Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 24

Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 24
[ ] El ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Mikið úrval af burstasettum og neistahlífa, ásamt ýmis konar aukahlutum. Opið laugardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 12-16 til jóla. Arinbúðin Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið) Sími 567 2133 · www.arinn.is Útiseríur mega alveg fara að fara upp hvað úr hverju, sérstaklega í trén í garðinum. Það er kannski spurning um að bíða aðeins með að setja seríur utan á húsin. Í þættinum Veggfóðri í kvöld kíkir Vala Matt meðal ann- ars heim til sigurvegarans í veggfóðurskeppni þáttarins, Kristínar Evu Ólafsdóttur, en hún hefur útfært vinningshug- myndina á marga vegu. Á annað hundrað tillögur bárust í veggfóðurskeppni Veggfóðurs og varð tillaga Kristínar Evu hlutskörpust. ,,Samskipti sá um prentun á veggfóðrinu og Krist- ín lét einnig prenta eina gardínu í sama munstri sem hún er með í stofunni,“ segir Vala, hress að vanda. ,,Þetta byrjaði í Listaháskól- anum þar sem ég átti að mynd- skreyta ljóð. Ég valdi eitthvert haustljóð og þá málaði ég þessi laufblöð. Ég hef síðan verið að þróa þetta áfram. Ég notaði til dæmis þessa hugmynd þegar ég hannaði forsíðu Bókatíðinda í ár,“ segir Kristín Eva. Hún lét ekki þar við sitja heldur lét hún einnig prenta munstrið á venju- lega flekagardínu úr Ikea sem er í stofunni hennar. Á heimili Kristínar, sem er nemi á fyrsta ári í grafískri hönn- un við Listaháskóla Íslands, má einnig sjá sniðuga lausn á eldhús- borði. Það er heimasmíðað og var gert þannig að spónaplötur voru límdar saman, pússaðar og lakk- aðar. Hönnunar- og lífsstílsþátt- urinn Veggfóður verður sem sagt fullur af fjölbreyttu og skemmti- legu efni í kvöld klukkan 21.00 á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Málaði laufin við haustljóð VEGGFÓÐUR Vala við flekagardínuna hennar Kristínar Evu. Hér má sjá Völu ásamt Unnari í Samskiptum í Epal þar sem vinningstillögurnar eru til sýnis. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hér má sjá mismunandi útfærslur vinnings- veggfóðurs Kristínar Evu. Elhúsborðið fallega sem Kristín Eva hannaði. Í þættinum í kvöld verður einnig sýnt frá heimsókn Völu til Kolbrúnar Leósdóttur í Stokkhólmi þar sem hún sýnir frumlega hönnun sína á hálfgerðum ferðavínskáp sem nýtist þó fullkomlega heima fyrir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.