraði 2 mörk I 4-4 jafntefli Charlton og Burnley á Turf
Moor 1 Burnley. Hefur hann nú skorað alls 15 mörk á keppnistimabilinu
bæði i deild og deildarbikar. Það verður ekki langt að biða þess, að
Hales spili með öðru liði. West Ham og Fulham hafa bæði mikinn áhuga
á að fá hann yfir í slnar raöir, og Charlton mun selja hann, ef einhver
nefnirtöluna 150.000 pund. Hin mörk Charlton skoruðu Curtis og Flana-
gan, en Smith, Noble, Fletcher og Cochrane skoruöu fyrir Burnley.
Walsh skoraði sigurmark Blackpool á móti Nottingham og Hawley
skoraði bæði mörk Hull 1 hinum óvænta 2-0 sigri þeirra á móti Wolves.
Um önnur úrslit vlsast til töflunnar hér á siðunni.
Ó.O.
í vígamóði
lildinni varð staðreynd
fyrsta mark fyrir Derby, er hann
fékk góða sendingu frá Rioch, og
afgreiddi hana snyrtilega 1 netiö.
Á 64. minútu skoraði svo Rioch
sitt þriðja mark meö skalla eftir
eina af þessum frábæru send-
ingum frá Leighton James, 5-2.
Minútu slðar brá Perryman
Gemmill innan vltateigs, og
George skoraði úr vltinu. 7-2 kom
svo á 72. minútu, Colin Todd
leiddist þófið 1 vörninni og skoraði
með góðu langskoti. Og á 73.
mlnútu skoraði Rioch sitt fjóröa
mark og kom markatölunni upp 1
8-2.
Eftir þetta tóku leikmenn
Derby lifinu létt, m.a. tók Charlie
George allt I einu upp á þvi að
setjastá boltann, erhanvar á leiö
upp kantinn. Þegar Naylor ætlaði
svo að taka boltann af honum,
stóð hann skyndilega upp og lék á
hann eins og ekkert væri auðveld-
ara.
Liðin voru þannig skipuð:
Derby: Moseley, Thomas, Nish,
Macken, McFarland, Todd
Powell, Gemmill, Rioch, George,
James.
Tottenham: Jennings, Naylor,
Osgood, Hoddle, Yong, Pratt,
Conn, Perryman, Moores, Jones,
Taylor. ó.O.
,Aldrei séð aðra
eins markvörzlu'
— sagði Ásgeir Sigurvinsson, eftir að leikmenn Standard
Liege höfðu ekki haft heppnina með sér í Antverpen
„Trappeniers bjargaði Antverpen frá stórtapi". Þetta
var fyrirsögnin í belgiska knattspyrnublaðinu „Le
Sportif", þegar það sagði f rá leik Antverpen og Standard
Liegeá Deurne-leikvellinum í Antverpen á sunnudaginn.
Blaðið segir, að Trappeniers hafi sýnt stórglæsilegan
leik í marki Antverpen-liðsins og varið oft stórglæsilega
skot, sem að öllu eðlilegu hefðu átt að hafna í netinu. —
Trappeniers var eins og galdramaður í markinu, sagði
blaðið.
— Við réðum ekkert við
Trappeniers, sagði Ásgeir Sigur-
vinsson, þegar Timinn náði tali af
honum i gærkvöldi, en Asgeir
fékk mjög góða dóma I „Le
Sportif”, sem sagði að hann hafi
verið potturinn og pannan i sókn-
arleik Standard Liege. — Það var
stórkostlegt að sjá til Trappen-
iers, hann varði hvað eftir annað
frábærlega vel — kastaði sér
stanganna á milli, eins og köttur.
Ég hef sjaldan séð aðra eins
markvörzlu — þá lá við, að við hjá
Standard Liege klöppuðum hon-
um lof I lófa, eins og áhorfendur
— sérstaklega þegar hann varði
þrumuskot, meö þvi að kasta sér
BOB STOKOE, framkvæmda-
stjóri Sunderland, var látinn fara
frá Roker Park i gærkvöidi.
Stokoe, sem hefur veriö við
stjórnvöl hjá Sunderland s.l.
fjögur ár með góðum árangri,
bauðst tilað segja af sér á laugar-
daginn, eftir aö Sunderland hafði
tapað fyrir Aston Villa. Stjórnin á
Roker Park kom saman I gær-
kvöldi og ákvað að taka boði
hans. Stokoe, sem geröi Sunder-
land að bikarmeistara 1973, hefur
upp og gómaði hann knöttinn uppi
i samskeytunum einu sinni. Við
vorum farnir að fagna marki —
en Trappeniers þaut upp eins og
eldflaug og bjargaði á siðustu
stundu alveg meistaralega.
Asgeir sagði, að Standard Liege
hefði verið óheppið að ná aðeins
jafntefli (0:0) gegn Antverpen. —
Við lékum okkar bezta leik á
keppnistimabilinu, og yfirspil-
uðum leikmenn Antverpen-liðsins
algjörlega. En þá þurftum við að
lenda gegn Trappeniers I þessu
„banastuði”. Við náðum aldrei aö
koma honum úr jafnvægi, þrátt
fyrir stöðuga sókn að marki Ant-
verpen — t.d. fengum við eitt sinn
keypt leikmenn fyrir hálfa
milljón punda að undanförnu — til
að reyna að rétta Sunderland-lið-
ið við, en ekkert dugði og er liöiö
nú á botninum i 1. deild, hefur
ekki unnið leik. Þetta sýnir bezt,
að það má ekkert á móti blása hjá
félögunum I Englandi — þá eru
framkvæmdastjórarnir hiklaust
látnir taka pokann sinn. Ian
MacFarlane, þjálfari, tekur við
starfi Stokoe til að byrja meö.
ÁSGEIR SIGURVINSSON...átti
góðan leik.
7 hornspyrnur i röð, og þrátt fyrir
mikinn darraðardans inni i vita-
teig, þá náðum við ekki að skora.
Þetta var svo sannarlega einn af
þeim leikjum, þegar allt gengur
upp, nema markskot, sagði As-
geir.
„Le Sportif ” sagði,' að
Trappeniers heföi varið allt —
hvað eftir annað hefði hann
gómað knöttinn af tánum af leik-
mönnum Standards, á milli þess
að hann varði þrumuskot þeirra
og skalla.
Standard Liege er nú I fjórða
sæti I belgisku 1. deildarkeppn-
inni — með 11 stig. FC Brugge er
á toppnum með 14 stig, en Ant-
verpen og Anderlecht koma siðan
með 12 stig. — Við ætlum okkur að
vera með I baráttunni um
meistaratitilinn, sagði Asgeir.
— SOS
Stokoe rekinn
— frá Sunderland í gærkvöldi
„Mættum tvíefldir
til leiks"
— Þetta var mjög góður leikur
hjá okkur og það var eins og leik-
menn liðsins hefðu mætt tviefldir
til leiks, eftir þau leiðindi, sem
hafa átt sér stað að undanförnu,
sagði Marteinn Geirsson, en hann
og félagar hans úr Royale Union
MARTEINN GEIRSSON...skilaöi
nýja hiutverki sinu mjög vel.
unnu góðan sigur (1:0) yfir La
Gantoise á útivelii um helgina og
er Union—liðið komið upp I annað
sætið i 2. deildarkeppninni.
Marteinn sagði að nýir menn
hefðu tekið við stjórninni hjá
Union, eftir að félagið haföi verið
lýst gladþrota á fimmtudaginn.
Þetta er nú allt komið á hreint —
og forseti félagsins hefur nú verið
látinn fara, eftir að búiö var að
rannsaka fjárhag hans og félags-
ins, sem var orðinn vafasamur,
enda höfðu sumir leikmannanna
ekki fengiö greidd laun sin i
langan tima.
Stanley skoraði sigurmark
Union-liðsins, sem sýndi mjög
— sagði Marteinn
Geirsson og
Union-liðið
nálgast toppinn
góðan leik. Marteinn sagði, að
hann. hefði nú leikið stöðu aftasta
varnarleikmanns og komizt vel
frá þvi. — Ég tók stöðu Luxem-
borgarmannsins Philips, sem á
við meiösli að striöa.
— Við eigum nú góöa möguleika
á að komast á toppinn, þar sem
við leikum næstu tvo leiki okkar á
heimavelli. Það er mikill hugur
hér i herbúðum okkar i Briissel og
andinn mjög góður, eftir að búið
er að gera hreint i sambandi við
launagreiðslur til leikmanna,
sagði Marteinn. —SOS
*
Lato hetja
Pólverja....
LATO — hinn marksækni leikmaöur frá Póllandi var hetja Pól-
verja, þegarþeir unnu sætan sigur (2:0) yfir Portúgölum I HM-
keppninni i knattspyrnu, þegar þjóðirnar kepptu i Oporto I
Portúgal. 30 þús. áhorfendur sáu ieikinn og fengu þeir aö sjá sina
menn i varnaraöstöðu nær allan leikinn. Lato skoraöi bæði mörk
Pólverja, sem standa nú með pálinann i höndunum, en hinar
þjóöirnar I riölinum eru Danir og Kýpurbúar.