Tíminn - 14.01.1977, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.01.1977, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. janúar 1977 *sm <Ý sniiilltii' Dýrlingarnir slógu Chelsea út á „Brúnni" — skoruðu 3 mörk í framlengingu og halda áfram vörninni í bikarkeppninni Dýrlingarnir frá Southampton — bikar- meistarar Englands, unnu sætan sigur (3:0) yfir Chelsea, þegar liðin mættust í bikarkeppninni á Stanford Bridge í London. Dýrlingarnir með markaskorarann mikla Ted MacDougall, greiddu Chelsea rothögg- ið í f ramlengingu, en staðan var 0:0 eftir venjulegan leiktima. KENNYBURNS Á SÖLULISTA Birmingham vill fá 300 þús. pund fyrir hann KENNY BURNS, hinn marksækni leikmaður Birmingham, hefur nú verið settur á sölulista — Birmingham vill fá 300 þús. pund fyrir þennan sterka leikmann. Það þarf ekki að efa, að mörg liö hafa mikinn áhuga á að fá Burns i sinar raðir, enda er hann marksækinn með afbrigð- um. Burns, sem er Skoti — fæddur i Glasgow, hóf knatt- spyrnuferil sinn hjá Birming- ham. BRIAN CLOUGH, fram- kvæmdastjóri Nottingham For- est, hefur verið orðaður við Everton. Mersey-liðiö hefur mikinn áhuga á að fá hann til að taka viö stjórninni hjá félaginu. BENFICA leikur gegn Man- chester United á Old Trafford i byrjun febrúar — ágóðaleik fyr- ir Alex Stepney, markvörö Manchester United, sem hefur leikið með United i 10 ár, en hann stóð einmitt i markinu á Wembley 1968, þegar United vann sigur (4:1) á Benfica i úr- slitaleik Evrópukeppni meistaraliða. Ted MacDougall opnaði markareikninginn, þegar hann skoraði með þrumufleyg af 15 m færi. Enski landsliösmiöherjinn Mike Channon bætti siðan við öðru marki eftir frábæran einleik, en hann skoraði auðveldlega, eftir að hafa sundrað varnarvegg Chelsea. David Peach skoraði siðan úr vitaspyrnu, sem var dæmd á leikmann Chelsea fyrir aö brjóta gróflega á MacDougall inni i vitateig. Bikarkeppnin: Blackburn —Charlton...... Chelsea — Southampton.... Lincoln — Burnley........ Wrexham — Sunderland ... Sunderland, sem vann sigur i bikarkeppninni fyrir fjórum árum, mátti þola tap fyrir Wrexham. Bill Ashcroft skoraði sigurmark velska liðsins á 62. minútu. Blackburn, sem vann bikar- inn 1928 vann öruggan sigur á Charlton. John Byrom og Tony Parkes skoruðu mörk liðsins. Paul Fletcher skoraði mark Burnley gegn Lincoln. ENSKA KNATT- SPYRNAN TED MacDougall.... kom Dýr- lingunum á bragðið. Beztu lögin í neðstu sætunum — í London VEGNA fridaganna um jólin og áramótin hefur Reuterfréttastofan ekki sent neina vinsældalista — og þar af leiðandi höfum við ékki getað birt vinsældalistana I New York og London sfðustu tvær vikurnar. En nú tökum við upp þráðinn þar sem frá var horfið, og vikjum fyrst að London-listanum. Það er venjan að birta aðeins efstu 10 lögin á listunum tveim, en Reuter-fréttastofan birtir að þessu sinni 12 efstu lögin, og ástæðan er sú,að i 11. og 12. sæti erubeztu lögin. 111. sæti er blindi tónlistar- snillingurinn Stevie Wonder meö lagiö ,,I Wish” af stóru plötunni sinni „Songs In The Key Of Life,” (númer 3 I New York), en i 12. sætier lag, sem þýtur beintuppi 12íæti! Þetta lag heitir „Don’t Cry For Me Argentina”, og er sungið af leikkonunni Lulie Covingston. Lag þetta er titillag nýs söngleiks eftir þá félaga Andy Lloyd Weber og Tim Rice, sem heitir „Evita”, en þeir félagarnir sömdu sem kunnugt er Jesus Christ Superstar söngleikinn. „Evita” er byggt á æviferli Evu Perons eiginkonu fyrrum forseta Argentinu sem dýrk- uð er af þjóð sinni, þó að hún sélöngu látin. Breiðskifa hefur veriö gefin út með lögum úr söngleiknum, en verið er að sviðsetja hann i London. London En London-listinn lftur þannig út: 1 ( 2) Under The Moon Of Love..............Showaddywaddy 2 ( 1) When A Child Is Born..................Johnny Mathis 3 ( 6) Money Money Money.............................Abba 4 (21) Don’tGive UpOn Us.........................David Soul 5 ( 4) Portsmouth.............................MikeOldfield 6 (12) Dr.Love.................................Tina Charles 7 (10) LivingNextDoorTo Alice.......................Amokie 8 (16) Things We Do For Love..................... ,..10cc 9 (18) Grandma's Party.........................PaulNicolas 10 ( 3) LivingThing..................................E.L.O. 11 (20) IWish.................................Stevie Wonder 12 (—) Don’t Cry For me Argentina............Julie Covington Vert er að vekja jafnframt athygli á laginu i 4. sæti, sem viröist fljúga upp listann, stekkur að þessu sinni upp um 19 sæti á einni viku. Þá verður fróðlegt að fylgjast með lögum lOcc og Paul Nico- las, sem bæði eru á hraðri uppleið. Ensnúum okkur að New York listanum. Lagið,sem er þar i efsta sæti, „Car Wash”,er titillag kvikmyndar.sem verið er að sýna þar- lendis um þessar mundir, en annað vitum við ekki um það lag. Wonder er heldur á uppleiö, bætir sig um eitt sæti og er nú kominn i 3. sætið. • Stevie Wonder 111. sæti I London og 3. setl f New York meö lagiö „I Wish” A listanum eru þrjú ný lög, þar af i tveimur tilvikum mjög þekkt- ar hljómsveitir sem eiga i hlut, annars vegar Queen og hins vegar Aerosmith. Þriöja nýja lagið er meö Mary McGregor og fór úr 14. sæti I 8. á einni viku. New York En listinn I New York litur svona út: 1 ( 3) CarWash................................. RoseRoyce 2 ( 1) You Don’t Have To Be A Star............MarlynMccoo And Billy Davis 3 ( 4) IWish................................Stevie Wonder 4 ( 2) You Make Me FeelLike Dancing..............LeoSayer 5 ( 5) After TheLovin’........................ Engilbert Humperdinck 6 ( 7) Dazz.........................................Brick 7 ( 9) Hot Line...................................Sylvers 8 (14) Torn Between To Lovers..............Mary McGregor 9 (11) Somebody To Love.............................Queen 10 (12) WalkThisWay..............................Aerosmith * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Keith Richard dæmdur GITARLEIKARI Rolling Stones, Keith Richard, hefur enn einu sinni verið dæmdur fyrir það aö hafa fikniefni i fór- um sinum. i vikunni var hann dæmdur i 750 punda sekt fyrir að hafa cocaine i fórum sinum, en upp komst um eiturlyfin, er gitarleikarinn ók bil sinum út af vegi. Fannst þá hálsmen með hylki.sem haföi að geyma coca- ine, og þrátt fyrir að Richard neitaði að kannast við hálsmen- ið, drógu lögreglumenn upp úr pússi sinu ljósmynd, sem sýndi Richard á hljómleikum með hálsmenið um hálsinn. Richard var jafnframt gert að greiða málskostnað, en dómar- inn I málinu sagði, að hann hefði ekki talið ástæðu til þess að dæma Richard til fangelsisvist- ar, þótt svo hann hafi áður verið fundinn sekur um sams konar brot.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.