Tíminn - 31.10.1976, Page 25
Sunnudagur 31. október 1976
TÍMINN
25
fc'fil Rjí
h m
Kolbrún Björgólfsdóttir leirkerasmiður sýnir nú að Kjarvalsstöðum og gefur þar aö llta bæði hreina og
beina notahluti og svo hluti sem Kolbrún hugsar sem sjálfstæð myndverk.
Einnig sýnir Kolbrún ýmsar tilraunir með gierjung og hugmyndir að skreytingum. Gunnar tók með-
fylgjandi mynd af Kolbrúnu viö nokkur verkanna á sýningu hennar.
Þrettán styrkjum úthlutað úr
Menningarsjóði íslands og Finnlands
Stjórn Menningarsjóðs Islands
og Finnlands kom saman til fund-
ar 20. október s.l. i Reykjavik til
þe ss að ákveða úthlutun styrkja
úr sjóðnum. Umsóknarfrestur
var til 30. september sl. og bárust
alls 76 umsóknir, þar af 56 frá
Finnlandi og 20 frá tslandi. Út-
hlutað var samtals 52.000 finnsk-
um mörkum, og hlutu eftirtaldir
umsækjendur styrki sem hér seg-
ir:
1. Þorsteinn Magnússon, kenn-
ari, 3.000 mörk, vegna náms-
ferðar til Finnlands
2. Listahátið i Reykjavik, 3.000
mörk, til þess að senda full-
trúa úr stjórn listahátiðar til
Finnlands tilað efla tengsl við
finnskar listahátiðir
3. Sr. Sigurjón Guðjónsson, 3.000
mörk, til Finnlandsferðar
vegna þýöingarstarfa
4. Bragi Asgeirsson, listmálari,
og Einar Hákonarson, mynd-
listarmaður, 3.000 mörk hvor,
til að vinna að auknum sam-
skiptum islenzkra og finnskra
myndlistarmanna
5. Norræna félagið á Islandi,
10.000 mörk, til að senda 4-5
Islendinga á námskeið i Finn-
landi
6. Barbro Skogberg-Þórðarson,
formaður Finnlandsvina-
félagsins Suomi, 2.000 mörk,
til Finnlandsferðar til að efla
menningarleg samskipti ts-
lands og Finnlands
7. Gunilla Hellman, bókavörður
við menningarmiðstöðina á
Hanaholmen i Helsingfors, og
Ann Sandelin, fulltrúi við
sömu stofnun, 4.000 mörk, til
tslandsferðar til að kynna sér
starfsemi Norræna hússins i
Reykjavik
8. Markús Leppo, ljósmyndari,
3.000 mörk, til Islandsferðar
til að taka myndir af islenzkri
alþýðulist og byggingarlist
9. Bengt Loman, prófessor, 3.000
mörk, til að fullgera námsefni
fyrir islenzkukennslu við há-
skólann i Abo (Abo Akademi)
10. Oiva Miettinen, blaðamaður,
3.000 mörk, til íslandsferðar
til að safna efni i greinar um
Island
11. Kai A. Saanila, lektor, 6.000
mörk, til að vinna að samn-
ingu handbókar um islenzka
tungu
12. Mika Suvioja, blaðamaður,
3.000 mörk, til Islandsferðar
til að safna efni um myndlist,
söfn og sýningastarfsemi
vegna undirbúnings útgáfu al-
fræðibókar
13. Yrjö Kilpinen-Seura ry, tón-
listarfélag kennt við finnska
tónskáldið YrjöKilpinen, 3.000
mörk, til þess að styrkja Is-
landsferð finnsks söngvara
eða pianóleikara til að halda
hljómleika þarsem flutt verða
verkYrjö Kilpinen og annarra
finnskra tónskálda.
Höfuðstóll sjóðsins er 400.000
finnsk mörk, sem finnska þjóð-
þingið veitti i tilefni af þvi að
minnzt var 1100 ára afmælis
byggðar á Islandi sumarið 1974,
en auk þess veittu Finnar i ár
50.000 mörk til að auka höfuðstól
sjóðsins.
Stjórn sjóðsins skipa Ragnar
Meinander, deildarstjóri i finnska
menntamálaráðuneytinu, for-
maður Juha Peura, fil, mag.,
Kristin Hallgrimsdóttir, stjómar-
ráðsfulltrúi, og frú Kristin
Þórarinsdóttir Mantyla, en vara-
maður af finnskri hálfu og ritari
sjóðsstjórnar er Matti Gustafson,
fulltrúi.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Barnavagnar, kerrur og kerruvagnar eru
norsk gæðavara gerð fyrir norðlægar slóðir
Tvíburavagnar og kerrur einnig jafnan fyrirliggjandi
Mikið úrval - Sanngjarnt verð
Sendum gegn póstkröfu • Fóst einnig víða um land
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 Simi 8-46-70
Kvenskór
LÆKKAD VERD
Verð kr. 2,900
Teg. 4032
Litur brúnn
Stærðir 36-41
Verð kr. 2,900
Teg. 4023
Litur
brúnn/ljósbrúnn
Stærðir 36-41
Verð kr. 2,900
Teg. 5028
Litur millibrúnn
Stærðir 36-41
Verð kr. 2,900
Teg. 4044
Litur millibrúnn
Stærðir 36-41
Verð kr. 2,900
Teg. 4049
Litur brúnn
Stærðir 36-41
AUSTURSTR/ETI