Tíminn - 07.11.1976, Blaðsíða 25

Tíminn - 07.11.1976, Blaðsíða 25
Sunnudagur 7. nóvember 1976 TÍMINN 25 1976 (98. löggjafarþing) — 45. mál 46. Frumvarp ti! laga -> nmferðarlögum, nr. 40 28. apríl 1968. Flm.: Jón Skaftason. 1. málsgr. í þéttbýli 50 gr. Laganna orðist þannig: má eigi aka liraðar en 50 km á klukkustund Verður hámarkshraðinn í þéttbýli 50 km? ökuhraði verður sjálfsagt alltaf eilift ágreiningsmál, bæði hér á landi og annars staðar. bað er ákaflega erfitt að setja ófrávikjanlegar reglur um þetta atriði, og ávallt ættu ökumenn að hafa i huga regluna um að haga akstri eftir aðstæðum. bað er spurning hvort i sumum til- fellum sé kannski ekki jafn nauðsynlegt að setja reglur um lágmarkshraða jafnt eins og hámarkshraða. betta er gert á hraðbrautum erlendis, beinlinis sem slysavörn. Hér á landi hafa um áraraðir verið i gildi reglur um hámarkshraða. Margt bendir.nú til þess, að hámarks- hraði i þéttbýli verði ef til vill hækkaður og verði nú miðaður við 50 kilómetra á klukkustund I stað 45 eins og nú er. Frumvarp um þetta atriði hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrsti og eini flutningsmaður þess er Jón Skaftason, þing- maöur Framsóknarflokksins i Reykjaneskjördæmi. bað er 50. grein umferðarlag- anna, sem fjallar um ökuhraða. Upphaf greinarinnar hljóöar svo: „1 þéttbýli má eigi aka hraðar en 45 km á klukkustund. Utan þéttbýlis má eigi aka hraðar en 70 km á klukku- stund.” Siöan koma ákvæði þar sem segir: „Almenningsvögnum, sem flytja mega 10 farþega eöa fleiri og vörubifreiðum sem eru 3,5 smálestir eða meira aö heildarþyngd, má þó eigi aka hraðar en 60 km á klukkustund. Bifreiðum, sem draga tengi — eða festivagna má eigi aka hraðar en 45 km á klukku- stund”. barna segir með öðrum orðum hreint og beint, að til dæmis stórum farþegaflutn- ingabilum (áætlunarbilum) sé ekki leyfilegt að aka hraöar en 60 km á klukkustund. Kannski er þetta atriöi, sem þarf lika að breyta, að minnsta kosti i sam- bandi við akstur á breiðum og góðum vegum, svo þetta sé ekki dauöur lagabókstafur. bá segir i 50. greininni: „Dómsmálaráöherra getur að fenginni tillögu umferðarlaga- nefndar sett nánari reglur um ökuhraða, þar á meöal ákveöið lægri hámarkshraða en aö framan greinir eða á einstökum vegum. Dómsmálaráðherra getur á sama hátt ákveöið hærri hámarkshraða en að framan greinir, allt að 90 km á klukku- stund á einstökum vegum (hraðbrautum), og bundið þá heimild við ákveðna árstima. 1 kaupstöðum og kauptúnum má setja slfkar reglur i lögreglu- samþykktum.” í sambandi við ákvörðun hærri hámarkshraöa en lögin segja til um almennt, er rétt að geta þess að þessi heimild hefur verið notuð á hraðbrautum á suð-vesturhorni landsins. bá hefur á einstökum vegum veriö leyft að aka á allt að 80 km. hraða, en aðeins aö sumrinu, ekki að vetri til. En hvað segir Jón Skaftason i greinargerð sinni þegar hann leggur til að 50 grein umferðar- laganna orðist þannig: „I þéttbýli má eigi aka hraðar en 50 km á klukkustund.” Hér á eftir íer hluti af greinargerð hans, sem fylgir frumvarpinu. „Rökstuðningur fyrir þessari , breytingu er sá, að síðan hámarkshraði þessi var lögtek- inn á árinu 1958 hefur stórfelld framför i gatnagerð i þéttbýli átt sér stað. Breiðir og sléttir vegir hafa leyst hina þröngu og holóttu moldarvegi af hólmi að verulegu leyti. Jafnframt hefur öryggisbúnaður bifreiða batnað mjög á þessum tima. Hvorttveggja þetta hefur leitt tilþess að ökuhraði bifreiða hef- ur almennt aukizt, og það er á almanna vitorði, að hann er mjög oft meiri en 45 km i þétt- býli. Aö áliti flm. þessa frv. mun breyting sú á lögleyfðum hámarkshraða bifreiða i þétt- býli, sem frv. gerir ráð fyrir, ekki auka slysahættuna I um- ferðinni. bvert á móti. Skv. upp- lýsingum um umferðarslys, sem öllum eru aðgengilegar, má sjá, að ein algengasta ástæða þeirra er framúrakstur bifreiða. Bifreið, sem viö góðar akstursaðstæöur, t.d. á ein- stefnubraut, ekur mjög hægt og lieldur langri röð bifreiða fyrir aftan sig, er oft miklu meiri hættuvaldur I umferðinni en sú, sem ekur á eðlilegum hraða miðaö við aöstæöur. brátt fyrir miklar framfarir i gatnagerð I þéttbýli á undan- förnum árum finnast þó ennþá götur, sem tæpast leyfa þann hámarkshraða, sem frv. gerir ráð fyrir. Hin almennu ákvæði um hámarkshraða i 49. gr. um- feröarlaganna svo og heimild dómsmálaráðherra i 4. málsgr. 50. gr. sömu laga til þess aö ákveða lægri hámarkshraöa á einstökum vegum ættu að geta tryggt, að skynsamlegar sér- reglur gildi um hámarkshraöa á þessum vegum.” betta var hluti af greinar- gerðinni sem fylgir frumvarp- inu. bá er i greinargerðinni get- iðum hámarkshraöa i þéttbýli á öðrum Noröurlöndum. Danmörk 60 km Sviþjóö 50 km Finnland 60 km Noregur 50 km. Utan þéttbýlis er hámarks- hraöinn i þessum löndum á bil- inu frá 70 og upp i 120 km. Hækkun hámarkshraöa i þétt- býli hefur boriö á góma á fund- um Umferðarnefndar Reykja- vikur, en liklegt er að umferöar- yfirvöld i Reykjavik yröu einna fyrst til að notfæra sér ákvæöin um hærri hámarkshraöa. Enn er ekki ljóst hver afstaöa þingmanna verður til þessa frumvarps, hvort þaö „flýgur i gegn” eða hvort það veröur „saltaö” i nefnd. Úr þvi fæst væntanlega skorið á næstu vikum. Kári Jónasson Franskur stjórnmdla- fræðingur flytur fyrirlestur 1 Franska bókasafninu, Laufás- vegi 12, veröur fyrirlestur á veg- um AllianceFrancaiseá Islandi á mánudagskvöld. Fyrirlesarinn, Francis Lacoste, mun flytja fyrirlestur, sem hann nefnir: Nokkrir rithöf- undar, sem ég hef haft kynni af. Francis Lacoste fæddist I Paris árið 1905 og kynntist á heimili for- eldra sinna nokkrum af fremstu rithöfundum Frakka, svo sem Paul Valéry, Paul Claudel, Francis Jammes o.s.frv.. Mun hann gera grein fyrir kynnum sinum af rithöfundum þessum, segir i frétt frá Alliance Francaise. Francis Lacoste er stjórnmála- fræöingur aö mennt (Ecole libre des Sciences Politiques). Hann hefur einkum starfaö i utan- rikisþjónustu Frakka — i Bel- grad, Peking og viöar fyrir strið, gegndi siöan ýmsum áhrifastöö- um í her- og utanrikisþjónustu Frjálsra Frakka (de Gaulle) i striðinu og hefur starfaö eftir striö i utanrikisþjónustunni i Washington, Japan, Marokkó, S.b. (fulltrúi Frakkl. i öryggis- ráöi) og sem sendiherra Frakk- lands I Kanada og siöar i Belgiu. samlokurnar dofna ekki með aldrinum Þokuljós og kastljós Halogen-ljós fyrir J-perur - ótrúlega mikiö Ijósmagn PERUR í ÚRVALl NOTIÐ tAÐBESTA —HLOSSir— Skipholti 35 • Símar: 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa BÍLA- PARTA- SALAN auglýsir Nýkomnir varahlutir í: Buick Volvo Duett Singer Vogue Peugeot404 Ford Fairlane 7965 Fiat 125 Willys VW 1600 Land Rover 7968 BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10. — Sími 1-13-97. Sendum um allt land.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.