Tíminn - 13.11.1976, Síða 4
4
tíminn
Laugardagur 13. nóvember 1976
MEÐ
MORGUN-
l
KAFFINU
tímans
— Þaö er rétt hjá þér, þab er ekk-
ert öryggisnct!
\Us V
UCOilT'
UIK
— Manst þú þegar ég hótafti aö
stökkva ef þú neitaöi aö kvænast
inér?
Lorna Luft
og Liza Minelli
eru hálfsystur
Judy Garland, söng- og
leikkonan, sem fræg var
alveg frá barnæsku, dó
á bezta aldri, heilsulaus
og lifsleiö eftir mikið
óreglulif. Hún haföi
eignazt tvær dætur i
tveimur hjónaböndum.
Lizu Minelli, er hún var
gift Vincent Minelli,
kvikmyndafram-
leiöanda og stjórnanda,
og meö Sid Luft, seinni
manni sinum eignaöist
Judy aöra dótiur, Lornu
Luft, sem hér sést mynd
af ásamt unnusta sinum
gitarleikaranum Jake
Hooker i brezku hljóm-
sveitinni Arrows, sem
aðsetur hefur i London.
Lorna átti ótrygga og
erfiða æsku, þvi aö þá
var móðir hennar orðin
svo heilsulaus og illa
farin, en hún og Liza
Minelli reyndu aö
bjarga sér sem bezt þær
gátu, og báöar hafa þær
farið út á framabraut-
ina sem söngkonur.
Liza er orðin mjög fræg,
eins og þeir vita sem
fytgjast meö kvikmynd-
um. Lorna kom- fyrst
fram sem söngkona I
London fyrir u.þ.b. ári,
en haföi áöur reynt aö
koma sér áfram I
Bandarikjunum, og
þótti efnileg, en eftir aö
hún kom fram i Palla-
dium i London, þá hefur
henni gengiö mjög vel i
Bretlandi. — Ég hef
aldrei haft neina löngun
til aö giftast, og ekki
haft háar hugmyndir
um hjónabandið, sagöi
hún er þau opinberuðu
trúlofun sina Jake og
Lorna, en ég held aö ég
sé i rauninni mjög
gamaldags i öllum
þessum málum, —
meira að segja báöum
viö pabba (Sid Luft) um
samþykki hans áður en
viö settum upp hring-
ana.
Nú á að
kvik-
mynda
Doris
ævisögu D ,
Olivia
Það hefur margt
drifið á daga kvik-
myndaleikkonunn-
ar Doris Day. Ný-
lega gaf hún út
bók um endur-
minningar sinar
frá fyrstu bernsku
og fram á þennan
dag. Bókin þótti
mjög skemmtileg,
og nú á að búa til
kvikmynd eftir
henni. Doris Day,
sem er 52 ára, er
hin hressilegasta
kona og ungleg
mjög, en samt
verður að fá unga
stúlku til að leika
hana á yngri árum,
og valdi Doris sjálf
stúlkuna, sem er
lítið þekkt. Hún
heitir Olivia New-
ton John og þykir
þó nokkuð lík
fyrirmyndinni. —
Hún er eins og mig
langaði alltaf til að
líta út, sagði Doris,
er hún tilkynnti
valið á leikkonu til
að leika i ævisögu
sinni.
— Vinur minn getur ekki ákveöiö
sig núna, hann pantar sföar.