Fréttablaðið - 28.11.2005, Side 70
28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR34
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Glæný línuýsa
Glæný stórlúða
Fullt af girnilegum fiskréttum
Nýsteiktar fiskibollur og velútvatnaður saltfiskur
ásamt nýbökuðu rúgbrauði frá HP Selfossi.
Sjáumst eldhress í dag!!!
FÓTBOLTI Frakkinn Laurent Robert
heldur áfram að vera til vandræða
eins og hann var hjá Newcastle, en
hann var ekki valinn í leikmanna-
hóp Portsmouth sem mætti Chel-
sea í gær.
Robert sagði eftir æfingu liðs-
ins fyrir skömmu að honum væri
kennt um allt sem miður færi hjá
félaginu. „Ég hef fengið það á til-
finninguna að það sé mun meiri
pressa á mér en öðrum leikmönn-
um hjá félaginu. Mér er alltaf
kennt um það ef liðið er að tapa
leikjum. Ég veit ekki hvers vegna
ég var ekki valinn í hópinn gegn
Chelsea. Ég þarf að spyrja for-
seta félagsins, Milan Mandaric,
að því.“
Robert hefur ítrekað lent upp á
kant við knattspyrnustjóra sína á
ferlinum og er skemmst að minn-
ast þess þegar hann og Graeme
Souness, knattspyrnustjóri Robert
hjá Newcastle, töluðust vart við
síðasta vetur eftir að Robert
dró knattspyrnustjórahæfileika
Souness í efa. - mh
Vandræði hjá Portsmouth:
Robert enn til
vandræða
FÓTBOLTI Willie McStay, aðalþjálf-
ari U-19 ára liðs Celtic í Skotlandi,
segir að Kjartan Henry Finnboga-
son og Theódór Elmar Bjarnason
séu í hópi bestu ungu leikmanna
liðsins og að sá síðarnefndi sé
sérstaklega líklegur til að ná að
brjóta sér leið inn í aðallið félags-
ins innan skamms tíma.
„Theódór hefur verið að sýna
miklar framfarir í haust og bætt
sig með hverjum leik. Mesti mun-
urinn á leik hans í ár og í fyrra er
að nú hefur hann verið að skora
mjög grimmt. Það er kostur sem
er afar gott fyrir miðjumann að
búa yfir,“ segir McStay, en Theó-
dór á fast sæti á miðju U-19 ára
liðsins og spilar sem eiginlegur
leikstjórnandi liðsins.
Kjartan Henry hefur átt við
þrálát meiðsli að stríða frá því í
sumar og því ekkert getað beitt
sér í ár. McStay segir að meiðsl-
in hafi komið á versta mögulega
tíma þar sem Kjartan Henry er
ekki lengur gjaldgengur í U-19
ára liðið og væri, ef ekki hefði
verið fyrir meiðslin, að sanna sig
með vara- og aðalliði félagsins.
„Það tók Kjartan svolítið leng-
ri tíma en Theódór að laga sig að
breskum fótbolta. En eftir því sem
leið á síðasta tímabil skoraði hann
fullt af mörkum, með vinstri fæti,
hægri fæti og með höfðinu. Hann
og Theódór spiluðu stórt hlutverk
fyrir U-19 ára liðið í fyrra sem
varð tvöfaldur meistari í Skot-
landi,“ segir McStay.
Á spjallsíðum stuðningsmanna
Celtic er farið fögrum orðum um
frammistöðu Theódórs með U-19
ára liðinu og er honum gjarnan
líkt við Morten Wieghorst sem
áður lék með Celtic við mjög
góðan orðstír. „Algjörlega þindar-
laus og með boltann nánast límdan
við fæturna á sér í hvert sinn sem
hann fær hann. „Teddy Bjarna-
son“ hefur fest sig í sessi sem
algjör lykilmaður í þessu liði,“
segir meðal annars um leik Celtic
og Hearts í byrjun þessa mánað-
ar í skýrslu sem birtist á óopin-
berri heimasíðu U-19 ára liðsins.
McStay segir ýmislegt til í þess-
um lýsingum. „Hann er ótrúlega
skapandi leikmaður með hárrétt
hugarfar. Það er hans helsti kost-
ur að mínu mati.“
McStay segir að Gordon
Strachan, hinn kunni knatt-
spyrnustjóri Celtic, skeri sig
nokkuð frá öðrum stjórum í Skot-
landi fyrir þær sakir að hann
mætir á alla leiki varaliðsins og
flesta leiki unglingaliðsins. „Það
er mjög óvenjulegt að stjóri aðal-
liðsins mæti alltaf á völlinn til að
skoða yngri leikmenn félagsins.
Strachan fylgist mjög vel með og
líkar mjög vel við það sem hann
hefur séð til Theódórs. Því miður
hefur hann ekki séð til Kjartans
vegna meiðslanna,“ segir McStay
en Theódór æfir að mestu með
U-19 ára liðinu en er byrjaður að
æfa lítillega með aðal- og varaliði
Celtic og hefur komið við sögu í
nokkrum leikjum varaliðsins.
Spurður um hvort íslenskir fót-
boltaunnendur ættu eftir að sjá
Theódór Elmar spila við hlið Roy
Keane á miðju Celtic í framtíðinni
hló McStay: „Ég veit ekki hvað
verður með Keane en ég veit að ég
hef mikla trú á íslensku strákun-
um, og þá sérstaklega Theódóri.
Persónulega held ég að hann kom-
inn inn í myndina hjá aðalliðinu
eftir næsta tímabil - eftir átján
mánuði. Þá verður hann búinn
að bæta líkamlegan styrk sinn
nægilega mikið til að geta kljást
við naglana sem finnast í skosku
úrvalsdeildinni.“ vignir@frettabladid.is
Verður kominn í aðallið
Celtic eftir átján mánuði
Þjálfari unglingaliðs Celtic hefur gríðarlega trú á íslenskum leikmönnum
félagsins, sér í lagi Theódóri Elmari Bjarnasyni sem hann telur að muni verða
búinn að brjóta sér leið inn í aðalliðið eftir átján mánuði.
FÓTBOLTI Neil Warnock, knatt-
spyrnustjóri Sheffield United,
er hættur við að taka við liði
Portsmouth vegna þrýstings frá
aðdáendum Sheffield United, en
honum hefur tekist að halda liðinu
í toppbaráttu í ensku 1. deildinni.
„Ég get alveg viðurkennt það
að ég íhugaði alvarlega að fara
að þjálfa í úrvalsdeildinni, vegna
þess að mér stóð það til boða. En
ég ætla mér ekki að fara neitt. Að
minnsta kosti eins og mál standa
núna. Mikilvægast af öllu er að
komast í úrvalsdeildina með
Sheffield United.“
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Southampton, hefur verið
orðaður við stjórastöðuna hjá
Portsmouth en hann var knatt-
spyrnustjóri hjá félaginu áður
en hann fór til Southampton. „Ég
veit ekki hvaðan þessar fréttir
koma. Ég ætla mér að vera áfram
hjá Southampton og best af öllu
væri ef ég gæti komið liðinu upp
í úrvalsdeildina að nýju.“ - mh
Warnock áfram í 1. deildinni:
Ekki tilbúinn
að fara
ÍSLENSKU VÍKINGARNIR HJÁ CELTIC
Theódór Elmar og Kjartan Henry eru í hópi
fremstu ungu leikmanna félagsins, að mati
þjálfara unglingaliðsins.
LAURENT ROBERT Robert hefur lítil tilþrif
sýnt innan vallar í vetur.
NEIL WARNOCK Warnock er einn eftisóttasti
knattspyrnustjóri Bretalandseyja.
FÓTBOLTI Gordon Strachan, knatt-
spyrnustjóri Celtic, hefur mikinn
áhuga á því að fá Roy Keane, fyrr-
um fyrirliða Manchester United,
til liðs við Celtic. „Auðvitað vill
ég fá Roy Keane til Celtic. Hann
var stórkostlegur hjá Manchester
United og hann á eflaust eftir að
vera góður í nokkur ár til viðbót-
ar.“
Strachan sagðist vera tilbúinn
til þess að ræða við Keane. „Ef
Keane hefur áhuga á því að koma
til okkar erum við meira en til í að
leyfa honum að koma.“ - mh
Gordon Strachan um Keane:
Ég vil fá Roy
Keane til Celtic
GORDON STRACHAN Strachan hyggst
styrkja leikmannahóp Celtic á næstunni.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI