Tíminn - 03.12.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.12.1976, Blaðsíða 1
Skýrslan um Bíldudal tilbúin — Sjó bls. 2 Áætíunarstaðir: Bildudalur-Blönduós-Búðardalur Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 oq 2 60-66 f V. BARÐA BRYNJUR 1 LANDVELAR HF Siðumúla 21 — Sími 8-44-43 f Olafur Jóhannesson dómsmálaróðherra í tilefni þess að brezkir togarar eru á burt úr landhelginni Ævintýri líkast að strangri baráttu skuli nú lokið FJ-Reykjavik. — Þetta hefur allt gengið eftir áætlun, sagði Ólafur Jóhannesson, dóms- málaráðherra, er Timinn leit- aði til hans i gær i tilefni þess, að Bretar eru á burt úr is- lenzkri fiskveiðilögsögu. — Það var skýrt, eftir samkomu- lagið i Osló, að þeir myndu hætta veiðum eftir sex mánuði og nú er sá timi liðinn. Þetta er auðvitað okkur öilum ánægjuefni og ævintýri iikast, að nú skuli bundinn endir á stranga baráttu.Og svo renna aðrir fisk veiðasa m ningar okkar auðvitað út smám sam- an. En hvað með Efnahags- bandalagið? — Já. Við höfum átt könn- unarviðræður við Efnahags- bandalagið og frekari viðræð- ur eru fyrirhugaðar.En á þessu stigi er ekki vert að vera með neina spádóma um, hvað út tír þeim kemur. Það liggur engin fiskveiðistefna fyrir hjá bandalaginu, en þeir tala að- eins um gagnkvæm fiskveiði- réttindi. Hins vegar er sjálf- sagt að ræða við þá um fisk- verndarmál. Við erum nú einráðir um okkar landhelgi og allt útlit fyrir að við getum fullnýtt hana einir, sagði dómsmála- ráðherra að lokum. Það er að visu búið að sporðrenna nokkrum rjóma- tertum i aðaistöðvum Land- heigisgæzlunnar við hina ýmsu áfanga i landhelgis- málinu. — En engin hefur bragðast betur en þessi, sögðu þeir Gunnar ólafsson, skipherra, og Pétur Sigurðs- son, forstjóri, er þeir í gær kyngdu „sætum sigri” i landhelgismálinu. Tima- mynd: Gunnar. Sjá frétt um heimsókn i aðalstöðvar Landhelgisgæzlunnar f gær bls. 2-3. Vökunótt á ASÍ-þinginu allt í óvissu um stjórnarkjör á miðnætti í nótt Mó-Reykjavik. Allt var enn óvíst um kjör í mið- stjórn Alþýðusambands islands/ um miðnætti í nótt, þegar Tíminn fór í prentun. Samkvæmt dag- skrá áttu kosningar að fara fram klukkan 23.00 í gærkvöldi, en var frest- að, enda hófst fundur kjörnefn'dar ekki fyrr en rétt fyrir þann tíma. Langan tima tók að koma kjörnefnd saman á þinginu. Venjulega er kjörnefnd kosin strax i upphafi alþýðusam- bandsþinga, eða alla vega áður en það er hálfnað. Hins vegar var kjörnefnd þessa þings ekki kosin fyrr en klukkan 19.00 i gærkvöldi. Ástæðan fyrir þessu var með- al annars talin sú, að bak við tjöldin var stöðugt unnið að þvi að sætta sjónarmiðin um væntanlegt miðstjórnarkjör. Það mun ekki hafa tekizt og fullvist var talið að til kosninga kæmi um flestar trúnaðarstöð- ur. Þegar blaðið fór i prentun hafði þó ekki heyrzt um að nokkur hyggðist bjóða sig fram á móti Birni Jónssyni til for- setaembættis, og þvi talið vist að hann yrði sjálfkjörinn. A þinginu verða, auk forseta, kjörin varaforseti ASl, þrettán aðrir i miðstjórn sambandsins .. ... i > Björn Jónsson og Eövarð Sigurðsson ræöa stöðuna i gærkvöldi. Timamynd: Gunnar og átján menn i sambands- stjórn. Þá verða kjörnir fimm i stjórn Menningar- og fræðslu- sambands alþýðu. Langt er siðan kjörnefnd hef- ur ekki náð samkomulagi um skipan i trúnaðarstöður Alþýðu- sambands tslands og þvi langt siðan komið hefur til kosninga á alþýðusambandsþingi. Færeyingar að verða búnir með leyfilegan veiðikvota gébé Rvik. — Ég tel það hugsaniegt að Færeying- um takist að fylla veiði- kvóta sinn fyrir áramót, en sem kunnugt er, renn- ur samningur þeirra ekki út fyrr en i marzlok á næsta ári, sagði iVlár Elis- son, fiskimálastjóri I gær. — Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir, hefur okkur ekki tckizt að fá nýjar veiðitölur frá þeim, þær nýjustu eru frá septem- bcrlokum, en þá var hcildarafli þeirra orðinn um tólf þúsund tonn, þar af scx þúsund tonn þorsk- ur, sagði hann. Samningurinn við Fær- cyinga gildir frá marz- lokum 1976 til marzloka 1977 og er veiöikvótinn alls 17 þúsund tonn, þar af 8 þúsund tonn þorskur. Af fyrrgrcindu má sjá, að Færcyingar gætu þvf veriö búnir með kvóta sinn um áramótin, og geta þvi ekkert veitt viö tslandsstrendur fram til marzloka 1977. — Astandið er mun Framhald á bls. 23 • Hin „borgaralegu" skáld kommúnista — Sjá bls. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.