Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 36

Tíminn - 31.10.1976, Blaðsíða 36
36 TÍMINN Sunnudagur 31. október 1976 TÍAAA- spurningin Tima-spurningin: Kaupirðu frekar islenzkar vörur en erlendar? Bryndfs Gestsdóttir, nemi: — Já ég reyni þaö. Annars fer ég mest eftir veröi og kaupi ekki Islenzkar vörur, séu þær dýrari. Hulda Hákonardóttir, nemi: — Já, ef gæöin eru svipuö. Hrein- lætisvörur okkar eru gott dæmi um þaö. Bjarni P. Magnússon, fræöslustjóri: — Já, ég kaupi Islenzkan fatnaö og íslenzkt kex auövitaö. Konan vinnur úr lopa og allar hreinlætisvörur heimilisins eru Islenzkar. Jón Sigurösson, húsvöröur: — Já, ég er mjög meömæltur þvl. Viö framleiöum á Islandi góöan undirfatnaö t.d. og afbrags skó. GIsli Magnússon, listmálari: — Nei, ég er hræddur um, aö sllkt sé meö höppum og glöppum hjá mér ennþá a .m.k. lesendur segja Húsvíkingar óhressir með breytinguna: „Útvarpsráð snúi frá villu síns vegar og færi knattspyrnuna aftur á laugardagana" Hafliöi Jósteinsson, Húsavik, hringdi: Mig langar til aö koma á framfæri fáeinum oröum i um- ræður þær, sem eiga sér staö um breytingarnar á dagskrá sjónvarpsins. Þaö, sem mig langar aö ræöa um, er tilfærslan á ensku knatt- spyrnunni, sem hefur valdið al- veg gifurlegri óánægju hér nyrðra. Þaö er mér og mörgum öðrum alveg óskiljanlegt, hvers vegna þessi flutningur átti sér staö. Þessi timi, undir kvöldmat á laugardögum, er oröinn nokk- urs konar „knattspyrnutimi” hjá okkur, enda hæfir hann ákaflega vel þessu efni. Nú hef- ur Utvarpsráð hins vegar tekiö þá ákvöröun — og framkvæmt — að flytja hann yfir á sunnu- dagana, rétt um kvöldmatar- leytið, þegar fjölskyldur vilja jú gjarnan sitja saman við kvöld- verðarboröið. I staöinn skjóta þeir nú inn i iþróttadagskrá laugardagsins, og þaö inn i hana miðja, efni fyrir börn og unglinga, sem i sjálfu sér er ágætis efni og á vel heima I sjónvarpsdagskránni, en er algerlega óskylt iþróttun- um. Þaö er hálf hjákátlegt aö heyra hann Bjarna segja: Veriði nú sæl og sjáumst aftur á eftir. Ef til vill er finnanleg einhver skyring á þessari ráðstöfun, en við sjáum hana engan veginn. Ég vildi þvi hvetja útvarpsráö eindregið til þess aö viöurkenna bara hreinlega aö þvi hafi orðiö mistök á og snúa frá villu sins vegar meö þvi aö flytja knatt- spyrnuna til baka. Þetta er jú meö vinsælasta sjónvarpsefn- inu. Þá vil ég um leiö nota tæki- færiö til þess aö þakka sjón- varpinu fyrir dagskrárefni, sem yfirleitt er gott. Þaö hefur heyrzt mikil gagnrýni á efnis- valiö, en svo einkennilegt sem það er, taka gagnrýnendurnir yfirleitt jafnframt fram, aö þeir horfi litiö sem ekkert á sjón- varp. Ég held, að þeir séu færastir um aö dæma dagskrána, sem mikið horfa á kassann, og held ég megi fullyrða, aö fólk hér fyrir norðan, sem mikiö horfir, sé mér yfirleitt sammála um að dagskráin sé nokkuð góö og vel upp byggð. En, sumsé, útvarpsráð: Viðurkenniö mistökin og leið- réttiö skyssuna, þvi þetta er ekkert annaö en skyssa. Enn um hlutverk í „leikriti vikunnar' Útvarpshlustandi hringdi og var óhress yfir viöbrögöum út- varpsins. Hann haföi eftirfar- andi aö segja: Fyrir nokkru ritaði ég bréf i lesendabréfadálkTImans og fór fram á, aö hlustendur fengju, eins og áöur var, aö vita fyrir- fram hverjir léku I leikritum út- varpsins, þvi útvarpiö er nú far- ið út á þá braut að segja aöeins frá helztu hlutverkum, hverjir skipa þau. Ekki hafðist nú mikið upp úr krafsinu aö þessu sinni, þvl enn telur útvarpiö ekki ástæðu til þess aö birta hlut- verkalistann i heild, þegar þaö kynnir Bus stop, eöa „Viökomu- staö”, heldur lætur sér sem fyrr nægja að segja hverjir fara með „helztu” hlutverk. Siðan eru taldir upp fimm leikarar þ.e. þau Helga Stephensen, Þóra Friðriksdóttir, Rúrik Haraldsson, Ragnheiður Stein- dórsdóttir og Hákon Waage. Síöan er miklu rúmi varið til þessaðsegja frá höfundiog sagt m.a. frá þvi, aö Marilyn Monroe lék einu sinni i Bus stop. En samt er þvi haldið leyndu hver j- irleika i verkinu I útvarpið, sem þó er sýnu áhugaveröara, þvl þetta vilja hlustendur fá aö vita fyrirfram. Ekki veit ég, hvort bréf mitt hefur fariö framhjá útvarps- stjóra, en vona, að þessi árétt- ing komi honum aö haldi og framvegis veröi sagt frá þvi i dagskrárkynningum, hverjir leika I útvarpsleikritunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.