Tíminn - 07.11.1976, Side 13

Tíminn - 07.11.1976, Side 13
Sunnudagur 7. nóvember 1976 TÍMINN 13 40 bækur og ein hljómplata fró forlögunum Iðunni, Hlaðbúð og Skólholti Systurforlögin Iöunn, Hlaöbúð og Skálholt munu væntanlega gefa út í ár um fjörutiu bækur, þegar með eru taldar endur- prentanir á eldri útgáfubókum forlaganna. Eftir Hannes Pétursson kem- ur út bókin úr hugskoti, kvæði og laust mál. Er þetta fjórtánda frumsamin bók Hannesar, en auk þess hefur hann annazt út- gáfu margra bóka og þýtt þrjár. — Einleikur á glansmynd nefn- ist ný skáldsaga úr nútimalífinu eftir Þorgeir Þorgeirsson, ný- stárleg að formi og efnismeð- ferð. — Pétur Gunnarsson, eitt af\ „Listaskáldunum vondu”, sendir nú frá sér sina fyrstu skáldsögu, sem heitir Punktur, punktur, komma, strik.en kafla úr þeirri bók hefur hann lesið upp i Háskólabió og úti á landi, þar sem „Listaskáldin vondu” hafa kynnt verk sin. — 1 leit að sjálfum sérnefnist önnur bókin frá hendi Sigurðar Guðjónsson- ar, sem áður hefur gefið út bók- ina Truntusól. Þessi bók er skýrsla hreinskilins ungs manns um baráttu hans við að finna fótfestu i lifinu, festa hendur á þeim lifsgildum, sem duga. Saga frá Skagfirðingum er fyrsta bindi mikils sögurits i ár- bókarformi eftir Jón Esphólin og Einar Bjarnason, sem fjallar um árabilið 1685-1847, en itar- legar skýringar og viðaukar Kristmundar Bjarnasonar fræðimanns á Sjávarborg færa m.a. söguna nær nútimanum. Auk Kristmundar annast útgáf- una Hannes Pétursson skáld og ögmundur Helgason BA. — Þá kemur út safnrit eftir hinn kunna sögumann og hagyrðing Stefán Vagnsson frá Hjaltastöð- um i Skagafirði. Hefur það að geyma endurminninga- og frá- söguþætti, þjóðsögur og nokkurt sýnishorn af kveöskap Stefáns en margar stökur hans eru landsfleygar. — Unnið er að út- gáfu á fyrra bindi mikils rit- verks, er nefnist Svarfdælingar og er vonazt til að það geti kom- ið út fyrir jól. Hefur þaö að geyma ábúendatal i Svarfaðar- dal jafnlangt aftur og heimildir ná og jafnframt getið niðja allra ábúenda. Höfundurinn, Stefán Aðalsteinsson féll frá áður en setning ritsins hófst og kom i hlut dr. Kristjáns Eldjárns að fylla það skarö er þar var fyrir skildi varðandi siðasta frágang handritsins til prentunar og jafnframt ritar hann formála verksins. Eftir dr. Gylfa Þ. Gislason koma út fjórar bækur. Þrjár þeirra, Bókfærsla, Þættir úr viðskiptarétti og Þættir úr rekstrarhagfræði, eru samdar til notkunar i menntaskólum og öðrum framhaldsskólum. Sú fjórða, Bókfærsla og reiknings- skil, er námsbók i viðskipta- fræðum við Háskóla íslands og jafnframt notadrjúg handbók allra þeirra, er annast bókhald, uppgjör og endurskoðun. — Veöurfar á tslandi nefnist bók eftir Markús Einarsson veður- fræðing, þar sem gerð eru. skil meginþáttum veður- fars hér á landi. Ætti hún að koma að góðum notum fyrir alla þá, sem eiga mik- ið undir veðurfari auk þess sem hún á erindi til allra þeirra, er áhuga hafa á náttúru landsins. — Eftir dr. Magnús Pétursson háskólakennara i Hamborg kemur út Hljóðfræði, sem er ætlað ákveðið hlutverk, lýsing á hljóðmyndun i islenzku og er fyrsta rit sinnar tegundar á islenzku. Er þetta fyrsta bók i fyrirhugaöri ritröð varðandí nám og kennslu, sem Iðunn gef- ur út að frumkvæði Kennarahá- skóla Islands. — islenzkar bók- menntir til 1550 eftir Bladur Jónsson, Indriða Gislason og Ingólf Pálmason er ágrip is- lenzkrar bókmenntasögu á þessu timabili ætluð skólum og almenningi. — Setningarfræöi, málfræði, hljóðfræðinefnist bók eftir Ingólf R. Björnsson is- lenzkukennara, sem einkum er ætluð til notkunar i 9. bekk grunnskóla. Þetta er bók i ný- stárlegu formi og er m.a. eins konar vinnubók nemenda. Þýddar skáldsögur eru þrjár: Sirkus eftir Alistair MacLean, Til móts við hættuna eftir Hammond Innes og 1 greipum dauöans eftir David Morrell. Barnabækur eru allmargar að vanda. 1 afahúsi nefnist ný bók eftir Guðrúnu Helgasóttur, sem kunn er af bókum sinum tveim- ur um Jón Odd og Jón Bjarna, en þær hafa báðar komið út i nýjum útgáfum á þessu ári. — Helgi skoðar heiminn, bók þeirra Halldórs Péturssonar listmálara og Njarðar P. Njarð- vik lektors, varð til með þeim hætti, að Halldór teiknaði töö litmynda um litinn dreng, hest- inn hans og hundinn, en Njörður Rammagerðin Sendum um allan heim. Allar sendingar full tryggðar. Rammagerðin Hafnarstræti 19 og Hótel Loftleiðum Reykjavikurhöfn óskar að ráða VL. byggingotæknifræðing Laun samkvæmt kjarasamningi 'fþ Reykjavikurborgar og Starfsmannafé- lags Reykjavikurborgar. ¥ r.C;<4 V' v' >•> r.*;* Hafnarstjórinn í Reykjavik. & Hannes Pétursson samdi'siðan sögu, sem fellur að myndunum. Myndirnar voru á sýningu Halldórs nú i haust og Þorgeir Þorgeirsson vöktu mikla athygli. — Sigrún fcr á sjúkrahús nefnist bók eftir Njörð P. Njarðvík, myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn. Þetta er saga, sem er ætlað þaö hlutverk að búa litil börn undir þá nýju og stundum erfiðu lifsreynslu að þurfa að leggjast inn á sjúkra- hús. Bókin er samin i samráði við barnadeild Landakots- spitala — Þá eru átta litprentað- ar barnabækur handa litlum börnum: Tvær nýjar Tumabæk- ur eftir Gunilla Wolde, tvær bækur um Emmu eftir sama j höfund, tvær bækur um Kalla og Kötu eftir Margret Rettich, Breytingar I Grisabæeftir Ann- ette Tison og Talus Taylor, höf- unda bókanna um Barbapapa, og loks koma svo myndasögur af Barbapapa og fjölskyldu hans. Af endurútgáfum skulu aðeins nefndar Eddukvæði i útgáfu Ólafs Briem menntaskólakenn- ara og Bfllinn eftir Guðna Karlsson. forstöðumann Bif- reiðaeftirlits rikisins. Loks er svo þess að geta, að Iðunn gefur út eina hljómplötu, Einu sinni var.þar sem sungnir eru textar úr Visnabókinni al- kunnu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.