Fréttablaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 14
14 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
Landsteinar Strengur er stærsti sölu- og þjónustuaðili Microsoft viðskipta-
hugbúnaðar á Íslandi. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að ná markmiðum
þínum í rekstri þannig að þitt fyrirtæki geti vaxið og dafnað.
Navision Small Business er viðskiptahugbúnaður sem getur vaxið
og þróast með fyrirtæki þínu. Ef fyrirtækið þitt stækkar og stækkar,
getur Navision Small Business orðið Navision Big Business!
Taktu rétta ákvörðun strax. Veldu Navision Small Business.
Nú getur þú tryggt þér öruggan og hnökralausan aðgang að fjárhags- og viðskiptaupp-
lýsingum fyrirtækisins í eitt skipti fyrir öll. Það gerir þú með Navision Small Business.
Það þarf ekki að kosta
mikið að verða stór
Nú á aðeins kr. 115.038
Hafðu samband núna!
Hringdu í síma 550-9000 og fáðu réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | www.landsteinarstrengur.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ÞJÓÐKIRKJAN „Framsetning Hjartar
Magna veldur ákveðnum misskiln-
ingi,“ segir Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi
hjá Þjóðkirkjunni.
Hjörtur Magni Jóhannsson frí-
kirkjuprestur sagði það hróplega
mismunun að þjóðkirkjan fengi
hátt á fjórða milljarð frá ríkinu
meðan trúfélög fengju aðeins
sóknargjöld.
Steinunn segir að innifalið í
þessari tölu sem Hjörtur Magni
nefnir séu sóknargjöld hennar
sem og greiðslur til kirkjugarða
en starfsemi þeirra sé aðskilin
annarri starfsemi Þjóðkirkjunnar
og þjóni öllum landsmönnum burt-
séð frá trúfélagsaðild. „Þarna er
því ekki um að ræða fé sem Þjóð-
kirkjan fær til viðbótar við sókn-
argjöld,“ segir Steinunn.
„Það er ljóst að Þjóðkirkjan
nýtur sérstöðu í íslensku þjóðfé-
lagi,“ segir Steinunn. „ Að hluta til
er það vegna sögu hennar og stöðu
og einnig skapar stærð hennar
sérstöðu. En því fylgja líka skyld-
ur og ábyrgð, langt umfram þær
kröfur sem gerðar eru til annarra
trúfélaga,“ segir hún að lokum. - jse
Fjárframlög ríkisins til Þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga:
Þjóðkirkjan nýtur sérstöðu
GUÐSÞJÓNUSTA Steinunn Arnþrúður segir
Þjóðkirkjuna njóta sérstöðu í íslensku þjóð-
félagi en hún hafi einnig skyldur og ábyrgð
langt umfram þær kröfur sem gerðar séu til
annarra trúfélaga.
COLORADO, AP Sautján ára banda-
rískur piltur missti stjórn á bíln-
um sínum er hann var að senda
smáskilaboð úr farsíma sínum
sem varð til þess aldraður hjól-
reiðamaður lét lífið.
Pilturinn á yfir höfði sér allt
að eins árs fangelsi fyrir vítavert
kæruleysi undir stýri.
Þetta var í annað sinn sem
ekið var á þennan sama aldraða
hjólreiðamann. Fyrir tveimur
árum var ekið á hann er hann
hjólaði í mestu makindum á hjól-
reiðastíg. Að sögn eiginkonu hans
hafði hann allar götur síðan verið
sérlega varkár í umferðinni.
- fb
Piltur ók á hjólreiðamann:
Sendi SMS
undir stýri
FORN LIST Gestur á sýningunni „Egyptaland
Grikkland Róm - varnir og snerting“ gengur
hjá styttu af Alexander mikla í líki egypsks
faraós í safni í Frankfurt á föstudag. MYND/AP
TSJETSJENÍA, AP Stjórnvöld vonast til
þess að kosningarnar sem haldn-
ar voru í Tsjetsjeníu í gær munu
færa stríðshrjáð héraðið einu
þrepi nær stöðugleika og friði.
Þó er ljóst að fáir heimamenn líta
kosningarnar alvarlegum augum.
Öllum aðskilnaðarsinnum
er bannað að bjóða sig fram, en
350 frambjóðendur takast á um
þingsætin 58. Auk þess koma
engir eftirlitsmenn frá Evrópu-
sambandinu og Evrópuráðinu að
kosningunum.
Um 600.000 manns eru á kjör-
skrá í héraðinu, þar sem vatn
og rafmagn er oft erfitt að fá,
og gríðarlegt atvinnuleysi ríkir.
Auk þess er talið að um 100.000
óbreyttir borgarar, hermenn og
uppreisnarseggir hafi látist í
stríðunum tveimur sem herjað
hafa í héraðinu síðan árið 1994,
þegar rússneskir hermenn fyrst
bældu niður stjálfstæðisbaráttu
heimamanna.
Þrátt fyrir ofbeldishótanir og
fjölmarga skotbardaga víða um
héraðið síðustu vikurnar, voru
kjörstaðir opnaðir án teljandi
vandræða í gærmorgun, en um
24.000 hermenn og lögreglumenn
gættu kjörstaðanna 430.
Búist er við að stuðningsflokk-
ur Vladimírs Pútín Rússlandsfor-
seta muni sigra í kosningunum,
en flokkurinn Sameinað Rússland
styður einnig Ramzan Kadyr-
ov, forystumann sambandssinna
Tsjetsjena. Ef Sameinað Rúss-
land vinnur má gera ráð fyrir að
Kadyrov verði næsti forseti Tsjet-
sjeníu, en hann ríkir yfir 5.000
manna einkaher sem illræmdur
er fyrir grimmd og mannréttinda-
brot. Auk þess á hann stóran hlut
í olíuborholum héraðsins. Kadyr-
ov er sonur Akhmads Kadyrovs
fyrrverandi forseta Tsjetsjeníu
sem aðskilnaðarsinnar réðu af
dögum í Grozny í fyrra, sjö mán-
uðum eftir hann tók við forseta-
embættinu.
Fjölmennt rússneskt hernáms-
lið er í Tsjetsjeníu og berast sögur
um hryðjuverk þessara hermanna
í héraðinu. Þeir eru sagðir fara
ölvaðir um héraðið og myrða fólk
af litlu sem engu tilefni.
smk@frettabladid.is
Kosningar án
eftirlitsmanna
Rússneska ríkisstjórnin bindur miklar vonir við
kosningarnar sem haldnar voru í Tsjetsjeníu í gær.
Heimamenn líta á þær sem skrípaleik.
KOSNINGAR Í TSJETSJENÍU Tsjetsjenskir kjósandi fær aðstoð þegar hann kemur út úr kjör-
klefanum en kosið var til þings í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP