Tíminn - 07.11.1976, Page 27
Sunnudagur 7. ndvember 1976
TÍMINN
27
Tónleikar í
Hóskólanum
Nú I vetur verður efnt til tón-
leika innan Háskólans likt og
undanfarna tvo vetur. Tónleik-
arnir verða haldnir i Félagsstofn-
un stúdenta á laugardögum.
Þessir tónleikar eru fyrirhug-
aðir i vetur.
6. nóv. 1976
Halldór Haraldsson pianóleikari:
Schuman: Kreisleriana, op. 16,
Chopin: Polonaise-Fantasie, op.
61.
20. nóv. 1976
Rut Magnússon söngkona, Jósef
Magnússon flautuleikari, Páll^
Gröndal sellóleikari og Jónas
Ingimundarson pianóleikari
flytja franska tónlist, m.a.
Chansons Madécasses eftir
Ravel.
4. des. 1976
Guðrún Tómasdóttir söngkona og
Jónas Ingimundarson pianóleik-
ari flytja sönglög og pianóverk
eftir Chopin.
29. jan. 1977
Ragnheiður Guðmundsdóttir
syngur lagaflokkinn Haugtussa
eftir Grieg og sönglög eftir Sind-
ing, Tchaikovsky og Cyril Scott.
19. feb. 1977
Háskólakórinn syngur undir
stjórn Rutar Magnússon.
12. marz 1977
Manuela Wiesler, flauta:
Kristján Þ. Stephensen, óbó: Sig-
urður I. Snorrason, klarinett:
Stefán Þ. Stephensen, horn og
Hafsteinn Guðmundsson, fagott:
Blásarakvintettar eftir Franz
Danzi, Jón Asgeirsson og Jean
Francaix.
2. aprll 1977
Gisli Magnússon og Halldór
Haraldsson leika verk fyrir tvö
pianó, sónötu fyrir tvö pianó og
ásláttarhljóðfæri eftir Bartók og
tilbrigði um barnalagið
„Chopsticks” eftir ýmsa
rússneska höfunda.
23. april 1977
Lárus Sveinsson, trompet:
Christina Tryk, horn og Ole Krist-
ian Hansen, básúna, flytja málm-
blástursverk eftir Sanders, Bach,
Bentzon, Avril og Poulenc.
Einnig mun Tónleikanefnd
Háskólans eiga samvinnu við fé-
lagið Germaniu um sýningar á
óperukvikmyndum sem geröar
hafa verið i Hamborgaróperunni I
umsjá prófessors Rolf Lieber-
mann. Sýningar þessar verða I
Nýja Bió á laugardögum. Þessar
sýningar eru fyrirhugaðar I vet-
ur:
13. nóv. 1976
Brúðkaup Figarós eftir Mozart.
22. jan. 1977
Töfraskyttan (Der Freischiitz)
eftir Carl Maria von Weber.
26. feb. 1977
Meistarasöngvararnir frá Niirn-
berg eftir Richard Wagner, fyrri
hluti.
5. marz 1977
Meistarasöngvararnir frá Nurn-
berg, siðari hluti.
Aðalfundur Kennarafélags Hafnarfjarðar:
Kennarar landsins stofni
með sér samtök
hið bróðasta
F.I. Reykjavik. — A aðalfundi
Kennarafélags Ilafnarf jarðar,
sem haldinn var þann 5. okt. sl.
var samþykkt ályktun þess efnis
að stofna bæri Kennarasamband
tslands hið bráðasta.
t ályktuninni segir, að ekki sé
lengur hægt að sniðganga kenn-
ara við skipulagningu og fram-
kvæmd væntanlegra breytinga á
skólamálum þjóðarinnar. Þeir
hafi almennt ekki verið hafðir
með i ráðum til þessa og beri
þeim þvi að stofna með sér sam-
tök til þess að slíkt endurtaki sig
ekki.
Samtakamátturinn gæti og haf-
ið kennarastarfið til þess vegs,
sem þvi ber, segir ennfremur i á-
lyktuninni, jafnt hvað laun og að-
stöðu snertir. Eðlilegt er að taka
mið af kjörum kennar á Norður-
löndum, þegar stefnan verður
mótuð i þeim efnum. Séu laun
kennara borin saman við laun
annarra stétta.kemur I ljós, að
kennarar eru hrein láglaunastétt.
Fundurinn vekur eftirtekt
manna á þvi, að mikið hafireynd-
ar verið rætt um stofnun Kenn-
arasambands Islands, en minna
orðið úr framkvæmdum. Kenn-
arafélag Hafnarfjarðar minnir
félagsmenn hinna ýmsu stéttar-
félaga á, að nú sé kominn timi til
að láta verkin tala.
Formaður félagsins er Rúnar
Már Jóhannsson.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 j
„DERBY" frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
„DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
„Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Petta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
Einangrunin er hið viðurkerinda „Pelyuretan“ frauðplast.
í „DERBY“ frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
Auglýsið í Tímanum
^ rn % /p /fl r£Tœfe ^ % Jf ? t$i- m ^ /p
4
SIÐUMULA 30 SÍMI: 86822
Eigum mikið úrval af
vönduðum húsgögnum
Auk þess að framleiða og selja stöðluð
húsgögn reynum við að verða við óskum
fólks um sérkröfur er varða breytingar
T.M. skiptiveggurinn er framleiddur í einingum,
sem gefa möguleika á breidd allt frá 80 cm. og
upp í 280 cm. og meira, ef óskaö er.
Hæö eininganna er 205 cm. frá gólfi og upp á
efri brún, þykkt er 50 cm., ef skilrúm er i miðjum
skáp, er dýpt á hillu 23 cm. Barskápurinn er
30 cm. djúpur. Skápur meó viðarhurðum (S IX)
er hugsaður til dæmis sem borðbúnaðarskápur
og er 45 cm. á dýpt.
Möguleikar á breytingum eru þaö margar að
unnt er að taka tillit til sér óska kauþenda um
fyrirkomulag innréttinga.
íslenzk húsgögn fyrir íslenzk heimili