Tíminn - 08.01.1977, Blaðsíða 6

Tíminn - 08.01.1977, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 8. janúar 1977 Ný sending af SUBARU væntanleg fyrir miðjan janúar — Fyrri pantanir óskast staðfestar framhjóladrifsbíll sem verður BÍLLINN - SEM ALLIR TALA UAA fjórhjóladrifsbíll með einu handtaki inni í bílnum — sem þýðir að þú kemst nærri hvert sem er á hvaða vegi sem er. SUBARU fjórhjóladrifsbíllinn, sem klifrar eins og geit, vinnur eins og hestur en er þurftarlítill eins og fugl. Verð ca. kr. 1.950.000 INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1 Lögregluþjónsistarf Laiist er til umsóknar i lögregluliði Kópa- vogs, afleysingarstarf frá 1. febrúar n.k. og gæti orðið fram i september n.k. Upplýsingar gefur yfirlögregluþjónn. 40 sitfur suimu Dr. Hallgrímur Helgason: Hugsjón og heimsfrægð Cellistinn Casals — 100 óra minning „Ég efli þá von mannanna, a6 einhvern tima ver6i þeir allir bræöur og skipti meö sér öllum gæðum, gagnteknir óumræöi- legri tilfinningu jaröneskrar hamingju. „Þessi ummæli lýsa betur en nokkuö annaö frelsis- hetjunni, hinum ótrauöa og staöfasta hugsjónamanni, hin- um mesta cellista erheimurinn nokkru sinni hefir eignazt, Spánverjanum Pablo Casals (1876-1973). Vafalaust hefir aldrei neinn listamaöur af guðs náö borið skapfestu til aö sýna fórnarlund og fullkomna ósérplægni fyrir eigin frelsisþrá og fööurlands- ást eins og Casals. Hann afsalar sér á hátindi heimsfrægöar keisaradómi i riki listarinnar fyrir fátækt og einmanaleik. Slikt er aöeins kleift ofurmenn- um andans. Sonur kirkjuorganistans i Vendrell i Katalóniu vex upp viö söng hljóöfæra og mannsradda. Af tilviljun sér hann celló á trúðleikasýningu. Drengurinn verður svo snortinn af tóni þess, að hann sjálfur smiðar sér áþekkt söngtól úr viðargreinum og stórri hnotuskel. Þetta bernskuhljóðfæri geymdi Casals sem helgan dóm allt til dauðadags, 1973. Eftir nám i Barcelona og Madrid er Casals kominn langt fram úr öllum kennurum sinum og sakir listrænna yfirburða, orðinn eftirlætishljómleikahald- ari konungshirðarinnar, sem veitir honum tvenn heiðurs- merki, 17 og 19 ára gömlum. Sigurför hans um gjörvallan heim hefst i Paris árið 1898. Hann heldur um 200 hljómleika árlega um langt skeið. Allir keppast um að bjóöa honum til sin, prússneskir konungar, zar- inn i Rússlandi, Tyrkjasoldán og lýðveldisráöherrar. Annan eins leik á nútima-knéfiðlu hafa menn aldrei heyrt. Hann likist innilegri bænagjörð. Þetta er það alheimsmál, sem allir skilja, mesta undraverk verald- ar. Þar sem það ómar, vikur allt hatur og sálir manna hverfa til sameiginlegs skyldleika. Arið 1905 leggja þeir þre- menningar saman krafta sina, er bezt hafa nokkru sinni leikiö trió, Casals, Thibaud og Cortot, svo einstæður var samleikur þeirra á celló, fiðlu og pfanó. Margir islenzkir hljómplötueig- endur munu með ánægju minnast þeirra stunda, er þeir áttu með þessum þremur kjör- sonum Apollós. En enda þótt Casals hefði sigrað allan heiminn með celló sitt eitt að vopni, gleymdi hann þó aldrei ættjörðinni. Árið 1919 stofnar hann með eigin fjár- framlögum fuilskipaða hljóm- sveit i Barcelona og stjórnar henni stórmannlega. Þar með gjörbreytti hann tónmenntalifi Katalóniu og innleiddi t.d. sér- staka verkamannakonserta með ódýrum aðgangsrétti. Fyrir sigra hans og umbóta- starfsemi veitti fööurlandið Casals margháttaða viöurkenn- ingu. Hann varð opinber eftir- lætissonur frægðarborgar sinn- ar, Vendrell, og ýmsar borgir Katalóniu sóttust eftir aö efna til Casals-hátiða, háskólinn i Barcelona veitti honum doktorsgráðu, sem heiðursnafn- bótogspænska akademfan kjöri hann sem heiðursfélaga. Við stofnun lýðveldis á Spáni varð hann yfirtónmenntastjóri Kata- lóniu, sem þá öðlaðist pólitiskt og menningarlegt sjálfstæði að miklu leyti. Eftir borgara- styrjöidina á Spáni settist Casals loks að i litilli borg i frönskum hluta Pyreneafjalla, Prades, og bjó þar til æviloka. Hann var til hinzta dags svarinn óvinur einræðisstjórnar Francos, og synjaöi öllum tilboðum um heimhvarf, svo lengi sem harðstjóri sæti á veldisstóli. Casals reynir með öllum ráð- um að sannfæra helztu stjórn- málamenn hins svokallaða siðmenntaða heims um nauðsyn þess að létta einvaldsoki af Spáni. En enginn þeirra réttir honum hjálparhönd. Sem and- svar við þvi skilningsleysi neit- ar hann að halda hljómleika i viðkomandi löndum. Og í sam- ræmi við það hafði hann ekki spilað i Rússlandi eftir bylting- una þar, siðar ekki á ítaliu og i miklu fé, til þess að styrkja spænska útlaga i Frakklandi, og tima sinum til að leiðbeina þeim og hughreysta. Ollum bréfum svarar hann við þriggja tima skriftir á hverjum degi. Sálar- þrek og mótstöðukraftur reyn- ast óbugandi. Hér er hann and- lega skyldur Mahatmá Gandhi og Albert Schweitzer. Við litinn hibýlakost býr þessi mesti tónlistarmaður okkar tima. Þó koma til hans fjöl- margir vinir og aðdáendur. Og einu sinni ár hvert safnast saman i Prades allir helztu tón- listarmenn heims og efna til konserta með Casals sjálfan i fylkingarbrjósti. Prades verður i músikheimi pilagrimaborg. — Að liðinni hátið sinnir Casals daglegum hjálparstörfum sín- Pablo Casals Þýzkalandi. England, Frakk- land og Bandarikin hljóta loks einnig synjun. Samkvæmt venjulegum formúlum um brautargengi hefði Casals átt að deyja sem vellauðugur maður, eigandi heilar hallir i mörgum heims- álfum, lystisnekkjur á heims- höfum, brunandi limúsiur allra landa, heila búgarða með þús- undum húsdýra, hafandi þjón- ustuliö á hverjum fingri og auð- jöfra og þjóðhöfðingja að virktavinum. En lif hans leitaði upprunans. Hann fæddist snauður og dó snauður að veraldarauði. Casals þekkti fátækt af eigin raun, bæði heima og heiman. Móðir hans fórnar jafnvel höfuðprýði sinni, þykku og siðu hári, svo að hún fái satt hungur sona sinna á námsárum þeirra i Paris. Minnugur þessa, eyðir Casals miklum fjármunum, þá orðinn rikur maður og frægur, til þess að þeir fátækustu i mannlegu samfélagi kynnist mannbætandi músik. Hann kennir þeim þótt ótrúlegt megi virðast, að meta mest allra tón- skálda sjálfan Johann Sebastian Bach. Casals sem maður verður öllum kær, og Casals sem lista- maður er tignaður sem erind- reki fegurðar, sannleika og frelsis. 1 útlegð sinni ver Casals siðar um. Engar fortölur né gylliboð duga. Þessi bláeygi skapfestu- maður hafnar heimsins riki- dæmi fyrir eigin sannfæringu. Hann elskar frið og frelsi og hænir jafnvel til sin fugla lofts- ins i syngjandi samfélag á löng- um gönguferðum. Hann blistrar og fuglarnir taka undir og flykkjast að honum. Þegar siðmenningin bregst, hverfur hann með Rousseau i skaut náttúrunnar. Á timum skefjalausrar efnis- hyggju borgaranna og fyrir- hygg julitils kapphlaups i veraldarvafstri virðist ákvörð- un Casals vera litt skiljanleg. En siðferðilegur styrkur beindi lifi hans inn á þær brautir þar sem aðeins velgjörðarmenn mannkyns fá velli haldið. Hug- sjón hans var frelsi og mann- réttindi, ekki sem innantóm slagorð, heldur sem eigið lifað lif, er afneitun hismis merkir sannleik kjarnans. A ytra borði geymir skóli i Paris, kenndur við nafn hans, „École Casals,” minninguna um mann, sem er frumkvöðull nýrrar tækni i celló-leik. En lengst mun nafn hans lifa sem sönnun þess, að listin hlýtur ávallt að standa i þjónustu lifs- ins. Til þess er jafnvel engin fórn of stór, heldur ekki auðlegð og heimsfrægð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.