Tíminn - 01.02.1977, Side 21
Þriöjudagur 1. febrúar 1977
21
„Leeds-liðið verður
erfið hindrun"
— segir Tony Book, framkvæmdostjóri Manchester City, sem
mætir Leeds ó Elland Road í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar
★ Liverpool og Aston Villa fó auðvelda mótherjo
— Leeds-liðið veröur erfið hindr-
un — en við erum ákveðnir i að
yfirstiga hana, hvað sem þaö
kostar, sagöi Tony Book, fram-
kvæmdastjóri Manchester City,
þegar hann frétti, aö strákarnir
hans fengju Leeds sem andstæð-
inga i 16-Iiða úrslitum bikar-
keppninnar — og þaö á Elland
Road. — Við höfum alltaf átt i
erfiðleikum meö Leeds-liöiö. Ég
veit að leikmenn Leeds hafa sett
stefnuna á Wembley — og þeir
hafa sýnt það, aö þeir ætla sér
þangaö. Viö látum þaö ekkert á
okkur fá, þvi að auðvitaö er
draumurinn hjá okkur einnig —
Wembley, sagði Brook.
— Manchester City verður
erfiöur mótherji. Liðið hefur
sjaldan verið eins sterkt og ein-
mitt núna. Þaö er mjög gott að fá
leikmenn City heim — þar sjáum
við fram á góða möguleika, sagöi
Enski
bikarinn
Jimmy Armfield, framkvæmda-
stjóri Leeds, en þessi leikur verð-
ur toppleikur 5. umferðar bikar-
keppninnar.
Leikmenn Arsenal, sem mæta
„Boro”, hafa sett markið hátt —
og það er öruggt, að orö þau verða
lengi i minnum höfð, sem Joe
Mercer, fyrrum leikmaður með
Arsenal, og fyrrum fram-
kvæmdastjóri Manchester City
og Coventry sagði: — „Haldið
áfram á þessari braut og vinnið
bikarinn, og þá skulum við halda
veizlu”, sagði hann við Terry
Neill, framkvæmdastjóra Arse-
nal, eftir sigurinn gegn Coventry.
Gordon Lee, framkvæmda-
stjóri Newcastle, veröur áfram i
bikarslagnum, þótt að Newcastle
sé úr leik. Lee hefur tekið við
stjórninni hjá Everton og mun
hann stjórna liðinu gegn Swindon
i bikarkeppninni i kvöld á Goodi-
son Park.
Drátturinn i 16-liða úrslitunum
i ensku bikarkeppninnar, varð
þannig:
Swindon eða Everton —Cardiff
Leeds — Manchester City
Nottingham Forest eða Sout-
hampton — Manchester United.
Mittiesbrough — Arsenal
Colchester eða Derby — Black-
burn
Wolves eöa Ipswich —Chester
Aston Villa — Port Vale
Fyrir dráttinn var Liverpool á
toppnum hjá veðmöngurum i
London — 6:1. Ipswich, Arsenal
ogManchester City komu siöan —
7:1, þá komu Aston Villa,
Manchester United og Leeds með
8:1,enMiddlesbrough næst á lista
—10:1. Það er óhætt aö segja, aö
við dráttinn, hafi hagur Liverpool
og Aston Villa vænkazt.
Revie velur Francis
Don Revie, einvaldur enska
landsliðsins, hefur valið Trevor
Francis, hjá Birmingham i enska
landsliðshópinn, sem mætir Hol-
lendingum i vináttulandsleik á
Wembley 9. febrúar. — SOS
A^SENAL ..... i ifi/.il
Staplet«r..| '
Macdorlato 2
A. VILLA ... (0)..l
, Mortimer
' Deehan 2.
■birmincham (0}..i
8urns
CARDIFF .... (!)..!
' Ciles, Saver.
Buchanan
BLACKBURN . (2)..3
Waddington.
Parkos, Byrom
CHESTER ..... (0)..l
Edwards
COLCHESTER . (0)..l
Carwood
SWINDON .... (1>..2
Syrett. Stroud
24,347
PORT VALE .. (41..2
Tartt. Brownbil!
IPSWICH .... (01..2
Mariner. Burley
LIVERPOOL . (21..3
Keesan, Toshack,
Heighway
MAN. UTD. ... (1 )..l
Macari
MIDDLESBRO (1)..4
Souness, Willey,
Armstrong 2
(1 pen)
NEWCASTLE .. (1S..1
Cowling
45,300 ,
NORTHW'H V. (0)..l
Collieí'
NOTT'M. FOR. (1 .3
Robertson 2 (1
pen), Woodcock
COVENTRY .... (0;..l
Hutchinson
41.073
WEST HAM ... (OJ..O
46,954
LEEDS ....... (0>..2
lordan, Clarke
38,000
WREXHAM ... (0)..2.
Whittle, Ashcroft-
29,953
ORIENT ...... (0)..0
12.367
LUTON ....... (0)..0
10,608
DERBY ....... (l)..l
Hales 14,030
EVERTON ..... (1 )..2
McKenzie,
B. Latchford
BURNLEY ..... (0)..l
Flynn (pen
18,063
WOLVES ...... (1)..2
Richards 2
32,996
CARL1SLE .... (01..0
45,358
QPR ......... (0)..0
57,422
HEREFORD .... (0)..Q
25.000
MAN. CITY .. (2)..3
D. Craig (o g),
Royle, Owen
OLDHAM ...... (2)..3
Valentine,
Halom 2
28.635 •«
(at Maine Rood)
SOUTH'PTON (O'..3
Ball. Osgood,
Andruszewski 1
3R.704
Sigurganga City
heldur áfram...
— góður sigur (3:1) Manchesterliðsins
í Newcastle
Það var þvert á móti gangi
ieiksins, þegar Manchester City
tók forystuna i þessum leik á 34.
minútu. Paul Power sendi fastan
bolta fyrir mark Newcastle, og
þar varðCraig fyrir þvi óhappi að
senda knöttinn i eigið mark. Við
þetta æstust áhangendur New-
castie mjög og ruddust inn á völl-
inn, og varö aö stöðva leikinn I 12
minútur, meðan lögreglan var að
ryðja leikvanginn. Þegar leikur-
inn hófst aftur, voru aðeins liðnar
sex minútur, þegar Newcastle
hafði jafnað. Nattrass tók fri-
spark fyrir utan vitateig City og
Gowling skoraði með glæsilegum
skalla. En Manchester City tókst
að ná forystunni aftur fyrir hlé,
þegar Doyle skallaði hornspyrnu
frá Tueart fyrir fætur Royle, sem
skoraði af stuttu færi.
Þaö voru aðeins liðnar 10
minútur af seinni hálfleik, þegar
Manchester City haföi innsiglað
sigur sinn. Kidd fékk góða send-
ingu frá Donnachie og skaut aö
marki, Mahoney hélt ekki
knettinum, sem rúllaði fyrir fæt-
ur Owen, og skoraði hann af
stuttu færi. Staðan var þannig
oröin 3-1 fyrir City og héldu þeir
þessari forystu út leikinn, enda
voru sóknarlotur Newcastle i
seinni hálfleik fremur bitlausar.
Liðin voru þannig:
Newcastle: Mahoney, Nattrass,
Kennedy, Cassidy, McCaffrey,
Nulty, Barrowclough, Cannell,
Burn, Gowling, Craig.
Manchester City: CorrigEin, Cle-
ments, Donnachie, Doyle, Wat-
son, Power, Owen, Kidd, Royle,
Hartford.Tueart.
Ó.O.
Gray var
hetja Leeds
Hann var maðurinn ó bak við sigur (2:1)
liðsins yfir Birmingham
★ Everton hafði heppnina með sér
gegn Swindon
Leikur Birmingham og Leeds á
St. Andrew’s i Birmingham var
fremur daufur framan af. t fyrri
hálfleik bar þaö helzt til tíðinda,
að Frankie Grav skaut langt
framhjá, þegar hann stóð aleinn
fyrir opnu marki Birmingham.
En hann átti erfittað bæta fyrir
þetta i seinni hálfleik svo um
munaði. A 56. minútu lék hann á
tvo menn, spilaöi einn—tveir við
Cherry, lék á enn einn mann og
sendisiðan hárfina sendingu fyrir
markið, þar sem Jordan var til
staðarog kallaðiinn. A74. minútu
var Frankie Gray svo aftur á
ferðinni þegar hann sendi góða
sendingu inn á Alan Clarke, sem
lék á Latchford i marki Birming-
ham og renndi knettinum i mark.
Eftir þetta mark var það sem
liö Birmingham vaknaöi fyrst af
dvalanum og var mjög nærri þvi
að jafna leikinn. A 32. minútu
jafnaði Burns meö skalla eftir
sendingu frá Hibbitt og á siðustu
minútum leiksins bjargaði
Reaney skoti frá Kendall á mark-
linu og Burns átti skalla rétt yfir
þverslá.
Leeds var vel að sigrinum kom-
inn i leiknum, en um það geta
annars islenzkir sjónvarpsáhorf-
endur dæmt um næstu helgi, þar
sem þessi leikur verður að öllum
likindum á dagskrá sjónvarpsins
þá.
Þau voru fá skiptin, sem 1.
deildarlið Everton komst fram
yfir miðju, þegar liðiö mætti
Swindon á heimavelli þess siðar
nefnda, County Ground. Samt
tókst þeim aö ná 2-2 jafntefli, en
þaö má eingöngu rekja til þess ,
hve sóknardjarfir leikmenn 3.
deildarliðsins voru. Tvisvar tókst
hinu leikreynda Everton liði að
notfæra sér þær veilur, sem sköp-
uðust i vörn Swindon af þessum
sökum og skora.
Eftir eina sóknarlotu Swindon
fékk Darracott boltann og gaf
góða sendingu á McKenzie, sem
skyndilega var frir fyrir innan
vörn Swindon. Hann vippaði
knettinum skemmtilega yfir All-
an i marki Swindon, og Everton
náði þannig 1-0 forystu. En fimm
minútum siðar haföi Swindon
jafnað. Frispark var dæmt á
Everton á vitateigslinu og eftir
nokkurt þóf inni i vitateig tókst
Syrrett að ýta knettinum i netið.
Staðan i hálfleik var þannig jöfn,
1-1.
Upphafsminútur seinni hálf-
leiks var bezti kafli Everton i
leiknum, og þá tóku þeir foryst-
una aftur, Latchford skoraði eftir
FRANKIE GRAY...átti mjög
góðan ieik hjá Leeds.
hornspyrnu. En smám saman
náði Swindon öllum tökunum á
leiknum og ekki leið á löngu þar
til Stroud hafði jafnaö metin með
þrumuskoti af 30 metra færi.
Eftir þetta var næstum stöðug
sókn að marki Everton og slapp
mark þeirra oft á hinn furðu-
legasta hátt.
Leiknum lyktaöi þannig með 2-2
jafntefli og það verður fyrsta
verk hins nýja framkvæmda-
stjóra Everton aö búa liðið undir
leikinn viö Swindon á Goodison i
kvöld. ó.O.
að sóknarleikmaður
Stoke skoraði
Geoff Salmons tryggði Stoke jafn-
tefli (1:1) gegn Norwich f 1.
deildarkeppninni i Norwich.
Markið var þaö fyrsta, sem
sóknarmaöur I liði Stoke skorar á
útivelli á keppnistimabilinu. Kev-
in Reeves — sem Norwich keypti
nýlega frá Bournemouth, skoraði
mark liösins.
1. deild:
Norwich — Stoke...........1:1
2. deild:
Charlton — Luton...........1:1
Neeham skoraði mark Luton,
en Curtis jafnaði úr vitaspyrnu
fyrir Lundúnaliðið.
Vináttuleikir:
Millwall — C. Palace.......1:1
Sheff.Utd. — W.B.A.........1:0
Franks skoraði mark Sheffieled
United.
„Dýrlingarnir" ákveðnir
að verja bikarinn...
tryggðu sér jafntefli (3:3) gegn Nottingham Forest
á City Ground í Nottingham
Southampton gefur alls ekkert
eftir i vörn bikarins, sem þeir
unnu á Wembley s.l. vor. Margir
héldu fyrir leikinn á mótiNotting-
ham á City Ground i Nottingham,
að þar myndi veröa endastöðin
fyrir Southampton, enda iið
Nottingham ekki árennilegt á
heimavelli. En Southampton var
betra liöiö i þessum leik, og hefði
getað veriö búiö að skora tvivegis
TONY WOODCOCK...sést hér
tTyggja Forest jafntefli (3:3)
gegn Dýrlingunum. Knöttur-
inn kominn inn fyrir llnu.
áður en Nottingham tók forystuna
i fyrri hálfleik. Ball brá O’Hare
innan vitateigs og Robertson
skoraði úr vitaspyrnunni. í hálf-
leik var staöan þannig 1-0 fyrir
Nottingham.
Ekki voru liðnar nema 10
minútur af seinni hálfleik, þegar
Southampton hafði tekið foryst-
una. Ball skoraði eftir fimm
minútna leik og Andruszewski
skoraöi svo annaö mark Sout-
hampton meö skoti af löngu færi.
Sjö minútum siöar jafnaði
Robertson með góöu skoti fyrir
utan vitateig. Nokkru siðar fékk
Southampton frispark rétt fyrir
utan vitateig Nottingham,
knettinum var rennt til Osgood,
sem skoraði með hörkuskoti.
Ahangendur Southampton voru
ennaðfagna þessu marki, þegar
Woodcock jafnaði fyrir Notting-
ham, eftir einleik upp vinstri
kant. Mörkin urðu ekki fleiri i
þessum skemmtilega leik og liðin
verða að eigast viö aftur á The
Dell i Southampton i kvöld.
Liðin voru þannig skipuð:
Nottingham: Middleton, Ander-
son, Clark, McGovern, Lloyd,
Bowyer, O’Hare, O’Neill, Withe,
Woodcock, Robertson.
Southampton: Wells, Andrus-
zewski, Peach, Holmes, Blyth,
Steele, Ball, Channon, Osgood,
Williams, MacDougall. ó.O.