Tíminn - 07.11.1976, Side 9

Tíminn - 07.11.1976, Side 9
8 TÍMINN Sunnudagur 7. nóvember 1976 /* NÝLEGA ER LOKIÐ norrænni .menningarviku I Kópavogi. Þar voru me&al annarra staddir tveir Grænlendingar, báöir frá Angmagssalik, en Angmagssa- lik varö vinabær Kópavogs á siöast liönu sumri. Hinir græn- lenzku gestir okkar, sem hér veröur spjallaö viö, eru Ole Mathiassen, forseti bæjar- stjórnar Angmagssalik, og Jörgen Labansen, bæjarstjóri i Angmagssalik. Þaö er satt aö segja ekki á hverjum degi, aö islenzkir blaöamenn eiga kost á þviaö spjalla viö Grænlendinga, og þess vegna þótti blaöamanni á Timanum einsýnt aö láta ekki þetta tækifæri ganga sér úr greipum, fyrst þeir félagar voru svo vinsamlegir aö vilja klípa af naumum tima sinum hér til þess aö ræöa viö blaöamann. Selveiðar eru aðal- atvinnuvegurinn Fyrsta spurningin, sem borin var fram, var á þessa leiö: — Hversu margir ibúar eru i Angmagssalik? — I bænum sjálfum búa um niu hundruö manns, en I allri byggöinni eru Ibúarnir um hálft þriöja þúsund. — Er byggöin dreifö I kring- um sjálfan bæinn? — Byggöin i kringum Ang- magssalik-bæ er á nokkpö stdru 1 svæði. Þaö eru um hundraö og ..áttatiu kilómetrar frá syösta punkti til hins nyrzta. Byggöin er mest upp frá firðinum. — Hverjir eru helztu bjarg- ræöisvegir manna þar? — Aðalatvinnuvegurinn er selveiðar, en fiskveiöar eru einnig stundaðar, og er þá aðal- lega veiddur þorskur. Veiöarn- ar eru eingöngu stundaöar i byggöunum i kringum Ang- magssalik-bæ, en ekki i bænum sjálfum, hann er aðeins þjón- ustumiðstöö fyrir byggöirnar. Hins vegar stunda bæjarbúar dálitlar veiðar i tómstundum. — Hvernig fer sjálf verö- mætasköpunin fram i sambandi viö þessar veiöar, — þaö er aö segja, hvernig er þvi sem veið- ist, komið i verö? — Þaö veiöast árlega um sex- tiu og sjö þúsund selir á þessu svæöi. Selsskinnið er lagt inn til Grænlandsverzlunarinnar, sem er rekin af danska rikinu. Siöan eru þau send til Kaupmanna- hafnar,og tvisvará ári fer fram uppboö á skinnum. Kjötiö hefur eingöngu veriö notað til eigin þarfa heima fyrir, en nú er I ráöi aö framleiöa selkjöt og frysta til útflutnings. Þetta er ekki vöruskiptaverzlun, heldur greiðir Grænlandsverzlun fyrir afurðirnar i peningum. Hver selveiöimaöur hefur sitt á- kveöna númer, og þegar skinnin eru boöin upp i Kaupmanna- höfn, er greitt fyrir þau eftir gæöum. Uppboðin eru greidd af selföngurunum sjálfum, og þannig kemur ekki annaö i þeirra hlut en nettóupphæðin, að öllum kostnaði frádregnum. — Hversu margir af ibúum Angmagssalikby ggðar stunda þcssar veiöar? — Þeir, sem veiðarnar stunda, eru um það bil sextiu til sjötiu hundraöshlutar ibúanna. — Duga þessar veiöar, — sel- ur og þorskur — Angmagssalik- búum til lifsviöurværis? — Já, þeir lifa ekki á neinu öðru en þessum tveim greinum veiðiskapar. — Er ekki stundaöur neinn landbúnaöur i Angmagssalik og þar i grennd? — Nei, og yfirleitt er mjög lit- iö um landbúnaö á Grænlandi, Ole Mathiassen og Jöregn Labansen ásamt greinarhöfundi. Timamynd GE. VIÐ VILJUM AUKIN TENGSL VIÐ (SLAND OG ISLENDINGA — segja Grænlendingarnir - Ole Mathiassen og Jörgen Labansen, sem báðir voru á norrænu menningarvikunni í Kópavogi þar er til dæmis ekki nein mjólkurframleiðsla. 011 mjólk erfluttinn frá Danmörku. Fyrir svo sem fimm eða sex árum var farið að flytja inn svokallaða g- mjólk til Grænlands. Aður not- uðu Grænlendingar eingöngu þurrmjólk, en það var ekki farið aö flytja hana inn fyrr en fyrir tuttugu árum. Þar áður þekktist mjólk ekki i Grænlandi, heldur var eingöngu drukkið vatn, til dæmis meö mat. 011 undirstööu- næring var fengin úr selkjöti og selspiki, og það varö aö koma I staðinn fyrir þá næringu, sem börn annarra þjóöa sækja sér I mjólkina. Afkoma manna er lik ogalmennt gerist i Evrópu — Eru ekki veiddir isbirnir I heimabyggö ykkar? — Jú, dálitið, þaö veiðist þar á milli tuttugu og þrjátiu isbirn- ir á ári. Skinnin eru i mjög háu veröi, það fást um tlu þúsund danskar krónur, eða um þrjú hundruð þúsund islenzkar krón- ur, fyrir stórt skinn, sem er heilt og óskemmt. Þetta eru þvi þýö- ingarmiklar veiðar fyrir þá menn, sem þær stunda. Kjöt af isbjörnum hefur verið borðaö, þaö likist mjög nautakjöti. — Hvernig er afkoma Græn- lendinga yfirleitt? — Eins og er, er llfsafkoma okkar með svipuöum hætti og gengur og gerist I Evrópu. Sú fjárfesting, sem fram hefur far- ið I. landinu undanfarin tuttugu ár, hefur gert lif okkar Ukt þvi sem gerist meðal Evrópuþjóöa, að ööru leyti en þvi, að hús okk- ar eru yfirleitt minni — við bú- um þrengra en almennt gerist. Venjuleg grænlenzk ibúö er um það bil fimmtiu fermetrar á stærð. — Er húsnæöi dýrt á Græn- landi? — Hvert hús kostar frá tvö hundruð — og upp I tvö hundruð og sextiu þúsund danskar krón- ur, og svo geta menn reiknað, hversu margar milljónir þetta verða i islenzkum krónum, þeg- ar þess er gætt, að rúmar þrjá- tiu krónar íslenzkar þarf á móti hverri danskri krónu. — Viö greiðum ekki nein gatna- gerðargjöld, en að ööru leyti er „danska kerfið” i húsnæðismál- um rikjandi hjá okkur. Húsin eru byggð af byggingafélögum, sem leigja þau siðan út þannig, að sú leiga, sem greidd er, reiknast sem innlagt fé. Sá, sem leiguna greiöir, eignast um leið jafnstóran hluta i ibúöinni þar sem hann býr. Þannig eignast menn húsin smám saman, en ef menn vilja nú skipta um hús- næði, til dæmis eftir fimm eða tiu ára dvöl i þeim, þá fá þeir greitt það fé, sem þeir hafa lagt af mörkum, og geta notað þaö til þess að eignast hlut i ööru hús- næöi. Grænlendingar vilja heimastjórn — Hverjar eru skoöanir ykk- ar á sambúðinni viö Dani? — Það er almenn skoöun Grænlendinga, aö sjálfsstjórn komi ekki til greina, en hins vegar vilja þeir gjarna hafa heimastjórn og ráöa þannig, hvernig þeim fjármunum er varið, sem fara frá danska rlk- inu til Grænlands. En yfirleitt lita Grænlendingar svo á, aö öll utanrikispólitik eigi aö vera I höndum Dana. — Eru einhverjir stjdrnmála- flokkar á Grænlandi? — Þar eru ekki til neinir skipulagöir stjórnmálaflokkar, en þó hefur veriö hafizt handa um stofnun stjórnmálaflokks, og hefur ungt fólk aöallega beitt sér fyrir þvi. Þessi flokkur hefur nú veriö stofnaður i fjórum bæj- um á suðurströnd Grænlands. Flokkurinn er vinstrisinnaður, álíka og danski SF-flokkurinn. Nafn flokksins er Siumut (eldri ritháttur er Sukumut), en þaö orð þýðir „áfram”. Ekki er hægt aö bera þennan flokk sam- an við aðra vinstriflokka i Evrópu, til þess hefur hann of mikla sérstööu, meðal annars vegna grænlenzkrar þjóðernis- stefnu, — viðhorfs til heima- stjórnarmálsins. — Nú hafiö þiö tekiö þátt í menningarvikunni hér í Kópa- vogiog enn fremur hafið þiö set- iöráöstefnu, sem nefnist Sveita- stjórnir og tómstundirnar. Hvernig er tómstundamálum háttaö hjá ykkur i Angmagssa- lik? — Tómstundir okkar eru mjög nátengdar lifsafkomu okkar. Við i Angmagssalik-bæ stundum veiðar i tómstundum okkar, og þannig veita tóm- stundirnar okkur nokkrar tekj- ur. Við eigum ekki neitt tóm- stundaheimili, en skólinn er gjarna notaður, og þá einkum fyrir kvöldnámskeið, sem bæði eru ætluð ungum og gömlum. Við höfum félagsheimili, þar sem er kvikmyndasalur, og að jafnaði eru sýndar kvikmyndir tvisyar i viku. Dansleikir eru einnig tvisvar i viku, á miðviku- dags- og laugardagskvöldum. I Angmagssalik eru nokkur félög: bindindisfélag, kvenfé- lag, iþróttafélag, ungmenna- félag, skátafélag, skiðafélag oog svo félagsskapur, sem rekur sjálft félagsheimiliö. — Eru unglingavandamái hjá ykkur? — Já, það eru ýmis vandamál með unglingana hjá okkur, og þá fyrst og fremst vegna þess, að okkur vantar iþróttahús, iþróttavelli og ýmis tæki, sem unglingar þurfa á aö halda til Sunnudagur 7. nóvember 1976 TiMINN 9 N Grænland. örin á myndinni sýnir, hvar Angmagssalik Fataverzlun DÖMUR & H] NYKOMIÐ I dömudeild: Kjólar — stuttir og síðir Peysur Kópur NYKOMIÐ I herradeild: Ensk teryleneföt Riffluð flauelsföt Terylenebuxur Gallabuxur Bankastræti 9 • Sími 11811 þess að geta stundaö íþróttir innan húss. Einnig vantar okkur tilfinnanlega sundlaug. t kringum Angmagssalik-bæ eru fimm byggðir. t þrem þeirra hefur okkur tekizt að - byggja félagsheimili, en á tveim stöðum er þetta ógert enn. Þó er hafinn undirbúningur þess að byggja þessi tvö, sem á vantar til þess að eitt féíagsheimili sé i hverri byggð, en fram að þessu hefur staðið á fjárveitingu frá danska rikinu til þeirra fram- kvæmda. islendingar og Græn- lendingar eiga mörg sameiginleg áhugamál — Hve langur er veturinn hjá ykkur i Angmagssalik? — Hann er talsvert langur, Það er snjór og is i sjö mánuði á ári, frá nóvember til mai, að báðum meðtöldum. — Hvað kaiiiö þið sjálfa ykk- ur, þegar þiö talið um þjóöina sem heild. Notiö þiö oröiö Eski- mói? — Nei, það orð notum við ekki. Við köllum okkur Kala- aleq. — Að lokum iangar mig að spyrja, hvaö ykkur finnst um aukin tengsl milli lsiands og Grænlands? — Við viljum gjarna, að tengsl við ísland og tslendinga verði mikil. Vera má þó, að tungumálið verði þar einhver þröskuldur I vegi. Grænlending- ar tala ekki allir dönsku, og Is- lendingar tala ekki grænlenzku, En vonandi yrðu það aðeins byrjunarörðugleikar, sem hægt væri að sigrast á seinna. En Islendingar og Grænlend- ingar eiga mörg sameiginleg á- hugamál, og ósk okkar er, að veruleg skipti og kynni megi takastá milli ibúa Kópavogs og Angmagssalik i framtiðinni. -VS. Litið sýnishorn þess, sem Græniendingar höföu fram að færa á norrænu menning- arvikunni. ✓ Fúllt fargjald fyrireinn, hálft fyrir hina 1. nóvember til 31. mars er í gildi fjölskyldu- afsláttur af fargjöldum okkar til Norðurland- anna.Luxembourg og Bretlands. Þegar fjölskyldan ferðast saman, þá greiðir einn fullt gjald, en allir hinir í fjölskyldunni aðeins hálft. Þannig geta þeir sem fara utan í viðskipta- erindum tekið með, ef ekki alla fjölskylduna, þá að minnsta kosti maka sinn. Þetta er rétt að hafa í huga. flvcfélac LOFTLEIDIR /SLAJVDS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.