Fréttablaðið - 28.11.2005, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Bækur sem ríghalda
Viktor Arnar Ingólfsson
edda.is
Ævar Örn Jósepsson
HRYÐJUVERK Á KÁRAHNJÚKUM?
FRÁ HÖFUNDI FLATEYJARGÁTU!
„Æsispennandi glæpasaga sem gefur lesandanum færi á að taka þátt í að leysa
flókna morðgátu.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið
„Góð glæpasaga ... þessi lesandi hérna var eldfljótur að gleypa í sig Aftureldingu og
naut lestursins í hvívetna.“
Ingvi Þór Kormáksson, bokmenntir.is
„Afrek að láta raðmorðingja leika lausum hala
í íslensku samfélagi þannig að lesandinn kaupi það.“
Jakob Bjarnar, DV
TVÖFALDA STELLU, TAKK
„Dyggir aðdáendur ofurgellunnar þurfa þó ekki að óttast að hér sé einhver ný og
breytt Stella á ferðinni ... Hinn óþekkti höfundur heldur áfram að þróa þessa
mögnuðu og bráðskemmtilegu persónu sína á óvæntan hátt sem eykur
enn aðdráttarafl hennar. Tvöfalda Stellu, takk. “
Friðrika Benónýs, Mbl
„Höfundur nær að fanga lesandann og halda athygli hans allt til síðustu
blaðsíðu, rétt eins og góður reyfari á að gera.“
Kristín Vilhjálmsdóttir, Kistan.is
„Morðið í Drekkingarhyl er vel heppnuð glæpasaga og líklega
ein besta bókin um Stellu.“
Ingvi Þór Kormáksson, bokmenntir.is
„Ákaflega snjöll hugmynd sem er unnið vel úr."
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is
„Ekki hægt annað en að mæla eindregið með
bókinni."
Jakob Bjarnar Grétarsson, DV
„Ævar orðinn einn af aðalsakamálasögu-
höfundum landsins, ef ekki sá besti."
Þórarinn Þórarinsson, Fbl.
„ÉG VEIÐI MENN OG SLEPPI ALDREI ...“
Kilja á góðu
verði
6. sæti
Skáldverk
Mbl.
15. – 21. nóv
6. sæti
Skáldverk
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
16. – 22. nóv.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Alveg er það merkilegt hvað fjölmiðlar eru duglegir við að
moka yfir mig upplýsingum sem
ég hef enga þörf fyrir um fólk sem
ég hef engan áhuga á. Bara núna
um helgina fræddist ég um að
Strandvarðamærin Pamela And-
erson hafi nú sungið inn á plötu
með Bryan Adams. Frá því var
líka skýrt, og ekki í fyrsta sinn,
að Katie Holmes eigi von á barni
með unnusta sínum Tom Cruise
og þau ætli að ganga í hjónaband
þegar barnið er fætt. Frá fyrra
hjónabandi með Nicole Kidman á
Tom tvö börn, Ísabellu sem er 12
ára og Connor 10 ára - og nú fjalla
fjölmiðlar heimsins um að þessi
blessuð börn séu ekki hrifin af
verðandi stjúpmóður sinni
FATAFELLAN Kira Eggers hefur
stofnað dónamyndafyrirtæki í L.A.
og mun vera ástfangin af dönskum
manni, Thomasi Gravesen, sem
eins og allir vita er tengiliður hjá
knattspyrnufélaginu Real Madrid.
Michael Jackson, sem hefur aðset-
ur í Dúbæ til að hvíla sig eftir lang-
vinn réttarhöld í Bandaríkjunum,
er nú upptekinn við að kveða niður
þann orðróm að hann sé gyðinga-
hatari. Sýningarstúlkan Kate Moss
er komin úr fíkniefnameðferð og
hefur undirritað nýjan samning um
að auglýsa farsíma fyrir símafélag-
ið Virgin Mobile og fær að launum
1,2 milljónir sterlingspunda. Popp-
stjarnan Robbie Williams kemst
í Metabók Guinness fyrir að hafa
selt 1,6 milljónir aðgöngumiða á
einum degi á fyrirhugaða tónleika
á heimsreisu sinni 2006.
ELSKENDURNIR engilfríðu
Angelina Jolie og Brad Pitt komu
til Afganistan á fimmtudaginn
var, en þar er Brad að hjálpa kær-
ustunni að útdeila neyðarhjálp.
Elton John ætlar að giftast sínum
sambýlismanni David Furnish
tveim dögum fyrir Þorláksmessu.
Í kyrrþey, að sjálfsögðu. Og um
jólin verða dönsku prinsarnir Nik-
olai og Felix ekki hjá Jóakim föður
sínum, heldur hjá Alexöndru
móður sinni, sem ku vera búin að
jafna sig eftir skilnaðinn.
ÞETTA eru miklar persónuupp-
lýsingar á einni helgi til viðbótar
við allar sögurnar sem ég heyrði
og las af íslensku frægðarfólki.
Samt dugði þetta ekki til að slá
á einsemdina þegar ég var einn
heima í gærkvöldi, svo að ég fór
í heimsókn og drakk kaffi með
raunverulegum vinum mínum.
Sýndarveruleiki