Tíminn - 08.01.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 8. janúar 1977
13
STRANDAMAÐURINN STERKI:
Hreinn Halldórsson
íþróttamaður ársins 1976
— Eg er mjög ánægður
yf ir að hafa hlotið þennan
eftirsótta titil, sagði
Hreinn Halldórsson, sem
hefurgengið undir viður-
nefninu Strandamaður-
inn sterki, eftir að hann
var kjörinn l'þróttamaður
ársins 1976 í hófi í gær,
sem Samtök íþrótta-
ídu
fréttamanna efnc
til.
Jón Asgeirsson, formaöur
Samtaka iþróttafréttaritara, af-
henti Hreini Halldórssyni hina
fögru styttu, sem fylgir nafn-
bótinni og hann sagöi þá: —
Iþróttamaður ársins 1976 er
Hreinn Halldórsson, frjálsi-
þróttamaöur. Hreinn fékk 79 at-
kvæöi af 80 mögulegum, og leik-
ur þvi ekki á tveim tungum, aö
hann er vel að þvi kominn aö
hljóta titilinn íþróttamaöur árs-
ins að þessu sinni. 1 fyrra hlaut
hann annaö sætið á listanum.
Hreinn hefur náð frábærum á-
rangri i iþróttum, einkum i eft-
irlætisgrein sinni, kúluvarpi.
A árinu 1976 lagði hann sig
allan fram. Hann helgaöi sig
meira aö segja iþrótt sinni ó-
skiptur um alllangt skeiö til
þess að geta búiö sig sem bezt
undirOlympiuleikana i Kanada.
Og árangurinn lét ekki á sér
standa. Hreinn kastaöi yfir 20
metra og þaö oftar en einu sinni,
og Islandsmet hans i kúluvarpi
er nú 20,24 metrar. Sómir hann
sér þvi vel meðal fremstu
manna heims i sinni grein.
Miklar vonir voru bundnar viö
Hrein á Olympiuleikunum. Þær
vonir brugðust aö verulegu
leyti. Margir höfðu vonazt til aö
þar næöi Hreinn betri árangri
Framhald á bls. 15
að ef islenzkur iþróttamaður ætl-
ar sér að standa jafnfætis
fremstu iþróttamönnum heims,
þáþyrftihann að fórna miklum
tima — og óneitanlega kæmi það
þá niður á vinnunni.
— Æfir þú nú eftir einhverju
æfingakerfi?
— Nei, ég æfi algjörlega frjálst,
enda tel ég það sé bezt fyrir mig.
Ég æfði eftir kerfi til að byrja
með sl. keppnistimabil, en þegar
ég hætti þvi i byrjun júni, þá fyrst
kom árangurinn — 20 m múrinn
rofnaði.
— Stefnir þú að þátttöku i
Olympiuleikunum iMoskvu 1980?
— Ég læt mig aö sjálfsögðu
dreyma um að komast til
Moskvu. Það er að visu f jarlægur
draumur og það er ógjörningur að
vita um, hvort hann rætist, sagði
þessi 28 ára sterki Strandamaður
að lokum. Iþróttasiða Timans
óskar honum til hamingju með
nafnbótina — Iþróttamaður árs-
ins 1976. — SOS
Lokasprettur landsliðs-
ins dugði gegn pressunni
Landsliðið i handknattleik
vann i gærkvöldi sigur á pressu-
liðinu i Laugardalshöll (27-21),
eftir mjög slakan fyrri hálfleik
beggja liða, sem lauk 13-8, en
öllu meir spennandi siðari hálf-
leik.
Það var ekki fyrr en að loknu
leikhléi að pressuliðið náði sér á
strik. Tókst þvi þá aö minnka
muninn niður i tvö mörk (21-19).
Þegar svo var komið tók lands-
liðið afturá móti leikinn isinar
hendur og sýndu þeir Axel Ax-
elsson ' ólafur H. Jónsson,
Björgvin Björgvinsson og Geir
Hallsteinsson þá frábæra
spretti.
Markhæstu menn landsliðsins
voru þeir Jón Karlsson, fjögur
mörk, Björgvin Björgvinsson,
fjögur mörk, og Viðar Simonar-
son, Ólafur Einarsson, Geir
Hallsteinsson og Ólafur Jóns-
son, þrjú mörk hver.
Markhæstur pressumanna
var Hörður Sigmarsson, sem
skoraði fimm mörk. Hörður var
þó litið inn á i leiknum, þvi
snemma i fyrri hálfleik meidd-
ist hann og varð að yfirgefa
völlinn. Var Höröur fluttur á
slysadeild, þar sem sár hans
var saumað saman og kom hann
að þvi búnu aftur til leiks og lék
siðustu minúturnar meö liðinu.
— segir íþróttamaður órsins 1976
Hreinn Halldórsson
— Ég stefni að sjálfsögðu af þvi
að bæta mig og ná enn betri ár-
íþrótta
maður
órsins 1976
Hreinn Halldórsson vann yfir-
burðarsigur i kjörinu um
iþróttamann ársins 1976 hlaut 79
stigaf 80 mögulegum. Það þarf að
leita ailt tii ársins 1956 til að finna
hliðstæðu eða siðan Vilhjáimur
Einarsson, iangstökk varinn
snjalii var kjörinn, en þá var fyrst
kosiðum iþróttamann ársins á ts-
landi.
Eftirtaldir iþróttamenn fengu
atkvæði i ár:
1. Hreinn Halldórsson, frjálsar i-
þróttir......................79
2. Ingunn Einarsdóttir, frjálsar
iþróttir.....................62
3. Guðmundur Sigurðsson, lyft-
ingar .......................57
4. Viðar Guðjohnsen, judó..42
5. Ingi Björn Albertsson, knatt-
spyrna.......................34
6-7. Lilja Guðmundsd., frjálsar i-
þróttir og Ásgeir Sigurvinsson,
knattspyrna..................28
8. Steinunn Sæmundsdóttir,
skiði........................25
9. Sigurður Jónsson, skiði.17
10. Geir Hallsteinsson, hand-
knattleikur..................15
Aðrir sem hlutu atkvæði voru:
Jón Sigurösson, körfuknattleikur
(14) Vilmundur Vilhjálmsson frj-
álsar iþróttir (10), Björgvin Þor-
steinsson, golf (6), Viðar Simon-
arson, handknattleikur (5), Sig-
urður Ólafsson, sund (4) Agúst
Asgeirsson, frjálsar iþróttir (3),
Skúli Óskarsson, lyftingar (3) og
Pálmi Pálmason, handknattleik-
(2).
angri, en hvort þaö tekst, verður
framtlöin að skera úr um, sagði
Hreinn Halidórsson, tþróttamað-
ur ársins, sem er nú byrjaður að
æfa af fuilum krafti fyrir næsta
keppnistimabil. — Ég hef ekki
sett mér neitt sérstakt takmark,
en óneitanlega væri gaman að
kasta yfir 21 m i sumar.
Eins og menn muna þá setti
Hreinn frækilegt Islandsmet i
kúluvarpi á Laugardalsvellinum
14. júli sl. sumar, er hann náði að
rjúfa 20 m múrinn og kasta kúl-
unni 20.24 m. — Óneitanlega var
það mikill léttur fyrir mig að
rjúfa 20 m múrinn. Þaðhafði sál-
fræðilegáhrifá mig, sagði Hreinn
— Nú náðir þú þér ekki á strik á
Olympiuleikunum íMontreal, þar
sem miklar vonir voru bundnar
við þig?
— Já, þvi miður var ég ekki
nógu vel upplagður, þegar stóra
stundin rann upp. Arangur minn i
Montreal olli mér miklu meiri
vonbrigðum, heldur en öðrum. Ég
var búinn að fórna miklum tima i
æfingar og undirbúa mig eins vel
ogég gat fyrirslaginn iMontreal,
en þvi miður fór draumurinn um
að verða meðal þeirra fremstu út
i veður og vind.
— Hverju viltu kenna um, að þú
náðir þér ekki á strik i Montreal?
— Ég ætla alls ekki að fara að
afsaka frammistöðu mina þar.
En það er þó ekki hægt að neita
þvi, að hitinn (32 stig) var óþol-
andi i Montreal, þegar keppnin
fór fram. Ég er óvanur svo mikl-
um hita, og hann hefur örugglega
haft sitt að segja.
— Nú hafðir þú á orði eftir
Olympiuleikana að þú ætlaðir að
hætta að æfa og keppa.
— Já, þá hugsaði ég um þann
mikla tima, sem fer i það að æfa,
og aðstöðuleysið, sem við búum
við. Það er ekki gaman að leggja
sig allan fram til aö ná árangri,
þegar maður þarf siðan aö búa
við það aðstööuleysi, sem fijálsi-
þróttamenn tslands hafa þurft að
búa við undanfarin ár. — Ég hefði
átt að hætta, en ég gat það ekki.
Maður vill alltaf meira.
Hreinn sagði að peningavanda-
málið væri erfiðasti hjallinn, þvi