Tíminn - 28.01.1977, Page 3
Föstudagur 28. janúar 1977
3
Flótti Barba Smith:
Vítavert kæruleysi
fangavarðanna beggja
— segir blaðafulltrúi varnarliðsins, sem telur að fangaverðirnir
hafi ekki verið í vitorði með fanganum
HV-Reykjavlk. — Kvöldið þegar
Christopher Barba Smith, öðru
nafni „Korkurinn”, slapp úr
gæzlu i fangageymslu varnar-
liðsins á Keflavikurflugvelli, var
hann að horfa á kvikmynd, ásamt
fangavörðunum tveim, frammi á
gangi I fangageymslubragg-
anum. Barba Smith sætti þá færi
að smeygja sér út um millidyr á
ganginum, skella hurðinni i lás á
eftir sér og gat þannig hindrað
fangaverðina f að elta sig uppi.
Þannig háttár til i fanga-
geymslubragganum, að fanga-
geymslurnar eru i öðrum enda
hans, það er innst i honum. Fyrir
framan þær eru sturtuklefar og
snyrtiaðstaða fyrir fanga.
Framan við snyrtiaðstöðuna er
öryggishurð, siöan stuttur
gangur, sem dagstofa fyrir fanga
og fangaverði liggur að, en þar
fyrir framan önnur öryggishurö.
Fremst i bragganum eru siðan
geymslur og varðherbergi
nokkurs konar, þar sem er simi
og fangaverðir geta fylgst með
öllu þvi, sem gerist innar i bragg-
anum með speglum, auk þess
sem þeir geta fylgzt með þvi
hverjir koma inn i fordyri, sem er
framan á bragganum.
Þetta kvöld, það er miðviku-
dagskvöld i siðustu viku, var
sjónvarpstæki það, sem fanga-
verðir tog fangar) hafa i bragg-
anum sér til afþreyingar i ólagi.
Akváðu þá fangverðirnir tveir að
efna til kvikmyndasýningar i
staðinn og náðu þvi i sýningarvél,
sýningartjald og kvikmynd til að
horfa á.
Sýningartjaldið settu þeir upp
viö innri öryggishurðina, sem
þeir höfðu lokaða. Sýningarvélina
höfðu þeir hinsvegar frammi á
fremra gangi, það er fyrir
framan fremri öryggishurðina,
sem þeir höfðu opna.
Siðan var Barba Smith leyft að
koma að horfa.
Það hefur verið staðfest, með
framburði fangavarðanna, að
annar þeirra stóð við dyrnar inn i
dagstofuna, hinn við fremri
öryggishurðina, sem opin var, en
þar tók Barba Smith sér einnig
stöðu.
Klukkan um 20.30 til 20.35 þegar
kvikmyndasýning stóð sem hæst,
sætti Barba Smith svo færi,
skauzt út um fremri öryggis-
dyrnar og skellti hurðinni i lás á
eftir sér.
Fór hann siöan fram ganginn,
inn i varðherbergið, eða varð-
mannsbásinn, sem er fremst I
bragganum, þar sem hann reif
simann niður af vegg. Talið er
hugsanlegt, að hann hafi i leiðinni
náð lyklum að bifreiðinni, sem
hann stal, úr vasa i yfirhöfn
annars fangavarðarins, en þarna
á ganginum er fatahengi þeirra.
Að þessu loknu fór Barba Smith
fram i ytra fordyri braggans og
læsti þar á eftir sér með hengilás,
sem hann hafði tekið af skáp.
Það er af fangavörðunum að
segja, að þeir reyndu fyrst að
brjóta niður öryggishurðirnar, en
þegar það reyndist ekki auövelt,
skriðu þeir yfir þær, en um eins
metra bil mun vera frá hurðarþil-
inu upp i loft á bragganum.
Útihurðina gátu þeir brotið upp
á skömmum tima, og þegar út
kom, hlupu þeir yfir i næstu
byggingu, sem er húsnæði
útvarps- og sjónvarpsstöðva
hersins. Reyndu þeir að hringja I
öryggisverði, en siminn hjá þeim
var á tali, þannig að þeir hringdu
til varðanna við aðalhliö vallarins
sem er næsta hlið við fangelsið.
Að þvi loknu tókst þeim að ná
sambandi við öryggislögregluna
og samkvæmt timasetningu hjá
þeim aðilum var það klukkan
20.40. .
Oryggislögreglan tilkynnti
islenzku lögreglunni á vellinum
um strokið. Samkvæmt bókun i
islenzku lögreglustöðinni berst
tilkynningin þangað klukkan
20.45. Barba Smith ekur siðan i
gegnum Njarðvikurhliðið, sem er
rétt við islenzku lögreglustöðina,
klukkan 20.50.
Það er þvi ljóst, að Barba Smith
hefur farið einhverra erinda
innan herstöðvasvæðisins, áður
en hann ók út af vellinum, þvi
akstur á löglegum hraða frá
fangageymslunni til Njarðvikur-
hliðsins, tekur aðeins um fimm
minútur, en frá þvi hann sleppur,
þar til hann ekur um hliðið liða
allt að tuttugu minútur.
Blaðafulltrúi varnarliðsins,
Howie Matson, hélt i gær blaða-
mannafund, þar sem hann skýrði
frá þvi, að fangaverðirnir heföu
verið hreinsaðir af öllum grun um
aó þeir hefðu aðstoðað Barba
Smith við flótta hans.
Þaö er þó ljóst, að fangaverð-
irnir tveir hafa, með þvi að leyfa
Smith að vera viðstaddur kvik-
myndasýninguna meöan fremri
öryggishurðin var opin og auk
þess láta hann standa við opnar
dyrnar, gert sig seka um vitavert
kæruleysi i starfi.
Matson blaðafulltrúi skýrði frá
þvi i gær, aö Smith væri leitað af
mikilli ákefö, meðal annars væru
framkvæmdar húsleitir á
herstöövarsvæðinu og hverri
ábendingu væri fylgt eftir.
Aðspurður um það, hvort
hugsanlegt væri, að Barba Smith
hefði veriö komið úr landi, vegna
tengsla hans við yfirmenn i
herstöðinni, og jafnvel tengsla
yfirmanna við fikniefnamál það,
sem Smith átti aðild að, sagði
Matson, að hugmyndir af þvi tagi
væru einfaldlega fáránlear.
Töldu sig
sjá Smith
HV-Reykjavik. — Lögregiunni i
Reykjavik bárust i gærdag, eftir
hádegi, tvær tilkynningar, sin
úr hverri áttinni, um að sést
heföi til Cristophers Barba
Smith, strokufangans af Kefla-
vikurfiugvelli, I Reykjavik. I
báðum tilvikum var sagt að
hann hefði verið farþegi I sendi-
ferðabifreið af Volkswagen gerð
(rúgbrauði), Ijós-drapplitri.
Annar aðilinn, sem taldi sig
hafa borið kennsl á Barba Smith
i bifreiðinni, náði ekki númeri
hennar, að öðru leyti en þvi, aö
einkennisstafir heföu verið JO,
það erbifreiðin skráð á varnar'-
liðsmann.
Hinn aðilinn, sem sá bifreið-
ina á allt öðrum stað og tengist
ekki þeim fyrri, náði hins vegar
númerinu iHlu.
Bifreiðarinnar var leitað i gær
og bar sú leit árangur um
klukkan 18.00, þegar lögreglan á
Selfossi fann hana við Eden i
Hveragerði. Fólkiö I bifreiðinni
var tekið til yfirheyrslu, en það
neitaði staðfastlega að Barba
Smith hefði verið I bifreiöinni.
Þegar lögreglan á Selfossi
náði bifreiðinni var farþegi i
framsæti hennar karlmaður
meö alskegg, ekki ósvipað þvi
sem Barba Smith bar, þegar
hann slapp úr haldi.
Taliö er fullvist að um mis-
skilning hafi verið að ræða, en
lögreglan hvetur fólk til að hafa
augun hjá sér og tilkynna þegar
i stað ef það verður vart við
menn sem svipar til Barba
Smith, þannig aö um hann sjálf-
an gæti veriö að ræöa.
Fangaklef-
inn, þar sem
Barba Smith
var geymd-
ur.
Snyrtiað
staöa
og
sturtu
klefar.
□ Simi
Dagstofan.
Fanga-
varöabás
Fangavörður
— í ■
Barba Smith
Fangavörður
Sýningar-
tjaldiö við
inriri
öryggis-
dyrnar, sem
voru lok-
aðar.
ca, Sýningar-
vélin
Fr'emri
öryggis-
dyrnar, sem
Barba Smith
skellti I lás.
xujr
Fatahengi
. Útidyrnar,
sem Barba
Smith læsti
meö hengi-
lás.
Kort af braggafangelsi herlögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Inn á kortið eru settar merkingar/ sem sýna
aðstöðuna þegar fanginn launaði vörðum sínum kvikmyndasýninguna með þvi að læsa þá inni og strjúka á
burt.
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins:
Nýbyggingin formlega tekin í notkun
í byrjun febrúar
gébé Reykjavik — I byrjun
næsta mánaðar er ráðgert að
taka nýbyggingu Rannsókna-
stofnunar byggingaiðnaðarins
að Keldnaholti formlega i notk-
un. I þessari nýbyggingu eru
skrifstofur, þar sem sérfræðing-
arhafa skrifstofur sinar, þar er
einnig bókasafn og teiknistofur.
1 tengibyggingunni er kaffistofa
starfsfólks. Aður voru skrifstof-
ur allar til húsa I rannsókna-
stofubyggingunni, en með af-
hendingu hinnar nýju byggingar
stækkar rannsóknastofurýmið
mikið.
Hin formlega vigsla nýbygg-
ingarinnar er áformuö þann 4.
febrúar n.k. Hins vegar eru
nokkrir mánuðir siðan meiri
hluti þessarar byggingar var
tekinn i notkun. A meðfylgjandi
Timamynd Gunnars, eru bygg-
ingar Rannsóknastofnunar
byggingariönaðarins að
Keldnaholti og nýbyggingin er
fremst á myndinni fyrir miöju.
á víðavangi
Vörður gagnrýnir
borgarfulltrúa
Sjólfstæðisflokksins
Töluverðar umræöur hafa
oröiö um iþrótta- og æsku-
lýðsmál I borgarstjórn
Reykjavikur I vetur. Hafa
borgarfulltrúar Framsóknar-
flokksins gagnrýnt harðlega
stefnu Sjálfstæöisflokksins i
þeim máium, en meirihluti
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins ásamt borgarfulltrú-
um Alþýðubanda lagsins vilja
hafa sem mesta „sóslaiser-
ingu” I uppbyggingu æsku-
lýösmála, eins og berlega
kemur fram i fjáraustrinum
til Æskulýösráðs. Það skal þó
tekið fram, að tveir af borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins, þeir Albert Guðmundsson
og Páll Gfslason, eru ekki
sammála flokkssystkinum
sinum i þessum málum.
Nú hefur Landsmálafélagið
Vöröur, hið öfluga félag Sjálf-
stæðismanna, tekið undir
þessa gagnrýni, sbr. yfirlýs-
ingu, sem samþykkt var á al-
mennum félagsfundi nýlega,
og hljóðar svo:
„Félagsfundur I Lands-
málafélaginu Verði, haidinn
17. janúar 1977, samþykkir að
beina þvi til borgarfuiltrúa
Sjálfstæðisflokksins i
Reykjavik, að þeir sjái um að
stefnu flokksins i æskulýðs-
málum verði fylgtogskal i þvi
efni einkum stuðla að auknu
starfi æskulýðsfélaga I borg-
inni en forðast að taka upp
opinberan rekstur æskulýös-
starfs i samkeppni viö frjáls
félög.”
Skýrsluvélar
kosta of mikið
A siðasta fundi borgar-
stjórnar komu tölvumál all-
mikið til umræðu vegna tillögu
um aö gera leigusamning við
I.B.M. til fjögurra ára um
tölvu fyrir skýrsluvélar.
Kristján Benediktsson hafði
eftirfarandi um málið að
segja:
„Ég er orðinn þeirrar skoð-
unar, aö þaö sé rangt að gera
þennan leigusamning tíl 4 ára
og ég byggi það á þvl, aö með
þvi móti séum við nánast aö
binda þetta samstarf við rikiö
um rekstur Skýrsluvéla i
fjögur ár. Það er mitt mat á
þessum samningi. Þess vegna
mun ég greiöa atkvæði á mótí
þvi, aö stjórn Skýrsluvéla
verði heimilaö að gera þennan
samning. Ég hef lengi undr-
azt, hve útgjöld vegna
Skýrsluvéla hafa hækkað
mikiö ár frá ári. Venjulega
miklu meira en allt annaö. Svo
er einnig nú. Þegar fjárhags-
áætlun Reykjavikurborgar
hækkar um tæpiega 31% og
kostnaður við rekstur skrif-
stofu borgarstjóra hækkar um
32%, þá hækkar framlagiö til
Skýrsluvéla um 50%, og er þó
talið að það muni varla duga.
Af þessu sést, að rekstur þessa
fyrirtækis er ákaflega kostn-
aöarsamur. Ég er þeirrar
skoðunar að það þurfi að
minnsta kosti að grandskoöa
hvort borgin geti ekki leyst
þessi mál á ódýrari og hag-
kvæmari hátt en taka þátt i
þessu samstarfi. Einingar hjá
okkur eru að visu ekki stórar.
Og þó aö Reykjavikurborg og
rikiö séu saman, þá er það
ekki stór eining á mælikvarða
stórfyrirtækja erlendis. Samt
er það svo, að það gæti verið
mun hagkvæmara að hafa
minni einingar.”
Er gjaldheimtan
dragbítur ?
„Ég er Uka mjög efins um,
að þaö sé hagkvæmt fyrir
Reykjavikurborg aö vera i
Framhald á bls. 5