Tíminn - 02.02.1977, Qupperneq 20

Tíminn - 02.02.1977, Qupperneq 20
LEIKFANGAHÚSIÐ Skólcvörðustíg 10-Sími 1-48-06 Fisher Price leikjóng eru heimsjneg Póstsendum Brúðuhús * Skólar 'Benzínstöðvar Sumarhús Flugstöðvar Bilar fyriryóóan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS __________________ — á hendurLands virkjun vísað til gerðardóms FJ-Reykjavik. Energoprojekt og Landsvirkjun hafa nú tilnefnt gerðardómsmenn í ddm til að fjalla um kröfur Energoprojekt á hendur Landsvirkjun. en samkomulag hefur ekki náðst I viðræðum aðila að undanförnu. i frétt frá Landsvirkjun segir að verulega beri i milli sjdnarmiða málsaðila. i frétt Landsvirkjunar segir, að siðustu samningaviðræður hafi farið fram i sl. viku i Sviss I aðalskrifstofu ráðunauts Lands- virkjunar, Electrowatt Engi- neering Services. Aður en við- ræður þessar hófust hafði Ener- goprojekt visað kröfum sinum til gerðardómsmeðferðar i sam- ræmi við hlutaðeigandi ákvæði i verksamningi aðila og tilnefnt sinn gerðardómsmann, profess- or Slavko Stojkovic. I framhaldi af þvi hefur Landsvirkjun til- nefnt Magnús Thoroddsen, borgardómara i gerðardóminn af sinni hálfu, en gert er ráð fyr- irað oddamaðurinn verði valinn með samkomulagi framan- greindra tveggja gerðardóms- manna, en nái þeir ekki sam- komulagi verði þess farið á leit Framhald á bls. 19. „Kratar beita tyllióstæð- um eins og 1960, til að rjúfa vinstra samstarf" — segir Daníel Agústínusson, en nýr bæjarstjórn- armeirihluti var í gær myndaður á Akranesi HV-Reykjavik.— Þetta er ekki i fyrsta sinn sem alþýðuf lokksmenn rjúfa vinstra samstarf hér í bæjarstjórn Akraness. Einsog fyrr nota þeir nú tylliástæður, tilbún- ing — sem enginn kannast við, en þora ekki að beita fyrir sig raunverulegu ástæð- unum. Það, sem veldur því að þeir svikjast nú frá samstarf inu er ágreiningur um veitingu stöðu bæjargjaldkera. Þeir eru mótfallnir því að Gunnar Sigurðsson, sem verið hefur innheimtustjóri bæjarins í nokkur ár og hefur jafnframt gegnt stöðu bæjargjaldkera síðan í maí síðastliðnum, fái stöðuna, en hafa þó ekki nef nt til ann- an mann í hana. Þær ástæður, sem þeir tilnef na, eru tilbúningur og aðeins tylliástæður fyrir þá til aðhlaupastnúyfirtil Sjálfstæðisf lokksins og hef ja samstarf við hann,sagði Daníel- Ágústínusson, annar af fulltrúum Framsóknarf lokksins í bæjarstjórn Akraness, í viðtali við Tímann í gær. — Árangurinn er sá aö nú er kominn nýr meirihluti hér í baejarstjórn/ Sjálf- stæðisf lokkur, Aíþýðuf lokkur og Alþýðubandalag, sagði Daníel ennf remur, þótt ég fái ekki séð hvaðalþýðubandalagsmaðurinn er aðgera í honum Þessi nýi meirihluti, sem við fengum að vita af um leið og út- varpinu var sent bréfið um hann i morgun, hefur sent frá sér málefnaskrá en svo undarlega bregður við, að nær öll atriði þeirrar málefnaskrár og öll þau, sem einhverju máli skipta, eru beint upp úr mál- efnaskrá þeirri, sem vinstri meirihlutinn starfaði eftir og enginn ágreiningur var um. Agreiningurinn um ráðningu bæjargjaldkerans er eina atriö- ið, enda er það likt Alþýðu- flokknum og hans fulltrúum, að láta stöður og embætti skipta máli öðru fremur. Staða bæjargjaldkerans var auglýst laus til umsóknar i haust, og þegar umsóknarfrest- ur var liðinn höfðu aðeins borizt umsóknir frá tveim aðilum. Annar var skozkur maður i Reykjavik, en hinn var Gunnar Sigurðsson innheimtustjóri, sem gegnt hefur bæjargjald- kerastöðunni frá þvi i mai, vegna veikinda bæjargjaldker- ans sjálfs. Gunnar hefur staðið sig sér- staklega vel, bæði i stöðu sinni sem innheimtustjóri, svo og i störfum bæjargjaldkera, og þaö má vel koma fram, að bæði bæj- arstjóri og bæjarritari mæltu mjög eindregið með honum i starfið enda hafa þeir af honum góða reynslu. Annar alþýðuflokksfulltrúinn i bæjarstjórn var einmg tylgj- andi þvi að Gunnar fengi starf- ið, að minnsta kosti lýsti hann stuðningi við hann á einum fundi, en hinn kratinn, svo og al- þýöubandalagsmaðurinn, voru báðir á móti honum. Það verður fróðlegt að sjá hvort þessi nýi meirihluti i bæj- arstjórn launar nú Gunnari vel unnin störf i þágu bæjarins, með þvi að veita einhverjum öðrum, og þá liklega einhverjum sem ekki einu sinni sótti um starfið, stöðuna. Eins og ég sagði áður, sagði Daníel að lokum, þá er þetta i annað sinn sem alþýðuflokks- menn rjúfa vinstra samstarf á Akranesi, Fyrra skiptið var árið 1960, þegar þeir notuðu tylli- ástæður og upplognar sakir — sem þeir raunar voru siðar dæmdir fyrir i Hæstarétti — til þess að komast i hreiðrið með Sjálfstæðisflokknum. 1 þá daga höfðu þeir þrjá bæjarfulltrúa, en misstu einn þeirra eftir svik- in, þannig að nú lafa þeir i tveim. Mér þykir það ekki ólik- legt að þetta samstarfsrof þeirra verði til að svipta þá öðr- um þeirra. Þetta samstarf, sem flokk- arnir tveir nú rjúfa, hefur staðið um sjö ára skeið, og ég hygg aö óhætt sé að segja, að þetta tima- bil hafi verið mesta framfara- timabil i sögu bæjarins. Bæjar- félagið á eftir að búa lengi að þeim framkvæmdum sem unn- ar hafa verið og sem nú standa enn yfir. Sex sóttu um stöðu Kröfum Energo- projekts Allir ráðherrarnir hlynnfir stuðningi við landsliðið rannsóknar- lögregiu- stjórans Gsal-Reykjavik. — Skilafrestur umsókna um stööu rannsóknar- lögreglustjóra rikisins rann út á miðnætti 31. janúar. Að sögn Baidurs Möller ráðuneytisstjóra i dómsmálaráðuneytinu sóttu sex menn um þessa nýju stöðu. Þeir eru: Asgeir Friðjónsson sakadómari i ávana- og fikniefna- málum, Hallvarður Einvarðsson vararikissaksóknari, Haraldur Henrysson sakadómari, Hrafn Bragason borgardómari, Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður og Sverrir Einarsson sakadómari. Fljótlega mun verða skipað i þessa nýju stööu. Gsal-Reykjavik. — Stuðn- ingur við landsliðið í hand- knattleik var ræddur á ríkisstjórnarfundi, og mér og fjármálaráðherra var falið að gera tiilögur um málið fyrir næsta ríkis- stjórnarf und, sem verður á fimmtudaginn, sagði Vil- hjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra, í samtali við Tímann í gær. Ráðherra sagði, að væntanlega yrði tekin ákvörðun um máiið á þeim fundi. Timinn innti Vilhjálm eftir þvi, hvernig ráðherrar hefðu tekið þessum hugmyndum, og kvað hann þeim hafa verið vel tekið af öllum. — Ég held, að okkur sýnist öllum vera ástæða til þess að reyna að iiðka aðeins til fyrir landsliðinu, sagði ráðherrann. PALLI OG PÉSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.