Tíminn - 14.01.1977, Page 1
Neyðarvakt hitaveitunnar misnotuð — Sjá bls. 2
fÆHG/nr
Áætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduóe B.úðardalbr
IFIateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
; Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
' Simar:
2-60-60 oq 2-60-66
. Verslunin & verkstæðið
FLUTT
á Smiðjuveg 66 Kóp.
(Beint andspœnis Olís í neöra Breiöholti,-þú skilur?)
Síminn er 76600
lAHWÉlflRHf. j
Hort samþykkti
— einvígið hefst 27. febr.
F.J. Reykjavik. — Ég segi
fyrir mina parta, að ég er
ánægðari með að fá einvigi
Spasskýs — Horts heldur en
Kortsnojs — Petrosjans
vegna þess að þaö veröur
áreiðanlega léttara i fram-
kvæmd og minni hætta á
árekstrum milli keppend-
anna, sagði Einar S. Einars-
son, forseti Skáksambands
tslands i samtali við Timann
i gærkvöldi, en þá hafði dr.
Euwe, forseti alþjóða skák-
sambandsins, skýrt Timan-
um frá þvi, að hann væri bú-
inn að fá skeyti frá Hort þar
sein Hort samþykkti að tefla
á tslandi.
Einvigi þeirra Spasskýs
og Horts hefst 27. febrúar en
setningarathöfn verður dag-
inn áður. Siðan verða tefldar
3 skákir á viku, en einvigis-
skákirnar veröa 12 talsins
eða þar til annar keppend-
anna hefur hlotið 6 1/2 vinn-
ing.
Ef keppendur eru jafnir að
12 skákum loknum veröa
tefldar tvær og tvær skákir I
einu til viöbótar, þar til úrslit
fást.
Sovézka skáksambandið
hefur boðið Spasský aðstoö i
einviginu og mun hafa verið
rætt um að Smyrslov, fyrr-
verapdi heimsmeistari yröi
þá aöstoðarmaður Spasskýs.
Frábær árangur við borun á Sauðárkróki:
Vatnsmagnið tvö-
faldaðist í gær
Borunarkostnaðurinn aðeins 13 milljónir kr.
MÓ-Reykjavik. — Vatns-
magn hitaveitu Sauðárkróks
tvöfaldaðist i gærmorgun,
þegar 70-80 litrar á sek. af
um 70 gráðu heitu vatni
komu upp úr borholunni,
sem nú er verið að bora ná-
lægt Sauðárkróki. Aöeins eru
10 dagar siðan borun hófst
þarna, en vatnið fannst á 500
m dýpi. Kostnaður við
borunina eralls aðeins um 13
millj. króna, og er þetta frá-
bær árangur að sögn Gutt-
orms óskarssonar fréttarit-
ara Timans á Sauðárkróki,
enda var búizt við að bora
þyrfti a.m.k. á 1000 m dýpi.
Eins og nýlega var sagt frá
i Timanum, er ljóst, að mikl-
ar framkvæmdir verða hjá
hitaveitunni á næstuárum og
i gærkvöld var fundur hjá
bæjarstjórn Sauðárkróks til
þess aðræða þennan frabæra
árangur og taka ákvarðanir
um framhald framkvæmda.
Ihugar
málshöfðun
á Vísi
FJ-Reykjavik. — 1 þættinum ,,A
viðavangi”, scm birtist á bls. 3 i
blaðinu i dag, segist Alfrcö Þor-
steinsson vera aö Ihuga máls-
höfðun á hendur Visi vegna grein-
ar, sem birtist I Visi í gær, en þar
er fullyrt, að Alfreð hafi orðið
„uppvis að þvi að nota Mánu-
dagsblaöiö til að svivirða Vil-
mund (Gylfason) og fjölskyldu”,
eins og komizt er aö orðii blaðinu.
A sinum tima lét Vilmundur
Gylfason að þvi liggja i grein i
Mbl., að Alfreð væri höfundur
greinar, sem birtist i Mánudags-
blaöinu. Þvi mótmælti Alfreö, og
ritstjóri Mánudagsblaösins, Agn-
ar Bogason, bar fullyrðingu Vil-
mundar til baka i yfirlýsingu,
sem birtist i Mbl.
„Þorsteinn Pálsson, ritstjóri
VIsis, er ærukær maður”, sagöi
Alfreð i viðtali i gær. ,,Ég þykist
vita, að hann muni vcra sammála
mér um þaö, að niér beri að lcita
til dómstólanna, biðjist Visir ekki
al'sökunar á ummælum sinum.”
Stórir sölusamningar
við Pólverja og Japani
á mjöli og frystri loðnu
gébé Reykjavík —
Náðst hefur sam-
komulag við Japani
um sölu á um tvö þús-
und tonnum af frystri
loðnu, en það er það
magn, sem við áætlum
að framleiða á þessari
vertíð, sagði Ólafur
Jónsson í sjávar-
afurðadeild Sambands
ísl. samvinnufélaga i
gær. Kvað hann erfitt
að segja um hvert
heildarverðmæti væri,
þar sem um marga
stærðarf lokka loðn-
unnar væri að ræða, en
sagði þó, að verðmætið
gæti orðið á milli 250 og
300 milljónir króna.'
Þá var undirritaöur stór
sölusamningur við pólska
fyrirtækið Rybex, um sölu a
fiskmjöli að heildarverð-
mæti 1,6 milljaröar isl.
króna, en þetta mun verða
með stærstu samningum,
hvað verðmæti snertir, en
ekki hvað snertir magn
mjölsins. — t næstu viku
hefjast samningaviðræður I
Moskvu um sölu á freðfiski.
Það voru fulltrúar frá
sjávarafurðadeild SIS og
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, sem fóru til Japan i
siðustu viku til viðræðna um
sölu á frystri loðnu. Tókst
þeim að ná samkomulagi um
sölu á 2 þús. tonnum af
frystri loðnu, svo sem fyrr
segir. — Það eru einnig
fulltrúar frá fyrrnefndum
fyrirtækjum, sem halda til
Moskvu n.k. sunnudag, til
viðræðna um sölu á freðfiski
við Sovétmenn.
Samningurinn, sem undir-
skrifaður var við pólska
fyrirtækið Rybex, er um sölu
á 12.300 tonnum af loðnu-
mjöli, en verð á hverja
próteineiningu skv. samn-
ingi þessum er $ 6,95. Þá
keyptu Pólverjarnir einnig
5.350 tonn af þorskmjöli og
f.ékkst $ 7,05 fyrir próteinein-
inguna. Heildarverðmætið er
um 1,6 milljarður isl. króna
eða um 8,4-8,5 milljónir doll-
ara. Að samningi þessum af
íslands hálfu standa cftir-
talin fyrirtæki:
Sjávarafurðadeild StS,
Bernhard Petersen hf.,
Ólafur Gislason & Co, og
Andri h.f. t þessi 12.300 tonn
af loðnumjöli má búast við,
lauslega reiknað, að fari um
72 þúsund tonn af loðnu.
• Sjónvarpið með ísl. myndaflokk —Sjá bak