Fréttablaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 2
2 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir útilokað að frumvarp um Ríkisútvarpið verði að lögum fyrir jól. Ráðherr- ann sagði í Silfri Egils á NFS í gær að engin slík neyð væri uppi að það kallaði á lagasetningu fyrir jólaleyfi þingsins en það hefst 10. desember. Hann útilokaði þó ekki að frumvarpið kæmi fram á næstu vikum þó umræður um það og afgreiðsla biðu nýs árs. Kjartan Ólafsson, sem situr í menntamálanefnd Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn, segir engu breyta hvort frumvarp um Ríkis- útvarpið komi fram fyrir eða eftir áramót. „Himinninn ferst ekki þó það gerist ekki strax,“ segir hann en ítrekar að mennta- málaráðherra hafi boðað komu frumvarpsins og hann bíði þess rólegur. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Ríkis- útvarpinu liggja verulega á að fá nýjan lagaramma. „Ríkisútvarp- ið hefur í tuttugu ár þurft á því að halda að hlutverk þess væri skilgreint og stjórnarháttum þess komið í nútímalegt horf.“ Langt er síðan vinna hófst í menntamálaráðuneytinu við smíði frumvarps um Ríkisútvarp- ið og telur Mörður einkum tvennt tefja verkið. „Annars vegar gerði ESA alvarlegar athugasemdir við frumvarpið frá í fyrra og hins vegar er tregða í Fram- sóknarflokknum við að sætta sig við hlutafélagaformið sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði til í fyrra. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin telja hins vegar að sjálfseignarstofnunarformið sé það besta fyrir RÚV.“ - bþs ���rennileg og myndræn� ��������������������� �������������������� ����������� ������������� raunsæisleg og sannfærandi.� ��������������������������������� ����������������� ���������������������������� og spennandi� �Bráðlæsileg ���������� LÖGREGLA Klukkan rúmlega fjögur á aðfaranótt sunnudags keyrði fólks- bíll út af Laugarvatnsvegi innan við Laugarvatn. Í bifreiðinni voru sex ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára. Fólksbílinn rúmar ein- göngu fimm manns. Bifreiðin fór út af í beygju og lenti í skurði. Allir sem voru í bíln- um urðu fyrir meiðslum. Nokkrir voru fluttir á Heilsugæslustöðina á Selfossi og aðrir á slysadeildina í Fossvogi. Meiðslin voru misalvarleg en enginn var talinn í lífshættu. Ekki leikur grunur á ölvun. Lítils háttar hálka var á veginum og talið er að ökumaður hafi ekki ekið í samræmi við aðstæður. - jóa Útafakstur á Laugarvatnsvegi: Sex ungmenni slösuðust ATVINNUMÁL „Við teljum að málin komist ekki í almennilegt horf fyrr en fyrirtæki sem gera samn- ing við starfsmannaleigur verði gerð ábyrg fyrir launum starfs- mannanna,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðn- ar, Sambands iðnfélaga. Samiðn telur ótækt að ábyrgð á réttum launagreiðslum til starfs- manna sem hingað koma fyrir tilstuðlan starfsmannaleiga hvíli á starfsmannaleigunum sjálfum en ekki fyrirtækjunum sem fá starfsmennina til vinnu. Fyrir- tækjunum er gert að standa skil á sköttum og öðrum opinberum gjöldum og telur Samiðn að þeim ætti líka að vera gert að bera ábyrgð á launum starfsmanna. Ábending Samiðnar hefur verið send félagsmálaráðherra en nýlega var frumvarp til laga um starfsmannaleigur samið í ráðu- neytinu. Stefnt er að samþykkt þess fyrir jólaleyfi þingheims. „Íslensku fyrirtækin þekkja íslensk lög og kjarasamninga og það eru þau sem koma til með að njóta hagnaðarins ef verið er að flytja inn ódýrt vinnuafl. Okkur finnst því eðlilegt að fyrirtækin séu gerð ábyrg fyrir þessu og eins og í öðrum s a m n i n g u m geta þau svo átt endurkröfurétt á starfsmanna- leiguna ef því er að skipta,“ segir Finnbjörn. Í frumvarpi félagsmálaráð- herra er kveðið á um að erlendar starfsmannaleigur skuli hafa full- trúa á Íslandi sem hafi tilkynn- ingarskyldu við stjórnvöld en full- trúanum er hvorki gert að bera ábyrgð né hafa völd. Í því ljósi telur Samiðn enn mikilvægara að ábyrgð á launagreiðslunum hvíli á herðum fyrirtækjanna sem leigja starfsmenn af starfsmannaleig- um. Í erindi Samiðnar til ráðherra segir meðal annars að það sé eindregin skoðun þess að skýr ákvæði um ábyrgð notendafyrir- tækja séu forsenda þess að árang- ur náist og hægt verði að koma böndum á það ófremdarástand sem ríkt hafi á íslenskum vinnu- markaði síðustu misseri. Samiðn skorar því á ráðherra að tryggja slík ákvæði í lögum. Finnbjörn A. Hermannsson er að öðru leyti ánægður með frum- varpið. „Það er margt gott í því. Það skýrir margt og með því er verið að reyna að koma böndum á markaðinn. Þarna er hins vegar augljós brotalöm sem gengur ekki upp.“ bjorn@frettabladid.is Fyrirtækin ábyrgist laun starfsmanna Samiðn vill að fyrirtæki sem leigja starfsmenn af starfsmannaleigum beri ábyrgð á launum þeirra. Samþykkt þess efnis hefur verið send félagsmálaráðherra. „Frumvarp um starfsmannaleigur er annars gott,“ segir formaður Samiðnar. UNNIÐ AF KAPPI Myndin er tekin á athafnasvæði Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði en þar er fjöldi erlendra starfsmanna við vinnu. Að öðru leyti hefur myndin ekkert með efni fréttarinnar að gera. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FINNBJÖRN A. HERMANNSSON For- maður Samiðnar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um frumvarp til laga um Ríkisútvarpið: Kemur ekki til umræðu á þessu ári SPURNING DAGSINS Rósa Björk, er hundur í borgarstjórn? „Já, það er langhundur í borgarstjórn.“ Hundaeigendur gengu með hunda sína niður Laugaveg á laugardag til að mótmæla hundabanni í Reykjavík. Rósa Björk Hall- dórsdóttir er hundaræktandi. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� HALLDÓR ÁSGRÍMS- SON Segir frumvarp um RÚV ekki sam- þykkt fyrir jól. KJARTAN ÓLAFSSON Bíður rólegur eftir komu frumvarpsins. MÖRÐUR ÁRNASON Segir liggja á fyrir RÚV að fá lagaramma. JÓL Kveikt var á ljósunum á jóla- tré Kringlunnar í gær og var það Dorrit Moussaieff forsetafrú sem tendraði ljósin. Hin árlega pakka- söfnun til styrktar Fjölskylduhjálp og Mæðrastyrksnefnd hófst við sama tækifæri. Landsmenn eru hvattir til að leggja pakka undir tréð. Hægt er að pakka inn gjöfunum á staðn- um og pakkarnir eru svo merktir annað hvort handa stelpu eða strák. Mæðrastyrksnefnd og Fjölskyldu- hjálp sjá svo um að dreifa pökkun- um til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda um jólin. - jóa Jólaljósin tendruð: Forsetafrúin kveikti ljósin KVEIKT Á JÓLATRÉ Í KRINGLUNNI Dorrit Moussaieff forsetafrú tendraði ljósin á jóla- trénu í Kringlunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PREDIKUN Thelma Ásdísardóttir er maður ársins að mati Karls Sig- urbjörnssonar, biskups Íslands. Karl gerði hugrekki Thelmu að umtalsefni í predikun í Hall- grímskirkju í gær, á fyrsta degi aðventu. „Thelma Ásdísardóttir ætti að vera maður ársins vegna hugrekkis síns að segja sögu sína, sögu af ólýsanlegum hryll- ingi bernsku sinnar, misnotkun og ofbeldi,“ sagði Karl. Hann lagði einnig út af text- anum við lagið Hjálpum þeim og þakkaði aðstandendum endur- útgáfu þess fyrir. „Nú tekur landslið íslenskra popptónlistar- manna aftur höndum saman um endurútgáfu þessa lags til ágóða fyrir hjálparstarfið í Pakistan og annars staðar þar sem leitast er við að mæta hinni gleymdu neyð á okkar hrjáðu jörð. Mikið eigum við þessu góða fólki að þakka, sem enn og aftur gefur af sér til góðs, án þess að krefjast neins fyrir sinn snúð.“ Bob Geldof og Bono komu við sögu í predikun Karls en þeir hafa látið bágindi íbúa þriðja heimsins sig varða. „Hjálpum þeim. Og við getum hjálpað,“ sagði biskup. Örbirgð á Íslandi var Karli einnig ofarlega í huga. „Við megum ekki heldur gleyma því að jafnvel hér í ofgnóttinni á Íslandi er fólks sem býr við kröpp kjör og á við margvíslega erfiðleika að etja,“ sagði hann og fagnaði um leið samstarfi Mæðrastyrks- nefndar og Hjálparstarfs kirkj- unnar sem nú hafa í fyrsta sinn tekið höndum saman um jóla- aðstoð til þurfandi. - bþs Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í predikun í Hallgrímskirkju í gær: Thelma er maður ársins KARL SIGURBJÖRNSSON Biskup Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BRETLAND Breska varnarmálaráðu- neytið rannsakar hvort ofbeldi sé beitt við þjálfun breskra her- manna. Ástæða rannsóknarinnar er frétt sem birtist í breska blað- inu News of the World. Í fréttinni voru birtar myndir sem sem teknar voru síðastliðið vor og sýndu ofbeldi í æfingabúð- um hersins á Suður-Englandi. Á myndunum mátti sjá nakta land- gönguliða við æfingar en einnig sýndu myndirnar að ráðist var að einum hermanninum, hann sleg- inn niður og sparkað í höfuð hans. Hermaðurinn rotaðist við höfuð- höggið og segir sá sem myndirnar tók að litlu hafi munað að hermað- urinn léti lífið við sparkið. ■ Rannsaka ofbeldi á hermönnum: Sparkað í höf- uð hermanns Skæður jarðskjálfti Jarðskjálfti að styrkleika 5,9 á Richter reið yfir fámennt hérað í Suður-Íran í gær og jafnaði sjö þorp við jörðu. Tíu manns létust í skjálftanum og 70 slösuð- ust. Áhrif skjálftans fundust í Óman og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. ÍRAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.